Réttur


Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 13

Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 13
T)úinn að ná fullum þroska og yfirstíga ýmsa ann- marka, sem eru óhjákvæmilegir fylgihnettir hinnar .gömlu æsku, án þess þó, að þig sé farið að gruna, að nokkur elli sé til. Þú ert einmitt á þeim kapítuia, "þegar þrár manna hafa tekið á sig fast form, og þeir hafa fundið aðferð til þess að fullnægja þeim, án þess að eyða tímanum í dýrkeyptar tilraunir, sem b'era misjafnan árangur. Þú hefir sem sé fengið mikla lífs- reynslu, sem þó hefir ekki skilið eftir spor sorgarinnar á þínu hrukkulausa andliti. Þú hefir tamið þér örugga framkomu og óaðfinn- anlega eftir aðstæðum; hefir á þér snið auðmannsins, .sem veit, að hann er hornsteinn tilverunnar og þolir því allan mannjöfnuð, við hvaða manntegund sem er. Lífsskoðun þín er heilsteypt og laus við allaf efa- semdir og heilabrot. Kjarni hennar er að hafa fjár- hagslegan hagnað af því að vera til.Allt annað: trú, siðgæði, hugsjónir og álíka óáþreifanlegir hlutir, eru bara skurn utan um þann kjarna. Þess vegna ert þú alltaf ánægður með gerðir þínar, og þess vegna hefir þér tekizt að safna auði, sem nægir til þess að fullnægja þrám þínum og framkvæma óskir þínar, þó þær séu heimtufrekari en hjá flestum samborgurum þínum. Já, það er rétt, þú ert úr sveit, fjarlægri, lítilfjör- legri sveit. En þú komst ungur til borgarinnar og áttir þá enga aðra gjaldvoð, en skapgerð þína og áeggjan fátækra aðstandenda þinna um að komast áfram í heiminum. Þessi áeggjan var uppeldi þitt og trúar- játning, en takmark þitt settir þú þér sjálfur. Þ,ú áttir aldrei neina æskudrauma, sem stálu tíma þínum, hann fór óskiptur í köllun þína. Þú byrjaðir skeið þitt sem skósmíðalærlingur, en sást það fljótt, að verzlun var ólíkt máttugra tæki til þess að koma sér fram með, heldur en handiðn, eins og það er fljótvirkara til fjáröflunar að drepa fisk en að yrkja jörðina. 173

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.