Réttur


Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 22

Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 22
aldamót koma tvenn tilfinnanleg óáran yfir íslenzkan landbúnað. önnur var á 9. tug aldarinnar og orsökuð- ust af óvenjulegu harðæri fyrstu ár þess tugar. Þá komst sauðfé landsmanna niður í full 400 þús. árið 1889 úr 524, 516 árið 1881 og íbúum landsins fækkaði um hálft þriðja þúsund, því að óvenjulegir mannflutn- ingar voru af völdum harðæranna, bæði til Vestur- heims og annars heims, og jöfnuðust þannig dálítið hlutföllin milli mannfólks og sauðkinda. Ekki lét lög- gjafarvaldið þessi vandamál til sín taka nema að litlu leyti. Árin 1886—89 var þó veitt allmikil linun á skatti á ábúð og afnotum jarða og landsfé. En aftur á móti voru aðgerðir þess skarpari, þegar aftur harðn- aði að fyrir landbúnaðinum undir áramótin. Þá fækk- aði aftur sauðfé landsmanna úr nærri 600 þús. 1896 og í 462 þús. 1902, og þótt nú færi mannf jöldi vaxandi hér á landi með ári hverju, þá er það fyrst með árinu 1898, að fólki fer fækkandi í sveitinni. Þá er farið að hlynna að landbúnaðinum á nýjan hátt. 1899 voru gefin út lög um verðlaun fyrir útflutt smjör. Á þann hátt átti að hjálpa bændum og hvetja til að fram- leiða nýjar vörur fyrir nýjan markað og svara þannig erfiðleikum þessara ára, sem áttu rætur sínar í því, að sauðasalan til Englands hafði brugðizt. Verðlaunin voru miðuð við minnst 300 punda útf lutning frá manni eða félagi, kom þó ekki til greina nema verð færi yf- ir 75 aura pundið, en nam þá jafnmiklu og verðið fór yfir það lágmark og var þannig samhliða stefnt að því hvorutveggja að verðlauna vörumagn og vöru- gæði. Þessi verðlaun orkuðu líka óefað mjög mikið að tilætluðu marki. Rjómabúin þjóta upp hvert af öðru víðsvegar um land, og á skömmum tíma tekst að gera smjörið að útgengilegri verzlunarvöru. Á fjár- lögum fyrir árin 1902 og 1903, sem samþykkt voru 1901, er áætlað til þessara verðlauna aðeins ein þús. króna. En fjórum árum síðar er þessi sami liður áætl- aður 36 þúsundir. 182

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.