Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 26
.Arthur Köstleri
á Spáni.
Breiðfylkingin
„Vakna þú Spánn!“
(Brot úr I. kafla bókarinnar, „Ferð til höfuðstöðva
uppreisnarmanna“ ).
Frá Lissabon til landamærastöðvarinnar Ayamonte,
er farið með áætlunarlest. Áin Guadiana skiptir lönd-
um. Við erum fluttir yfir á ferju. Á þessum stað er
engin brú. Á þessum stað vörpuðu flóttamenn sér í
ána fyrir þrem dögum, og reyndu að komast á sundi
inn yfir landamærin í hlutlaust land, að því er þeir
hugðu. Breiðfylkingarmenn skutu á eftir þeim úr
byssum sínum, og með því að Portúgölum á hinum
bakkanum þótti þetta góð dægradvöl, gerðu þeir slíkt
hið sama. Ekki einn einasti af föngunum náði landi
lifandi. Hefði einhver gert það, hefði hann verið send-
ur yfir um aftur.
Milli Ayamonte ogSevilla gengur almenningsbifreið.
Þjóðvegurinn liggur um Huelva og La Palma del
Condodo, það er segja um hérað, sem verið hefir í
höndum uppreisnarmanna frá byrjun að kalla. Samt
virðist megnasti glundroði ríkja í þeim þorpum, sem
við förum um. í hverjum smábæ, sem við komum til
endurtekur sig sami gráthlægilegi leikurinn: bifreiðin
stanzar, hópur mapna, sem áður sátu masandi undir
ráðhúsinu, kasta sígarettum frá sér, grípa byssurnar,
umkringja bílana. Útlit þeirra vekur ekki traust
manns. Ef maður ætti ekki að vita að þeir eiga að
halda uppi lögum og reglu, myndi maður halda, að
þeir væru stigamenn.
„Vakna þú Spánn — allir út úr bílunum!“ Nú hefst
ákaflega óþægileg rannsókn á vegabréfum og far-
angri. Hlaupin á hlöðnum byssunum aðstoða við það
verk. Við erum flest vel til fara í bílnum. Hinn eini
grunsamlegi, er ungur maður í vinnufötum. Hann er
186