Réttur


Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 16

Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 16
Nýtf bókmentafélag atofnað. Eftir Krcstlnn E. Andrésson. Hinir róttæku menntamenn þjóðarinnar hafa að mestu leyti verið útilokaðir frá þátttöku í hinu opin- bera menningarstarfi þjóðfélagsins. Það var t.d. ein- stakt tækifæri fyrir kosningarnar að heyra rödd stærstu skálda þjóðarinnar í Ríkisútvarpinu, þegar hlutleysis- grímunni var svipt burtu þrjú kvöld. Annars fær þjóð- in ekki að heyra til sinna beztu manna, fæstra þeirra. sem eitthvað raunverulegt hafa að flytja henni. Þeirra nýtur ekki frekar við aðrar menntastofnanir, t.d. skól- ana, þaðan eru þeir útreknir Engu að síður eru það hinir róttæku rithöfundar, skáld og menntamenn, sem nú halda sterkustu lífi í ís- lenzkri menningu. Með dugnaði og fórnfýsi hafa þeir af eigin rammleik brotið sér leið til áheyrnar fólksins, aðallega með bókum sínum eða, ritgerðum. Fyrir nokkrum árum stofnuðu byltingarsinnaðir rit- höfundar félag með sér og sköpuðu síðan ársritið „Rauða penna“, sem komið hefir út í tvö ár, og markað hefir tímamót í íslenzkri bókmenntasögu. Með aðstoð nokkurra frjálslyndra manna stofnuðu þeir einnig „Bókaútgáfuna Heimskringlu", til þess að tryggja al- þýðu sem beztar og ódýrastar bækur. Þessi fyrirtæki þeirra hafa heppnazt, þau hafa vaxið og aukizt að vin- „sældum. Hinir róttæku frumherjar á sviði menningar- málanna hafa þrátt fyrir allar skorður náð góðri áheyrn fólksins. En þeir ætla sér ekki að láta hér við sitja. Þeir hugsa til ennþá víðtækari starfsemi. í rauninni verður hið allra fyrsta að koma nýju skipulagi á alt menningar- starf þjóðarinnar, veita fræðslu til almennings, og það fræðslu, sem vekur skilning á þjóðfélagsháttunum, lífs- 176

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.