Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 10
ustu við sinn eigin málstað. Gagnið af samfylkingu al-
þýðunnar á móti auðvaldinu er auðvellt að útskýra
jafnvel fyrir þeim fáfróðustu, en það er hætt við að
það verði torvelt að útskýra fyrir slíku fólki hvaða
vit sé í að kjósa innbyrðis sundurþykka vinstrifylk-
ingu. Takist samfylking fyrir næstu kosningar í
Reykjavík, þá stendur baráttan í bænum milli upp-
lýsingarinnar og íhaldsins.
Upplýsingin gegn íhaldinu, — það er til þessarar
upplýsingarstarfsemi sem vinstriflokkarnir verða að
samfylkja, hvað sem hver segir. Og þeir skulu sam-
fylkja hvað sem hver segir. Og samfylkingu þeirra
skal síðan fylgja sú fullkomna sameining vinstriflokk-
anna um róttæka stjórnarstefnu, sem mun útrýma með
öllu auðvaldsskipulaginu hér á landi og byggja upp
samvirkt lýðræðisríki á íslandi.
Onnur perséna í eintcilu.
Eftir Halldór Stefánsson.
Þú lokar útihurðinni á húsi þínu og gengur út á
götuna, lítur snöggvast til baka og virðir fyrir þér
með velþóknun framhliðina á þessu fallega einbýlis-
húsi, sem þú hefir látið byggja þér í samræmi við
þínar núverandi óskir og kröfur þær, sem þú nú-
orðið gerir til lífsins og lífið gerir til þín.
Það er þess virði þetta hús, að þú stanzir andar-
tak til þess að horfa á það. Það er bæði fagurt og
hefir kostað mikla peninga, og það stendur þarna,
á þessari dýru lóð, eins og minnismerki um full-
komnun þína. Þú getur að sönnu byggt þér ennþá
stærra hús og miklu dýrara, eða mörg hús, því það
eru engin takmörk fyrir því, hvað þú getur orðið
ríkur og. hvað þú getur afrekað mikið. En hversu
miklar og stórar, sem þær byggingar yrðu, mundi
170