Réttur


Réttur - 01.07.1937, Page 15

Réttur - 01.07.1937, Page 15
þau sannvirði. Stjórnmál eru, að áliti þínu, verzlunar- vara en ekki hugsjón. Menntun þín takmarkast við eftirspurn. Nú átt þ ú allt: Þetta makalausa hús, sem að utan og innan ber af öllu, sem þekkist af því tagi í borg- inni. Það er gætt öllum nútímaþægindum og skrauti. Málverk eru þar, hljóðfæri og bækur; þú hefir keypt það. Bíla áttu, hesta, sumarbústað og seglbát. Svo áttu þessa konu. Fallegustu konuna, sem þú gazt fengið í þessari borg — rík var hún líka. Hún er ennþá ung og ákaflega lífsglöð. Þér þykir mjög vænt um hana og ert henni góður; gefur henni allt, sem hún óskar og margt fleira. Hún hefir aldrei þurft að hafa neinar áhyggjur. Þú hefir vanalega aðskilið heimilið og skrifstofur þínar. Um störf þín talar þú aldrei við hana, bara um skemmtanir, ferðalög, skáldsögur og bæjarfréttir. Heimili ykkar er stjórnað af afburða- ráðskonu og börn ykkar hafa sitt þjónustulið og einka- kennara. Konan þín á sinn tima sjálf og getur ráðstaf- að honum eftir eigin geðþótta. — í kvöld er hún ein heima. En það er satt, þú ert úr sveit og átt ennþá heitt bióð og velþroskaða kirtla. Þú hefir aldrei skemmt þessa fjársjóði á vínnautn eða öðrum eiturlyfjum. Þvert á móti hefir þú ávaxtað þá (eins og alla aðra fjársjóði þína). Þú hefir elft þá með íþróttum. Fyrst hljópstu, svo syntir þú og nú ert farinn yfir í golf. Og þú átt í lífi þínu grænan blett, sem ekki er í neinum skyldleika við kaupsýslu og auðsöfnun, en á uppsprettu sína í þínum hrausta líkama: Þú elskar konur. Þú hefir elskað margar konur, og síðan þú kvæntist hefir þú jafnan átt hjákonur. Þú ert nú á leiðinni til þeirrar seinustu. Þú stanzar við húsið sem hún býr í, tekur upp lykil og opnar dyrnar. Síðan hverfur þú inn. í sama mund eru dyrnar á þínu eigin íbúðarhúsi opnaðar og inn um þær fer — ég. 175

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.