Réttur - 01.01.1984, Blaðsíða 19
fólks frá stofnun þess 1975 til 1979.
Þessi þurra upptalning á öllum þeim
mismunandi sviðum verkalýðshreyfingar-
innar, sem Birni var falið að starfa á, gef-
ur þeim, sem til slíkra starfa þekkir,
nokkra hugmynd um hvílíka elju, fórn-
fýsi og forustuhæfileika þurfti til þess að
valda öllum þeim verkefnum, er þar varð
að leysa af hendi.
En áhugi Björns takmarkaðist ekki við
ísland eitt. Sem góður sósíalisti skildi
hann til fulls hve alþjóðahyggjan er nauð-
synleg sósíalismanum og öllum þeim
verkalýð, er ætlar sér fyrir alvöru að ná
frelsi sínu og völdum. Þessvegna var
Björn þátttakandi í stofnun Alþjóða-
sambands verkalýðsfélaga 1945, átti sæti
í 45 manna nefnd, er undirbjó stofnun
þess. Þegar „hernaðar- og stóriðjuklíka“
Kananna hóf Kalda stríðið og lét kljúfa
Alþjóðasambandið, hélt Björn tryggð
sinni við þá, sem vilja einingu alls verka-
lýðs gegn auðdrottnum heims. Og 1978
var Björn í Prag og mynd þá tekin af
þeim fáu, sem enn voru á lífi af stofnend-
um Alþjóðasambandsins, en þing þess
var haldið þar.
Björn var harður og hreinskilinn jafnt
sem bardagamaður sem leiðtogi. Greinar
hans og ræður báru einkenni mannsins:
fá orð í fullri meiningu.
Nánasti samstarfsmaður hans og vinur,
Guðmundur P. Jónsson, segir réttilega
svo frá einkalífi hans í eftirmælum í Þjóð-
viljanum 31. janúar:
„Björn var tvígiftur. Fyrri kona hans,
1925, var Brynhildur Magnúsdóttir
verkamanns í Reykjavík Einarssonar og
Katrínar Magnúsdóttur. Þau eignuðust
einn son, Póri. Þau skildu. Seinni kona
hans, 1959, var Guðný Sigurðardóttir al-
þingismanns í Reykjavík og fyrrverandi
formanns Dagsbrúnar Guðnasonar og
k.h. Kristínar Guðmundsdóttur. Þau
Guðný bjuggu sér hlýlegt og fallegt heim-
Björn í viðtali við Álfheiði Ingadóttur um tímabil
Koinmúnistaflokksins, sem hann kallar „Lang-
skemmtilegasta tímabil ævi minnar“. (I Rétti 1981,
bls. 36-38.)
ili við Bergstaðastræti, svo af bar í smekk-
vísi. Milli þeirra hjóna ríkti gagnkvæmt
traust og skilningur. Björn talaði ekki oft
um einkamál sín, en það duldist engum,
sem til þekktu, að ást hans og virðing fyr-
ir Guðnýju var einlæg. Pað var Birni mik-
il gæfa að eiga Guðnýju að förunaut. í
veikindum hans síðustu mánuðina veitti
Guðný honum alla þá umhyggju og ástúð
sem unnt er að veita.“
Verkalýður sá og samstarfsmenn aðrir,
er með Birni unnu, munu ætíð minnast
þessa góða baráttumanns. Ástvinum hans
eru sendar innilegar samúðarkveðjur.
EINAR OLGEIRSSON
SKÝRINGAR:
1 Þeir Guðmundur Þ. Jónsson og Haraldur Jó-
hannsson hafa lýst æskuárum Björns svo vel í
„Þjóðviljanum" 31. janúar að ekki verður það
endurtekið hér, en vísað til þeirra lýsinga fyrir
þá, er vilja kynna sér hver kjör æsku verkafólks
voru skömmtuð í þá tíð. Þeir, sem eigi tókst að
brjóta á þessum tíma, hafa harðnað við. Svo var
um Björn.
19