Réttur - 01.07.1984, Qupperneq 63
INNLEND BljBB ■
VÍÐSJÁ ■ I^B 1
mánaða verkföllum og samningum við
þennan ofstækislýð, til þess að reyna að
ná einhverju aftur af ránsfengnum. Bóka-
gerðarmönnum tókst með 6 vikna verk-
falli að ná til baka nokkru meir en helm-
ingnum af hinu þjófstolna kaupi harð-
stjóranna, en B.S.R.B. stendur enn í
samningum og hörðu verkfalli þegar
þetta er ritað (28.10), en A.S.Í. sér í sín-
um samningum enn ekki fyrir endann á
mánaðarþófi.
Það er vissulega orðið íslensku launa-
fólki dýrt að hafa látið íhald og Framsókn
fá meirihluta á Alþingi til þessara ill-
verka, — og ættu launastéttir landsins,
meirihluti þjóðarinnar, að læra af þessari
dýrkeyptu reynslu að kjósa þá flokka aldrei
framar. Því þeir hafa framið pólitískustu
árás, sem gerð hefur verið á launafólk
landsins á þessari öld með hinum svívirði-
legu bráðabirgðalögum sínum.
Það eru auðséð á öllum árásum aftur-
haldsins á lífskjör alþýðu og þjóðarinnar
fingraför Alþjóðabankans og bandaríska
auðvaldsins. Það auðvald ætlaði strax
með Marshall-„aðstoðinni“ að skapa sér
hér forríka fámenna drottnandi auð-
mannastétt, — þessvegna áttu Sements-
verksmiðjan og Áburðarverksmiðjan að
vera í einkaeign, — en þá var ekki undan
látið. Og með „lögunum“ 1950 er dollar-
inn var hækkaður úr rúmum 6 krónum í
rúmar 16, - en halda skyldi Iaununum
niðri, — þá átti að svifta alþýðu flestum
þeim lífskjarabótum, er hún hafði áunnið
sér 1942-47. — Það er því höggvið í sama
knérunn nú um rán þjóðareigna og kaup-
gjalds launafólks og enn geypilegar. En
bandarískt auðvald og „íslenskir“ þjónar
þess hafa enn ekki áttað sig á því; — að
alþýða lands vors man enn margra alda
nýlendukúgun erlends valds og lætur ekki
baráttulaust hrinda sér niður í fátækt og
eymd á ný.
31. október 1984
Að kveldi þess 30. október voru undir-
skrifaðir samningar milli B.S.R.B. og
ríkisins eftir næstum mánaðarlangt verk-
fall sem B.S.R.B. hefur háð af hetjuskap
og harðfylgi. Fer samningurinn nú til alls-
herjaratkvæðagreiðslu. Það hefur tekist
með því, ef samþykkt verður, að ná rúm-
um helming af ránsfengnum. — Og hver
sem úrslit verða nú, þá er auðséð að
B.S.R.B, sem nú er í fylkingarbrjósti í
frelsisbaráttu vinnandi fólks gegn ráns-
stjórninni, þarf strax að hefja undirbún-
ing á faglega og pólitíska sviðinu, til að
ná í næstu lotu fullum sigri, endurheimta
fyrri lífskjör og réttindi. — Og eigi það
ekki að verða eins dýrt og fórnfrekt og
nú var, þá væri best að í millitíðinni tæk-
ist að reka þessa ríkisstjórn frá völdum,
sem mestöll er aðeins til óþurftar landi og
lýð.
í 4. hefti Réttar verður verkfalls- og
kaupgjaldsbaráttan rakin og rædd.
175