Réttur - 01.04.1989, Blaðsíða 16
ÍSLAND OG EVRÓPUBANDALAGIÐ
Afstaða
Alþýðubandalagsins
Samþykkt þingfíokks AB 20. mars 1989
um viðskiptahagsmuni Islendinga vegna
fundar forystumanna EFTA í Osló
og samskipta við Evrópubandalagið
„Þingflokkur Alþýðubandalagsins lýsir yfir ánægju með þann árangur sem
náðist á fundi leiðtoga EFTA-ríkjanna í Osló 15. mars sl. varðandi fríverslun
með fiskafurðir innan EFTA. Þótt viðskipti með fisk séu ekki mikil milli EFTA-
ríkjanna, getur stefnuyfirlýsing um þetta efni haft verulega þýðingu þegar reynir
á samninga á víðari vettvangi, m.a. innan GATT og við Evrópubandalagið.
Meginefni Óslóarfundarins varðaöi
hins vegar afstöðu EFTA-ríkjanna til
Evrópubandalagsins og breytingar á starfi
EFTA með tilliti til innri markaðar EB.
Þar er um að ræða mál, sem skipt getur
sköpum um stöðu Islands í alþjóðasam-
skiptum og efnahagsþróun hérlendis. ís-
lendingar geta ekki fallist á neinar yfir-
þjóðlegar stofnanir í tengslum við EFTA
og verða vegna fámennis síns að gæta
fyllstu varúðar í sambandi við flutninga
fjármagns, þjónustu og vinnuafls til og frá
landinu.
Þingflokkur Alþýðubandalagsins tekur
því eindregið undir þá fyrirvara, sem
Steingrímur Hermannsson forsætisráð-
herra geröi við yfirlýsingu fundarins, eins
og fram kom í ræðu hans í Ósló. f*ar tók
forsætisráðherra fram, að íslendingar
geta aldrei gefið sig á vald yfirþjóðlegum
stofnunum og að samstarf af íslands hálfu
innan EFTA og við Evrópubandalagið
varðar fyrst og fremst frjálsa verslun með
varning. Hins vegar hefur ísland fyrirvara
að því er varðar ákvæði Óslóaryfirlýsing-
arinnar um fjármagnshreyfingar, þjón-
ustu og fólksflutninga.
Hér hefur forsætisráðherra slegið skýra
varnagla, sem taka verður fullt tillit til
framvegis á vettvangi EFTA og í sam-
skiptum við Evrópubandalagið.
Fau atriði sem að mati þingflokksins
þarf sérstaklega að gæta að og varða sér-
stöðu íslands eru:
1. Að ísland afsali sér engu valdi í eigin
málum til ákvarðana innan EFTA.
64