Réttur


Réttur - 01.04.1989, Blaðsíða 37

Réttur - 01.04.1989, Blaðsíða 37
FRÁ FISKIPINGI í OKTÓBER 1989 Magnús Gunnarsson, framkvœmdastjóri SÍF: s Islendingar þurfa fímmta frelsið Evrópubandalagið og íslenskur sjávarútvegur Það fer ekki fram hjá neinum, sem fylgist með alþjóðlegum stjórnmálum, að mikil umbrot eiga sér stað í heiminum umhverfís okkur. Samskipti austurs og vesturs eru að taka stórfelldum breytingum, sem væntanlega eiga eftir að hafa mikil áhrif á þróun samstarfs þjóða í náinni framtíð, bæði á sviði stjórnmála og efnahagsmála. Nýjar aðstæður eru að skapast í samskiptum Austur- og Vestur- Evrópu sem opna munu nýja viðskiptamöguleika. Innan Gatt eiga sér nú stað viðræður um bætta viðskiptahætti, lækkun tolla og minnkun styrkja í atvinnurekstri. Þessar viðræður eru sérstakar fyrir það, að þar er nú ekki verið að ræða eingöngu um viðskipti með iðnaðarvörur, heldur einnig með landbúnaðarafurðir og þjónustu. Þar skiptir máli fyrir íslendinga hvernig fiskur og viðskipti með fisk, verða meðhöndluð, en enn er óljóst hvar sjávarafurðir verða flokkaðar í þessum viðræðum. Fyrir vestan okkur hafa Kanada og Bandaríkin undirritað fríverslunarsamn- ing sem mun gera þetta stóra svæði að einum markaði og auðvelda öll viðskipti á milli landanna. Með þessum samningi styrkist staða eins samkeppnisaðila okkar í sölu á sjávarafurðum, Kanadamanna, á markaði N-Ameríku og því er nauðsyn- legt fyrir okkur að halda þar vel á spöðunum í allri markaðsstarfsemi, svo áhrif þeirra aukist ekki um of. Þegar er hafin umræða um að Mexico gerist innan skamms aðili að þessum fríverslunar- samningi. Síðast en ekki síst eiga sér nú stað miklar breytingar innan Evrópu, sem geta haft veruleg áhrif á þróun viðskipta- og efnahagsmála hér á landi. Sú ákvörð- un þjóða Evrópubandalagsins að öll lönd- 85 L

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.