Réttur


Réttur - 01.04.1989, Side 28

Réttur - 01.04.1989, Side 28
FRÁ RÁÐSTEFNU AB, FEBRÚAR 1989 Birgir Björn Sigurjónsson, framkvœmdastjóri BHMR: Hagsmunir íslenskra launamanna í heimi stækkandi viðskiptaheiida gjj 'W V jl V. W'; JB Hvaða efnislegu sjónarmið ráða al- mennt afstöðu launamanna og stéttarfé- laga til stækkandi viðskiptaheilda og hvað gildir sérstaklega um EB? í umræðunni um EB á íslandi undanfariö minnist ég þess ekki að kynnt hafi verið sjónarmið stéttarfélaga, hvorki innan eða utan EB, á bandalaginu og áformum Hvíta kvers- ins. Þetta er sérstaklega athyglisvert í Ijósi þess, að mikið starf hefur verið unn- ið á vegum stéttarfélaga, í heildarsamtök- um þeirra og í alþjóðasamtökum þeirra um þetta efni. Afstaða mjög margra stétt- qrfélaga er líka í meginatriöum neikvæð bæði gagnvart starfsháttum EB í dag og gagnvart þeim stórveldisáformum sem felast í áformum EB um Innri markað eða jafnvel Bandaríki Evrópu. Ég ætla að leyfa ykkur að heyra dæmi um tíu spurningar sem stéttarfélög á Norðurlöndum og samtök stéttarfélaga innan EB hafa spurt fyrir hönd sinna fé- lagsmanna, þegar afstaðan til EB og áformanna um Innri markað hefur verið í mótun. Ég reyni að gefa mín svör við þessum spurningum. Spurningarnar varða laun, vinnuumhverfi, stöðu stéttarfélaga og lýðræði eins og ástandið er í EB-lönd- um í dag og miðað við áform um Innri markað. 1. Munu kjör launamanna batna? Laun íslenskra launamanna eru al- mennt miklu lakari en laun í hinum ríkari EB-löndum. Nálgun íslensks vinnumark- aðar við EB-markaðinn gæti lcitt til þess að launamismunur milli íslenskra launamanna og starfsbræða þeirra erlend- is muni minnka. Könnun á launakjörum ýmissa hópa launamanna í EB-löndunum sýnir þó, að launamunur er allmikill milli þessara landa. Sennilcga mun þessi mun- ur minnka við tilkomu Innri markaðar EB. Launin eru hins vegar jafnan lang- lægst á Islandi. Ég hygg að annað tveggja verði að draga úr þessum launamun með 76

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.