Fréttablaðið - 05.03.2009, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Ég hitti kunningja í sturtunni. Við þurrkuðum fagurlega skap-
aða líkama okkar og ræddum um
(bætið við hryllingsáhrifamúsik í
huganum) Ástandið.
MAÐUR var svaka áhugasam-
ur fyrst og lá yfir öllum frétta-
tímum, sagði kunninginn, „en svo
núna veigrar maður sér við að hafa
kveikt á fréttunum. Fólk er alveg
að missa sig í svartnættinu. Ekkert
nema drungi og vonleysi. Maður vill
bara vernda fjölskylduna sína fyrir
þessu. Maður býður ekki krökkun-
um upp á kreppu allan sólarhring-
inn.“
JÁ, ÞAÐ hefur orðið algjör við-
snúningur,“ sagði ég. „Þjóðin er
eins og geðhvarfasjúklingur. Fyrir
stuttu var allt æðislegt. Bankar skil-
uðu skrilljón í hagnað á fyrsta árs-
fjórðungi, hús sem enginn myndi
nota þutu upp um allt land, allir sáu
framtíð sína í rósrauðum bjarma,
en núna er allt í steik og fólk voða
ánægt með launalækkun bara ef
það heldur vinnunni. Af hverju þarf
alltaf allt að vera annaðhvort í ökkla
eða eyra hérna?“
ÓSKILJANLEGT,“ sagði kunning-
inn. „Hvernig væri að ná bara ein-
hverjum jöfnum og góðum dampi?“
bætti ég við. „Ég skil ekki hvern-
ig við höfum getað fokkað málum
okkar svona gjörsamlega upp. Ég
meina, örfáar hræður á skeri fullu
af náttúruauðlindum og meintri
snilld fólksins, en samt erum við
með allt niðrum okkur.“
MMM-HMM,“ sagði kunninginn,
sem var farinn að raka sig. Ég elti
hann að vaskinum og hélt áfram að
mala. „Fyrir nokkrum árum þegar
Steingrímur Joð var með eitthvert
stjórnarandstöðu svartsýnisraus á
Alþingi skammaði Davíð Oddsson
hann. Spurði hvort hann ætlaði að
bera ábyrgð á því að „tala góðærið
niður“. Þá mátti ekki blása á spila-
borgina.“
ÆI, DAVÍÐ. Gimmí a breik,“ sagði
kunninginn. „Já já,“ sagði ég. „En
þetta er samt alveg satt sem karlinn
sagði um að það vantaði einhvern til
að blása þjóðinni stuði í brjóst. Og
ekki með úreltu gildunum. Þjóðin
var montin, gráðug og heimsk. Það
þarf ný gildi. Ný markmið. Ekki ein-
hverja steypu um að við eigum að
vera „ríkasta þjóð í heimi“. Við þurf-
um ekki einu sinni að vera eitthvað
„í heimi“. Það þarf bara að hamra
á góðu gildunum. Jafnræðinu. Að
við séum í þessu saman. Að þjóðfé-
lagið sé metið út frá því hvernig sá
aumasti hefur það, ekki sá sterkasti.
Einn fyrir alla, allir fyrir einn!“
HEI, rólegur á framboðsræðunni,“
sagði kunninginn og glotti.
Ástandsmat
í sturtu
Í dag er fimmtudagurinn 5.
mars, 64. dagur ársins.
8.21 13.39 18.59
8.09 13.24 18.40
VIÐSKIPTAÞING 2009
ENDURREISN
HAGKERFISINS
Á HILTON REYKJAVÍK NORDICA FIMMTUDAGINN 12. MARS 2009 KL. 13:20 - 17:00
13:00 SKRÁNING
13:20 RÆÐA FORMANNS VIÐSKIPTARÁÐS
ERLENDUR HJALTASON, FORSTJÓRI EXISTA
13:35 RÆÐA FORSÆTISRÁÐHERRA
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
13:50 CRISIS 101: WHAT TO DO AND NOT TO DO?
PEDRO VIDELA, PRÓFESSOR VIÐ IESE BUSINESS SCHOOL
14:10 SPURNINGAR ÚR SAL
14:25 KAFFIHLÉ
14:50 AFHENDING NÁMSSTYRKJA VIÐSKIPTARÁÐS
KATRÍN JAKOBSDÓTTIR, MENNTAMÁLARÁÐHERRA
15:00 ÁHERSLUR STJÓRNMÁLAFLOKKANNA
UMRÆÐUR UNDIR STJÓRN BOGA ÁGÚSTSSONAR
15:40 VIÐBRÖGÐ ATVINNULÍFSINS
UMRÆÐUR UNDIR STJÓRN BOGA ÁGÚSTSSONAR
16:20 MÓTTAKA Í BOÐI VIÐSKIPTARÁÐS ÍSLANDS
DAGSKRÁ:
INGIBJÖRG S.
GÍSLADÓTTIR
FORMAÐUR
SAMFYLKINGARINNAR
GUÐJÓN A.
KRISTJÁNSSON
FORMAÐUR
FRJÁLSLYNDA
FLOKKSINS
GEIR H. HAARDE
FORMAÐUR
SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKSINS
SIGMUNDUR D.
GUNNLAUGSSON
FORMAÐUR
FRAMSÓKNAR-
FLOKKSINS
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
FORMAÐUR VINSTRI
HREYFINGARINNAR
GRÆNS FRAMBOÐS
SVAFA
GRÖNFELDT
REKTOR HÁSKÓLANS
Í REYKJAVÍK
KRISTÍN
PÉTURSDÓTTIR
FORSTJÓRI AUÐAR
CAPITAL
JÓN SIGURÐSSON
FORSTJÓRI
ÖSSURAR
TÓMAS MÁR
SIGURÐSSON
FORSTJÓRI ALCOA
FJARÐAÁLS
VILHJÁLMUR
ÞORSTEINSSON
STJÓRNARFORMAÐUR
CCP
PEDRO VIDELA
PRÓFESSOR Í
HAGFRÆÐI
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
FORSÆTISRÁÐHERRA
ERLENDUR
HJALTASON
FORSTJÓRI EXISTA
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
MENNTAMÁLA-
RÁÐHERRA
JÓN KARL
ÓLAFSSON
FUNDARSTJÓRI
BOGI ÁGUSTSSON
STÝRIR UMRÆÐUM
SKRÁNING Á WWW.VI.IS EÐA Í SÍMA 510-7100