Fréttablaðið - 05.03.2009, Blaðsíða 10
10 5. mars 2009 FIMMTUDAGUR
Guðbergur Egill
Eyjólfsson gefur kost
á sér í 2. til 3. sæti á
lista Vinstri grænna
í Norðausturkjör-
dæmi.
Grímur Atlason gefur
kost á sér í 1. til 2.
sæti á lista Vinstri
grænna í Norðvestur-
kjördæmi.
Karólína Einarsdóttir
gefur kost á sér í
3. til 4. sæti á lista
Vinstri grænna í Suð-
vesturkjördæmi.
Andrés Magnússon
gefur kost á sér
í prófkjöri Vinstri
grænna í Suðvestur-
kjördæmi.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR
Rósa Guðbjarts-
dóttir gefur kost
á sér í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í
Suðvesturkjördæmi.
Jón Magnússon
gefur kost á sér í
3. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík.
Ármanns Kr. Ólafs-
son gefur kost á
sér í 2. til 3. sæti í
prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Suðvestur-
kjördæmi.
ERLENTP ÓFKJÖR
PRÓFKJÖR
FRAMSÓKNARFLOKKUR
Bernharð Arnarson
sækist eftir 5. til 8.
sæti á lista Fram-
sóknarflokksins í
Norðausturkjör-
dæmi.
Styrmir Þorgilsson
sækist eftir 2. til 4.
sæti á lista Fram-
sóknarflokksins í
Suðvesturkjördæmi.
Bryndís Bjarnarson býður sig fram í
2. sæti á lista Framsóknarflokksins í
Suðvesturkjördæmi.
VINSTRI GRÆN
Einar Ólafsson gefur
kost á sér í 5. til 6.
sæti á lista Vinstri
grænna í Suðvestur-
kjördæmi.
STJÓRNMÁL Borgarahreyfingin
– þjóðin á þing ætlar að bjóða
sig fram til Alþingis í öllum
kjördæmum undir listabókstafnum
O. Hreyfingin óskar eftir því
að þeir hafi samband sem
tilbúnir eru að taka sæti á
listum. Forsvarsmennirnir vilja
félagshyggjustjórn og útiloka
samstarf við Sjálfstæðisflokkinn
við hugsanlegar stjórnar -
myndunarviðræður í vor.
B orga ra h rey f i ng i n hélt
blaðamannafund í Iðnó í gær þar
sem stefna framboðsins var kynnt.
Hreyfingin hefur eina meginreglu
að leiðarljósi, sem er að færa völdin
frá flokksræði til lýðræðis.
Meðal þess sem fram kom á
fundinum er að meðlimir Borg-
arahreyfingarinnar vilja að eign-
ir efnamanna sem grunaðir eru
um fjármálamisferli séu frystar
strax, að þjóðareign yfir auðlind-
um verði tryggð og að fimm pró-
senta þröskuldurinn svokallaði
verði afnuminn.
Þá vill Borgarahreyfingin að
landsmenn semji sína eigin stjórn-
arskrá. Það verði best gert með því
að velja fulltrúa á stjórnlagaþing
með slembiúrtaki úr þjóðskrá.
Borgarahreyfingin stefnir að
því að leggja sjálfa sig niður þegar
markmið hennar hafa náðst eða ef
ljóst verður að þau muni ekki nást.
- sh
Borgarahreyfingin stefnir á framboð til Alþingis í öllum kjördæmum:
Útilokar samstarf við D-lista
PALESTÍNA, AP Hillary Clinton,
dómsmálaráðherra Bandaríkj-
anna, sakar Ísraela um að torvelda
friðarviðræður við Palestínumenn
með því að eyðileggja íbúðarhús
Palestínumanna í Jerúsalem.
Hún hitti í gær Mahmoud
Abbas, forseta Palestínustjórnar,
í bænum Ramallah á Vesturbakk-
anum og lýsti eindregnum stuðn-
ingi sínum við hann. Hún sagði
stjórn Fatah-samtakanna, sem
Abbas er í forsvari fyrir, „hina
einu lögmætu stjórn Palestínu-
manna“, en minntist ekki orði á
Hamas-samtökin sem unnu kosn-
ingasigur fyrir tveimur árum og
mynduðu ríkisstjórn, sem síðan
hraktist frá völdum í átökum við
Fatah-samtökin.
Að fundi þeirra Abbas loknum
sagðist Clinton ætla að vinna af
fullum krafti að lausn á hinum
langvarandi deilumálum Ísraela
og Palestínumanna.
Stuttu áður höfðu ísraelsk
stjórnvöld skýrt frá því að fimm
íbúðarblokkir Palestínumanna
í austanverðri Jerúsalem verði
jafnaðar við jörðu. Ljóst þykir að
húsin séu rifin til þess að styrkja
yfirráð Ísraela yfir þessum hluta
borgarinnar, sem Palestínumenn
vilja að verði höfuðborg sjálfstæðs
ríkis þeirra.
Í vikunni hitti Clinton einnig
ísraelska ráðamenn, þar á meðal
Shimon Peres forseta og Benjamin
Netanjahu, sem væntanlega verð-
ur orðinn forsætisráðherra Ísraels
innan fárra vikna. - gb
Hillary Clinton lýsir stuðningi við Palestínustjórn Fatah-samtakanna:
Gagnrýnir framferði Ísraels
CLINTON OG ABBAS Clinton lýsti yfir ein-
dregnum stuðningi við Palestínustjórn
Fatah-samtakanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FRAMBOÐIÐ KYNNT Herbert Sveinbjörnsson, þriðji frá vinstri, er formaður hreyfing-
ar innar, og Birgitta Jónsdóttir, önnur frá vinstri, er varaformaður. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÓTBLAK Þó Brasilíumenn séu
annálaðir fótboltaiðkendur láta sumir
sér ekki nægja árangur í þeirri íþrótt.
Þessir kappar skemmtu sér í því sem
kalla mætti fótblak á ströndinni við
Rio de Janeiro og sýndu mikil tilþrif.
NORDICPHOTOS/AP