Fréttablaðið - 24.03.2009, Side 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
EFNAHAGSMÁL Viðskiptabankarn-
ir Glitnir, Kaupþing og Lands-
banki, ásamt SPRON, greiddu út
í arð samtals 82 milljarða, 318
milljónir og 684 þúsund krónur
á fjórum árum, frá 2004 til 2007.
Þetta kemur fram í ársreikningum
bankanna.
Mest greiddi Kaupþing á tíma-
bilinu, eða 39,7 milljarða. Glitnir
greiddi 21,5 milljarða og SPRON
rúma ellefu milljarða. Landsbank-
inn greiddi minnst út, eða tæpa tíu
milljarða.
Greiðslurnar stigmagnast frá ári
til árs, utan að Kaupþing lækkar
greiðslur í rúma tíu milljarða 2007,
úr tæpum 25 milljörðum 2006.
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri
grænna, ræddi á Alþingi í gær um
arðgreiðslur í bankakerfinu. Stóran
hluta þeirra mætti rekja til hækk-
aðrar viðskiptavildar, sem auki
hagnað á pappírunum, og heimili
útgreiðslu arðs. Með því að hækka
hana hefðu bankarnir getað skapað
„loftbóluhagnað og í kjölfarið loft-
bóluarðgreiðslur“.
Atli hefur sent sérstökum sak-
sóknara og rannsóknarnefnd
Alþingis erindi um þetta. „Ég hélt
að bankarnir hefðu greitt meira út,
en það er engu að síður rannsókn-
arefni hvernig mat á viðskiptavild
hefur þróast síðan einkabankarn-
ir voru stofnaðir,“ segir Atli. „Ég
hef heimildir fyrir því að þeir hafi
verið að fixa eigið fé með þessu.“
Hann ræði þetta í kjölfar frétta af
því að Byr fari fram á beiðni um
aðstoð frá ríkissjóði. Eigið fé Byrs
í lok árs 2007 verði til viðmiðun-
ar. „Ef þeir ofmátu eigið fé með
viðskiptavild, þá er ríkissjóður að
greiða á röngum forsendum,“ segir
Atli.
Samkvæmt tímariti Ríkisskatt-
stjóra, Tíund, hækkaði viðskipta-
vild bankanna, utan SPRON, úr
18,7 milljörðum í 123 milljarða frá
2003 til 2007.
Guðjón Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka fjármála-
fyrirtækja, vildi ekki fjalla um
þessar upphæðir í gær. Hann
vilji skoða arðgreiðslur banka í
nágrannalöndunum fyrst. - kóþ, bj
ÞRIÐJUDAGUR
24. mars 2009 — 72. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
SVEINBJÖRN SVEINBJÖRNSSON
Vann frækinn sigur í
Lífsstílsmeistaranum
• heilsa
Í MILJU BLAÐSINS
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, verk-fræðingur hjá Mannviti verkfræði-stofu, sigraði í Lífsstílsmeistaran-um sem fór fram fyrir skemmstu, bæði í flokki einstaklinga og liða. Sveinbjörn sem er að auki tvöfald-ur sigurvegari í Þrekmeistaran-um og var með fremstu mönnum í Laugavegs-ultramaraþoninu síð-asta sumar þakkar strangri þjálfun í Boot Camp góðum árangri.„Ég byrjaði að æfa í Boot Camp fyrir tveimur árum en hafði áður verið að æfa og keppa á skíðum í
mörg ár. Líklega hefur kepp i kið allt f
viðkomandi vilji leggja mikið á sig. „Boot Camp hentar jafnt byrjendum og þeim sem lengra eru komnir og menn stýra álaginu sjálfir. Það er það góða, að allir geta verið með.“Frá því að Sveinbjörn byrjaði í Boot Camp hefur hann náð framúr-skarandi árangri í ýmsum keppn-um og viðburðum eins og áður sagði. Sigurinn í Þrekmeistaran-um er því enn ein rósin í hnappa-gatið og Sveinbjörn fer ekki leynt með ánægju sína, enda í fyrstsinn sem h
ur hans eru farnir að æfa í Boot Camp og faðir hans og sambýlis-kona Sveinbjarnar tóku einnig þátt í Lífsstílsmeistaranum, en þess skal getið að aðeins eru tíu mánuðir síðan þau Sveinbjörn eignuðust lít-inn dreng. En ýtir þetta ekki undir samkeppni og ríg milli bræðranna? „Alls ekki. Við hvetjum bara hvert annað áfram þannig að þetta skap-ar góða stemningu í fjölskyldunniþjappar okkur sa
Vitleysan vatt upp á sigSveinbjörn Sveinbjörnsson vann frækinn sigur í Lífsstílsmeistaranum en þetta er í fyrsta sinn sem hann
tekur þátt. Þetta er þó aðeins upphafið því hann ætlar sér stóra hluti á Cross-Fit-leikunum í sumar.
Sveinbjörn hefur fengið fjölskylduna í lið með sér. Frá vinstri má sjá föður Sveinbjarnar, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, með afabarn-
ið Stefán Huga, Ástu Ósk Stefánsdóttur, sambýliskonu Sveinbjarnar, og yngri bróður hans, Bjartmar Sveinbjörnsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LJÁÐU MÉR EYRA nefnist viðtalsþjónusta á Landspítalanum. Þar
stendur öllum konum sem fætt hafa á Landspítalanum til boða að bóka
viðtal við ljósmóður um 4 til 6 vikum eftir fæðingu ef þær vilja ræða fæð-
ingarreynslu sína. Viðtölin bókast á göngudeild mæðraverndar í s. 543
3253 á virkum dögum milli klukkan 9 og 15. www.ljosmodir.is
á hluta sjúklings af verði lyfseðilsskyldra lyfja
Marstilboðtil elli- og örorkulífeyrisþega
E
List fyrir unglinga
Svartiskóli kallast nýr
skóli sem heldur
námskeið fyrir unglinga
í hinum ýmsu
listgreinum.
TÍMAMÓT 16
Stórt og smátt
„Hin grátlega trú á risafyrirtæki
leiddi beinlínis til ofþenslu bank-
anna og hrun íslensks fjármála-
kerfis“, skrifar Sverrir Jakobsson.
Í DAG 14
FÓLK „Það er ekki leiðinlegt að
fá svona fréttir á þessum síðustu
og verstu tímum,“ segir Andrea
Tryggvadóttir, arkitekt í Kaup-
mannahöfn. Hönnun Andreu og
dansks kollega, Agnesar Nilsson,
var valin í úrslit í Avantgarde-
húsgagnasamkeppninni. Þær
stöllur hönnuðu stól sem um leið
þjónar hlutverki rotþróar fyrir
lífrænan úrgang. - jma / sjá síðu 26
Íslenskur arkitekt í Danmörku:
Í úrslitum í
þekktri keppni
Frábær Food and Fun
Siggi Hall var ánægður
með Food and Fun þótt
kreppt hafi að.
FÓLK 20
KARL ÁGÚST ÚLFSSON
Síðasti þátturinn fer
í loftið um helgina
Ekki hefur verið samið við Spaugstofuna
FÓLK 26
ostur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-0
1
2
3
Sjá nánar á www.betrabak.is
Færðu gesti?
Svefnsófadagar í mars
KÓLNANDI Í dag verður NA 8-15
m/s norðvestan og vestan til og
við SA-ströndina, annars hægari.
Snjókoma eða slydda sunnan til
en rigning allra syðst um hádegi.
Él norðan til.
VEÐUR 4
2
-1
0
0
4
TIGNARLEGT Í ÁLFTAFIRÐI Það var ekki amalegt fyrir Súðvíkinga að horfa út á fjörð-
inn sinn í gær en þar lá þýska skólaskipið Gorch Fock fyrir ankeri. Það hélt síðan út
Djúpið og verður komið að Miðbakkanum í Reykjavík á fimmtudagsmorgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EFNAHAGSMÁL „Maður spyr sig af
hverju Seðlabankinn beitti sér
ekki gegn útrás Landsbankans
til Hollands, miðað við að hún
var að hefjast um það leyti sem
þessi skýrsla Seðlabankans var
skrifuð,“ segir Ólafur Ísleifsson
hagfræðingur.
„Þetta er sannfærandi skýrsla
og ég skil ekki hvers vegna hún
var ekki lögð fram. Hún hefði
átt erindi á rituðu formi við
ráðamenn,“ segir hann.
Í skýrslunni segir af Lundúna-
fundi ónafngreindra seðlabanka-
manna í febrúar 2008 með mats-
fyrirtækjum og einkabönkum. Þar
kemur fram að erlendu sérfræð-
ingarnir hafi miklar efasemdir
um íslenskt bankakerfi. Moody‘s
hafði sérstakar áhyggjur af Icesa-
ve-reikningunum, en seðlabanka-
menn færðu fram gagnrök. „Ekki
er líklegt að öllum efasemdum
[Moody‘s] hafi verið eytt,“ segir í
skýrslunni. Landsbankinn opnaði
fyrir Icesave í Hollandi í lok maí.
Ólafur spyr einnig hví ríkis-
stjórnin hafi ekki brugðist við
skýrslunni með afgerandi hætti.
Haft var eftir Geir H. Haar-
de, fyrrum forsætisráðherra,
í ríkisútvarpinu í gær að „ekki
hafi verið einfalt“ að bregð-
ast við, þegar skýrslan barst í
febrúar, en RÚV fékk skýrsluna
frá Seðlabankanum, eftir áfrýjun
til úrskurðarnefndar um upplýs-
ingamál.
Seðlabankinn tilkynnti 25. mars
2008 að bindiskylda íslenskra
banka í erlendum útibúum skyldi
afnumin. Tilgangurinn væri að
samræma reglur bankans við
reglur evrópska Seðlabankans.
Arnór Sighvatsson, aðstoð-
arbankastjóri Seðlabankans og
þáverandi aðalhagfræðingur, vill
ekki ræða skýrsluna að svo stöddu,
né hvað bankinn hafi gert til að
bregðast við henni. „Ég sótti ekki
þessa fundi,“ segir hann. Honum
sé ekki kunnugt um hverjir hafi
verið á þeim.
Spurður hví bankinn hafi lækk-
að bindiskyldu, stuttu eftir fund-
ina í Lundúnum, segir Arnór: „Það
er komin ný bankastjórn og hún
getur ekki svarað fyrir gerðir
þeirrar eldri.“ - kóþ
Lektor í hagfræði um skýrslu Seðlabankans:
Undrast að Icesave-
útrás hafi verið leyfð
Það er
komin ný
bankastjórn og
hún getur ekki
svarað fyrir gerð-
ir þeirrar eldri.
ARNÓR
SIGHVATSSON
AÐSTOÐARBANKASTJÓRI SEÐLABANKANS
Skotnir í kaf
í Grindavík
Snæfell átti aldrei
möguleika í Röstinni
í gær og Grindavík er
komið 1-0 yfir.
ÍÞRÓTTIR 22
25.000
20.000
15.000
10.000
5.000
0
2004
2005
2006
2007M
ill
ja
rð
ar
Glitnir Kaup-
þing
Lands-
banki
SPRON
Arðgreiðslur bankanna
82 milljarðar í arð
Viðskiptabankarnir þrír og SPRON greiddu 82,3 milljarða í arð milli 2004 og
2007. Þar af var Kaupþing með nær helminginn. Atli Gíslason, þingmaður VG,
segist hafa heimildir fyrir því að bankarnir hafi ofmetið viðskiptavild sína.