Fréttablaðið - 24.03.2009, Blaðsíða 2
2 24. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
Demparar EFNAHAGSMÁL Stjórnendur Spari-
sjóðs Reykjavíkur og nágrennis
(SPRON) áttu von á því að spari-
sjóðurinn yrði yfirtekinn með svip-
uðum hætti og viðskiptabankarnir
þrír. Það kom þeim mjög á óvart að
SPRON hafi verið lokað og innlán
flutt í Kaupþing, samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins.
Mikil óvissa er tengd yfirtöku
Kaupþings á innlánum SPRON.
Álagið á þjónustuver Kaupþings
sló öll met í gær, og margir leituðu
einnig til þjónustuvers SPRON.
Heimildarmenn Fréttablaðs-
ins tengdir SPRON segja hæpið að
yfirfærslan til Kaupþings gangi
snurðulaust fyrir sig, þótt engin
stór vandamál virðist hafa komið
upp hjá Kaupþingi í gær.
Bent er á að starfsemi Kaupþings
á höfuðborgarsvæðinu sé aðeins
um helmingi meiri að umfangi en
starfsemi SPRON, og því stór biti
að gleypa að taka yfir öll innlán
SPRON. Hætt sé við því að það
bitni á viðskiptavinum sem fái verri
þjónustu eftir yfirtöku.
Stjórnendur SPRON höfðu feng-
ið tilboð frá skuldunautum félags-
ins skömmu áður en sparisjóðurinn
var tekinn yfir. Þar var, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins, boðin
niðurfelling á um 20 prósentum
skulda sjóðsins.
Nokkurrar kergju gætir meðal
fyrrum stjórnenda með að hafa
ekki fengið tíma til að gera gagn-
tilboð og sjá viðbrögð kröfuhafa.
Þeir virðast telja að laga hefði mátt
stöðu sparisjóðsins þannig að ekki
hefði þurft að koma til yfirtöku.
Í rökstuðningi FME fyrir yfir-
töku félagsins kemur fram að
SPRON hafi fengið ríflega fresti til
að ná samningum við kröfuhafa og
þeir hafi ítrekað verið framlengd-
ir. Þrátt fyrir það hafi ekki tekist
að semja um skuldirnar. Fullreynt
hafi verið að það myndi takast. Í
yfirlýsingu sem fráfarandi stjórn
og forstjóri SPRON sendu frá sér
í gær segir að sparisjóðurinn hafi
ekki getað starfað eðlilega nema
eiga greið viðskipti við Seðlabanka,
sérstaklega í ljósi þess að ekki er
um virkan millibankamarkað að
ræða. - bj
Yfirfærsla innlána SPRON til Kaupþings kom stjórnendum sjóðsins á óvart:
Áttu von á að starfsemi héldi áfram
LOKAÐ Starfsemi SPRON hefur í raun
verið lögð niður að mestu. Innlán hafa
verið færð til Kaupþings og skilanefnd
stýrir því sem eftir er í sparisjóðnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VINNUMARKAÐUR Æðstu stjórnend-
ur Lífeyrissjóðsins Gildis fóru
fyrir hönd sjóðsins í alls 35 við-
skiptaferðir til útlanda á árunum
2005-2008. Helstu stjórnendur
Sameinaða lífeyrissjóðsins fóru í
um fimm ferðir hvor á ári á þessu
tímabili. Þetta kemur fram í upp-
lýsingum sem Félag vélstjóra og
málmtæknimanna (VM) hefur
fengið frá stjórnum lífeyrissjóð-
anna.
Stjórn VM sendi fyrirspurn
til stjórnar lífeyrissjóðanna og
óskaði eftir upplýsingum um
boðsferðir og gjafir sem fram-
kvæmdastjóri, forstöðumaður
eignastýringar og stjórnarmenn
hefðu þegið af fyrirtækjum sem
sjóðirnir hefðu fjárfest í á árun-
um 2005 til 2008. Einnig var
óskað eftir upplýsingum um það
eftir hvaða siðareglum væri unnið
hjá sjóðunum.
Í svari Sameinaða lífeyris-
sjóðsins, sem birt er á heimasíðu
hans, kemur fram að umrædd-
ir starfsmenn hafi hvort um sig
farið fimm ferðir á ári vegna
eigna erlendis, að auki hafi for-
stöðumaður rekstrarsviðs farið í
tvær slíkar ferðir síðustu tvö ár.
Að jafnaði hafi helmingur þess-
ara ferða verið skipulagðar kynn-
isferðir fyrir fulltrúa íslenskra
fjárfesta vegna fjárfestingar-
verkefna erlendis og greiddar af
samstarfsaðilum sjóðsins. Fram-
kvæmdastjóri og forstöðumaður
eignastýringarsviðs hafi hvort
um sig þegið eina veiðiferð á ári
innanlands síðustu þrjú ár. Boðs-
ferðirnar hafi verið stuttar vinnu-
ferðir og án íburðar.
Guðmundur Ragnarsson, for-
maður VM, segir lífeyrissjóð-
ina heiðarlega í svari. Guðmund-
ur skrifar á vefsíðu VM að komi
ósannsögli fram á síðari stigum
þá geri stjórnarmenn og stjórn-
endur lífeyrissjóðanna sér fulla
grein fyrir því að „afsakanir
verða ekki teknar gildar síðar“.
Vinna er hafin við að endur-
semja og auka siðareglur hjá sjóð-
unum og segir Guðmundur að í
framtíðinni muni sjóðirnir borga
allar ferðir starfsmanna.
Í lok bréfs VM er spurt hvort
keppni lífeyrissjóðanna um besta
sjóðinn og bestu ávöxtunina hafi
ekki kallað á meiri áhættufjár-
festingar. Ekkert kemur fram um
svar sjóðanna við þessari spurn-
ingu en á vefsíðu Gildis kemur
fram að sjóðurinn hafi verið val-
inn besti lífeyrissjóðurinn í fjög-
ur ár í röð 2005-2008. Lagt verð-
ur til á aðalfundi Gildis í apríl að
réttindi verði lækkuð um tíu pró-
sent. Svör lífeyrissjóðanna verða
ekki kynnt fyrr en á stjórnarfundi
VM 2. apríl. ghs@frettabladid.is
Stjórnendur Gildis
fóru í 35 boðsferðir
Stjórnendur Gildis hafa farið í meira en tíu boðsferðir á ári síðustu ár. Stjórn-
endur Sameinaða lífeyrissjóðsins fóru í um tíu ferðir á ári. Gildi var valinn besti
sjóðurinn fjögur ár í röð en þarf nú að lækka réttindi um tíu prósent.
FÓRU Í MARGAR BOÐSFERÐIR VM óskaði eftir upplýsingum frá Gildi lífeyrissjóði og
Sameinaða lífeyrissjóðnum um boðsferðir og gjafir sem æðstu stjórnendur sjóðanna
hefðu þegið á síðustu þremur árum. Hjá Gildi kemur fram að stjórnendur hafi farið í
35 ferðir á þessu tímabili.
Afsakanir
verða ekki
teknar gildar síðar
GUÐMUNDUR
RAGNARSSON
FORMAÐUR VM
Einar, verður ekki bara skíta-
mórall í þessum klúbbi?
Nei, en það verður algjör mórall hjá
þeim sem missa af opnuninni.
Einar Bárðarson mun opna Officera-
klúbbinn svokallaða um næstu helgi.
Meðal hljómsveita sem munu leika á
opnunarkvöldinu er Skítamórall.
UMHVERFISMÁL Bergur Sigurðs-
son, frambjóðandi VG og fyrrum
framkvæmdastjóri Landverndar,
telur að fjárfestingarsamningur
ríkisins við Century Alumini-
um og Norðurál vegna álvers í
Helguvík kunni að brjóta í bága
við ákvæði EES-samningsins um
ríkisstyrki. Hann hvetur iðnaðar-
nefnd til að bíða með að afgreiða
hann.
„Það er fljótheitabragur á verk-
lagi nefndarinnar ef þessi samn-
ingur rennur bara í gegnum
nefndina án þess að svar ESA, um
hvort þessi styrkveiting standist
EES-samninginn, liggi fyrir,“
segir Bergur. Hann skilji ekki
hvað liggi á.
Steingrím-
ur J. Sigfús-
son, formaður
VG, gagnrýndi
á A l þ i n g i
20 03 hvern-
ig staðið var
að afgreiðslu
frumvarps um
álverksmiðju
Alcoa í Reyðar-
firði. Hann sagði þá að það væri
„eiginlega alveg með ólíkindum“
að afgreiða ætti frumvarpið áður
en ESA mæti hvort ríkisstuðn-
ingurinn stæðist evrópskar sam-
keppnisreglur.
Álfheiður Ingadóttir, varafor-
maður iðnaðarnefndar fyrir VG,
setur mikla fyrirvara við samn-
inginn, sem hún styður ekki, og
bindur vonir við að Alþingi geti
gripið inn í málin. „Það sem er
alvarlegt við þennan samning,
fyrir utan umhverfismál, raforku-
öflun, línulagnir, fjármögnunar-
vandann og stöðu Norðuráls, er að
í þessum samningi er miðað við að
tekjuskattsálag verði aldrei meira
en 15 prósent,“ segir hún. Í sam-
bærilegum samningum sé rætt
um 18 prósenta hámarksskatt.
„Það vita allir að við þurfum
að afla skatttekna á næstu árum,
vegna þessara skulda sem við
erum í. Þetta þarf því að reikna út
og skoða. Að auki er sagt að aldrei
verði lagður skattur á vaxtatekj-
ur, sem er alveg út í hött. Það er
sagt að við höfum verið í útrás,
en þetta fyrirtæki er í rauninni
í innrás í skattaskjól á Íslandi,“
segir Álfheiður. Málinu hafi verið
vísað til þriggja nefnda og sé nú
í höndum þingsins: „Þannig að
það sem einhverjum ráðherrum
finnst skiptir engu máli.“
Hjá ESA fékkst staðfest að verið
væri að fara yfir samninginn og
að áliti yrði líklega skilað eftir
sex til sjö vikur. Þangað til ræðir
ESA hann ekki í fjölmiðlum.
- kóþ
Miklar efasemdir í VG um fjárfestingarsamning ríkisins við Century Aluminium og Norðurál Helguvík:
Telur álsamning ekki standast EES-samning
BERGUR
SIGURÐSSON
STJÓRNMÁL Sjálfstæðisflokknum
urðu á mistök árið 2007 þegar
hann tók við framlögum frá
félögum sem voru í meirihluta
hins opinbera en það stangast
á við lög frá 2006 um fjármál
stjórnmálasamtaka. Þetta segir
Andri Óttarsson, framkvæmda-
stjóri flokksins, í fréttatilkynn-
ingu sem hann sendi frá sér í
gær.
Þar á hann meðal annars við
þrjú hundruð þúsund króna
framlag sem flokkurinn tók við
frá Neyðarlínunni og hefur hann
þegar verið endurgreiddur, að
sögn Andra og hið sama verði
gert við önnur framlög sem
þetta gildir um. Enn fremur
segir hann að farið verði yfir
verkferla og eftirlit hert með
viðtöku framlaga til að ganga úr
skugga um að slíkt endurtaki sig
ekki. - jse
Sjálfstæðisflokkurinn:
Skilaði framlagi
Neyðarlínu
SKIPULAGSMÁL Formannafundur
Landsambands stangaveiði-
félaga ályktaði harðlega í gær
gegn samþykkt borgarráðs
Reykjavíkurborgar um að reisa
hesthúsabyggð á bökkum Elliða-
ár. Eru þessar fyrirætlanir
sagðar vera atlaga við lífríki
árinnar. Farið er fram á að sam-
þykktin verði endurskoðuð.
Enn fremur segir í ályktun-
inni: „Formannafundurinn
minnir einnig á að hérlendis eru
um 105 þúsund einstaklingar
sem stunda stangveiði að ein-
hverju marki og það getur varla
verið vilji kjörinna fulltrúa að
ganga svo greinilega gegn hags-
munum svo stórs hóps kjósenda
eins og gert er með þessari sam-
þykkt.“ - jse
Stangveiðimenn ósáttir:
Segja hesthúsin
ógna lífríkinu
SLYS Fjórtán létust, þar af sjö
börn, þegar flugvél brotlenti í
kirkjugarði nálægt bænum Butte
í Montana-ríki í Bandaríkjunum
í fyrradag. Ekki er vitað hvað olli
slysinu en enginn í vélinni komst
lífs af.
Sama dag létust báðir flug-
mennirnir í flutningaflugvél
þegar henni hvolfdi í lendingu á
Narita-flugvelli í Japan. Talið er
að öflug vindhviða hafi feykt vél-
inni á hvolf. Hún var frá hrað-
flutningafyrirtækinu FedEx.
- jse
Sextán látast í flugslysum:
Sjö börn fórust
í flugslysinu
LENTI Í KIRKJUGARÐINUM Sjö börn voru
meðal þeirra sem létust í flugslysinu í
Montana-ríki í Bandaríkjunum.
NORDICPHOTOS/AFP
SJÁVARÚTVEGUR Vestmannaeyjabær
krefst þess að fá að veiða síld í
höfninni en Steingrímur J. Sigfús-
son, sjávarúrvegs- og landbúnað-
arráðherra, tilkynnti á föstudag að
henni skyldi hætt.
Elliði Vignisson bæjarstjóri
sendi ráðherranum bréf í gær þar
sem þessi krafa var kunngerð.
Segir hann að um nauðsynlega
hreinsun úr höfninni sé að ræða
og því sé umhverfisslys yfirvof-
andi standi ráðherrann við ákvörð-
un sína. Ef hann gerir það mun
Vestmannaeyjarbær krefja ríkið
um greiðslur fyrir hreinsun vegna
mengunartjóns þegar síldin drepst
og rotnunin hefst. - jse
Vestmannaeyjabær í hart:
Umhverfisslys
yfirvofandi
SPURNING DAGSINS