Fréttablaðið - 24.03.2009, Blaðsíða 8
8 24. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1. Hvaða tvö félög yfirtók Fjár-
málaeftirlitið á laugardag?
2. Hvað heitir nýr forstjóri
Marel?
3. Hver var markahæsti
leikmaður Íslands í landsleik
handknattleikslandsliðsins við
Eistlendinga á sunnudag?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26
ALÞINGI Varaformaður Fram-
sóknarflokksins, Birkir Jón
Jónsson, vill að embætti sendi-
herra verði eftirleiðis auglýst
laus til umsóknar. Utanríkisráð-
herrar hafa nú algjörlega frjáls-
ar hendur um skipan í embættin.
Össur Skarphéðinsson utan-
ríkisráðherra svaraði því til á
Alþingi í gær að hugmynd Birkis
væri ágæt og að hún yrði tekin
til skoðunar í ráðuneytinu. Sagði
hann við það tækifæri að ekki
stæði til að fjölga sendiherrum,
enda nóg af þeim. - bþs
Birkir Jón Jónsson:
Vill að sendi-
herrastöður
verði auglýstar
STJÓRNMÁL Sjálfstæðisflokkurinn
vill breyta hjúskaparlögum,
þannig að ein lög gildi um gagn-
og samkynhneigða, segir í drög-
um að ályktun um fjölskyldumál,
sem flokkurinn gerir fyrir lands-
fund sinn um næstu helgi.
Þá telur flokkurinn „óeðlilegt
að forstöðumenn trúfélaga hafi á
sínum höndum þann löggjörning
sem hjónavígsla felur í sér“, segir
í drögunum. Gjörningur sá eigi
að vera í höndum ríkisins; þannig
geti trúfélög ráðið því sjálf hvern-
ig sambúðarform þau blessi. - kóþ
Sjálfstæðisflokkurinn:
Vill ein lög um
hjónavígslur
Fjórir létust í sprengjutilræði
Háttsettur Fatah-liði og þrír öryggis-
verðir hans létust í sprengjutilræði
í suðurhluta Líbanon á mánudag.
Sprengingin varð þegar þeir keyrðu
frá palestínskum flóttamannabúðum.
LÍBANON
9.752.026
2.000 12.000
14.000
4.000 10.000
8.0006.000
0
business intelligence
BANDARÍKIN Bandaríkin þurfa að
hafa áætlun um heimköllun her-
manna frá Afganistan, þrátt fyrir
að vera nú að fjölga hermönnum
þar í landi. Þetta
sagði Barack
Obama, forseti
Bandaríkjanna,
í viðtali í sjón-
varpsþættin-
um 60 mínútur
á CBS á sunnu-
dag. Bandarísk
stjórnvöld
undirbúi nú heildaráætlun fyrir
Afganistan. Helsta markmið
áætlunarinnar væri að koma í veg
fyrir árásir á Bandaríkin.
Obama sagði jafnframt að hern-
aðarmáttur myndi ekki nægja til
að ná fram markmiðum banda-
rískra stjórnvalda. Efla þyrfti
efnahag Afganistans og bæta sam-
skipti við Pakistan. - ss
Barack Obama:
Þarf áætlun
um heimköllun
STJÓRNMÁL Nýtt og heilbrigt fjár-
málakerfi þar sem félagsleg gildi
eru höfð í heiðri í stað áhættu-
sækni og skammtímagróðasjónar-
miða er meðal þess sem VG legg-
ur áherslu á í kosningabaráttunni
fram undan. Skilja ber á milli við-
skiptabankastarfsemi og fjárfest-
ingarstarfsemi og halda einum
banka í ríkiseigu.
Landsfundi flokksins lauk á
sunnudag með frágangi á plaggi þar
sem útlínur stefnumála eru dregnar.
Skiptist það í fjóra þætti: lýðræðis-,
velferðar-, atvinnu- og efnahagsmál
og geymir fjölmarga liði.
Meðal lýðræðisumbóta sem
VG vill hrinda í framkvæmd er
að færa lagasmíð í auknum mæli
úr ráðuneytum inn í þingið, taka
upp tímabundna kynjakvóta, setja
heildstæða fjölmiðlalöggjöf, endur-
skoða lagaumhverfi Ríkisútvarps-
ins og ljúka rammaáætlun um nýt-
ingu vatnsafls og jarðvarma. Þá
segir að stórákvarðanir á borð við
aðild að ESB eigi að útkljá með
þjóðaratkvæðagreiðslu að und-
angenginni upplýstri og lýðræð-
islegri umræðu. Um leið er tekið
fram að afstaða flokksins sé að
hagsmunum Íslendinga sé best
borgið utan ESB.
Katrín Jakobsdóttir varafor-
maður segir að í ljósi efnahags-
ástandsins verði kosningabaráttan
nú öðru vísi en áður. „Hún má ekki
snúast um loforð og yfirboð heldur
um að tala við fólk,“ segir Katrín.
Almennt telja frambjóðendur
mikilvægt að traust milli almenn-
ings og stjórnmálamanna verði
endurvakið.
VG vill lækka vexti og afnema
verðtryggingu í áföngum, hækka
atvinnuleysisbætur, útrýma
launamun og tryggja að fólk hafi
þak yfir höfuðið þrátt fyrir tíma-
bundna erfiðleika við að greiða af
húsnæðislánum.
Í atvinnumálum leggur VG
áherslu á atvinnusköpun á forsend-
um sjálfbærrar þróunar og dæmir
þar með mengandi orkufreka stór-
iðju úr leik. Styðja á við bakið á litl-
um og meðalstórum fyrirtækjum,
vinda ofan af fiskveiðistjórnun-
arkerfinu og endurskoða styrkja-
kerfi landbúnaðarins.
VG vill taka upp þriggja þrepa
skattkerfi og leggja á þriggja
prósenta viðbótarskatt á tekjur
umfram 500 þúsund og átta pró-
senta viðbótarskatt á enn hærri
tekjur. Þá vill flokkurinn greina
nákvæmlega valkostina í gjald-
miðlamálum á fyrri hluta næsta
kjörtímabils, skera niður alla
hernaðartengda starfsemi, leggja
Varnarmálastofnun niður og
gera Ísland að griðastað í deilum
annarra ríkja. bjorn@frettabladid.is
VG vill félagsleg gildi
í nýju fjármálakerfi
Vinstristjórn er vegur til framtíðar að mati VG sem leggur megináherslu á að
Sjálfstæðisflokknum verði haldið frá völdum eftir kosningarnar í apríl. Varafor-
maðurinn segir kosningabaráttuna ekki mega snúast um loforð og yfirboð.
STEFNAN KYNNT Í STUTTU MÁLI Frambjóðendur VG spjölluðu við blaðamenn í kosn-
ingamiðstöð sinni við Tryggvagötu í Reykjavík í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BARACK OBAMA
VEISTU SVARIÐ?