Fréttablaðið - 24.03.2009, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 24. mars 2009 11
Umsjón: nánar á visir.is
MESTA HÆKKUN
ÖSSUR 3,16%
FØROYA BANKI 2,19%
MESTA LÆKKUN
MAREL FOOD SYS. 0,69%
Laun stóðu í stað í febrúar á þessu
ári samkvæmt mælingu Hagstof-
unnar. Launavísitalan var óbreytt
frá fyrra mánuði, 355,7 stig. Kaup-
máttur launa lækkaði um 0,5
prósent milli mánaða.
„Launamenn hafa að undanförnu
verið að taka á sig launalækkan-
ir auk þess sem kjarasamnings-
bundnum hækkunum hefur í mörg-
um tilvikum verið slegið á frest.
Búast má við að enn muni draga
úr hraða launahækkana á næstu
misserum,“ segir í umfjöllun
Greiningar Íslandsbanka.
Samdráttur kaupmáttar er um
leið sagður meiri en hér hafi sést í
áratugi. „Kaupmáttur hefur dreg-
ist saman jafnt og þétt undanfar-
ið ár í takti við vaxandi verðbólgu.
Minnkandi kaupmáttur launa
hefur nú þegar haft mikil áhrif á
heimilin í landinu sem hafa þurft
að draga úr útgjöldum og fjárfest-
ingum til að bregðast við gjör-
breyttu efnahagsumhverfi.“ - óká
Meiri kaupmátt-
arsamdráttur en
lengi hefur sést
Í KRINGLUNNI Kaupmáttur launa hefur
rýrnað hér á landi síðustu misseri í takt
við mikla verðbólgu. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
„Takmarkaður áhugi fjárfesta í útboði
Seðlabankans á ríkisbréfum síðastlið-
inn föstudag hlýtur að vera stjórnvöld-
um nokkurt áhyggjuefni,“ segir Grein-
ing Íslandsbanka. „Sér í lagi í ljósi þess að
útboðinu var meðal annars ætlað að koma
til móts við hluta af stórum gjalddaga inn-
stæðubréfa í þessari viku.“
Fram kemur að Seðlabankinn hafi ráð-
gert að taka tilboðum fyrir allt að 20 millj-
arða króna í lengstu ríkisbréfaflokkunum
þremum. Tilboðum var tekið fyrir rúma 13
milljarða króna.
„Ætla má að útlendingar hafi verið
atkvæðalitlir í útboði föstudagsins þar
sem þeir hafa sótt mest í stystu ríkisbréfa-
flokkana,“ segir í greiningunni og bent á
að uppgjörsdagur útboðsins standist á við
gjalddaga innstæðubréfa Seðlabanka á
morgun. Ekki verði hægt að kaupa ný inn-
stæðubréf í stað allra þeirra bréfa sem séu
á gjalddaga. Í gær hafi átt að bjóða út bréf
fyrir 75 milljarða króna, en útistandandi
séu um 123 milljarðar. „Raunar er rétt
að benda á að öfugt við stóra gjalddaga á
skuldabréfum með árlegar eða hálfsárs-
legar vaxtagreiðslur ættu ekki að verða
mikil áhrif á krónuna af gjalddaga inn-
stæðubréfanna þar sem vextir af þeim eru
greiddir vikulega.“
Greining Íslandsbanka segir lítinn
áhuga útlendinga í útboði föstudagsins
vera í takt við þróun undanfarinna mán-
aða. Hins vegar sé takmörkuð eftirspurn
í útboði föstudagsins einnig til marks um
að þeir innlendu fjárfestar sem umsvifa-
mestir hafa verið í útboðum ársins hafi
einnig haldið sig meira til hlés. „Þar sem
ríkissjóður á enn töluverðan sjóð á við-
skiptareikningi sínum í Seðlabanka er ekki
hundrað í hættunni fyrir ríkið þótt áhug-
inn á útboði föstudagsins hafi ekki reynst
meiri en raun bar vitni. Þetta svigrúm mun
þó minnka eftir því sem á árið líður.“ - óká
SEÐLABANKINN Lánamál ríkisins eru með aðset-
ur í Seðlabanka Íslands en þar er haldið utan um
útboð á ríkisbréfum og -víxlum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Áhugaleysi fjárfesta áhyggjuefni stjórnvalda
INNSTÆÐUR AÐ FULLU TRYGGÐAR
Að tilmælum stjórnvalda hafa allar innstæður hjá SPRON og nb.is verið
færðar yfir í Nýja Kaupþing. Innstæðurnar eru að fullu tryggðar sam-
kvæmt yfirlýsingu frá ríkisstjórninni. Engin útlán viðskiptavina SPRON
og nb.is hafa færst yfir til Nýja Kaupþings.
NETBANKI, DEBET- OG KREDITKORT
Viðskiptavinir SPRON og nb.is geta stundað öll almenn bankaviðskipti
í gegnum netbanka sína. Debet- og kreditkort virka eins og áður.
AÐGENGI AÐ NETBANKA FYRIR VIÐSKIPTAVINI SPRON
Viðskiptavinir SPRON hafa aðgengi að netbanka SPRON næstu daga
en þeir fá jafnframt aðgengi að netbanka Kaupþings.
VIÐ ERUM REIÐUBÚIN AÐ VEITA ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR
Starfsfólk Kaupþings svarar almennum fyrirspurnum í síma 444 7000 og
í útibúum Kaupþings. Jafnframt geturðu nálgast frekari upplýsingar á
vefsíðu okkar, www.kaupthing.is
Með vinsemd og virðingu,
Starfsfólk Kaupþings
TILKYNNING
TIL VIÐSKIPTAVINA
SPRON OG nb.is
www.kaupthing.is
Sparisjóðurinn í Keflavík (SpKef)
selur Íbúðalánasjóði skuldabréfa-
safn fyrir um 10 milljarða króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu
sjóðsins til Kauphallar síðdegis í
gær.
Skuldabréfasafnið er tryggt með
veði í íbúðarhúsnæði, en vísað er
til heimildar til þessa í samræmi
við lög og reglugerðir sem gildi
tóku undir lok síðasta ár og reglur
Íbúðalánasjóðs um kaup á skulda-
bréfum fjármálafyrirtækja.
Íbúðalánasjóður er sagður munu
greiða 80 prósent af uppreiknuðu
virði safnsins með afhendingu
íbúðabréfa. „Eftirstöðvarnar, eða
20 prósent, er krafa SpKef á Íbúða-
lánasjóð sem kemur til með að
verða gerð upp að átta árum liðn-
um,“ segir í tilkynningunni. Salan
á íbúðabréfunum er ekki sögð
munu hafa áhrif á eiginfjárstöðu
Sparisjóðsins í Keflavík. - óká
SpKef selur til
Íbúðalánasjóðs
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Sparisjóðurinn í
Keflavík hefur nýtt sér heimild í lögum
til að selja Íbúðalánasjóði skuldabréf
með veði í fasteignum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 87 Velta: 320 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
242 +0,51% 637 +0,57%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,30 +0,00% ... Atlantic
Airways 171,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 260,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,43 +0,00% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,00 +0,00% ... Føroya Banki 116,50 +2,19% ... Icelandair Group
7,00 +0,00% ... Marel Food Systems 46,10 +5,73% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Össur 98,00 +3,16%