Fréttablaðið - 24.03.2009, Blaðsíða 16
OFFITUVANDAMÁLIÐ verður til umræðu í fyrirlestri Estherar Helgu
Guðmundsdóttur hjá Manni lifandi í Borgartúni 24 í dag milli kl. 17.30 og 19.
Fyrirlestrinum er ætlað að gefa innsýn inn í hverjar eru ástæður þess að við
náum ekki tökum á matar- og þyngdarmálum okkar. www.madurlifandi.is
Skiptir regluleg hreyfing
virkilega máli? Er þetta ekki
ofmetið fyrirbæri, fundið upp af
eigendum líkamsræktarstöðva?
Í stuttu máli sagt er svarið nei.
Regluleg hreyfing skiptir sköpum
um heilsufar og velferð. Hreyf-
ingarleysi eykur til dæmis lík-
urnar á hjarta- og æðasjúkdómum
til muna. Einnig er margsann-
að að þeir sem stunda hreyfingu
eru í betra andlegu jafnvægi en
sófakartöflurnar. Einstaklingar í
góðu líkamlegu ástandi eiga auð-
veldara með að fást við ýmsa and-
lega kvilla eins og streitu, kvíða og
jafnvel þunglyndi.
Regluleg hreyfing stuðlar að
eðlilegri þyngd. Bein og vöðvar
styrkjast við þjálfun og sann-
að þykir að hreyfing dregur úr
einkennum meltingarsjúkdóma.
Hreyfing er síður en svo bara
fyrir ungt fólk og það er aldrei
of seint að byrja. Regluleg hreyf-
ing verður mikilvægari eftir því
sem árin færast yfir, gott líkam-
legt ástand stuðlar að því að fólk
verður lengur sjálfbjarga.
Að hafa alltaf verið valinn síð-
astur í liðið í barnaskóla þarf
ekki að koma í veg fyrir að verða
góður íþróttamaður á fullorðins-
árum. Líkamleg virkni hægir
á öldrunarferlinu, því vöðvarn-
ir, liðamótin og beinin styrkjast.
Hreyfing eykur orku og fram-
kvæmdagleði, öfugt við kyrrsetu
sem stuðlar að framtaksleysi. Svo
verður svefninn betri og dýpri. Sé
þetta ekki nóg til að láta sannfær-
ast, þá er hreyfing stórgóð leið til
að kynnast nýju fólki, hvort sem
farið er út að hlaupa, lóðum lyft í
líkamsræktarstöð eða út að ganga
með hundinn. - aþ
Hreyfing – til hvers?
Regluleg hreyfing
skiptir sköpum um
heilsufar og velferð.
NORDICPHOTOS/GETTY
Tækið sem enginn verður var við.
be by ReSound™ er nýjasta tæknibyltingin í
heyrnartækjum, hönnun þeirra byggir á algerlega
nýrri hugsun. Þau eru hulin í eyrunum og eru svo létt
og þægileg að notandinn gleymir því að hann er með þau
og aðrir taka heldur ekki eftir þeim.
be by ReSound™ er algerlega nýtt úrræði
fyrir þá sem þurfa að nota heyrnartæki
Algerlega
ný hönnun
heyrnar-
tækja.
be by ReSound
eru vart greinanleg
í eyrunum
Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur - heyrn.isHeyrnarþjónustan
Tímapantanir 534 9600