Fréttablaðið - 24.03.2009, Page 20
16 24. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1548 Gissur Einarsson andast,
um 36 ára. Áður lætur
hann lögtaka lúterstrú
fyrir Skálholtsbiskups-
dæmi 1541 og tekur
biskupsvígslu 1542.
1959 Sett er reglugerð um
stefnuljós á bifreiðum og
önnur um umferðarmerki
og notkun þeirra.
1974 Varðskipið Týr kemur til
landsins. Það er smíðað í
Árósum, 923 brúttólestir
að stærð og ganghraði 20
sjómílur.
1987 Albert Guðmundsson
segir af sér sem iðnaðar-
ráðherra vegna ásakana
um vantaldar greiðslur frá
Hafskip. Í kjölfarið stofnar
hann Borgaraflokkinn
sem býður fram í öllum
kjördæmum í kosningum
25. apríl sama ár.
Í anda jákvæðni og bjartsýni á tímum kreppu og niður-
skurðar opnar starfsfólk bæklunarskurðdeilda á Land-
spítala Fossvogi húsið fyrir almenningi fimmtudaginn
26. mars 2009 til að kynna starfsemina.
Allir eru velkomnir á 5. hæðina í Fossvogi milli klukk-
an 14 og 16 þar sem verður hægt að fá mældan blóð-
þrýsting og fræðast um beinvernd og margt sem teng-
ist starfsemi á bæklunarskurðdeildum. Meðal annars
verður sýnt myndband um liðskiptaaðgerðir og hrygg-
spengingu. Einnig verður hægt að skoða alls kyns nagla,
skrúfur, tæki og tól sem eru notuð í bæklunarlækning-
um.
Á opna húsinu verða sýndar myndir frá starfseminni
og boðið upp á vöfflukaffi. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
Opið hús á bæklunarskurðdeild
LANDSPÍTALI FOSSVOGI Almenningur getur kynnt sér starfsemi bækl-
unarskurðdeilda Landspítalans á fimmtudaginn.
Áhrif koffíns
Áhrif koffínneyslu á heilsu
og frammistöðu einstakl-
inga verður til umfjöllunar
í hádegisfyrirlestri Jacks
James, prófessors við Há-
skólann í Reykjavík, mið-
vikudaginn 25. mars frá
klukkan 12 til 13.
Koffínneysla Íslend-
inga er með því mesta
sem gerist í heiminum og
í fyrirlestrinum, sem kall-
ast Áhrif koffíns: Vísindi,
goðsagnir og peningar,
dregur James saman stað-
reyndir um áhrif koffíns.
Hann fjallar svo um mögu-
legar skýringar á ósam-
ræmi niðurstaðna á því
sviði.
James hefur áralanga
reynslu af kennslu, rann-
sóknum og stjórnun í há-
skólum bæði á Ástralíu og
Írlandi. Hann hefur gegnt
stöðu deildarforseta sál-
fræðideildar í NUI Galway
á Írlandi frá árinu 1998.
James er nú gestaprófess-
sor við sálfræðisvið HR og
tekur þar þátt í uppbygg-
ingu nýs BSc-náms í sál-
fræði við kennslufræði- og
lýðheilsudeild skólans sem
hefst haustið 2009.
Þess skal getið að fyrir-
lesturinn verður fluttur í
stofu 201 í Háskólanum í
Reykjavík, Ofanleiti 2.
Nánar á www.hr.is.
RJÚKANDI KAFFIDRYKKIR Koffínneysla og áhrif hennar verður til
umfjöllunar á hádegisfyrirlestri Jacks James, prófessors í Háskólan-
um í Reykjavík, á morgun.
Myndlistarhúsið á
Miklatúni var form-
lega tekið í notkun
á þessum degi árið
1973. Húsið var
nefnt Kjarvalsstaðir
til heiðurs Jóhann-
esi S. Kjarval, sem
er talinn meðal
frumherja íslenskr-
ar myndlistar, tæpu
ári eftir andlát hans
og opnuð stór sýn-
ing á verkum hans.
Húsið, sem er í
eigu Listasafns Reykjavíkur, var byggt á árunum
1966 til 1973, en heiðurinn að hönnun þess átti
arkitektinn Hannes Davíðsson. Húsið skiptist í
tvær meginálmur með tengibyggingu og hellu-
lagðan garð á milli.
Þrjú sýningarrými eru
í húsnæðinu og má
skipta þeim frekar
niður í einingar.
Á Kjarvalsstöðum
eru settar upp sýn-
ingar á íslenskri og
erlendri myndlist,
hönnun eða bygging-
arlist ár hvert, með
sérstakri áherslu á
samtímalist.
Þar er einnig
geymd og sýnd um-
deild listaverkagjöf Kjarvals til borgarinnar sem
afkomendur hans hafa dregið í efa að hafi verið
gefin með réttu.
Heimild: www.umm.is og Dagar Íslands.
ÞETTA GERÐIST: 24. MARS ÁRIÐ 1973
Kjarvalsstaðir í notkun
50 ára afmæli
Oddur Helgi
Halldórsson
blikksmíðameistari og bæjarfulltrúi
á Akureyri, er 50 ára í dag.
Hann mun taka á móti gestum
á Strikinu á Akureyri á milli
klukkan 20 og 23 á afmælisdaginn.
Hjartkær eiginmaður minn,
Hallbjörn Bergmann
Elímundarson
húsasmiður,
lést 21. mars á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, áður
til heimilis að Vogatungu 43. Útför hans verður gerð
frá Kópavogskirkju 30. mars kl. 15.00. Jarðsett verður í
Kópavogskirkjugarði. Þeim sem vilja minnast hans er
vinsamlegast bent á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð.
F.h aðstandenda,
Erla Fríðhólm Sigurðardóttir.
Svartigaldur kallast nýr og allsérstæð-
ur skóli sem nýlega var stofnaður. Þar
verður boðið upp á námskeið í hinum
ýmsu listgreinum fyrir unglinga.
Fyrirtækið sem stendur á bak við
Svartaskóla heitir Nátthrafn og er
það hópur skipaður ungu athafnafólki
sem áður hefur komið nálægt fram-
leiðslu á leiksýningum í Loftkastalan-
um og á Jon Fosse-hátíð Þjóðleikhúss-
ins sem og ýmissi útgáfustarfsemi
og tónleikahaldi. Þrír í hópnum, þeir
Arnmundur Ernst Backman, Sigurður
Kjartan Kristinsson og Baltasar Breki
Samper, sem munu halda utan um
starf skólans.
„Hugmyndin vaknaði hjá okkur fé-
lögunum þegar við fórum að spá í hvað
okkur þætti vanta fyrir krakka bæði
í grunnskóla og menntaskóla. Okkur
datt þá í hug að halda þessi námskeið
til að gefa krökkum tækifæri til að
læra eitthvað annað en venjulega er
kennt í skólum,“ segir Arnmundur sem
titlaður er framkvæmdastjóri Svarta-
skóla.
Arnmundur hefur heilmikla reynslu
af leiklist þrátt fyrir ungan aldur en
hann er nú að ljúka námi við Mennta-
skólann við Hamrahlíð. „Listin á að
blómstra í kreppunni,“ segir Arn-
mundur og bætir við að þær listgrein-
ar sem kenndar verði í skólanum séu
þær sem honum og félögum hans séu
kærastar og stundum vanræktar í
skólastarfinu.
Boðið verður upp á þrenns konar
flokka: kvikmyndagerð, ljósmynd-
un og hönnun auk skífuþeytingar og
hljóðblöndunar. Námskeiðin eru hald-
in fyrir krakka í fimmta til sjöunda
bekk annars vegar og áttunda til tí-
unda bekk hins vegar. Unnið verður í
fimm til tíu manna hópum sem hittast
fjóra laugardaga til að vinna að ein-
hverju sköpunarverki. Námskeiðin
fara fram 4., 18. og 25. apríl en loka-
dagurinn verður laugardaginn 2. maí.
Námskeiðin fara fram á nokkrum stöð-
um, í félagsmiðstöðvum, skólum og
leikhúsum.
Leiðbeinendur á námskeiðunum eru
engir aukvisar. „Þarna má nefna Reyni
Lyngdal leikstjóra og Jörund Ragnars-
son leikara sem munu halda fyrirlestra
á kvikmyndanámskeiðinu. Svo heldur
DJ Gísli Galdur utan um námskeiðið í
hljóðblöndun og skífuþeytingu,“ segir
Arnmundur og bætir við að mennt-
aðir ljósmyndarar og hönnuðir muni
kenna á ljósmynda- og hönnunarnám-
skeiðinu.
Til að nálgast frekari upplýsingar
má fara á www.svartiskoli.is en þar
má einnig skrá sig á námskeiðin.
solveig@frettabladid.is/vera@frettabladid.is
ARNMUNDUR ERNST BACKMAN: SVARTISKÓLI STOFNAÐUR
Listin kennd í Svartaskóla
FRAMKVÆMDASTJÓRI Arnmundur Ernst Backman stendur ásamt tveimur félögum að Svartaskóla þar sem kennd eru námskeið í hinum ýmsu
listgreinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
CURTIN HANSON ER 64 ÁRA
„Allir leikstjórar eru
sjálfselskupúkar.“
Bandaríski leikstjórinn Curt-
is Hanson þykir eiga farsæl-
an og fjölbreyttan feril að baki,
þótt þekktastur sé hann sjálfsagt
fyrir kvikmyndina L.A. Confident-
ial sem tilnefnd var til níu Ósk-
arsverðlauna árið 1997. Af öðrum
myndum Hansons má nefna 8
Mile (2002), Wonder Boys (2000)
og The Hand That Rocks the
Cradle (1992).