Fréttablaðið - 24.03.2009, Side 30
26 24. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR
„Jú, það er ekki leiðinlegt að fá svona fréttir á
þessum síðustu og verstu tímum,“ segir Andrea
Tryggvadóttir arkitekt sem starfar í Kaupmanna-
höfn. Hönnun Andreu og dansks kollega, Agnesar
Nilsson, var valin í úrslit í Avantgarde-húsgagna-
samkeppninni. Þær stöllur hönnuðu stól sem um leið
þjónar hlutverki rotþróar fyrir lífrænan úrgang.
„Yfirskrift samkeppninnar var „Intelligent
möbler“, sem myndi þá kannski útfærast sem vits-
munir í húsgögnum. Við völdum að búa til þennan
stól sem virkar þá einnig fyrir lífrænan úrgang
heimilisins og brýtur hann niður. Þannig lyftirðu
setunni upp og setur afgang af plöntum og lífrænum
matvælum ofan í og í stólnum er ákveðin tækni sem
hrærir upp í ruslinu og hitar það og flýtir þannig
fyrir þessu eðlilega ferli,“ segir Andrea.
Neðst á stólnum er svo skúffa sem draga má út á
tveggja vikna fresti og fá fína mold til brúks. „Þessi
rotþró ætti að geta minnkað úrgang heimilanna
um 30 prósent, ekki slæmt á þessum tímum þegar
umhverfisvæn hugsun er allsráðandi. Stólinn má
svo hafa úti á svölum, inni í eldhúsi eða hvar sem
vill.“
Andrea útskrifaðist sem arkitekt árið 2006 og
vann fyrst um sinn hjá Henning Larsen en hefur nú
hafið sjálfstæðan rekstur ásamt nokkrum félögum
sínum þaðan. Hún segir ekki amalegt að byrja sjálf-
stæðan rekstur svona. „Við erum fimm sem fengum
þennan styrk til að vinna tillögur okkar áfram, eða
20.000 danskar krónur. Þrjár tillögur verða svo
valdar til sýningar á hönnunarmessunni Design
Biennale í London í haust. Við vinnum bara hörðum
höndum að því að komast þangað.
juliam@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT 2. ofsi, 6. óhreinindi, 8. ker-
ald, 9. læsing, 11. í röð, 12. ofreyna,
14. gleði, 16. skóli, 17. útsæði, 18. í
viðbót, 20. verkfæri, 21. litlaus.
LÓÐRÉTT 1. kvenflík, 3. slá, 4. skjalla,
5. rúm ábreiða, 7. margorður, 10.
taug, 13. gifti, 15. lánsamur, 16. iðn,
19. bókstafur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ærsl, 6. im, 8. áma, 9. lás,
11. jk, 12. sliga, 14. unaðs, 16. fg, 17.
fræ, 18. auk, 20. al, 21. grár.
LÓÐRÉTT: 1. pils, 3. rá, 4. smjaðra, 5.
lak, 7. málugur, 10. sin, 13. gaf, 15.
sæll, 16. fag, 19. ká.
„Ef og þeg-
ar ég hlusta
á tónlist í
vinnunni
verður
morgun-
þáttur X-ins
fyrir valinu
fyrir hádegi.
Að öðru
leyti hafa
Kings of
Leon verið vinsælir hjá mér upp
á síðkastið og nýi diskurinn frá
Emilíönu Torrini. Annars er ég
líka hrifin af aðeins eldri tónlist
og þá verður til dæmis Guns
n´roses eða Stevie Wonder fyrir
valinu.“
Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir, starfsmaður
hjá RÚV.
Ekki er að spyrja
að vinsældum
söngvarans Stefáns
Hilmarssonar. Hann
efnir til tónleika í
Salnum í Kópavogi
17. apríl og seldist
upp á tónleikana á
sólarhring.
Nóg er að gera hjá Sveppa og
Audda í veislustjórninni en þeir
voru austur á Fáskrúðsfirði og
stjórnuðu árshátíð álversstarfs-
manna sem haldin var þar í
bæ í íþróttahúsinu. Svo margir
starfsmenn eru í álinu að halda
þurfti tvöfalda ársáhátíð
og var fyrri hlutinn
um þarsíðustu helgi.
Austanmenn leita ekki
langt yfir skammt og
fengu sinn mann,
Einar Ágúst og
hljómsveit, til
að leika fyrir
dansi.
Friðrik Weisshappel, veitingahúsa-
mógúll í Kaupmannahöfn, vakti
athygli vegfarenda í Reykjavík í gær
þar sem hann trillaði um miðborg-
ina, alskeggjaður og framsettur með
barnavagn á undan sér eftir
sældartíð í Danmörku.
Mun Friðrik hér staddur
í tengslum við afmælis-
fögnuð sem haldinn var
til heiðurs Árna Snævar,
fyrrum fréttamanni
sem naut sér-
fræðiþekkingar
Friðriks við
veisluhöldin.
Einar Bárðarson hyggst opna Offic-
eraklúbbinn á „Beisn-
um“ með látum og er
að raða inn skemmti-
kröftunum. Nýjasta
nýtt í þeim efnum er
að Valgeir Guðjóns-
son mun troða
upp með sínum
gömlu félögum í
Stuðmönnum.
- jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
ANDREA TRYGGVADÓTTIR: HANNAÐI STÓL SEM ER UM LEIÐ ROTÞRÓ
Íslenskt hugvit í úrslit í
danskri húsgagnasamkeppni
„Þetta var nú ekkert stórslys,
þetta fer bara í ákveðið ferli og
við erum með tryggingar fyrir
þessu,“ segir Magnús Viðar Sig-
urðsson, framleiðandi hjá Saga
Film. Óhapp varð við framleiðslu
Idol-þáttanna í Smáralind fyrir
tveimur vikum þegar svokallað-
ir LED-skjáir, sem hengdir höfðu
verið upp í loft, hrundu niður og
skemmdust. Um er að ræða dýra
skjái sem meðal annars eru not-
aðir á knattspyrnulandsleikjum á
Laugardalsvelli. Saga Film leigði
skjáina.
Óhappið varð þegar Idol-sviðs-
myndin var sett upp í Smáralind
eftir að undankeppnin hafði farið
fram í Óperunni. Ekki liggur fyrir
hvort mistök voru gerð við upp-
setningu skjáanna eða hvort fest-
ingar gáfu sig. Samkvæmt upp-
lýsingum Fréttablaðsins er um
stórtjón að ræða, eða um hundr-
að milljónir króna. Magnús segist
ekki hafa fengið neinar tölur stað-
festar og geti að svo stöddu ekki
tjáð sig um tjónið. Hann ítrekar að
óhapp þetta hafi ekki haft áhrif á
Idol-þættina. - hdm
100 milljóna tjón í Idolinu
IDOL-STJÖRNULEIT Stórtjón varð þegar LED-skjáir voru settir upp í Smáralindinni.
Hvorki dómarana né kynnana sakaði.
„Það veit Guð einn hvort þetta sé
allra allra síðasti Spaugstofuþátt-
urinn. Við vitum ekki enn hvort
af þessu getur orðið næsta vetur,“
segir Karl Ágúst Úlfsson, leikari
og Spaugstofumaður.
Í upphafi vetrar lá fyrir að
þetta yrði síðasta tímabil Spaug-
stofunnar en ekkert lát er á vin-
sældum þáttanna sem tróna sem
oft fyrr efst á áhorfstölulistum.
Eru farnar að renna tvær grím-
ur á mannskapinn. „Við vitum
ekki enn hvort af þessu getur
orðið næsta vetur. Okkur þykir
súrt í brotið að hætta á þessum
tímapunkti. skilja þjóðina eftir í
ástandi þar sem ég held að mikil
þörf sé á gagnrýninni og skoplegri
umfjöllun. Okkur rennur blóðið til
skyldunnar að halda áfram starfi
meðan stætt er. En svo vitum við
ekki hvað sjónvarpið vill gera
eða hvort það hefur bolmagn til
að halda áfram óbreyttu starfi,“
segir Karl Ágúst.
Aðspurður hvort þetta verði
ekki bara eins og í söngnum um
tíu litla negrastráka, „og þá voru
eftir þrír …“ en fyrir tveimur
árum var Randver Þorláksson
skorinn úr hópnum. Að komið sé
að Pálma Gestssyni?
„Nei, ætli það. Ekki nema það
komi verulegur þrýstingur frá
Baugsmiðlunum. Ég veit ekki
hvaða áhrif þeir hafa,“ segir
Karl Ágúst sem veit ekki betur
en einhvers konar viðræður
muni fara fram innan tíðar. „Að
minnsta kosti verð-
um við að kveðja
og þakka fyrir
okkur áður
en við pökk-
um saman og
förum úr hús-
inu.“ Karl
Ágúst segir að
fyrir dyrum
standi æfingar
á nýrri sýningu
með leynilögreglu-
mönnunum Harry
og Heimi
sem t i l
stend-
ur
að
setja upp í Borgarleikhús-
inu en þar eru ásamt honum
Örn Árnason og Sigurður
Sigurjónsson.
- jbg
Síðasti Spaugstofuþátturinn í vinnslu
KARL ÁGÚST ÚLFSSON
Honum þykir súrt í brotið að
hætta á þessum tímapunkti
– oft var þörf en nú nauðsyn
á gagnrýninni og skoplegri
umfjöllun.
UMHVERFISVÆNT
OG FALLEGT
Stóll Andreu Tryggvadóttur er
klassískur í hönnun, undirlagið er úr
hvítu plastefni en setan úr við. Sætið
er upphitað en inni í stólnum er hiti
til að brjóta lífræna sorpið fyrr niður.
Bakkann neðst má svo draga út og fá
gróðurmold á tveggja vikna fresti.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Sparisjóðabankann og Sparisjóð
Reykjavíkur og nágrennis (SPRON).
2 Theo Hoen.
3 Ásgeir Örn Hallgrímsson.
Veljum íslenskt
25% AFSLÁTTUR AF
ÖLLUM FISKI Í DAG
ýsufl ök, lúðusneiðar laxafl ök, fi skréttir
hörpuskel, humar, rauðspretta og margt fl eira.
HUGSUM UM HEILSUNA OG BORÐUM FISK.