Lesbók Morgunblaðsins - 01.07.2006, Blaðsíða 7
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 1. júlí 2006 | 7
S
éra Bjarni Þorsteinsson fæddist
14. október 1861, sonur fátækra
bændahjóna sem bjuggu á Mel í
Hraunhreppi á Mýrum. Faðir
hans var forsöngvari í Stað-
arhraunskirkju og því ólst
Bjarni upp við tónlist, en ekki tónlistar-
menntun, því hann var kominn á fimmtánda
ár þegar hann sá nótnabók í fyrsta skipti.
Bjarni fékk styrk til
náms við Latínuskólann
í Reykjavík og á náms-
árum sínum hneigðist
hann æ meir til tónlistar. Hann gekk í söng-
félagið Hörpu og lærði að leika á orgel hjá
Jónasi Helgasyni organista. Einnig fékk
hann tilsögn í tónfræði hjá Jónasi. Á þessum
sama tíma, í kringum 1880, vaknaði áhugi
Bjarna á íslenskum þjóðlögum. Hann tók
eftir því að í söngvabókum fann hann hvergi
ýmis lög sem hann hafði lært á uppvaxt-
arárum sínum og þegar hann vakti máls á
þessu fékk hann þau svör að það væru inn-
lend lög sem hvergi væru til á nótum. Þegar
Bjarni talaði um nauðsyn þess að skrá þessi
íslensku lög mætti hann litlum skilningi og
fékk svör eins og „Það er ómögulegt að gefa
slík lög út, því það syngur þau hver upp á
sinn máta,“ eða jafnvel: „Það væri fallegt
fyrirtæki, eða hitt þó heldur, að fara að
prenta bannsett tvísöngsgaulið þeirra gömlu
karlanna.“ Engu að síður byrjaði Bjarni þeg-
ar á skólaárum sínum að skrá íslensk þjóð-
lög. Hann tók stúdentspróf vorið 1883 og
sama ár samdi hann sitt fyrsta lag, „Hjarta
mitt titrar“. Eftir stúdentspróf langaði
Bjarna til að fara utan í nám, en gat það
ekki sökum fjárskorts. Þess í stað vann hann
við kennslu og skrifstofustörf.
Veturinn 1885–1886 var Bjarni heim-
iliskennari og skrifari hjá Lárusi Blöndal,
sýslumanni á Kornsá í Vatnsdal. Þennan
sama vetur trúlofaðist hann dóttur Lárusar,
Sigríði Blöndal, sem þá var um tvítugt, og
fór trúlofunin leynt fyrst í stað. Að líkindum
hefur það verið vegna þessa sem Bjarni
ákvað að setjast í prestaskólann um haustið
1886. Hann hafði áður verið því fremur frá-
bitinn að verða prestur, en ættu þau Sigríð-
ur að geta gifst varð hann að geta séð fyrir
fjölskyldu. Hann tók embættispróf árið 1888,
fékk brauð á Hvanneyri í Siglufirði og var
vígður prestur 30. september sama ár.
Bjarni hélt til Siglufjarðar með póstskipinu
Thyru daginn eftir og kom þangað 8. októ-
ber 1888. Hann fékk húsnæði í svonefndu
Maddömuhúsi, húsinu sem nú hýsir Þjóð-
lagasafnið, og þar átti hann eftir að búa
næstu 10 árin, til 1898. Árið 1892 giftust þau
Sigríður og elstu börn þeirra fjögur fæddust
meðan þau bjuggu í Maddömuhúsi: Lára
Margrét Kristín 1893, Lárus Þórarinn Blön-
dal 1894, Ásgeir Blöndal 1895 og Árni Bein-
teinn Blöndal 1897. Yngsta dóttirin, Emilía
Kristín, fæddist 1901, en þá voru Bjarni og
Sigríður flutt í nýtt prestssetur á Hvanneyri,
hús sem Bjarni hafði látið byggja. Sigríður
kona Bjarna hafði mikla tónlistarhæfileika
og varð forsöngvari í kirkjukórnum og
kirkjuorganisti. Hún studdi líka Bjarna með
ráðum og dáð við þjóðlagasöfnunina og 10
þjóðlög í safninu eru komin beint frá henni.
Bjarni hélt þjóðlagasöfnun sinni áfram
jafnt og þétt, skrifaði sum lögin upp sjálfur
en stóð einnig í bréfaskriftum við fólk í öðr-
um landshlutum og voru sumir sérlega dug-
legir að senda honum lög, svo sem Benedikt
Jónsson á Auðnum í Þingeyjarsýslu og séra
Sigtryggur Guðlaugsson á Þóroddstað í
Köldukinn. Árið 1895 sótti Bjarni um styrk
söfnunarinnar til Alþingis. Honum var synj-
að. Hann var hins vegar kominn í samband
við danska tónskáldið J.P.E. Hartmann
(1805–1900), eitt virtasta tónskáld Dana á
19. öld, og hafði sent honum nokkur þjóðlög.
Hartmann ráðlagði Bjarna að sækja um
styrk til danska menningarráðuneytisins og
sendi Bjarna gott meðmælabréf. Það varð úr
að danska ráðuneytið hét að styrkja Bjarna
með 500 krónum ef Alþingi bætti við 1000
króna styrk. Samþykkti Alþingi það og segir
Bjarni í þjóðlagasafni sínu að styrkinn hafi
hann átt Hartmann „mest og bezt að
þakka“.
Árið 1899 sigldi Bjarni til Kaupmanna-
hafnar og dvaldist þar í þrjá mánuði við að
rannsaka tónlist í íslenskum handritum í
Árnasafni. Hann hitti þar dr. Angul Hamm-
erich söngfræðing og Finnur Jónsson pró-
fessor var honum einnig hjálplegur. Bjarni
dvaldist líka í nokkra daga í Svíþjóð. Þetta
sama ár komu út Sex sönglög eftir hann og
einnig Íslenskur hátíðasöngur til söngs í
kirkjum. Hátíðasöngvar Bjarna voru tíma-
mótaverk í íslenskri tónlistarsögu og eru
enn sungnir á stórhátíðum, jólum og pásk-
um, í flestum kirkjum landsins, þar á meðal
Dómkirkjunni í Reykjavík.
Á árunum 1901–1904 fékk Bjarni styrk til
söfnunarinnar frá Carlsberg-sjóðnum sem
var á vegum Carlsberg-ölgerðarinnar
dönsku, og munaði mikið um hann. 1904
sótti Bjarni um ferðastyrk til Alþingis og
fékk hann. Eftir að hafa dvalið í nokkurn
tíma í Kaupmannahöfn við rannsókn á hand-
ritum afhenti hann stjórnarnefnd Kaup-
mannahafnardeildar Hins íslenska bók-
menntafélags handritið að þjóðlagasafni sínu
og óskaði eftir útgáfu. Var handritinu vísað
til Reykjavíkurdeildar sem kaus þriggja
manna nefnd til að rannsaka handritið. Einn
nefndarmanna var Björn Kristjánsson kaup-
maður og alþingismaður, en hann hafði áður
verið á móti því að Bjarni fengi styrk til
söfnunarinnar. Nú lagðist hann gegn því að
safnið yrði gefið út, sagðist ekki vilja láta
gefa út svona stórar bækur, sem litlar líkur
væri til þess að nokkur læsi. Fróðleikurinn
um íslenskt sönglíf væri að vísu nokkurs
virði, en hann væri algjörlega á móti því að
hafa allar þessar nótur með, „sem ég get
ekki séð að nokkur maður á þessu landi hafi
gagn af,“ eins og hann orðaði það.
Aðrir nefndarmenn mæltu hins vegar með
útgáfu og var að lokum samþykkt að gefa
bókina út ef styrkur fengist einnig annars
staðar frá, en þó með því skilyrði að Bjarni
fengi engin ritlaun. Vildi Bjarni ekki sætta
sig við það og sneri sér að lokum aftur til
Carlsberg-sjóðsins. Það varð úr að Carls-
berg-sjóðurinn gaf út safn Bjarna, Íslensk
þjóðlög, á árunum 1906–1909.
Safnið hefur að geyma hátt í 500 lög, eru
sum úr gömlum handritum en stór hluti
safnsins eru lög sem varðveist höfðu í munn-
legri geymd og þykir það núna merkasti
hluti safnsins, þar sem mörg þessara laga
hefðu vafalaust glatast án frumkvæðis
Bjarna. Þar á meðal eru alþekkt lög eins og
„Björt mey og hrein“, „Fagurt galaði fuglinn
sá“ og „Blástjarnan“.
Þjóðlagasafnið mætti litlum skilningi í
fyrstu og virtust fáir gera sér grein fyrir því
hve mikilvægt starf Bjarni hafði unnið. En
eftir því sem árin liðu fóru augu manna að
opnast fyrir verðmæti safnsins og sífellt
fjölgaði íslenskum tónskáldum sem sóttu
þangað innblástur.
Bjarni hafði nóg að gera á þessum árum.
Auk þess að vera prestur var hann gjaldkeri
Sparisjóðs og Ekknasjóðs Siglufjarðar, frá
1893 til 1909 var hann einnig kennari við
barnaskóla Siglufjarðar og sýslunefnd-
armaður frá 1896. Þjóðlagasöfnunin var ekki
heldur eina tónlistarstarf hans, flest sönglög
Bjarna eru samin á árunum 1890 til 1910,
mörg á sama tíma og hann var önnum kaf-
inn við þjóðlagasöfnunina. Má þar nefna lög-
in „Systkinin“, „Kirkjuhvoll“, „Eitt er land-
ið“, „Blessuð sértu, sveitin mín“, „Ég vil
elska mitt land“ og „Sólsetursljóð“. Ofan á
allt annað lagði hann stund á ljósmyndun og
tók margar myndir af Siglfirðingum.
Eftir útkomu þjóðlagasafnsins gaf Bjarni
sig mjög að sveitarstjórnarmálum, beitti sér
fyrir því að Siglufjörður fengi vatnsveitu,
síma og rafmagn, og skipulagði einnig göt-
urnar í bænum. Hann var oddviti frá 1911 til
1919, en árið 1918 fékk Siglufjörður kaup-
staðarréttindi, að miklu leyti fyrir atbeina
séra Bjarna. Slíkar voru vinsældir Bjarna að
í fyrstu bæjarstjórnarkosningum á Siglufirði
1919 voru tveir listar í framboði og Bjarni
Þorsteinsson var efsti maður á báðum! Hann
var bæjarfulltrúi til ársins 1926.
Sigríður, kona Bjarna, lést árið 1928, en
Bjarni dó tíu árum síðar, 1938, 76 ára gam-
all. Fáar tónsmíðar hafa varðveist eftir hann
frá síðustu æviárum hans, en þó samdi hann
kantötu og sendi í keppnina um kantötur
fyrir Alþingishátíðina árið 1930. Sama ár var
hann sæmdur Hinni íslensku fálkaorðu og
kjörinn heiðursprófessor, og árið 1936 var
hann kjörinn heiðursborgari Siglufjarðar. Á
hverju kvöldi kl. 18.00 leika klukkur Siglu-
fjarðarkirkju stef úr lagi Bjarna, „Kirkju-
hvol“.
Bjarni Þorsteinsson og þjóðlagasafnið
Þjóðlagasafn Bjarna Þorsteinssonar hefur
verið opnað á Siglufirði. Hér er saga Bjarna
rakin og sagt frá áhuga hans á söfnun þjóð-
laga.
Eftir Unu Margréti
Jónsdóttur
Maddömuhúsið Hér er Þjóðlagasetrið til húsa en Bjarni Þorsteinsson bjó í húsinu um tíu ára skeið, frá 1888 til 1898. Ætlunin er að færa húsið í upphaflegt horf.
Bjarni Þorsteinsson Bjarni var prestur Siglfirð-
inga um áratugaskeið.
Höfundur er útvarpsmaður.