Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.2006, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.2006, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2006 7 Eftir Hjörleif Guttormsson hjorleifur@eldhorn.is E kkert málasvið er jafn áleitið og loftslagsbreytingar af manna- völdum sem nú gera vart við sig með æ áþreifanlegri hætti en eru samt smámunir í sam- anburði við það sem er í vænd- um haldi fram sem horfir. Í Lesbók 9. sept- ember sl. staðhæfði ég að núverandi sigling á alþjóðavísu leiði fyrr en varir í strand og hrein- an voða fyrir mannkynið og aðeins ný hugsun, gjörbreytt gildismat og hnattræn endursköpun framleiðslu- og fjármálastarfsemi geti komið í veg fyrir hrun siðmenningar og gífurlegar mannfórnir. Hér á eftir verður staldrað við nokkur atriði sem renna stoðum undir þessi orð mín og að íslensk stjórnvöld séu á röngu spori í loftslagsmálum. Viðbrögð í sögulegu ljósi Um fjórir áratugir eru frá því að farið var að birta niðurstöður mælinga á koldíoxíði í and- rúmsloftinu en þær hófust árið 1958 (sjá mynd 1). Stokkhólmsráðstefna Sameinuðu þjóðanna 1972 hafði að yfirskrift „Umhverfi mannsins“ og í ályktunum hennar var m.a. lögð áhersla á að safna öruggum upplýsingum um umhverfisáhrif af völdum mengunarefna frá orkuframleiðslu og orkunotkun, þar á meðal koldíoxíðs.1 Með þessu var grunnurinn lagður að víðtæku starfi Sam- einuðu þjóðanna sem bar ríkulegan ávöxt á Ríó- ráðstefnunni 1992, m.a. með alþjóðasamning- unum um loftslagsbreytingar og líffræðilega fjölbreytni. Í síðasta lagi frá þeim tíma áttu ábyrgir aðilar að geta gert sér grein fyrir hætt- unni af skaðlegum loftslagsbreytingum af mannavöldum og að grípa þyrfti til aðgerða. Kyótóbókunin 1997 var næsta skref en það tók heil 5 ár að fá hana staðfesta og þá stóðu enn ut- an við mestu mengunarvaldarnir eins og Bandaríkin og Ástralía. Fyrirfram var gengið út frá að þróunarríkin yrðu fyrst um sinn und- anþegin lagalega bindandi takmörkunum. Allan þennan tíma hefur af ýmsum verið alið á tortryggni og andstöðu við að taka loftslags- málin föstum tökum. Fremst í flokki hafa verið olíuframleiðsluríki og auðhringar í olíuiðnaði sem greitt hafa stórar fúlgur í skipulegan and- róður. Síðast í þessum mánuði sá talsmaður Bresku vísindaakademíunnar (Royal Society), Bob Ward, sig tilknúinn að afhjúpa falsanir bandaríska olíurisans Exxon Mobil og fjár- stuðning hans við fjölmarga sem rangtúlka vís- indalegar niðurstöður í loftslagsmálum.2 Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar bar kápuna á báðum öxlum í aðdraganda Kyótóbókunarinnar og gerði að skilyrði, þrátt fyrir heimild til 10% aukingar í losun þegar flest önnur iðnríki tóku á sig niðurskurð, að fá sérstaka undanþágu til los- unar frá orkufrekum iðnaði. „Íslenska ákvæðið“ margfræga er ásamt lágu orkuverði meginskýr- ingin á áhuga erlendra fjárfesta á áliðnaði hér- lendis. Forsætisráðherrann þáverandi ól á efa- semdum um vísindalegan grundvöll loftslagsmálanna og fyrrum aðstoðarmaður hans er ekki sannfærður um að aukningin sé öðru fremur af mannavöldum.3 Það er ekki síður alvarlegt að íslenska ríkisstjórnin gaf til kynna við upphaf samningaviðræðna um næsta los- unartímabil eftir 2012 að hún muni sækjast eftir frekari sérkjörum hvað losun varðar. Með því væri Ísland sem þjóðríki að skerast öðru sinni úr leik varðandi það skuldbindandi verkefni samkvæmt Lofslagssamningnum frá 1992 að draga stórlega úr mengun gróðurhúsalofts hér- lendis til að hamla gegn loftslagsbreytingum. Jöfnuður forsenda samstöðu Baráttan við loftslagsbreytingar af völdum mengunar er langstærsta og vandasamasta við- fangsefni sem alþjóðasamfélagið hefur staðið frammi fyrir. Aðeins varðveisla heimsfriðar og hættan af kjarnorkuvá getur staðist samjöfnuð og kannski eru þessir þættir tengdari en ætla mætti við fyrstu sýn. Verkefnið er að koma mengun lofthjúpsins frá mannlegum athöfnum og framleiðslustarfsemi sem fyrst niður fyrir augljós hættumörk, sem ESB hefur sett við 2°C hækkun meðalhita á jörðinni frá því sem var fyrir tíma iðnbyltingar. Á 20. öld nam mæld hækkun meðalhita í Evrópu 0,95°C, nokkru meira en 0,7°C hækkun á jörðinni í heild. Það auðveldar ekki glímuna að fjöldi jarðarbúa er talinn muni aukast um 50% á fyrri hluta þess- arar aldar og verða 9 miljarðar skömmu eftir 2040. Meginhluti þessarar fjölgunar verður í þróunarlöndum þar sem þörfin fyrir bætt lífs- kjör er knýjandi. Vonlaust er að mínu viti að ná þeirri samstillingu sem til þarf meðal ríkja heims nema að leiðarljósi sé hafður jöfnuður milli þjóða í aðgangi að lofthjúpnum sem líta verður á sem sameign mannkyns. Athyglisverð er sú hugmynd sem Global Commons Institute hóf kynningu á fyrir rösk- um áratug undir heitinu „Samdráttur og sam- leitni“ (Contraction and Convergence).4 Hún gengur út frá því sem forsendu að jafnað verði smám saman bilið í losunarheimildum ríkra þjóða og fátækra að teknu tilliti til fólks- fjölda. (sjá mynd 2). Tillaga GCI gerir ráð fyrir að heildarmagn gróðurhúsaloftttegunda frá ko- lefnaeldsneyti í andrúmslofti verði, eftir að tek- ist hefur að stöðva aukna losun, dregið saman um helming stig af stigi og verði komið niður í 450 ppm (parts per million) á rúmmálseiningu árið 2100. Nú er þessi tala að nálægt 380 ppm, um 100 ppm hærri en fyrir iðnbyltingu en mun hækka verulega á næstunni vegna aukinnar los- unar, ekki síst í þróunarríkjum. Ósjálfbær efnahagsvöxtur Margar hugmyndir hafa komið fram á vettvangi Loftslagssamningsins og frá öðrum aðilum um það hvernig hamla megi gegn og draga úr losun gróðurhúsalofts, m.a. með nýjum og umhverf- isvænum orkugjöfum, bindingu í gróðri, skatt- lagningu, sölu losunarheimilda, þróunaraðstoð í hreinni tækni og niðurdælingu á koldíoxíði. Slíkar hugmyndir eru góðra gjalda verðar en hætt er við að þær hrökkvi skammt á meðan ósjálfbær efnahagsvöxtur og skefjalaus neyslu- hyggja er driffjöður efnhagsstarfsemi á heims- vísu. Víða eru einnig á kreiki hugmyndir um að auka raforkuframleiðslu með kjarnorku sem er í senn áhættusamur og ósjálfbær orkugjafi, m.a. vegna geislavirks úrgangs. Af þeim sökum er nú sums staðar verið að loka kjarnorkuverum, m.a. í Svíþjóð og Þýskalandi. Sívaxandi hluti hagvaxtar á Vesturlöndum, borinn uppi af jarðefnaeldsneyti, er ósjálfbær þar eð hann felur jafnframt í sér að varanlega er gengið á náttúruauðlindir og lífsgæði núverandi og komandi kynslóða. Verg þjóðarframleiðsla sem einhliða mælikvarði á hagvöxt segir ekkert til um hvort vextinum er náð á sjálfbæran hátt eða hvort og að hve miklu leyti um er að ræða ósjálfbæra og umhverfisskaðlega starfsemi.5 Þannig er kynt undir ranghugmyndum um að slíkur óskilgreindur hagvöxtur sé eftirsókn- arvert markmið og eins konar allrameinabót. Með auknum hagvexti stækki „kakan sem sé til skiptanna, láglaunamaðurinn geti huggað sig við að fá einhverja mola í sinn hlut, þótt meirip- arturinn komi í hlut hátekjufólks og fjármagns- eigenda. Vikulega birtast hrikalegar tölur um vaxandi ójöfnuð, ofurtekjur og svimandi gróða þeirra sem ekki vissu aura sinna tal fyrir. Á hinu leitinu kúrir miljarður manna í þróun- arlöndum sem ekki á til hnífs og skeiðar. Þessi öfugþróun á sér langa sögu en hnatt- væðing viðskipta samhliða óhindruðu flæði fjár- magns, og nú í vaxandi mæli einnig vinnuafls, bætir gráu ofan á svart. Með hnattvæðingunni er kynt undir ósjálfbærum efnahagsvexti og fjölþjóðafyrirtækjum og fjármagnseigendum gefið færi á að sniðganga mengunarvarnir og skattgreiðslur og þrýsta niður launum. Vald þessara afla fer stöðugt vaxandi á sama tíma og máttur þjóðríkja til að setja þeim skorður í al- mannaþágu og umhverfis hefur veikst. Við þessar aðstæður er erfitt að sjá hvernig komið verði böndum á sívaxandi mengun lofthjúpsins og aðra umhverfiseyðingu. Ört vaxandi mengun frá samgöngum Ört vaxandi losun gróðurhúsalofts frá sam- göngum er bein afleiðing hnattvæðingar og samruna, sem áróðursmeistarar tengja við hug- takið „frelsi“ eins og svonefnt fjórfrelsi Evrópu- sambandsins er lýsandi dæmi um. Nú glímir ESB við afleiðingar þessa frelsis þar sem losun gróðurhúsalofts frá flutningum og sístækkandi bílaflota gerir meira en éta upp ávinninga á öðr- um sviðum.6 Loftgæði í mörgum evrópskum borgum uppfylla ekki settar kröfur með alvar- legum afleiðingum fyrir heilsufar fólks en nú er talið að um 370 þúsund manns látist árlega í Evrópu vegna loftmengunar.7 Hér á landi er ekki ósvipað uppi á teningnum þar sem vega- samgöngur valda allt að þriðjungi af heild- arlosun gróðurhúslofts. Vaxandi bílaeign lands- manna og þungaflutningar á vegum hafa meira en vegið upp eldsneytissparnað í nýrri árgerð- um bíla. Þróunin á þessu sviði veldur hvarvetna áhyggjum þar eð bílum fjölgar enn ört, þar á meðal í nýiðnvæddum ríkjum. Svo slæm sem mengunin frá bílaflotanum er þá er losun gróðurhúsalofts í flugsamgöngum enn meira í brennidepli þessa stundina. Vöxtur í farþegaflugi innan EES-svæðisins jókst um 96% á tímabilinu 1990–2002, m.a. með tilkomu lággjaldaflugfélaga. Flug leggur nú til 3,5% af heildarlosun í heiminum en því er spáð að hlutur þess vaxi í 5% um miðja öldina, meira en nokkur annar þáttur efnahagsstarfseminnar. Vegna út- blásturs margra tegunda mengunarefna frá flugvélum eru heildaráhrifin á hlýnun andrúms- lofts frá flugsamgöngum talin 2–4 sinnum meiri en sem svarar til losunar koldíoxíðs eingöngu.8 Umreiknað á farþega er alþjóðaflug því afar óvistvænt og nemur losun CO² t.d. 1,2 tonnum á mann á leiðinni London–New York en meðaltal heildarlosunar á mann að meðaltali á ári í ESB var um 11 tonn árið 2004. Flugsamgöngur milli landa eru ekki inni í losunarbókhaldi Kyótóbók- unarinnar en mjög er knúið á um að á því verði breyting.9 Það getur síðan haft mikil áhrif á stöðu flugs í samgöngum milli landa og heims- hluta, þar á meðal til og frá Íslandi. Ísland á alröngu spori Engin innistæða er fyrir sjálfumgleði eða and- varaleysi af Íslendinga hálfu þegar kemur að loftslagsmálum. Hvert land hefur vissulega sína sérstöðu og staða okkar er um margt jákvæð sem fámennrar og velmegandi eyþjóðar í stóru landi. Lífríkið bæði til lands og sjávar hefur hér sem annars staðar lagað sig að umhverf- isaðstæðum sem lítið hafa breyst um árþús- undir. Það er því viðkvæmt fyrir miklum sveifl- um og breyting á hafstraumum getur haft víðtækar afleiðingar fyrir þjóðarhag. Þótt óvissa ríki um áhrif hlýnunar, m.a. á bráðnun hafíss og jökla, þar á meðal Grænlandsjökuls, verðum við nú og framvegis að gera ráð fyrir slíkri þróun. Hugmyndir um miklar nýbygg- ingar á landfyllingum á höfuðborgarsvæðinu ríma illa við hækkun sjávarborðs um allt að 5 metra. Okkur ber að taka fullan og ábyrgan þátt í alþjóðlegum aðgerðum til að hamla gegn lofts- lagsbreytingum. Sérstaklega ber okkur að gjalda varhug við þeirri gullgrafarahugsun sem einkennt hefur fjárfestingar heima og erlendis síðasta áratuginn. Stóriðjuframkvæmdirnar umdeildu á Austurlandi og aðrar slíkar á teikni- borðinu eru lýsandi dæmi um blinda hagvaxt- arhyggju án tillits til náttúrufarslegra og fé- lagslegra afleiðinga. Meira að segja orka jökulánna, hið margrómaða vatnsafl, dregur úr hæfni sjávar til að binda gróðurhúsaloft þegar framburðurinn berst ekki lengur óhindrað til hafs.10 Íslenskar orkulindir bjarga ekki heimi sem er á gegndarlausu sólundarspori. Það væri hrapalleg skammsýni að nýta þær frekar en orðið er til mengandi stóriðju og fórna í leiðinni öðrum náttúrugæðum sem gildi hafa fyrir okk- ur og heimsbyggðina. Samkvæmt upplýsingum Umhverfisstofn- unar um losun gróðurhúslofts hérlendis erum við nú komin rösklega 10% fram yfir losun við- miðunarársins 1990 og þannig upp undir þak Ís- lands samkvæmt Kyótóbókuninni. Losun gróð- urhúsalofts á mann nam hér 12 tonnum að jafnaði árið 2004 og hefur aukist síðan. Þetta er tonni meira en hliðstæð tala í Evrópusamband- inu þetta sama ár. Gangi hugmyndir stjórn- valda um frekari álvæðingu eftir förum við létt með að slá Evrópumet í mengun með allt að 20 tonna árlega losun á mann eftir um áratug og værum þá komin fast á hæla Bandaríkjanna. Ég efast um að meirihluti Íslendinga vilji taka þátt í slíkri vegferð.  1 Hjörleifur Guttormsson. Vistkreppa eða náttúruvernd. Mál og menning 1974, s. 26–30 og 61–75. 2 Bréf Royal Society, dags. 4. september 2006. Guardian 20. sept. 2006. Sjá slóðina http://www.guardian.co.uk/ 3 Illugi Gunnarsson. Hægri grænt – náttúruvernd og nátt- úrunýting. Lesbók Morgunblaðsins 29. júlí 2006. Sami í Lesbók 9. september 2006, s. 5. 4 Global Commons Institute. Contraction and Convergence. A Global Solution to a Global Problem. http:// www.gci.org.uk/contconv/cc.html 5 Sjá m.a.: 1) Herman E. Daly. Uneconomic growth in theory and in fact. Lecture at Trinity College, Dublin 1999. http://www.feasta.org/documents/feastareview/daly.htm 2)Jean-Marie Harribey. Growth, the world́s hard drug. Le Monde diplomatic, August 2004, s. 6–7. 6 European Environmental Agency (EEA). EU greenhous gas emissions increase for second year in a row. Press re- lease, Copenhagen 22 June 2006. 7 EEA. Transport growth – an environmental dilemma for Europe. Press release – Copenhagen 28 March 2006. 8 EU News, 22. maí 2005. 9 George Monbiot. On the flight path to global meltdown. Guardian Unlimited, 21. september 2006. 10 Sigurður R. Gíslason, Eric H. Oelkers og Árni Snorrason. Role of river–suspended material in the global carbon cycle. Geology. Tímarit Bandaríska jarðfræðafélagsins, Vol. 34, I 2006, s. 49–52. Ósjálfbær hagvöxtur og loftslagsbreytingar                                      !" #$%&  '    )  ''           !"  #$    ! "#!$!%$ & '  #!"                                 %  (#&)* +  &     &                 !"!#$%& '%  ( Engin innistæða er fyrir sjálfumgleði eða andvaraleysi af Íslendinga hálfu þegar kem- ur að loftslagsmálum, segir greinarhöfundur sem telur að Íslendingar verði að taka ábyrg- ari afstöðu til hlýnunar jarðar af völdum loftslagsbreytinga. Höfundur er fyrrv. alþingismaður og ráðherra. » Sérstaklega ber okkur að gjalda varhug við þeirri gull- grafarahugsun sem einkennt hefur fjárfestingar heima og erlendis síðasta áratuginn.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.