Morgunblaðið - 03.01.2006, Page 2

Morgunblaðið - 03.01.2006, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STRÆTÓ HÆKKAR GJÖLD Fargjöld hjá Strætó bs. hækkuðu 1. janúar sl. um að meðaltali 10% en stjórn fyrirtækisins tók ákvörðun um hækkunina 16. desember 2004. Gjaldskráin hækkaði síðast í febrúar 2003 og þar áður í júlí 2001. Með nýju gjaldskránni hækkar venjulegt far- gjald úr 220 krónum í 250 krónur og barnagjald hækkar úr 60 krónum í 75 krónur. Fá rannsóknaleyfi við helli Þríhnúkar ehf. hafa gert tíma- mótasamning við Kópavogsbæ vegna rannsókna á Bláfjallafólkvangi þar sem er að finna dýpstu hraunhvelf- ingu heims. Samningurinn felur í sér rannsóknaleyfi til fimm ára og vilyrði fyrir úthlutun lands ef í ljós kemur að fýsilegt er að gera hellinn aðgengi- legan almenningi. Þá fékk félagið 1 milljón kr. í styrk frá bænum. Lofa nægu gasi Talsmaður Gazprom, rússneska orkufyrirtækisins, sagði í gær, að gasflutningar til Evrópu yrðu komnir í samt lag í dag en í gær voru þeir 20 til 40% minni en venjulega. Kenndu Rússar Úkraínumönnum um og sögðu þá hafa stolið gasi, sem fara átti til Evrópu, eftir að Rússar lok- uðu fyrir gasflutning til þeirra. Það gerðu þeir eftir að Úkraínumenn neituðu að greiða næstum fimmfalt verð fyrir gasið frá Rússum eða heimsmarkaðsverð. Hefur þessi deila valdið miklum áhyggjum í Evrópu en í heild kaupa Evrópuríkin 20–25% gassins frá Rússlandi. Í Austur- Evrópu er hlutfallið hins vegar um 80-90%. Orkuráðherrar Evrópusam- bandsins ætla að funda um málið á morgun en deilan hefur vakið spurn- ingar um hvort unnt sé að treysta Rússum og hve viturlegt sé að vera háður þeim að þessu leyti. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Umræðan 28/31 Viðskipti 14 Bréf 31 Úr verinu 15 Minningar 32/38 Erlent 16/17 Dagbók 40 Heima 18 Víkverji 40 Landið 19 Velvakandi 41 Akureyri 20 Staður og stund 42 Suðurnes 20 Leikhús 44 Austurland 21 Menning 40/46 Daglegt líf 22/23 Bíó 46/49 Menning 24/25 Ljósvakamiðlar 50 Forystugrein 26 Veður 51 Viðhorf 28 Staksteinar 51 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                   ! " # $ %           &         '() * +,,,                             NOKKUÐ hefur borið á því að hestar fælist vegna flugelda á ára- mótum. Hjá Vésteini Vésteinssyni, bónda í Hofsstaðaseli í Viðvíkur- sveit í Skagafirði, hvarf 40 hesta stóð á gamlárskvöld og tók á rás til fjalla. „Það var gamlárskvöld hjá mér eins og fleirum og við erum með slatta af hrossum hér á þessum bæ. Sprengingar og flugeldaskothríð hófust á Sauðárkróki um klukkan hálfníu,“ segir Vésteinn. „Við gáf- um hrossunum á sínum stað en sáum svo um klukkan hálftíu að þau voru horfin. Þau voru í girðingu en við skildum hliðið eftir opið því fyrir tveimur árum gerðist það sama. Þá stukku hrossin á girðingar í myrkr- inu og drógu á eftir sér girðinga- dræsur og annað.“ Vésteinn var með annað stóð í girðingu og fóru þau hross ekkert en hann sagði í gær að þau væru mjög hvekkt. Hann segir viðbúið að skepnur tryllist og verði mjög hræddar undir þessum kringum- stæðum. Helst sé mögulegt að koma í veg fyrir svona atvik með því að hafa dýrin í húsi. „Það er líka spurning hvort þeir sem standa fyrir þessu þurfi að hafa svona mikinn hávaða og læti þótt þeir standi fyrir ljósadýrðinni,“ segir hann. Aukinn hávaði í seinni tíð Hross Vésteins fundust í gær en voru ókomin af fjalli síðla dags. „Þau voru komin langt upp á reg- infjöll í um 1.000 til 1.100 metra hæð og í mikilli fjarlægð héðan,“ segir hann. „Þau eru að fara algera ófæru, það er aldrei farið um þessar slóðir á hestum í smalamennsku. Þetta er svo bratt og grýtt.“ Vésteinn telur að umræða þurfi að fara fram um hver sé ábyrgur hann. „Allar skepnur verða skelf- ingu lostnar, það er mikill hávaði og loftþrýstingur af þessu. Veður hef- ur líka mikið að segja. Nú var kyrrt og hljóðbært og bergmálið mikið hér fjalla á milli.“ Vésteinn segir að á tveimur bæj- um í nágrenninu hafi hestar líka fælst um áramótin en þeir eru allir fundnir. Björgunarsveitarmenn voru að sækja þá í gær, en Vésteinn bjóst ekki við sínum af fjalli fyrr en undir myrkur í gær. Ástand þeirra yrði því ekki skoðað fyrr en í dag. Hann segir að slys hafi orðið með þessum hætti á undanförnum árum og hross drepist. Þau ærist oft svo að þau fari á slóðir sem menn eigi erfitt með að komast um gangandi. Nokkuð sem menn verða að lifa með Bjarni Finnsson, formaður Fáks, kveðst ekki hafa heyrt um nein óhöpp á höfuðborgarsvæðinu. „Menn passa upp á þetta og hrossin eru auðvitað aldrei laus hér í bænum,“ segir hann. „Auðvitað grípur um sig mikil hræðsla en ég hef ekki heyrt um nein óhöpp. Hestar virðast finna til meira ör- yggis þegar þeir eru inni í húsum.“ Bjarni segir marga reyna að koma hestum sínum á hús fyrir ára- mótin en að ekki sé alls staðar að- staða til þess. „En á hvers ábyrgð það á að vera er auðvitað spurning. Þetta er nátt- úrulega orðið svo geggjað. Þar sem ég er með hross austur í sveit höf- um við lent í að missa hross vegna flugelda um verslunarmannahelgi. Þá er verið að stelast til þess að skjóta og þá eru menn ekki eins við- búnir,“ segir hann. „Þetta er heil- mikið vandamál víða, því þetta eru hjarðdýr og um leið og einhver hræðsla kemur taka heilu flokkarn- ir á rás.“ Bjarni segist ekki hafa velt því fyrir sér hvar ábyrgðin liggi ef bændur verði fyrir skaða vegna þessa. „Þetta er nokkuð sem menn verða væntanlega að lifa með,“ seg- ir hann. „Varla verður bannað að skjóta upp flugeldum á gamlárs- kvöld.“ fyrir uppákomum sem þessum. „Ég hef enga skoðun á því. En í seinni tíð virðist mér hávaðinn stór- aukinn í flugeldunum, menn eru farnir að leggja svo mikla áherslu á sprengingarnar. Ég hefði nú talið að ljósadýrðin myndi nægja,“ segir Fleiri en 40 hestar hlupu til fjalla undan flugeldum Stóðið er hér á leið af fjalli í gær. Sjá má út Gljúfurárdal og út á Skaga- fjörð. Tindastóll sést handan fjarðarins. FLUGELDAR eru taldir vera orsök þess að fimm íslenskir hestar drápust þegar lest keyrði á þá í nánd við Køge á Jótlandi í Danmörku á nýárs- morgun. Hestarnir höfðu rifið sig lausa úr gerði, líklega vegna hræðslu við hljóð sem þeir þekktu ekki. Lögreglan í Køge álítur það kraftaverk að lestin fór ekki af sporinu þegar hún rakst á hestana og að eng- inn farþeganna fjögurra í lest- inni meiddist. Þetta kemur fram í netmiðli Jyllands- Posten. Ökumaður hafði skömmu fyrir slysið tilkynnt um nokkra lausa hesta á svæð- inu en sagt er að lestarstjórinn hafi ekki getað afstýrt slysinu, enda var þoka og myrkur þeg- ar það átti sér stað. Lestin var á 75 kílómetra hraða þegar slysið varð en hestarnir stóðu allir á járnbrautarteinunum. Fjórir þeirra drápust strax en sá fimmti dróst með lestinni þar til hún stöðvaðist og drapst áður en dýralæknir kom á stað- inn. Fimm íslenskir hestar urðu fyrir lest og drápust Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is MANNLEG og tæknileg mistök ollu því að sjúkraflugvél var 25 mínútum lengur að leggja af stað á nýársnótt en reglur kveða á um. Ennfremur virðast mistök hafa valdið því að eng- in sjúkraflugvél var staðsett á Ísa- firði þessa nótt og því þurfti að kalla eftir flugvél frá Akureyri. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær slasaðist ungur maður á Tálknafirði skömmu eftir miðnætti á nýársnótt þegar hann fékk flugeld í augað. Lögreglan á Patreksfirði bað um að sjúkraflugvél yrði sett í við- bragðsstöðu kl. 00:20 og tuttugu mín- útum síðar var óskað eftir að hún næði í sjúklinginn. Vélin fór þó ekki í loftið fyrr en um kl. 3:00. Reglur um sjúkraflug gera ráð fyr- ir að það eigi ekki að líða meira en 45 mínútur frá því að beiðni berst þar til flugvél er komin á loft, en í þessu til- viki virðist hafa tekið 73 mínútur að gera allt klárt. Erling Þór Júlínusson, slökkviliðs- stjóri á Akureyri, segir að sjúkra- flutningamaður og læknir hafi verið mættir út á flugvöll á eðlilegum tíma. Það sé hins vegar flugfélagsins að skýra tafirnar. Friðrik Adólfsson, rekstrarstjóri hjá Flugfélagi Íslands, segir að mannleg og tæknileg mistök hafi valdið þessum töfum. Það hafi komið upp tæknilegt vandamál sem hafi valdið töfum en eins hafi verið gerð mannleg mistök þegar gengið var frá flugplani. Flugvélin kom við á Bíldu- dal til að taka eldsneyti í stað þess að taka eldsneyti í Reykjavík. Friðrik segir að flugmaðurinn hafi tekið ákvörðun um þetta í samráði við lækni sem var með í för. Engin vél á Ísafirði Ingþór Guðjónsson, lögreglumað- ur á Patreksfirði, segist vera óánægður með hversu langan tíma sjúkraflugið tók, en einnig þyrftu að fást skýringar á því hvers vegna eng- in sjúkraflugvél hefði verið á Ísafirði eins og reglur kveði á um. Landsflug hefur séð um sjúkraflug á Vestfjörðum samkvæmt sérstökum samningi við heilbrigðisráðuneytið. Samningurinn rann hins vegar út um áramót. Ingþór segir að sjúkraflug- vél frá Landsflugi hafi farið frá Ísa- firði um hádegisbil á gamlársdag. Mýflug tók við sjúkrafluginu um ára- mót, en engin vél kom þangað fyrr en á nýársdag. Mýflug ætlar að sinna fluginu með sérhæfðri sjúkraflugvél, en hún er ekki komin til landsins. Leifur Hall- grímsson, framkvæmdastjóri Mý- flugs, segir að vélin verði ekki komin til landsins fyrr en í mars/apríl og fé- lagið hafi því samið við Flugfélag Ís- lands um að sinna sjúkrafluginu á meðan. Flugfélagið hafi því séð um flugið á nýársnótt og muni tryggja að vél sé til taks á Ísafirði. Fyrr um kvöldið fór Flugfélagið í sjúkraflug til Vopnafjarðar, en þá tók 35 mínútur að koma vélinni í loftið frá Akureyr- arflugvelli frá því að beiðni barst. Tæknileg og mann- leg mistök töfðu STÓRU olíufélögin þrjú hækkuðu ígær verð á hverjum lítra af bensínium 1,50 krónur og segja ástæðuna vera hækkun heimsmarkaðsverðs. Eftir breytinguna er algengasta verð á lítra af 95 oktana bensíni í sjálfsafgreiðslu á stöð með fullri þjónustu á höfuðborgarsvæðinu 109,80 kr. og lítri af dísilolíu kostar 107,80 kr. Verð hafði ekki verið hækkað hjá Atlantsolíu síðdegis í gær og kostar bensín þar 106,9 krónur lítrinn og dísilolíulítrinn 106,3 krónur. Eldsneyti er 0,10 krónum ódýrara á stöðvum Ork- unnar. Á ÓB-stöðvum og EGO- stöðvum kostar bensín 108,40 krón- ur og dísilolía 106,40 krónur. Bensínverð hækkar um 1,50 krónur ÖKUMANNI brá svo í brún þegar kviknaði í bifreið hans á ferð að hann keyrði út af. Varð þetta við bæinn Teig í Eyjafirði um sexleytið í gærkvöld. Ökumaðurinn slapp ómeiddur en bíllinn er ónýtur. Þá rann fólksbíll til á þjóðveginum við Háreksstaði, á Möðrudalsvegi, í gær og lenti á veghefli sem kom á móti. Lögreglan telur bílinn hafa runnið til af því að hann hafi verið á sumardekkjum, en hvasst var. Öku- maður og farþegi sluppu með minniháttar meiðsli. Keyrði út af þeg- ar kviknaði í bíl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.