Morgunblaðið - 03.01.2006, Page 4

Morgunblaðið - 03.01.2006, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LARS Lönnroth, prófessor í bók- menntafræði við háskólann í Lundi, fékk í gærmorgun að kanna skjöl sænsku akademíunnar um veitingu Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum árið 1955. Hann segist ekki sjá nokk- ur merki um að raunverulega hafi komið til greina að Gunnar Gunn- arsson fengi verðlaunin en íslenskir andstæðingar hans hafi komið í veg fyrir það. „Ég get sagt strax að það er eng- inn fótur fyrir því sem fram hefur komið í yfirlýsingum ættingja Gunn- ars,“ sagði Lönnroth. „Það er ekki neitt símskeyti frá Sigurði Nordal, Jóni Helgasyni eða hinum. Ég las nokkur bréf frá Jóni Helgasyni og Sigurði Nordal sem voru í skjalasafn- inu. Það var ekkert neikvætt um Gunnar Gunnarsson í þessum bréf- um. Það er augljóst að ekki var rætt um Gunnar í þessu sambandi fyrr en seint í ferlinu. Stungið var upp á Hall- dóri Laxness fyrst árið 1948, aftur 1949, einnig 1950, 1951, 1952 og 1953. Aldrei var stungið upp á Gunn- ari Gunnarssyni þessi ár. En nokkrir liðsmenn akademíunnar voru andvíg- ir Laxness vegna róttækra stjórn- málaskoðana hans og þess vegna reyndi Anders Österling að þreifa fyrir sér um málamiðlun. Myndu þá Gunnar Gunnarsson og Halldór Lax- ness deila verðlaununum. En þetta kom fram býsna seint í ferlinu, árið 1955, og hinum félögum akademíunnar leist ekki á hugmynd- ina. Þeim fannst rangt að skipta verð- laununum, þeir voru almennt á móti því að skipta bókmenntaverð- laununum. Þeir sögðu ekkert nei- kvætt um Gunnar, voru almennt já- kvæðir í hans garð en töldu ein- faldlega að Lax- ness væri meiri rithöfundur. Þess vegna ákváðu þeir að hann fengi verðlaunin einn.“ Lönnroth sagði að nokkrar deilur hefðu verið í akademíunni á loka- sprettinum en það hefði verið vegna þess að margir vildu taka spænska skáldið Jimenez fram yfir Laxness sem hefði að lokum sigrað naumlega. Jimenez fékk síðan verðlaunin næsta ár, 1956. „Ég held að öll þessi saga um að Gunnar Gunnarsson hafi fengið að vita að hann hefði hlotið verðlaunin, sagan um símskeytið, um póstmeist- arann sem sagði Gunnari frá því, sé ekki annað en goðsögn. Þetta er skáldskapur. Ég er ekki með þessu að segja að ættingjar Gunnars Gunnarssonar hafi skrökvað vitandi vits. Það getur verið að þeir hafi ímyndað sér að hlutirnir hafi gerst með þessum hætti. Þeir hafa kannski misskilið eitthvað og hugmyndin þannig orðið til. En eftir að hafa séð skjölin tel ég að hægt sé að segja að ekki sé minnsti fótur fyrir þessari sögu,“ sagði Lars Lönnroth prófessor. „Enginn fótur fyrir sögunni“ Lars Lönnroth Árið 1955 barst Sænsku akademíunni aldrei formlegt skeyti frá Jóni Helga- syni, Sigurði Nordal, Peter Hallberg og Ragnari Jónssyni þar sem mælt var gegn því að Gunnar Gunnarsson fengi nóbelsverðlaun það ár. Alltént er ekkert slíkt skeyti í vörslu aka- demíunnar. Þetta kemur fram í svari akademí- unnar við fyrirspurn Halldórs Guð- mundssonar, ævisagnaritara Hall- dórs Laxness, en í gær var fimmtíu ára leynd lyft af skjölum akademíunn- ar um aðdragandann að því að Hall- dóri Laxness voru veitt nóbelsverð- launin árið 1955. Halldór Guðmundsson fékk skjöl akademíunnar send í gærmorgun eft- ir nokkra eftirgangsmuni en aðalrit- ari akademíunnar, Horace Engdahl, hefur ekki svarað formlegu erindi Morgunblaðsins um að fá aðgang að gögnunum. Gunnar Björn Gunnarsson, barna- barnabarn Gunnars skálds, hélt því fram í samtali við Morgunblaðið fyrir skömmu að umrætt skeyti hefði verið sent akademíunni. Hann sagði einnig frá símtali sem langafi hans hefði fengið frá akademíunni þar sem hon- um hefði verið tilkynnt að hann fengi verðlaunin. Í bók Matthíasar Johannessen Málsvörn og minningar, sem kom út í fyrra, kemst hann meðal annars svo að orði: „Gunnar Gunnarsson sagði mér á sínum tíma að það hefði verið hringt í hann og honum skýrt frá því að hann fengi nóbelsverðlaun ... ég man ekki hver hringdi í hann, held þó Gunnar hafi sagt mér það. En það var áhrifamikill nefndarmaður í akademí- unni.“ Matthías sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að sá sem hringdi í Gunnar hefði um leið óskað honum til hamingju með verðlaunin og sá Matt- hías ekki betur en að Gunnar hefði á sínum tíma verið sannfærður um að hann fengi þessi verðlaun. En það hefði svo breyst. Matthías sagði hins vegar að Gunn- ar hefði aldrei minnst á neitt sím- skeyti við sig. „Ég heyrði hann aldrei nefna neitt símskeyti, né sýndi hann mér það.“ Lagt til að Halldór og Gunnar skiptu verðlaununum Í gögnum akademíunnar, sem op- inberuð voru í gær, kemur fram að 23. september 1955 hafi Nóbelsnefndin, sem er þriggja manna undirnefnd akademíunnar sem á endanum velur verðlaunahafann, lagt til að Gunnar Gunnarsson og Halldór Laxness myndu skipta með sér verðlaununum þetta ár. Í nefndinni sátu Anders Österling formaður, Sigfrid Sivertz og Hjalmar Gullberg. Til vara lagði Österling til að belgíski rithöfundur- inn Eugène Baie fengi verðlaunin og þriðji til vara yrði spænski höfund- urinn Juan Ramón Jimenez sem hlaut verðlaunin árið 1956. Sivertz studdi tillögu Österlings en Gullberg skilaði séráliti og lagði til að Halldór fengi verðlaunin einn. Ekkert kemur fram í gögnunum um að tillaga Österlings hafi hlotið hljómgrunn í akademíunni. Halldór Guðmundsson segir það staðfesta nið- urstöðu rannsókna sinna sem byggj- ast meðal annars á lestri bréfa með- lima akademíunnar frá þessum tíma. Halldór fékk tíu atkvæði og fimm tilnefningar Í gögnunum kemur einnig fram að í lokaatkvæðagreiðslu akademíunnar um verðlaunahafann hlaut Halldór tíu atkvæði, spænski málfræðingurinn Ramón Menendez Pidal hafi fengið 3 og einnig Juan Ramón Jimenez. Tvö atkvæði skiluðu sér ekki, annað þeirra vegna þess að einn meðlima akademí- unnar var annar látinn og ekki búið að skipa í hans stað. Akademían upplýsir ekki hverjir sátu fundinn. Einnig kemur fram að fimm til- nefndu Halldór til verðlaunanna þetta ár, Elías Wessén, sem var sænskur fræðimaður og meðlimur akademí- unnar, Sverker Ek, prófessor emerti- tus í bókmenntasögu við Gautaborg- arháskóla, auk Jóns Helgasonar, Sigurðar Nordal og Steingríms J. Þorsteinssonar sem allir voru pró- fessorar í íslenskum bókmenntum og höfðu þess vegna rétt til að tilnefna. Tveir tilnefndu Gunnar Gunnars- son, Henry Olsson bókmenntafræð- ingur og Harry Martinson rithöfund- ur. Eins og fram hefur komið áður til- nefndi Stellan Arvidson hjá sænska rithöfundasambandinu Gunnar og Halldór saman til verðlaunanna. Umsagnir um Gunnar og Halldór Í greinargerð Österlings með til- lögu sinni um að skipta verðlaununum á milli Gunnars og Halldórs segir hann kost og löst á höfundunum tveimur. Hann segir að Gerpla teljist ekki til mikilvægustu verka Halldórs og segir hana skopstæla fornsögurn- ar. Bendir Halldór Guðmundsson á því til skýringar að á þessum tíma hafi margir verið talsvert á móti því verki. „Það þótti ekki góð latína á þessum tíma að gera grín að Íslendingasög- um.“ Österling segir ekki hægt að horfa fram hjá Gerplu þegar höfund- arverk Halldórs sé skoðað í heild. „Hins vegar er því ekki að neita að ótæmandi náttúrulegar frásagnargáf- ur Laxness hafi gætt sögu og lynd- iseinkunn Íslendinga lífi með þeim hætti að réttlætanlegt sé að viður- kenna hann, jafnvel þótt ekki sé hægt að setja hann að fullu jafnfætis öðrum norrænum verðlaunahöfundum sem frumlegt skáld.“ Österling segir að Gunnar hafi ver- ið tilnefndur á þriðja áratugnum en ekki hlotið mikinn hljómgrunn. Hann hafi síðan þá flutt heim til Íslands árið 1939 og skrifi nú á íslensku. „Ásamt yngri landa sínum Laxness, en kannski að vissu leyti í skugga hans, má jafnvel líta á hann (Gunnar) sem hina íslensku epísku meistara.“ Öst- erling segir að nýjar rannsóknir á um- fangsmiklu höfundarverki Gunnars sýni að það verði að líta á sögulegar skáldsögur hans, Fóstbræður frá 1918 og framhald hennar Jón Arason frá 1931, sem merkilegt framlag og fyrstu skipulögðu tilraunina til að lýsa leið íslensku þjóðarinnar til réttarrík- is og þjóðarvitundar. Einnig nefnir Österling Fjallkirkj- una sem hann segir virðingarverða, fulla af erfiðum, félagslegum reynslu- heimi og mannlega grípandi ljóð- rænu. Vandamálaskáldsöguna Sælir eru einfaldir segir hann vott um ær- lega sálkannandi sagnalist Gunnars eins og hjarðsöguna litlu og ógleym- anlegu, Aðventu. Österling segir það óréttlátt að verðlauna einungis Halldór á meðan Gunnar sé enn starfandi höfundur, auk þess sem höfundarverk Gunnars rími ótvírætt betur við þau mannúð- argildi sem verðlaunin standi fyrir. Hann segir að hugsanlega muni álit fjölmiðla snúast á sveif með Halldóri en til lengri tíma litið sé affarasælast að veita þeim báðum verðlaunin. Leynd létt af skjölum Sænsku akademíunnar um nóbelsverðlaun Halldórs Laxness Skeyti fjórmenn- inga ekki í vörslu akademíunnar Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon 23. september 1955 lagði þriggja manna Nóbelsnefnd til að Gunnar Gunn- arsson og Halldór Laxness myndu skipta með sér verðlaununum árið 1955. Myndin er tekin í móttöku er Gunnari var veitt Fálkaorðan. Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is Halldór Guðmundsson Matthías Johannessen Skáldbræður stinga saman nefjum „EINS og ég sagði í viðtalinu við Morgunblaðið [17. des. sl.] gerði ég ekki ráð fyrir því að það mundu finnast einhver skerandi skjöl eða sönnunargögn. Þetta var alltof við- kvæmt málefni til þess,“ segir Gunnar Björn Gunnarsson, barna- barnabarn Gunnar Gunnarssonar rithöfundar þegar hann var inntur eftir viðbrögðum við því að sím- skeyti frá fjórmenningunum hafi ekki fundist. Hann segir að þó að skeytið hafi ekki fundist sé ekki þar með sagt að þessi samskipti hafi ekki átt sér stað og hann sé enn fullviss um að svo hafi verið. „Enda kom það skýrt fram í viðtalinu við Halldór [Guðmundsson í Kastljósinu í gær- kvöldi] að menn töluðu sín á milli. Eftir stendur að meirihluti þriggja manna nób- elsverðlauna- nefndarinnar hafði ákveðið að tilnefna þá sam- an en það er far- ið á móti meiri- hlutanum. Af hverju gerist það? Segir það ekki meira en nokkur orð?“ Gunnar Björn segist ekki geta sagt annað um málið en að það sé satt og rétt, sem fram hafi komið að Gunnari hafi verið boðin verð- launin. Hann segir að eflaust megi velta þessu máli fram og aftur en að Halldór Guðmundsson hafi nálgast alla umræðuna í Kastljósinu í gær- kvöldi mjög vel og eins og sannur fræðimaður. „Hann tók það skýrt fram að þótt þetta bréf hefði ekki fundist væri ekki þar með sagt að það hefði aldrei farið. Hann er að reyna að halda sig við staðreyndir og ég skil það vel. Ég get leyft mér að tala öðruvísi, sem hluti af fjöl- skyldu Gunnars,“ segir Gunnar Björn. Aðspurður hvort það hafi komið honum á óvart að skeytið umrædda hafi ekki fundist segir Gunnar Björn svo ekki vera. „Ég held að svona stuttu eftir heimsstyrjöldina, 1955 þar sem Svíar höfðu verið hlutlausir, hafi þeir verið dauð- hræddir við allt sem mætti túlka á þann veg að þeir væru hallir undir nasisma.“ Efaðist um að sterk gögn fyndust Gunnar Björn Gunnarsson „GUNNAR Gunnarsson kom vissu- lega til greina hjá sænsku akademí- unni 1955 og það kemur skýrt fram í bréfum milli manna í akademí- unni,“ segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson um þær niðurstöður Lars Lönnroths prófessors að Gunnar hafi aldrei komið til greina sem Nóbelsverðlaunahafi í bók- menntum það ár. „Auðvitað var Gunnar aldrei formlega tilnefndur til verðlaunanna, heldur var hug- myndin, eins og kemur fram í þriðja bindi bókar minnar um Hall- dór Laxness, að skipta verðlaun- unum milli Gunnars og Halldórs Laxness. En það var tvímælalaust gerð tillaga um Gunnar og nægir að benda á til- lögu Sænska rit- höfundafélagsins í þeim efnum og þriggja manna undirnefndar sænsku akademí- unnar,“ segir Hannes. „En niður- stöður Lönnroths koma mér ekkert á óvart. Ég er sannfærður um að símskeytið sem Gunnar frétti af í gegnum Andrés Þormar, hafi verið sent. En það er auðvitað ekki í gögnum akademíunnar. Lars Lönn- roth getur því ekki fullyrt að sagan um símskeytið sé skáldskapur. Ég tók þá afstöðu í bókinni að trúa sög- unni um símskeytið því ég tel enga ástæðu til að rengja hana. Ég er líka sannfærður um að það hafi ver- ið unnið gegn því að Gunnar fengi verðlaunin. En eins og ég rek í bók minni var ekki mikill stuðningur við Gunnar í akademíunni. Um þetta vitna bréfaskipti Stens Selanders og Dags Hammarskjölds. Þar kem- ur fram að vissulega hafi verið gerðar tillögur um Gunnar 1955 en þær hlutu ekki miklar undirtektir í akademíunni.“ „Gunnar kom vissulega til greina“ Hannes Hólm- steinn Gissurarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.