Morgunblaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR OPIÐ hús var víða í Fluggörðum á Reykjavíkurflugvelli á gamlársdag og hjá Flugklúbbnum Þyt komu fé- lagsmenn og gestir þeirra saman eins og venjan er þenn- an dag. Hallgrímur Jónsson, formaður Þyts, ávarpaði Dagfinn Stefánsson og færði honum gjöf í tilefni nýlegs áttræðisafmælis hans. Annars er dagskrá jafnan frjáls- leg en menn skeggræða um flugsins gagn og nauðsynjar, skoða vélarnar og velta vöngum yfir fortíð og framtíð. Á myndinni eru frá vinstri Hallgrímur Jónsson, Ottó Ty- nes, Dagfinnur Stefánsson og Axel Sölvason. Morgunblaðið/jt Skeggrætt um flugmálin ÓLAFUR Magnússon, deildar- stjóri á forvarnasviði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, telur tíma- bært að herða reglur um geymslu flugelda. Hann segir að víða er- lendis, eins og t.d. í Bretlandi, séu gerðar mun meiri kröfur um geymslu flugelda. Á gamlársársdag kom upp eldur í Hveragerði í flugeldageymslu Hjálparsveitar skáta þegar verið var að ganga frá sýningarflugeld- um. Tugmilljónatjón varð á bruna- stað. Eldvarnaveggir í húsnæðinu stóðust þó álagið og vörnuðu frek- ari tjóni. Í gildi er rúmlega tveggja ára gömul reglugerð um skotelda þar sem m.a. er að finna kröfur um húsnæði þar sem skoteldar eru geymdir og seldir. Ólafur Magn- ússon segir að Slökkvilið höfuð- borgarsvæðisins fylgi þessum reglum fast eftir. Söluaðilar fái ekki að setja skotelda inn í hús- næði fyrr en slökkviliðið sé búið að ganga úr skugga um að húsnæðið uppfylli kröfur. Í tilvikum þar sem húsnæðið sé í eigu fleiri en eins að- ila hafi slökkviliðið ennfremur gert kröfu um að söluaðilar fái sam- þykki allra húseigenda þó að ekk- ert sé um það að finna í reglugerð. Ólafur segist vera þeirrar skoð- unar að gera þurfi meiri kröfur en gerðar eru í reglugerðinni um gerð húsnæðisins. „Geymslu- og lager- húsnæði þarf að vera þannig úr gerði gert og þannig staðsett að ekki skapist hætta fyrir aðra. Það þarf að hafa í huga að þarna er um að ræða sprengiefni,“ sagði Ólafur. Sýningarflugeldar hættulegir Ólafur sagði að í Bretlandi væru mun meiri kröfur gerðar til hús- næðis þar sem skoteldar eru geymdir en hér á landi og að Danir gerðu einnig meiri kröfur en við. Ólafur segir að slökkviliðið hafi lagt mikla áherslu á að engin raf- magnstæki séu í sama húsnæði og skoteldar eru geymdir í eða seldir. Hann segir ljóst að gæta þurfi sér- stakrar varúðar við meðferð sýn- ingarflugelda. Þeir séu hættuleg- ustu skoteldar sem meðhöndlaðir séu. Slökkviliðið hafi gert tilraun fyrir nokkrum árum með að sprengja nokkur hundruð kílóa sýningartertu og krafturinn sem hún skapaði hafi verið gríðarlegur. Þarna sé því um að ræða afskap- lega hættulegan hlut. Telur tímabært að herða kröfur um geymslu flugelda umhverfisáhrif við framleiðslu ým- issa efna til vegagerðar, umhverf- isáhrif vinnuvéla og um útskolun frá efnum sem notuð eru. Meginniðurstöður verkefnisins voru tilurð hugbúnaðarins, sem kallast ROAD-RES og mun hann nú verða notaður af dönsku vega- gerðinni sem liður til þess að meta umhverfisáhrif við hönnun hrað- brauta í Danmörku. Hugbúnaður- inn var prófaður með því að fram- kvæma útreikninga á umhverfisáhrifum vega með og án gjalls frá sorpbrennslu, auk þess sem metin voru umhverfisáhrif við urðun gjalls. Niðurstöðurnar af þessum útreikningum voru kynnt- ar í fræðigreinum sem tilheyra doktorsritgerðinni. Í heildina sam- anstóð doktorsritgerðin af 40 síðna samantekt, 5 fræðigreinum fyrir alþjóðleg rannsóknarrit, leið- beiningum um notkun hugbún- aðarins, auk viðauka með gögnum fyrir gagnabanka hugbúnaðarins. Leiðbeinendur Hörpu við Tækniháskólann í Danmörku voru Thomas H. Christensen, prófessor við umhverfis- og auðlindadeild, og Michael Z. Hauschild, lektor við framleiðslu- og stjórnunar- deild. Verkefnið var unnið í sam- vinnu við dönsku vegagerðina, sementsframleiðandann Aalborg Portland og tvær stærstu sorp- brennslustöðvarnar í Kaupmanna- höfn; Amagerforbrænding og Vestforbrænding. Verkefnið var styrkt af Tækniháskólanum í Dan- mörku, auk þess sem það var styrkt af ofangreindum samstarfs- aðilum. Andmælendur voru Kevin Gardner, prófessor við umhverf- isdeild Háskólans í New Hamps- hire í Bandaríkjunum, Göran Finnveden, lektor við umhverf- isdeild Konunglega Tækniháskól- ans í Stokkhólmi, og Peter Kjeld- sen, lektor við umhverfis- og auðlindadeild Tækniháskólans í Kaupmannahöfn. Harpa er fædd árið 1974. Hún lauk stúdentsprófi af náttúru- fræðibraut frá Flensborgar- skólanum í Hafnarfirði í desember 1993. Hún lauk M.Sc. í um- hverfisverkfræði við Tæknihá- skólann í Danmörku árið 2001. Harpa er búsett í Reykjavík og starfar nú sem ráðgjafi í umhverf- ismálum hjá Verkfræðistofunni Línuhönnun.  HARPA Birg- isdóttir varði 23. september sl. doktorsritgerð sína í umhverf- isverkfræði við umhverfis- og auðlindadeild Tækniháskólans í Danmörku. Ritgerðin bar heitið „Life cycle assessment model for road const- ruction and use of residues from waste incineration“ eða hugbún- aður til að framkvæma vistfer- ilsgreiningar fyrir vegagerð og notkun úrgangstegunda frá sorp- brennslu. Vistferilsgreiningar er aðferð- arfræði sem notuð er til þess að meta umhverfisáhrif ákveðinnar vöru, ferils eða framkvæmdar. Að- ferðafræðin felur í sér að um- hverfisáhrif eru skoðuð fyrir allan líftíma vörunnar. Til þess að fram- kvæma þessa greiningu er safnað upplýsingum um notkun auðlinda og losun efna til lofts, vatns og jarðvegs fyrir allan líftíma vör- unnar. Út frá þessum upplýs- ingum um ílag og frálag eru svo reiknuð út umhverfisáhrif, s.s. gróðurhúsaáhrif, súrt regn og eit- uráhrif á menn og umhverfi. Í Danmörku er um 25% af öllu sorpi, eða rúmlega 3 milljónum tonna, brennt. Orkan frá sorp- brennslunni er nýtt til rafmagns- framleiðslu og upphitun húsa. Við sorpbrennslu minnkar rúmmál sorpsins um 90%, en eftir verða úrgangstegundirnar gjall og aska, sem innihalda háan styrk af þung- málmum og söltum. Árlega mynd- ast um rúmlega 730 þúsund tonn af gjalli og ösku í Danmörku. Gjallið hefur verið endurnýtt í vegagerð um nokkurt árabil í Danmörku en vegna hás styrks af þungmálmum og söltum er askan urðuð í sérstökum urðunarstöðum. Megintilgangur verkefnisins var að hanna hugbúnað sem danska vegagerðin gæti notað til vistfer- ilsgreininga á ýmiss konar vega- framkvæmdum og sem sorp- brennslustöðvarnar gætu notað til þess að bera saman umhverfis- áhrif endurnýtingar og urðunar gjalls og ösku frá sorpbrennslu. Samhliða þessu fór fram ýtarleg öflun gagna til þess að byggja upp gagnabanka hugbúnaðarins sem bæði inniheldur upplýsingar um Doktor í umhverfisverkfræði ÞAÐ VERÐ sem Mjólka ehf. hef- ur boðið bænd- um fyrir afurðir sínar er ekki 11% hærra en verð Mjólkur- samsölunnar, heldur 4,5% hærra og þegar horft er til úr- valsframleiðenda er MS með 2% hærra verð, að því er fram kemur í bréfi sem Magnús H. Sigurðsson, stjórnarformaður Mjólkursamsölunnar, sendi til fé- lagsmanna 20. desember síðastlið- inn. Í bréfinu er rætt um stöðu mjólkuriðnaðarins, opinbera verð- lagningu og styrki auk þess sem gerður er samanburður á verði MS og Mjólku til bænda. Betra verð á úrvalsmjólk Í bréfi stjórnarformannsins kem- ur fram að meðalmjólkurverð á öllu svæði MS í nóvember síðastliðnum hafi verið 44,60 krónur en 46,43 krónur fyrir úrvalsmjólk, þ.e. mjólk sem er með yfir 3,51% prótein- innihald. Þá fá allir bændur sem versla við MS svonefnt hvatningarálag, að því er fram kemur í bréfinu og nemur það 1,70 krónur á lítrann. Þar ofan á bætist álag fyrir úrvalsmjólk, sem er 0,39 krónur fyrir venjulega mjólk og 1 króna fyrir lítrann af úrvalsmjólk. Niðurstaðan er því sú að verð MS fyrir venjulega mjólk er 46,69 krónur og 49,13 krónur fyrir úrvalsmjólk, sem er hærra en Mjólka býður. Þá sé ótalin sú þjón- usta sem MS veiti félagsmönnum sínum, t.d. með kvóta- og tankal- ánum, neyðarþjónustu og heim- sóknum mjólkureftirlitsmanna. Nýir aðilar „fleyta rjómann“ Í bréfinu er einnig rætt um sam- keppnisstöðu í mjólkuriðnaði og áhrif opinberrar verðlagningar. Þar segir að opinber verðlagning hafi skekkt verðlagningu á markaðnum á þann hátt að verði á grunnvörum á borð við drykkjarmjólk og fasta osta hafi verið haldið niðri og fram- leiðsla þeirra skilað litlum sem eng- um hagnaði. Nýlega hafi verið ákveðið að hækka mjólkurvörur um 1,4–2,5% frá og með áramótum og það sé fyrsta verðhækkun afurða- stöðva frá 1. janúar 2003. Nýjar vörur og afurðir hafi hins vegar verið verðlagðar nokkuð hátt. „Það mætti líka orða þetta á þann hátt að vinnsluvörurnar séu að borga með grunnvörunum,“ seg- ir í bréfinu. „Þetta fyrirkomulag hefur leitt til ákveðinnar slagsíðu sem gerir það að verkum að mjög auðvelt er fyrir nýja aðila, sem vel þekkja til á markaðnum, að koma inn á hann og fleyta rjómann ofan af í orðsins fyllstu merkingu. Nýi aðilinn velur sér þannig framlegðarbestu vör- urnar á meðan að við sitjum uppi með grunnvörurnar sem seljast í miklu magni og skila lítilli sem engri framlegð. Þetta er ekki góð staða.“ Mjólka nýtur opinberra styrkja Í bréfinu segir að mikil samstaða hafi ríkt á Alþingi þegar núverandi búvörulög hafi verið samþykkt fyrr á árinu. „Góð pólitísk samstaða ríkti því um að viðhalda núverandi styrkja- kerfi og aðlaga það breyttum að- stæðum í framtíðinni. Forsvarsmenn Mjólku halda því fram að þeir njóti engra opinberra styrkja. Þetta er rangt. Einn fram- leiðandi með greiðslumark hefur sagt sig úr viðskiptum við MS og færði viðskipti sín yfir til Mjólku. Þar með er Mjólka ótvírætt orðin afurðastöð samkvæmt skilgrein- ingu búvörulaganna og því í ná- kvæmlega sömu aðstöðu og MS,“ segir í bréfinu. Enn fremur kemur fram að ekki sé ólíklegt að breytingar verði gerðar á þeirri umgjörð sem mjólk- urbændur vinni eftir. „Þangað til þær breytingar verða gerðar af löglega kosnum fulltrúum hljótum við að krefjast þess að allir standir jafnir frammi fyrir lögun- um.“ Telur Mjólku gera of mikið úr verðmuninum Segir opinbera verðlagningu valda slagsíðu í verði Magnús H. Sigurðsson „ÞETTA er alveg út í hött hvernig þeir setja þetta upp. Það var ekki gerð nein tilraun af hálfu Mjólk- ursamsölunnar til að fá upplýsingar frá okkur um hvernig við greiddum fyrir mjólk. Það hafði enginn sam- band við okkur og þetta eru bara því miður algerar rangfærslur,“ segir Ólafur M. Magnússon, framkvæmda- stjóri Mjólku. Varðandi verðsamanburð milli Mjólku og MS segir Ólafur að ann- ars vegar sé greitt ákveðið grundvallarverð og hins vegar borgað fyrir próteineiningu og fitueiningu. Mjólka borgi 9,5% hærra fyrir bæði fitu- og próteinein- ingar og gefi einnig afslátt af flutningum, 38%. „Þegar þetta er allt saman vegið saman þá er það verð sem við greiðum bændum 12,41% hærra en það sem Mjólkursamsalan borgar. Þetta er miðað við greiðslur fyrir mjólk á ársgrundvelli, en ekki teknar inn í einstaka greiðslur, eins og hvatningarálag, sem MS borgar. Það er bara tímabundið í þrjá mánuði vegna mjólkurskorts og ekki réttlætanlegt að taka það inn í grundvallarsamanburð. Ekki heldur er tekið inn í það álag sem Mjólka borgar bændum fyrir úrvals- mjólk, sem er auðvitað misjafnt eftir einstaklingum,“ segir Ólafur. Aðspurður segir hann Mjólku þó ekki hafa í hyggju að svara bréfi MS eða bregðast sérstaklega við, enda sé bréfið tæpast svaravert og hafi greinilega verið skrifað í vanstillingu. „Það er skammarlegt að fyrirtæki eins og Mjólk- ursamsalan láti spyrjast að senda svona frá sér. Þeir hefðu hæglega getað hringt í okkur og fengið þessar upplýsingar ef þeir hefðu viljað. Okkur finnst þetta fyrst og fremst broslegt,“ segir Ólafur. „Eru algerar rangfærslur“ Ólafur M. Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.