Morgunblaðið - 03.01.2006, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 03.01.2006, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Úr Verinu á mánudaginn Veiðar útlendinga á Íslandsmiðum BORIST hefur eftirfarandi ályktun sem stjórn Skurðlæknafélags Íslands samþykkti á fundi sínum 29. desember síðastliðinn: Stjórn Skurðlæknafélags Íslands mótmælir því harðlega hvernig Landspítali – háskóla- sjúkrahús hefur staðið að málum Stefáns E. Matthíassonar yfirlæknis æðaskurðlækninga- deildar LSH. Ágreiningur hefur verið milli Stefáns og stjórnenda LSH á túlkun á skrif- legum samningi sem gerður var milli þeirra þegar Stefán tók við yfirlæknisstöðunni árið 2002. Stefán var fyrir þann tíma í stöðu sér- fræðings á deildinni. Í samningnum er gert ráð fyrir uppbyggingu dagdeildarþjónustu við LSH og að Stefán hætti stofurekstri. Það er athyglisvert að Stefáni skuli vera sagt upp vegna óhlýðni í starfi sem yfirlæknir en ekki gefinn kostur á að starfa áfram sem sérfræð- ingur. Það hefur ekki verið upplýst af hverju Stefáni er einnig gert að víkja úr sérfræðings- stöðunni. Það þarf mjög alvarlegt brot af Stef- áns hálfu til þess að réttlæta þessa framkomu yfirmanna hans gagnvart honum. Sérstaklega er málið athyglisvert þar sem óumdeilt er að Stefán er hæfur læknir og stjórnandi og að uppbygging og stjórnun æðaskurðlækninga- deildar hefur verið óaðfinnanleg. Ekki eru margir mánuðir síðan gefin var sú yfirlýsing á LSH að bæta ætti samskipti innan sjúkrahúss- ins. Mál Stefáns gerir þá yfirlýsingu ótrúverð- uga og hafa verður verulegar áhyggjur af deil- um stjórnenda LSH og starfsmanna. Það er algerlega óásættanlegt að ekki sé leitað til ut- anaðkomandi aðila þegar slík deila kemur upp og að sjúkrahúsið taki einhliða þá ákvörðun að víkja lækni með uppsögn sem á sér ekki for- dæmi. Stjórn Skurðlæknafélagsins hefur áhyggjur af dagdeildarþjónustu skurðlækna við sjúk- linga á LSH. Endurtekið hafa komið fram kvartanir í fjölmiðlum um það hvernig sjúkra- húsið standi að þeirri þjónustu. Þrátt fyrir yf- irlýsta stefnu stjórnarnefndar og fram- kvæmdastjórnar LSH hefur slík þjónusta ekki byggst upp eftir sameiningu sjúkrahúsanna, eins og vonir stóðu til. Slík stefna hefur ekki verið annað en orðin tóm. Skurðlæknafélag Ís- lands telur meginástæðu þess vera að fram- kvæmdastjórn og stjórnarnefnd LSH hafi staðið illa að þessum málaflokki, meðal annars með uppsögn ferliverkasamnings á sínum tíma. Ákvarðanir stjórnenda LSH hafa stuðlað að því að þjónusta skurðlækna hefur í vaxandi mæli byggst upp utan veggja LSH. Því er al- gerlega hafnað að hér sé skurðlæknum um að kenna því góður vísir var að slíkri þjónustu á Landakotsspítala og síðar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Þar sem sjúkrahúsið hefur ekki burði til að sinna þessu mikilvæga hlutverki er ekki hægt að krefjast þess að læknar loki stof- um sínum úti í bæ enda myndi það hafa í för með sér verulega skerta þjónustu við sjúk- linga. Á sama tíma hefur afstaða stjórnenda til starfsemi skurðlækna á einkastofum farið harðnandi og verið mjög ósveigjanleg. Þjónusta skurðlækna við sjúklinga á sjúkra- húsinu hefur versnað vegna sparnaðaraðgerða stjórnenda sjúkrahússins. Stjórnendur LSH hafa sýnt skurðlæknum óbilgirni í samninga- málum með einhliða lækkun á launum fyrir vaktavinnu og álítur stjórn Skurðlæknafélags- ins það vera samningsbrot. Húsnæði skurð- lækna fyrir eigin skrifstofur og til að sinna þjónustu við sjúklinga hefur sums staðar orðið minna og verra eftir sameiningu sjúkrahús- anna. Stjórn Skurðlæknafélagsins álítur það mjög alvarlegt að ríkisendurskoðandi hefur það álit í nýútkominni skýrslu að ef einstak- lingar eru ekki sammála stjórnendum sjúkra- hússins þá ættu þeir að „leita annað“. Álit rík- isendurskoðanda byggist á því að stjórnendur LSH séu að framfylgja stefnu ráðherra og þess vegna hafi læknar ekkert frekar um málið að segja. Framtíðaruppbygging háskóla- sjúkrahúss kemur til með að byggjast á fag- legum sjónarmiðum og þar á meðal faglegum sjónarmiðum skurðlækna. Vandamál LSH felst í því að stjórnendum LSH hefur ekki tek- ist að veita sjúkrahúsinu forystu með ábyrgri stjórnun þar sem tekið er tillit til fagfólks. Stjórn LSH hefur í einu og öllu framfylgt sparnaðarstefnu Alþingis og hefur það komið niður á aðstöðu starfsfólks til að sinna sjúk- lingum. Þetta hefur meðal annars valdið því að skurðlæknar hafa hætt störfum á LSH og margir staðið að því að þróa og byggja upp starfsemi sína á eigin stofum úti í bæ. Ósveigj- anleiki stjórnenda sjúkrahússins hefur einnig valdið því að skurðlæknar sem eru í vinnu er- lendis telja ekki eftirsóknarvert að koma til vinnu á LSH. Stjórn Skurðlæknafélagsins álít- ur að þetta hafi haft slæm áhrif á þróun skurð- lækninga á Íslandi og geti haft alvarlegar af- leiðingar fyrir uppbyggingu háskólasjúkra- húss. Það þarf að skapa starfsumhverfi á LSH sem laðar að hæfustu skurðlæknana og sem gerir þeim kleift að flytja með sér nýjungar til landsins. Íslenskir skurðlæknar hafa verið framarlega í því að gera minni aðgerðir á einkastofum úti í bæ og koma á dagdeildar- þjónustu fyrir sína sjúklinga. Þessi þróun hef- ur komið snemma hér á Íslandi vegna þess frelsis sem hefur ríkt í starfsumhverfi lækna. Stjórn Skurðlæknafélagsins álítur að það sé nauðsynlegt að hafa þetta frelsi til starfa og að það sé nauðsynlegt að blanda saman vinnu á sjúkrahúsi og á skurðlæknamóttöku, sem er stjórnað af skurðlæknum, til að tryggja eðli- lega þróun í faginu og þjónustu við almenning. Stjórn Skurðlæknafélags Íslands hvetur yf- irstjórn heilbrigðismála og ráðherra til að end- urskoða stjórnunarhætti á LSH. Stjórnin hvetur LSH til að draga uppsögn Stefáns E. Matthíassonar til baka og reyna að leita lausn- ar á vandanum með aðstoð læknaráðs LSH og Læknafélags Íslands. Ef það reynist ekki unnt þá þarf að tryggja Stefáni aðstöðu til að sinna sjúklingum á sjúkrahúsinu meðan deila hans og sjúkrahússins er leyst fyrir dómstólum eða hjá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Stjórn Skurðlæknafélags Íslands mótmælir meðferð máls Stefáns E. Matthíassonar Hvetja til að stjórnarhættir á LSH verði endurskoðaðir STEFNT er að því að breyta bíla- stæðum sem næst eru aðalinngöng- um Landspítala – háskólasjúkrahúss við Hringbraut og í Fossvogi í skammtímastæði með gjaldtöku nú í byrjun nýs árs. Til að byrja með verða alls 180 skammtímastæði, 120 á milli kvennadeildarhúss og aðal- byggingar við Hringbraut og 60 stæði vestan við aðalinngang í Foss- vogi, en að sögn Ingólfs Þórissonar, framkvæmdastjóra tækni og eigna LSH, er um að ræða tilraun til að bæta þjónustu fyrir þá sem þurfa að sækja þjónustu á spítalann. Að undanförnu hefur verið unnið að því að fjölga bílastæðum við LSH við Hringbraut og eru þær fram- kvæmdir á lokastigi, búið er að taka um 270 ný bílastæði í notkun og að- eins er eftir vinna í kringum stæðin. Forsendur fyrir fjölguninni eru m.a. þær að við færslu Hringbrautar skapaðist rými fyrir fleiri bílastæði og bættust 180 ný bílastæði við fyrir neðan Gömlu Hringbraut. Með fækkun akreina á Gömlu Hring- braut úr fjórum í tvær var einnig hægt að bæta við 60 stæðum og þá fást 30 ný bílastæði hjá geðdeildar- húsinu. „Við erum að taka í notkun betri stæði en við höfum haft. Einnig er verið að malbika stæði og svo hefur umferð um gömlu Hringbraut minnkað mikið þannig að auðveldara er að komast yfir hana,“ segir Ing- ólfur og vonast til að breytingarnar komi til með að bæta úr brýnni þörf í bílastæðamálum sjúkrahússins. Hann vonast enn fremur eftir að ástandið í nærliggjandi íbúðargötum lagist en nokkuð hefur borið á því að gestir spítalans leggi ökutækjum sínum þar. Hófleg gjaldtaka á virkum dögum „Eins og þeir þekkja sem hafa þurft að sækja þjónustu á spítalann, þá hafa verið ákveðin vandræði við að finna bílastæði nálægt inngöng- um spítalans. Nú ætlum við að gera tilraun með að taka, tiltölulega fá stæði til að byrja með, og hafa þau merkt sem skammtímastæði,“ segir Ingólfur en það er Bílastæðasjóður sem er í samstarfi við spítalann og sér um gjaldtöku. Reiknað er með að gjaldtaka hefjist nú í janúar og verð- ur gjaldi stillt í hóf. Miðast það við 80 krónur á klukkustund frá átta á morgnana til fjögur á daginn alla virka daga. Ingólfur segist ekkert nema gott hafa heyrt um skammtímastæðin enda sé fríum bílastæðum ekki að fækka, heldur þvert á móti fjölgar þeim um 150 stæði – við Hringbraut. Morgunblaðið/ÞÖK Um 120 bílastæðum nálægt inngangi Landspítala – háskólasjúkrahúss við Hringbraut verður breytt í skammtímastæði með gjaldtöku í janúarmánuði. Gjaldtaka á bíla- stæðum við LSH Eftir Andra Karl andri@mbl.is ÍSLENSKIR bændur leyfa sauðfé sínu að flakka um sjálfala mestan part árs. Sauðfé hefur ávallt réttinn í umferðinni hérlendis. Þetta er með- al þess sem fram kemur í umfjöllun blaðakonunnar Kim Askey um Ís- land í bandaríska blaðinu News Sentinel. Askey dvaldi hér á landi í tvær vikur ásamt manni sínum, ljós- myndaranum Chris Askey. Í grein- inni lýsir Askey gönguferð þeirra um Vatnajökul, baðferð í heita lind úti í guðs grænni náttúrunni og notkun landans á heita vatninu til upphitunar á gangstéttum og heit- um pottum sundstaða. Einnig lögðu þau hjónin leið sína að Mývatni þar sem þau skoðuðu Dimmuborgir og fylgdust með gerð hverabrauðs. Gerir blaðakona trú landans á álfa, tröll og drauga sérstaklega að um- talsefni og minnir á að frægir höf- undar á borð við Jules Verne og J.R.R. Tolkien hafi heillast af land- inu sem hafi veitt þeim innblástur í verk þeirra. Einnig segir hún frá heimsókn þeirra hjóna í Þjóðmenn- ingarhúsið í Reykjavík þar sem þau börðu gömul handrit augum. Greini- legt er að henni fannst tíminn líða allt of fljótt í Íslandsheimsókn þeirra hjóna og tekur hún fram að þau von- ist til þess að koma hingað aftur. Íslandsheim- sókn í News Sentinel ♦♦♦ NEMENDUR á þriðja námsári á leikskólabraut í Kennaraháskóla Ís- lands hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að þeir telji sér ómögulegt að koma til starfa sem leikskólakennarar að lokinni útskrift í vor verði kjarasamningar ekki teknir til endurskoðunar. „Við munum ekki sætta okkur við núverandi starfsumhverfi og launa- kjör og krefjumst þess að ástandið verði lagað. Við styðjum því leik- skólakennara í þeirra baráttu og í öllum þeim aðgerðum sem þeir telja sig knúna til að grípa til,“ segir m.a. í yfirlýsingunni. Íhuga að koma ekki til starfa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.