Morgunblaðið - 03.01.2006, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
KOSTNAÐUR við endurskipulagn-
ingu FL Group, sem gengið var frá
hinn 19. október 2005, nam samtals
532 milljónum króna. Þetta kemur
fram í skráningarlýsingu FL Group
sem birt var í síðustu viku í kjölfar
útboðs nýrra hluta í nóvember síð-
astliðnum.
Í skráningarlýsingunni kemur
fram að Sigurður Helgason, fyrrum
forstjóri Flugleiða, fær 161 milljón
króna á næstu 4–5 árum í tengslum
við starfslokasamning en Sigurður
lét af störfum á síðasta ári.
Þá fær Ragnhildur Geirsdóttir,
fyrrum forstjóri FL Group, 130
milljónir króna á næstu 4–5 árum
vegna starfslokasamnings, en hún
var forstjóri félagsins á síðasta ári
frá júní fram í október, eða í um
fimm mánuði. Hannes Smárason
hætti sem stjórnarformaður fyrir-
tækisins og tók við sem forstjóri
þess þegar Ragnhildur Geirsdóttir
lét af því starfi.
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
stjórnarformaður FL Group, sagði í
samtali við Morgunblaðið að vissu-
lega væri um háar fjárhæðir að ræða
en þær væru í samræmi við ráðning-
arsamninga Sigurðar og Ragnhildar
og tækju mið af þeim skyldum sem
þau hefði undirgengist.
„Sigurður mun enn sinna ráðgjaf-
arstörfum fyrir FL Group og er end-
urgjald fyrir þá þjónustu innifalið í
greiðslum til hans. Þá má Ragnhild-
ur ekki, samkvæmt ráðningarsamn-
ingi, vinna fyrir keppinauta FL Gro-
up um nokkurt skeið og eðlilegt að
umbuna fyrir svo íþyngjandi atriði,“
segir Skarphéðinn.
Á rétt á bónusgreiðslum
Í skráningarlýsingunni kemur
fram að Hannes Smárason, núver-
andi forstjóri, fær 4 milljónir króna í
laun á mánuði en hann á einnig rétt á
bónusgreiðslum sem fara eftir
rekstrarárangri og geta orðið allt að
þreföld árslaun, eða allt að 144 millj-
ónir króna. Heildarlaun hans á ári
geta því numið frá 48 milljónir króna
og upp í allt að 192 milljónir. Hannes
er með 12 mánaða uppsagnarfrest,
en ekki er gert ráð fyrir frekari
greiðslum til hans komi til þess að
hann láti af störfum.
Alls nema laun sjö annarra æðstu
stjórnenda FL Group 154 milljónum
króna á ári auk bónusgreiðslna, sem
ákveðnar eru í lok hvers árs.
Endurskipulagning kost-
aði rúman hálfan milljarð
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Greiðslur Heildarlaun Hannesar
Smárasonar, forstjóra FL Group, á
ári geta numið frá 48 milljónum
króna í allt að 192 milljónir.
SIGURJÓN Sighvatsson hefur keypt 75%
hlutabréfa í norræna kvikmyndadreifingarfyr-
irtækinu Scanbox Entertainment Group A/S
en fyrrverandi eigendur Scanbox, Verner Bach
Pedersen og stjórnendur fyrirtækisins, eiga
25%. Kaupverð er trúnaðarmál en félagið velt-
ir um fjórum milljörðum og hjá því starfa um
150 starfsmenn í Skandinavíu. Fjárfestingar-
bankinn FIH Kaupthing í Danmörku var ráð-
gjafi Sigurjóns við Kaupin en Kaupþing banki
á Íslandi sá um fjármögnun.
Sigurjón sagði í samtali við Morgunblaðið að
hann hefði einkum látið til sín taka á tveimur
sviðum, í kvikmyndaframleiðslu undanfarin 20
ár, auk þess sem hann hefði átt í fjölmiðlafyr-
irtækjum og kaupin á Scanbox væru því eðli-
legt skref í því ljósi. Þá hefði hann stofnað fast-
eignafélag með fjölskyldu sinni fyrir rúmum
áratug og þær fjárfestingar hefðu undið upp á
sig á töluvert löngum tíma. Eina raunverulega
undantekning frá þessari fjárfestingarstefnu
hefði verið kaup hans á 66° Norður.
Scanbox var upphaflega stofnað í Danmörku
árið 1980 en er nú með starfsemi á öllum Norð-
urlöndunum, utan Íslands, og í London en höf-
uðstöðvar þess eru í Viborg í Danmörku. Góð-
ur vöxtur hefur verið í starfsemi félagsins á
undanförnum árum en einkum hefur verið lögð
áhersla á dreifingu sjálfstæðra, alþjóðlegra
kvikmynda, kvikmynda frá Norðurlöndunum
og sérframleiddra kvikmynda fyrir dvd-mark-
aðinn sem stöðugt fer stækkandi.
Sigurjón segir Scanbox standa traustum fót-
um og það hafi burði til þess að stækka og
verða alhliða afþreyingarfélag á Norðurlönd-
unum og nálægum löndum. Hann hlakki til
þess að fá tækifæri til að starfa á norrænum
kvikmyndamarkaði og þá ekki síst þeim
danska sem sé orðinn einn sá fremsti í heimi.
„Ég þekki auðvitað þessi dreifingarfyrirtæki
í heiminum nokkuð þokkalega eftir að hafa
starfað í þessum geira í langan tíma og hef
kannski fylgst einna mest með Norðurlöndun-
um vegna þess að þau eru okkur nær og kær.
Ég hafði fylgst með þessu fyrirtæki í töluvert
langan tíma ásamt öðrum. Ég hef verið að leita
að góðum kostum í þeim efnum og alveg eins í
Bandaríkjunum. Scanbox er eitt af stærstu
sjálfstæðum dreifingarfélögum á Norðurlönd-
unum og það er með töluvert stóra hlutdeild á
dönskum markaði, m.a. um 30% af heimafram-
leiðslu þar,“ segir Sigurjón.
En hvers vegna Danmörk?
„Sonur minn flutti til Danmerkur fyrir einu
og hálfu ári og þá fór ég að eyða miklu meiri
tíma þar og fór að skoða nánar markaðinn í
heild sinni. Þessi lönd eru af þægilegri stærð
og við þekkjum siði og menninguna þar.“
Sonur Sigurjóns, Þórir Snær, er kvikmynda-
framleiðandi í Danmörku og hefur m.a. fram-
leitt Næsland og Voksne mennesker og hann
og fyrirtæki hans Zik Zak verður meðframleið-
andi að næstu kvikmynd Lars von Trier.
Sigurjón segir Scanbox eiga töluvert kvik-
myndasafn sem sé verðmætt. „Dreifingarleiðir
skipta ekki máli, hvort það er videó, dvd, bíó,
sjónvarp, breiðband eða playstation. Það verð-
ur alltaf verðmæti í safninu. Í kvikmynda-
bransanum er talað um það að eiga kvikmyndir
sé eins og að eiga fasteignir. Fólk er enn að
horfa á gamlar kvikmyndir, alveg burt séð frá
því í hvaða formi eða miðli það verður. Með dvd
geta menn verið með mörg tungumál með
hverri mynd þannig að það er miklu auðveld-
ara og ódýrara að framleiða og dreifa yfir mis-
munandi tungumálasvæði. Það er hægt að
framleiða einn disk fyrir alla Evrópu.“
Scanbox hefur
burði til að vaxa
Framsækinn markaður Sigurjón segir
danska kvikmyndamarkaðinn vera orðinn
einn þann fremsta í heiminum.
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
DECODE Genetics, móðurfélag Ís-
lenskrar erfðagreiningar, er meðal
þeirra fyrirtækja í heiminum sem
eru einna álitlegustu fjárfestingar-
kostirnir innan heilsugeirans, þegar
til framtíðar er litið.
Þetta er mat sérfræðinga sem
breska blaðið International Herald
Tribune leitaði til í þeim tilgangi að
velja álitlegustu fjárfestingarkostina
í þremur greinum, heilsu, orku og í
nanótækni.
Í umfjöllun blaðsins um heilsu-
geirann segir að þróun í líftækni eigi
einna mesta möguleika á því að leiða
til betra lífs fyrir flesta. Kortlagning
erfðamengis mannsins hafi nú þegar
opnað möguleikana á nýjum lyfjum
við ýmsum erfiðum sjúkdómum.
Fyrirtæki á líftæknisviði séu því
vænlegir fjárfestingarkostir.
Meðal þeirra fyrirtækja sem sér-
fræðingar International Herald
Tribune nefna sem vænlega fjárfest-
ingarkosti í líftæknigeiranum auk
deCODE eru Roche, sem mikið hef-
ur starfað með deCODE, og Affy-
metrix. Þá eru einnig nokkur ind-
versk fyrirtæki nefnd, en þekktust
þeirra eru sögð vera Ranbaxy og Dr.
Reddy’s.
Hættan á orkuskorti í heiminum
sem og sífellt aukin losun gróður-
húsalofttegunda gerir fjárfestingar í
endurnýjanlegri orku áhugaverðar
að mati sérfræðinga International
Herald Tribune, sérstaklega í fyrir-
tækjum sem beisla sólar- og vind-
orku. Endurnýjanlegar orkulindir
eru þær sem náttúran getur endur-
nýjað jafnóðum eða hraðar en þær
eru nýttar. Segja sérfræðingarnir að
straumhvörf séu að verða í þessum
efnum í heiminum. Þannig hafi fjár-
festingar í sólar- og vindorku vaxið
úr nánast engu fyrir um áratug og
upp í næstum 20 milljarða dala árið
2005. Gera megi ráð fyrir að fjárfest-
ingar á þessu sviði verði komnar í um
100 milljarða dollara á ári er kemur
fram á árið 2015. Þá segir Interna-
tional Herald Tribune að ætla megi
að fjárfestingartækifærin í svo-
nefndri nanótækni séu meiri en á
nokkru öðru sviði og muni aukast úr
um 13 milljörðum dollara á ári nú í
um þúsund milljarða á ári eftir ára-
tug, þegar litið er til heimsins alls.
DeCODE álit-
leg fjárfesting EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Fons,
sem er í eigu þeirra Pálma Har-
aldssonar og Jóhannesar Krist-
inssonar, hefur eignast 12% hlut í
sænsku ferðaskrifstofunni Ticket
Travel Group. Þetta kemur fram í
flöggun í kauphöllinni í Stokkhólmi
í gær.
Samkvæmt frétt Dagens Industri
um málið segir að það sé Nove
Capital sem seldi Fons hlutinn en
félagið hefur nú losað allan hlut
sinn í Ticket. Segir í fréttinni að
ætla megi að kaupverðið sé um 40
milljónir sænskra króna, sem svar-
ar til um 320 milljóna íslenskra
króna.
„Ticket er spennandi fyrirtæki
sem ég hef haft augastað á í eitt ár.
Það er miklir möguleikar á að þróa
félagið í áhugaverðum geira sem er
að vaxa,“ segir Pálmi Haraldsson í
samtali við DI. Þar kemur jafn-
framt fram að gengi bréfa félagsins
hafi fallið verulega á síðustu fimm
árum en jafnframt að þar hafi skort
á frumkvæði eigenda.
„Við munum vera virkir eig-
endur og alþjóðavæða félagið mun
meira en gert hefur verið,“ segir
Pálmi.
Fons eignast
12% í sænskri
ferðaskrifstofu
"
"
#"$
#"%
&%
&'
%&$ %&% )"'
&*%%
($
)"'
)"
!"#$
%&&'%
*
$& )"%
(
)*+)$'
%&% &*