Morgunblaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 15
ÚR VERINU
Innritun og greiðsla á neti stendur yfir og er opin til 4. jan. 2006
á www.ir.is.
Innritun með aðstoð verður í matsal skólans, þri. 3. og mið. 4. jan.,
frá kl. 16–19. (Hægt er að greiða með peningum, debet- eða kreditkorti).
Kennsla hefst mán. 9. janúar 2006.
Kennsla einstakra áfanga er með fyrirvara um næga þátttöku.
Kvöldskóli
Fjarnám
Bygginga- og mannvirkjagreinar
Verklegt og bóklegt grunn- og framhaldsnám.
Rafiðnanám
Grunnnám rafi›na 2. önn. Rafvirkjun 3.–7. önn.
Listnám
†msir áfangar í kjarna og á kjörsvi›i almennrar hönnunar.
Öflugur undirbúningur fyrir framhaldsnám í hönnun.
Upplýsinga- og fjölmiðlagreinar
Grunnnám uppl‡singa- og fjölmi›lagreina.
Undirbúningur fyrir nám í grafískri mi›lun, vefsmí›,
ljósmyndun, nettækni, prentun og bókbandi..
Tækniteiknun
Fjölbreyttir áfangar í AutoCad.
Meistaraskóli
Allar rekstrar- og stjórnunargreinar.
Faggreinar byggingagreina.
Almennt nám
Bókfærsla, danska, e›lis- og efnafræ›i, enska,
félagsfræ›i, fríhendisteikning, íslenska, grunnteikning,
spænska, stær›fræ›i, tölvugreinar, fl‡ska, notkun
upplýsingatækni og tölva.
Innritun og grei›sla á neti stendur yfir og er opin til 15. jan. 2006
á www.ir.is.
Kennsla einstakra áfanga er með fyrirvara um næga þáttöku.
Allar frekari uppl‡singar í síma 522 6500 eða á vef skólans www.ir.is.
me› áherslu á starfstengt nám
Byggingagreinar
Efnisfræ›i, framkvæmd og vinnuvernd
og grunnteikning.
Tækniteiknun
Húsateikning, raflagnateikning, innréttingateikning,
vélateikning, AutoCad og grunnteikning.
Tölvubraut
Forritun, gagnasafnsfræ›i, vefsí›ugerð, vefforritun,
netstýrikerfi og vélbúnaður.
Uppl‡singa- og fjölmi›labraut
Allar greinar í grunnnámi uppl‡singa- og fjölmi›labrautar;
eins og myndbygging og formfræði, myndgreining,
týpógrafía og grafísk hönnun, myndvinnsla og marg-
miðlun, hljóðtækni, ljós- og litafræði, inngangur að
fjölmiðlun.
Meistaraskóli
Allar stjórnunar- og rekstrargreinar.
Almennt nám
Enska 212, ENS303, grunnteikning, STÆ202,
algebra og föll, STÆ 303, stærðfræði, UTN103,
notkun upplýsingatækni og tölva í námi.
I ‹ N S K Ó L I N N Í R E Y K J A V Í K
SJÓMANNAALMANAK Skerplu
2006 er komið út og er þetta alman-
ak það tíunda í röðinni. Í bókinni
eru rúmlega 1.200 litmyndir af ís-
lenskum skipum en um fimmtungur
þeirra hefur verið endurnýjaður
frá síðustu útgáfu. Auk skipaskrár-
innar er bókin fullgilt íslenskt sjó-
mannaalmanak.
Sérstök áhersla hefur verið lögð
á það á undanförnum árum að end-
urnýja myndir af skipum í skipa-
skránni í Sjómannaalmanakinu sem
og á vefnum Skip.is. Við það verk
hafa ljósmyndararnir Alfons Finns-
son, Hafþór Hreiðarsson, Jón Páll
Ásgeirsson og Þorgeir Baldursson,
sem eiga flestar skipamyndanna í
skipaskránni, lagt mest af mörkum.
Í Sjómannalmanaki Skerplu 2006
er m.a. að finna upplýsingar um
skipaskrá, aflaheimildir, hafna-
skrá, sjávarföll, vitaskrá, sól-
artöflur og auk þess upplýsingar
eins og lög og reglur sem snúa að
veiðum ásamt mörgu öðru. Sam-
kvæmt könnunum sem útgefandi
hefur gert þá nota um 90% skip-
stjórnarmanna Sjómannaalmanak
Skerplu mikið eða mjög mikið.
Sjómannaalmanak Skerplu er
880 síður að stærð. Ritstjóri er Sæv-
ar Helgason, sölustjóri skráninga
er Sigríður Hermannsdóttir og
auglýsingastjóri er Hertha Árna-
dóttir.
Útgefandi er Fiskifréttir ehf. en
allir áskrifendur Fiskifrétta fá bók-
ina senda sér að kostnaðarlausu.
Almennt verð er 4.480 kr. Pönt-
unarsími er 511-6622 en einnig
verður hægt að panta Sjó-
mannaalmanak Skerplu á Skip.is.
Sjómanna-
almanak
Skerplu
2006 er
komið út
Útgáfa Sævar Helgason ritstjóri og Sigríður Hermannsdóttir, sölustjóri
skráninga, með nýja almanakið.
SEX krókaaflamarksbátar hafa
fiskað meira en 1.000 tonn á árinu.
Þá er fjöldi þeirra sem aflað hafa
meira en 500 tonn 21. Aflahæstur
er að venju Guðmundur Einarsson
með 1.360 tonn. Afli þessara sex
báta var eftirfarandi: Guðmundur
Einarsson ÍS 1.360 tonn, Hrólfur
Einarsson ÍS 1.346 tonn, Narfi SU
1.158 tonn, Hópsnes GK 1.081
tonn, Daðey GK 1.067 tonn og
Kristinn SH 1.017 tonn. Tölurnar
hér að ofan eru fengnar af heima-
síðu Landssambands smábátaeig-
enda, sem hefur sótt þær til Fiski-
stofu.
Sex bátar yfir
1.000 tonn
SKIPVERJAR á þýzkum
togara fengu á dögunum
fiskinn lúsífer í trollið við
veiðar í Rósagarðinum.
Þessi fiskur er frekar fá-
séður við landið, en árlega
veiðast tveir eða fleiri fisk-
ar þessarar tegundar hér.
Hans varð fyrst vart við
landið 1886, er einn lúsífer
fannst rekinn í Vest-
mannaeyjahöfn.
Lúsíferinn verður allt að
60 sentímetrar að lengd og er hon-
um meðal annars þannig lýst í bók
Gunnars Jónssonar, Íslenzkir fisk-
ar: „Hár og stuttvaxinn fiskur, dá-
lítið kúlulaga, minnir mest á gaml-
an leðurfótbolta, sem loft hefur
lekið úr. Haus er mjög stór, kjaftur
víður og skástæður. Neðri skoltur
nær fram fyrir þann efri. Tennur á
skoltum eru allstórar og hvassar og
vísa aftur. Augu eru mjög lítil. Bol-
ur er stuttur og stirtlan mjög stutt.
Spyrðustæðið er þykkt. Bakuggar
eru tveir, og er sá fremri aðeins
einn sver geisli, alveg frammi á
enninu og kvíslast hann í endann
eins og trjágrein. Á enda hans eru
lýsandi kúlur.“
Lúsíferinn finnst í öllum heims-
höfum.
Eins og gamall
loftlaus leðurbolti
Ljósmynd/Guðmundur Gunnarsson
Hlíðasmára 11, Kópavogi
sími 517 6460
www.belladonna.is
Réttu stærðirnar