Morgunblaðið - 03.01.2006, Page 18

Morgunblaðið - 03.01.2006, Page 18
Miðbærinn | Daginn er farið að lengja, eitt hænufet í einu. Breytingin er ekki svo mikil að munur sjáist milli daga en þegar líður á mun það ekki leyna sér að skammdegið er á undanhaldi. Margir fallegir dagar hafa ver- ið í skammdeginu, ekki síst við Reykjavíkurtjörn þar sem oft má sjá húsin og ljósin speglast í vatninu. Ekki spillir fyrir þegar endurnar stilla sér einnig upp. Morgunblaðið/Ásdís Spegla sig í Tjörninni Skammdegið Landið | Akureyri | Suðurnes | Austurland Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórs- dóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi- @mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu EGILSSTAÐIR EFTIR STEINUNNI ÁSMUNDSDÓTTUR BLAÐAMANN Þá er runnið upp nýtt ár sem líkt og liðið ár mun sjálfsagt einkennast af fram- kvæmdum og þenslu á Austurlandi. Það hefur blátt áfram verið lygilegt að fylgjast með kúrfunni hér eystra undanfarið, þar sem fjórðungurinn er skyndilega orðinn einkar fjölþjóðlegur og byggingaverka- mönnum og fjárfestum er skipað til önd- vegis í uppsveiflunni. Veldur hver á heldur og sveitarfélögin streitast við að spá rétt í spilin og hafa vaxtarjarðveginn frjóan, hvert á sinn hátt. Stundum er veiðin sýnd en ekki gefin og einhver bæjarstjórinn sagðist sigla milli skers og báru í skipulagn- ingu á rekstri sveitarfélagsins; stundum þyrfti að venda hratt og lítið um lygnan sjó.    Íbúafjölgun hefur hvergi orðið eins mikil á landinu á undanförnum árum eins og á Austurlandi og eru Egilsstaðir stærsti þétt- býlisstaður fjórðungsins. Hagstofan telur þar nú 1.901 sál og hefur fjölgað um 129 á milli ára. Í Fellabæ búa 403 íbúar og því samtals 2.304 íbúar í þéttbýliskjarnanum við Lagarfljót. Andrúmsloft svæðisins hef- ur breyst mikið eftir að Kárahnjúkavirkjun brast á. Allt á fleygiferð. Skilin eru skörp milli heimamanna og aðkomumanna og mættum við að ósekju taka ögn betur á móti Kárahnjúkafólkinu, fá það til að kenna okkur sitt og njóta þeirrar margbreytni sem öll þessi þjóðarbrot bera með sér. Þetta er krydd í tilveruna, hvað sem mönn- um sýnist að öðru leyti um framkvæmdina sjálfa og það rót sem henni fylgir.    Vaxandi þrótti Austurlands fylgja ýmis hundsbit. Eitt þeirra er hækkun fast- eignamats. Matið á einbýlishúsum á Egils- stöðum og í Fellabæ hækkaði um 30% um áramótin, af atvinnuhúsnæði og fjölbýlis- húsum um 20% og bújörðun og því sem þeim fylgir um 10%. Bæjarstjórnin ætlar að hjálpa okkur dálítið með þetta og lækka álagningarprósentu fasteignagjalda af íbúðarhúsnæði um 0,5% og af atvinnu- húsnæði um 0,15%. Nú eru virkjunarfram- kvæmdir brátt í hámarki og svo tekur að fjara undan í lok ársins. Menn spyrja hvað verði handan þess tíma. Hvað sem uppsveiflu og hundsbitum líð- ur óska ég íbúum þessa fjórðungs og ann- arra gæfu á árinu og minni á að jákvætt hugarfar er lykillinn að lífsgæðum okkar. afkomendur þeirra sem fórust, svo og sveitarstjórnarmenn Að lokum sátu gestir boð hafnarinnar á Kaffi Króki þar sem kynnt var samantekt Harðar Ingimarssonar um fárviðrið sem gekk yfir Norðurland þennan örlagaríka dag og birtist í fréttablaðinu Feyki. Alls létust 25 menn í þessu voðaveðri. Sauðárkrókur | Hafnarnefnd Sauð- árkróks bauð nýlegra til athafnar við Sauðárkrókshöfn en tilefnið var af- hjúpun nokkurra söguskilta sem þar hafa verið sett upp og rekja sögu hafnarinnar, en um leið var minnst sjö sjómanna sem fórust með tveim bát- um, Öldunni og Nirði, í fárviðri sem gekk yfir þann 14. desember 1935. Brynjar Pálsson, formaður hafn- arstjórnar, sagði að einmitt þetta hörmulega sjóslys hefði opnað augu manna fyrir nauðsyn góðrar og öruggrar hafnar og þá þegar hefði verið hafist handa við framkvæmdir, sem enn væri þó ekki að fullu lokið þar sem seint yrði svo um hnúta búið að höfn gæti ekki orðið öruggari og betri. Unnar Ingvarsson skjalavörður samdi texta á skiltin, en það var hafn- arnefndin sem stóð fyrir gerð þeirra og uppsetningu. Gestir voru fyrrverandi og starfandi hafnarstjórnarmenn, aðstandendur og Morgunblaðið/Björn Bjarnason Höfnin Brynjar Pálsson, formaður hafn- arstjórnar, við skiltin. Minnst mannskaðaveðurs árið 1935 Hjálmar Frey-steinsson yrkirum áramót og þykir tíminn líða hratt: Áfram tíminn tifar enn taktfast, örugglega, ætlar að gera úr mér senn ellilaunaþega. Það gerir Einar Kol- beinsson einnig: Komin nú er, hver fær séð, kveðjustundin grimm, með tregafullum tárum kveð, 2005. Síðan burtu sorgir rek, sálarþrekið vex, og með gleðitárum tek, mót 2006. Og loks yrkir Friðrik Steingrímsson í Mývatns- sveit: Framrás tíðar fæst ei breytt farinn sami slóðinn, safnast hefur ennþá eitt ár í tímasjóðinn. Ort um áramót pebl@mbl.is Selfoss | 821 umsækjandi fékk tilboð um skólavist í dagskóla Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Eru nemendur boðaðir í skólann föstudaginn 6. janúar kl. 10. Af þessum hópi eru 19 grunn- skólanemendur sem taka framhalds- skólaáfanga í fjarnámi við skólann. Sam- bærilegar tölur fyrir ári voru 774 og 24 í fjarnámi. Átján nemendur eru innritaðir til náms í meistaraskólanum en á sama tíma í fyrra voru þeir 31 auk 34 nem- enda sem þá stunduðu kvöldskólanám í húsasmíði. 160 nemendur fengu nú sér- stakt áminningar- eða hvatningarbréf í ljósi lélegrar skólasóknar og lítils náms- árangurs en fyrir ári síðan voru þeir 101. 21 nemandi fékk nú synjun um skóla- vist í Fjölbrautaskóla Suðurlands vegna lélegrar skólasóknar og slaks námsár- angurs. Til samanburðar má geta þess að í júní sl. var sambærileg tala 15, í desember 2004 var um 9 nemendur að ræða og 25 nemendur í júní 2004. 821 fékk skólavist í FSu Þingeyjarsveit | Menningarmálanefnd Þingeyjarsveitar hefur ákveðið að veita styrki til sjö aðila sem lagt hafa lóð sín á vogarskálar blómlegs menningarlífs í sveitarfélaginu. Hæstu styrkirnir eru 140 þúsund kr. Mýrarmannafélagið fær 140 þúsund kr. vegna útgáfu á Vesturheimsbréfum Jóns Jónssonar frá Mýri. Sverrir Haraldsson á Hólum fær sömu fjárhæð vegna heima- byggðarverkefnis en það felst í söfnun og skráningar heimilda til útgáfu á sögu gömlu hreppa Þingeyjarsveitar. Símon H. Sverrisson á Hólum fær 100 þúsund kr. vegna ljósmyndasýningar sem haldin var síðastliðið sumar og vegna söfn- unar, skönnunar og varðveislu gamalla ljósmynda úr Reykjadal, Bárðardal, Köldukinn og Fnjóskadal. Skákfélagið Goðinn fær 20 þúsund til að endurvekja og breiða út skákmenningu í sveitarfélaginu. Ljósavatnskirkja fær 50 þúsund kr. til flygilkaupa. Karlakórinn Hreimur fær 25 þúsund kr. afmælisgjöf. Ásgeir Stefánsson og Stefán Þórisson fá 25 þúsund í heiðursskyni vegna útgáfu á diski. Menningar- málanefnd úthlutar styrkjum ♦♦♦ Eskifjörður | Aðalsteinn Jónsson, útgerðarmaður á Eskifirði, fyrrver- andi forstjóri Hraðfrystihúss Eski- fjarðar hf., dvelur nú á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Uppsölum á Fá- skrúðsfirði. Hefur skapast um það umræða á Eskifirði hvernig það megi vera að ekki skuli finnast pláss á staðnum fyrir hann. Fullt er á hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð á Eskifirði. Aðalsteinn verður 84 ára í lok mánaðarins. Hann naut umönnunar heima hjá sér þar til fyrir nokkru að læknir úrskurðaði að hann þyrfti að- hlynningu allan sólarhringinn á hjúkrunarheimili. Ekki fékkst pláss fyrir hann á Hulduhlíð því þar er fullt, að sögn Árna Helgasonar for- stöðumanns, en laust rými var á Uppsölum á Fáskrúðsfirði. Þar hef- ur Aðalsteinn dvalið á annan mánuð. Um það bil hálftíma akstur er á milli Eskifjarðar og Fáskrúðsfjarðar. Líður vel á Uppsölum Þorsteinn Kristjánsson, tengda- sonur Aðalsteins, segir að fjölskyld- an vilji helst hafa hann heima á Eski- firði og það sé vilji Aðalsteins sjálfs. Þorsteinn tekur fram að Aðalsteini líði að öðru leyti mjög vel á Upp- sölum og þar sé afskaplega vel hugsað um hann. Vakin er at- hygli á þessu máli á heimasíðu Helga Garðars- sonar og sagt að það sé bæjar- félaginu til stórskammar að senda í burtu þann mann sem allir á staðn- um standi í þakkarskuld við. Er skorað á Eskfirðinga að sjá til þess að Aðalsteinn fái inni í Hulduhlíð. Þorsteinn segist hafa orðið var við þessa umræðu á staðnum og hún væri skiljanleg. Hann segist líka skilja aðstöðu forstöðumanns og starfsfólks Hulduhlíðar og viti að Aðalsteinn komist þangað inn um leið og pláss losni. Árni Helgason, forstöðumaður Hulduhlíðar, segir leitt að ekki skyldi vera unnt að taka við Aðal- steini þegar hann þurfti á því að halda en segir jafnframt að starfs- fólkinu þyki umræðan sem skapast hefur nöturleg og ekki til framdrátt- ar þeim sem standi fyrir henni. Ekki pláss fyrir Aðal- stein á Hulduhlíð Aðalsteinn Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.