Morgunblaðið - 03.01.2006, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 19
MINNSTAÐUR
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Eldspýtur og kerti
eru ekki
barna meðfæri
Munið að
slökkva á
kertunum
i
LANDIÐ
Selfoss | „Lögreglan í Árnessýslu
hefur haft sjúkraflutninga á sinni
hendi í 49 og hálft ár og ég horfi á
það með trega að þetta verkefni
fari frá lögreglunni en er jafnframt
sannfærður um að þeir verða í góð-
um höndum framvegis. Sjúkraflutn-
ingamenn og lögreglumenn þurfa
að eiga í góðu samstarfi áfram,“
sagði Ólafur Helgi Kjartansson,
sýslumaður á Selfossi, meðal ann-
ars er hann afhenti heilbrigðisráðu-
neytinu og Heilbrigðisstofnun Suð-
urlands sjúkraflutningana í
Árnessýslu með formlegum hætti
30. desember og lét fylgja með
haus af súrefnistækjum sem fylgdu
jafnan sjúkra- og lögreglubílum
embættisins.
Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra þakkaði lögreglunni í Ár-
nessýslu langa og dygga þjónustu
við heilbrigðiskerfið með sjúkra-
flutningunum. „Heilbrigðisstofnun
Suðurlands tekur nú við sjúkra-
flutningunum og hefur metnað til
þess að efla flutningana. Leiðir
sjúkraflutningamanna og lögreglu-
manna munu liggja saman í útköll-
um og því nauðsynlegt að þeir hafi
gott samstarf,“ sagði Jón er hann
tók við minjagripnum úr hendi
sýslumanns og afhenti Magnúsi
Skúlasyni, framkvæmdastjóra Heil-
brigðisstofnunar Suðurlands. Á
árinu 2005 hafa sjúkraflutningar
verið um 930 talsins.
Afhending sjúkraflutninganna fór
fram á árlegum fundi lögreglu-
manna í Árnessýslu í lok árs er
þeir koma saman og fara yfir árið.
„Það er gott að finna til sam-
kenndar hjá þeim sem sinna þess-
um störfum. Það hafa ekki orðið
nein stóráföll á liðnu ári og við eig-
um þátt í því að alvarlegum um-
ferðarslysum og banaslysum hefur
fækkað en ein ástæða þess er aukið
eftirlit á vegunum,“ sagði Ólafur
Helgi sýslumaður. Hann sagði og
að lögð yrði áhersla á að viðhalda
þekkingu lögreglumanna á því að
veita fyrstu hjálp en mikil þekking
væri í þeim efnum innan lögregl-
unnar enda hafi þeir þurft að sinna
sjúkraflutningum og bregðast við á
slysstað. Ólafur sagði að hjá lög-
reglunni hafi fjögur stöðugildi fylgt
sjúkraflutningunum. Nú þegar þeir
færu frá embættinu fækkaði lög-
reglumönnum um tvo. Embættið
fengi eitt stöðugildi við þessa
breytingu og með aðhaldi og sam-
stilltu átaki stjórnenda yrði bil eins
stöðugildis brúað þannig að það
yrðu 25 lögreglumenn starfandi hjá
embættinu. Hann sagði það leggj-
ast vel í sig að ný björgunar- og
viðbragðsstöð yrði byggð gegnt
lögreglustöðinni þar sem yrði mið-
stöð sjúkraflutninganna, Björg-
unarfélag Árborgar og Brunavarnir
Árnesinga. Samstarf þessara aðila
og lögreglunnar væri því innan
handar. „Við megum hvergi slaka á
til að teljast besta lögreglulið
landsins og við munum leggja
áherslu á að efla og styrkja lög-
gæslu og eftirlit á svæðinu þó svo
lögreglumönnum fækki um tvo,“
sagði Ólafur Helgi Kjartansson í
ávarpi sínu til lögreglumanna og
gesta.
Heilbrigðisstofnun tekin
við sjúkraflutningum
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Athöfn Magnús Skúlason framkvæmdastjóri, Jón Kristjánsson heilbrigð-
isráðherra og Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður við athöfnina.
Þórshöfn | Heimilisfólkið á
hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Nausti á Þórshöfn fékk óvænta og
skemmtilega heimsókn núna milli
hátíða. Gesturinn var Steingrímur
J. Sigfússon alþingismaður sem
kom og hafði meðferðis mynda-
syrpu frá Íslandsgöngu sinni í
sumar sem leið, frá Reykjanestá
að Langanesfonti. Myndirnar
sýndi hann með skjávarpa á stóru
tjaldi og rakti ferðasöguna og út-
skýrði myndirnar, eins og honum
einum er lagið.
Sýningin var á við heila
kennslubók í landafræði en auk
þess afar skemmtileg, að áliti
allra viðstaddra en margir gestir
höfðu áhuga á að sjá Íslands-
göngu Steingríms og drifu sig því
í heimsókn á Naustið.
Það er kærkomin tilbreyting
fyrir fólk sem orðið er lasburða og
fer lítið af bæ að fá heimsókn sem
þessa, ekki spillir að sjá á heilum
vegg fallegar sumarmyndir af Ís-
landinu góða, kryddaðar litríkum
lýsingum og vísukornum.
Kalt var vatnið, hvíldin holl
kyrrð í fjallasalnum.
Yndislegt var að á við Koll
innst í Heljardalnum;
sagði Steingrímur J. Sigfússon
göngumaður í lok sýningarinnar
og hlaut hann bestu þakkir áhorf-
endanna og skemmtun og fróð-
leik.
Sýndi gamla fólkinu
myndasyrpu frá Ís-
landsgöngu sinni
Eftir Líneyju Sigurðardóttur
Morgunblaðið/Líney
Íslandsganga Margir höfðu gaman af að sjá myndir Steingríms J.
Hvammstangi | Fulltrúaráð Kaup-
félags Vestur-Húnvetninga (KVH)
hefur heimilað stjórn félagsins að
stofna hlutafélag með Kaupfélagi
Skagfirðinga (KS) um kaup og rekst-
ur sláturhúss félagsins á Hvamms-
tanga. Þá hefur einnig verið sam-
þykkt að selja flutningasvið félagsins
til Vörumiðlunar ehf. á Sauðárkróki
sem KS er meirihlutaeigandi að.
Mikil fundarhöld hafa verið um
málefni KVH í héraðinu á liðnum vik-
um og hafa um 60 nýir félagar gengið
í KVH. Um fimmtíu manns vinna hjá
félaginu nú, og skiptist til helminga
milli afurðasviðs og verslunarrekst-
urs. Stefnt er að helmingaskiptum
KVH og KS í hlutafélagi um slát-
urhúsið. Stjórnun þess verður á
Hvammstanga og leitast verður við
að halda áfram úrvinnslu afurða á
staðnum. Í samningi félaganna er
KVH heimilað að kaupa hlut KS í fé-
laginu innan þriggja ára, óski stjórn
KVH þess.
Rætt hefur verið um framtíð versl-
unarreksturs KVH og virðast nokkr-
ar leiðir í stöðunni. Rekstur KVH
hefur ekki gengið sem skyldi á liðn-
um árum. Á árinu var húsnæði bygg-
ingavörudeildar selt og deildin flutt í
aðalverslunarhús félagsins. Þá var
innlánsdeild KVH færð til Sparisjóðs
Húnaþings og Stranda á árinu og þar
með uppfylltar kröfur um slíka starf-
semi.
KVH er með jákvætt eigið fé og
vonast stjórn til að þessar aðgerðir
styrki fjárhagslega stöðu þess veru-
lega. Á máli héraðsbúa má heyra að
miklar vonir eru bundnar við að KVH
komi málum sínum á þann veg, að
þjónustu skerðist sem minnst, inn-
leggjendur afurða beri traust til af-
urðastöðvarinnar og að atvinna hald-
ist sem mest í héraðinu.
KS kemur
inn í rekst-
ur slátur-
húss KVH
Eftir Karl Á. Sigurgeirsson