Morgunblaðið - 03.01.2006, Side 26

Morgunblaðið - 03.01.2006, Side 26
GÍSLI Gíslason, nýráðinn hafn- arstjóri Faxaflóahafna, segir að hugsast geti að fyrirtækið komi að undirbúningi framkvæmda og fjármögnun við Sundabraut verði verkefnið boðið út sem einka- framkvæmd. Spurningin sé hvaða aðferðafræði menn vilji beita, verði um einkaframkvæmd að ræða, en „við erum tilbúin til þess að verða einn af þeim aðilum sem kæmu að málinu ef þetta færi í einhvers konar einkafram- kvæmd, hvort heldur er beint eða í gegnum Spöl ehf.“, segir Gísli, en fyrirtækið á 23,5% eignarhlut í Speli. Ríkið á einnig stóran hlut í Speli og þessir tveir aðilar með sveitarfélögunum norðan Hval- fjarðar gætu náð samkomulagi um að útvíkka starfsemi þess fé- lags. Með stofnun Faxaflóahafna sameinaðist rekstur Reykjavík- urhafnar, Grundartangahafnar, Akraneshafnar og Borgarnes- hafnar. Gísli segir ljóst að áhrifin af sameiningu hafnanna verði mun fyrr virk ef Sundabrautin verði tekin í notkun innan fárra ára. „Þess vegna höfum við veru- lega hagsmuni af því að þet verkefni gangi greitt fram,“ seg Gísli. Skuggagjaldaleið Til þess að hægt verði að vin frekar í málinu þurfi hins veg Íhuga þátttöku í fjárm Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is Við erum eins og örninn, við lát-um vindinn sem blæs gegnokkur bera okkur hátt. Hér erfólk úr öllum stéttum í með- ferð,“ sagði Guðmundur Jónsson, for- stöðumaður Byrgisins á Efri-Brú í Grímsnesi, á fjölmennri tímamóta- og kynningarhátíð 30. desember. Tíunda starfsár Byrgisins er að hefjast og í til- efni þess var starfsemin kynnt og þær nýjungar sem bryddað verður upp á. Í máli Guðmundar og annarra á samkom- unni kom fram að stöðug eftirspurn er eftir plássum í Byrginu og sárlega vant- ar aðstöðu til að taka fíkla í afeitrun. 73 bíða nú eftir plássi á Efri-Brú og Guð- mundur sagði að hann hefði þennan dag sem hátíðin fór fram fengið símtal og var hann spurður hvort hann gæti tekið 9 manns sem voru að missa húsnæði sitt í Reykjavík, á Hverfisgötunni, allir mjög illa haldnir. Af orðum Guðmundar að dæma er ljóst að þörfin fyrir úrræði er gríðarleg og ljóst að um líf og dauða er að tefla en Guðmundur lýsti í nokkrum orðum stöðunni hjá þeim níu sem um var að ræða. Ljóst var að hann þekkti aðstæður þeirra mjög vel. Forvarnar- og fjölskyldustarf að hefjast „Afleiðingar vaxandi eiturlyfjaneyslu og afbrotaaukningar í samfélaginu eru sundruð heimili og upplausn fjöl- skyldna, skilnaðir, kynlífsofbeldi, geð- ræn vandamál og sjálfsvíg,“ sagði Ásta Guðmundsdóttir sem ásamt Árna V. Magnússyni kynnti umfangsmikið átak í Byrginu sem beinast mun að fjöl- skyldum fíkniefnaneytenda sem hún sagði illa haldnar af þessum aðstæðum. Með vorinu mun hefjast í Byrginu margþætt forvarnar- og fjölskyldustarf. Hlutverk þess er að efla forvarnir og bjóða aðstandendum fíkla upp á fjöl- þætta þjónustu. Um verður að ræða fræðslu, ráðgjöf og stuðning auk sér- stakrar meðferðar í Byrginu ef þörf krefur. Hin nýja áhersla Byrgisins skiptist í tvo meginþætti, annars vegar fjölskyldu- og forvarnarstarf og fræðslu og stuðning við fjölskyldur og forvarn- arherferð í skólum og félagsmið- stöðvum. Hins vegar mun starfið bein- ast að aðstandendameðferð í Byrginu á Ljósafossi. Haldnir verða kynning- arfundir á höfuðborgarsvæðinu hálfs- mánaðarlega og reynt að ná til fólks. Einnig verða kynningarfundir í Byrginu á Ljósafossi fyrir Selfoss og nágrenni. Byrgið mun á komandi hausti leggja áherslu á að ná til barna 6 – 12 ára og dreifa til þeirra fræðsluefni. Í sumar verða síðan ýmis verkefni í gangi í Byrginu, uppbygging til anda, sálar og líkama. Útvarp KFM verður með pró- gramm allan sólarhringinn. „Margir munu frelsast frá fíkn undir slagorð- unum: Gegn eitri í æð og Breyttur lífs- stíll. Og komast þannig að raun um að nýtt líf í Kristi er það eina sem hindrar fíkilinn í að neyta vímuefna,“ sagði Árni. 86% vistmanna heimilislaus „34 einstaklingar dvelja hér í endurhæf- ingarsambýlinu í Byrginu á Ljósafossi og fleiri ef fleiri en einn eru í herbergi. Vímuefnameðferðarprógram hefur stöðugt verið þróað og lagað að þörfum þess hóps sem meðferð Byrgisins tekur til. Áherslan er á andlega og líkamlega uppbyggingu, þar sem aginn er í fyr- irrúmi. Einstaklingurinn er hvattur áfram og aðstoðaður með daglega rút- ínu, allt í átt til samfélagslegrar ábyrgð- ar á eigin lífi um leið,“ sagði Guðmundur Jónsson forstöðumaður meðal annars er hann kynnti starfsemina. Sem dæmi sagði hann 86% vistmanna hafa verið heimilislaus við komuna í Byrgið og 88% höfðu verið atvinnulaus í 6 mánuði. Að- eins 12% höfðu einhverja atvinnu áður en þeir komu í meðferð. 69% ein- staklinganna komu frá sundruðum fjöl- skyldum þar sem neysla foreldra, skiln- aður, ofbeldi og/eða misnotkun höfðu viðgengist í uppeldi þeirra. Þá sagði Guðmundur sláandi að margir byrjuðu neyslu mjög ung mjög algengur. Fíknin er miki „Stærsta þjóðfél vandamál okkar vímuefnaneysla um er að ræða m ast á hverjum ei Arnarr Einarsso væri að gerast í ólöglegra og lögl verulega frá ári og foreldra þeirr beldisfullum han arlömbin þyrðu þá sem stjórnuð fíkniefnum. Þá s borgarar væru m efnaneytendum arfullri leit að næ brotamönnum væ fangavist en þeir arlaust að fara í Í Byrginu er stó anna með afbrot Fjöldi fólks sótt Sungið af innlifu Starfsemi Byrgisins bjargar mannslífum Endurhæfingarstöðin Byrgið á Efri-Brú er nú á sínu tíunda starfsári og af því tilefni var haldin kynning á starfseminni. Sigurður Jónsson sótti kynninguna og hlýddi á erindi ræðumanna. 26 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. SUKKIÐ, SVÍNARÍIÐ OG MIÐBÆRINN Skiptar skoðanir eru augljóslegaum áhrif þess að heimill af-greiðslutími skemmtistaða í miðborg Reykjavíkur var lengdur verulega fyrir fáeinum árum. Lög- reglunni gengur greinilega betur að hafa stjórn á ástandinu í miðbænum um helgar þegar fólk streymir ekki lengur í stórum hópum út á göturnar upp úr klukkan þrjú. Ástandið, sem ríkti áður fyrr í miðbænum aðfara- nætur laugardags og sunnudags, jaðr- aði við hrein skrílslæti og var borginni og borgurunum ekki til sóma. Samkvæmt tölum lögreglunnar hef- ur ofbeldisbrotum í miðbænum fækk- að eftir að afgreiðslutíminn var lengd- ur. Veitingahúsaeigendur hafa hins vegar sagt frá því að lengingu af- greiðslutímans hafi fylgt meiri fíkni- efnaneyzla. Frásagnir lækna á slysa- deild Landspítala – háskólasjúkra- húss í Morgunblaðinu í gær benda líka til að svo sé. Kristín Sigurðardóttir, læknir og fræðslustjóri á slysadeildinni, bendir á að til að halda út í skemmtanalífinu heilu næturnar freistist fólk til að taka örvandi fíkniefni. Afleiðingarnar eru m.a. að á slysadeildina kemur fólk, sem er í verra ásigkomulagi vegna fíkniefnaneyzlu og er umhverfi sínu hættulegra. Læknar og hjúkrunarfólk fara ekki varhluta af því; árásum og ógnunum í þeirra garð hefur fjölgað. Slysadeildin býst nú til að efla örygg- isráðstafanir sínar til að bregðast við þessu. Í máli læknanna og Ásgeirs Karls- sonar, yfirmanns fíkniefnadeildar lög- reglunnar, kemur fram að margir séu nú farnir að líta á fíkniefni sem eðli- legan hluta af skemmtanalífinu. Það er að sjálfsögðu alveg fullkomlega skelfilegt, ef svo er. Ásgeir Karlsson talar um að „ólíklegasta fólk og úr öll- um stéttum þjóðfélagsins“ noti fíkni- efni. Ef þetta er að hluta til afleiðing af breyttri skemmtanamenningu í kjölfar breytts afgreiðslutíma er ástæða til að staldra við. Það má hvergi slaka á í baráttunni við fíkni- efnadjöfulinn. Kristín Sigurðardóttir leggur til að skemmtistaðir verði flokkaðir og þeir látnir loka á mismunandi tímum. Þá spyr hún hvort ástæða geti verið til að selja ódýrara áfengi fyrir miðnætti til að ýta undir að fólk, sem vill skemmta sér, fari fyrr út og fyrr heim. Ásgeir Karlsson segir það sína skoðun að breyta mætti reglum þannig að sér- stakir næturklúbbar, sem væru fjarri miðborginni, fengju að hafa opið leng- ur á nóttunni en afgreiðslutími ann- arra staða yrði styttur. Allt eru þetta tillögur, sem sjálfsagt er að ræða í því skyni að bæta ástandið í miðbænum. „Fólk sem er að fara með börnin sín til að gefa öndunum á Tjörninni rekst kannski á útúrdrukkið og vansvefta fólk sem er á leiðinni heim eftir nótt- ina,“ segir Kristín Sigurðardóttir. „Er þetta það sem við Íslendingar viljum vera þekktir fyrir, djamm, sukk og svínarí?“ Svarið við því hlýtur að vera nei. Markmiðið á að vera að draga úr fíkniefnaneyzlunni samfara skemmt- analífinu og ekki síður að gera mið- borg Reykjavíkur að fjölskyldu- vænna, öruggara, snyrtilegra og meira aðlaðandi hverfi, þar sem er bæði gott að búa og koma. ÓHAGRÆÐI BIÐLISTA Ein af mótsögnum íslensks heil-brigðiskerfis er óhagræðið, sem iðulega fylgir sparnaði og niður- skurði. Biðlistar inniliggjandi sjúk- linga, sem lokið hafa meðferð á Land- spítala – háskólasjúkrahúsi, eftir hjúkrunarrýmum eru gott dæmi um það. Eins og fram kom í frétt í Morg- unblaðinu í gær eru nú 94 sjúklingar, sem lokið hafa meðferð á Landspít- alanum, enn inniliggjandi. Þetta eru um 11% allra legusjúklinga á sjúkra- húsinu. Samtals hefur þessi hópur legið inni í um 12 þúsund daga að lok- inni meðferð. Meðallegudagur á LSH kostar mun meira en meðallegudagur á hjúkrunarheimili. Í nýrri skýrslu ríkisendurskoðunar um starfsemi LSH á árunum 1999 til 2004 segir að sé gengið út frá að meðalbiðtími bið- sjúklinganna sé 90 dagar sé kostnað- ur á hvern sjúkling á bilinu 2,7 til 4,5 milljónir króna. Fyrir 94 sjúklinga þýði þetta 254 til 423 milljónir króna. þetta hefur einnig í för með sér að sjúklingar, sem þurfi á þjónustu spít- alans að halda, komist ekki að á við- eigandi deildum og verði jafnvel að dveljast á göngum sjúkrahússins. Anna Lilja Guðbrandsdóttir, fram- kvæmdastjóri fjárreiðna og upplýs- inga á LSH, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að það væri „eitt af stærstu hagsmunamálum sjúk- linga og starfsfólks LSH að þessi vandi yrði leystur til frambúðar“. Skýrslan um útskriftarvandann var gerð í september. Anna Lilja seg- ir að lítið sem ekkert hafi gerst síðan og bætir við: „Og ég held að hún muni ekki breytast mikið á næstunni, ekki fyrr en nýtt hjúkrunarheimili verður opnað í Mörkinni árið 2007.“ Hér hefur myndast flöskuháls í kerfinu og allir tapa á ástandinu, skattborgarar, sjúklingar og heil- brigðisstarfsfólk. Betur færi um leg- usjúklinga, sem hafa lokið meðferð, á hjúkrunarheimilum. Hægt væri að veita sjúklingum, sem eru lagðir inn á LSH til meðferðar, betri þjónustu ef önnur úrræði væru fyrir sjúklinga, sem lokið hafa meðferð. Starfsfólk spítalans myndi vinna við betri að- stæður ef biðlistunum væri eytt og eiga auðveldara með að sinna störfum sínum, ekki síst þegar álag myndast og öll rúm eru nýtt fyrir. Heilbrigðiskerfið er dýrt í rekstri og þar þarf vissulega að gæta að- halds. Þegar aðhaldið verður hins vegar til þess að mörg hundruð millj- ónir króna fara í súginn þarf að grípa í taumana. Það þarf ekki flókna út- reikninga til að komast að því að það tekur ekki langan tíma að spara fyrir hjúkrunarheimili ef leggja mætti sjúklinga beint þangað inn í stað þess að láta þá dúsa á LSH og biðlistum svo mánuðum skiptir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.