Morgunblaðið - 03.01.2006, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 29
UMRÆÐAN
BÆJARSTJÓRINN á Álftanesi
hefur ákveðið að
leggja til við bæjarráð
að skipulagsnefnd
vinni áfram það skipu-
lag, sem hefur verið í
vinnslu undanfarna
mánuði. Skipulags-
nefnd fer nú yfir efn-
islegar athugasemdir
við deiliskipulagið og
gerir mögulega til-
lögur að breytingum á
auglýstu skipulagi.
Deiliskipulag mið-
svæðis Álftaness verði
unnið til enda og sent
Skipulagsstofnun til
lokayfirferðar. Meira
verði ekki gert og
beðið með undirbún-
ingsvinnu við hönnun
gatna og aðrar tengd-
ar framkvæmdir fram
yfir kosningar hinn 27.
maí nk., en þá komi
málið til úrskurðar
kjósenda eins og önn-
ur framfaramál í bæj-
arfélaginu.
Jafnframt verði ósk-
að eftir skilningi á
málinu, við þá aðila
sem bæjarfélagið hef-
ur gert bindandi
samninga við og varð-
ar aðkomu þeirra á
miðsvæðið. Þeirra á
meðal er Hjúkrun-
arheimilið Eir, sem
væntanlega mun
stöðva frekari vinnu
við hönnun og annan undirbúning
framkvæmda fyrir eldri borgara á
Álftanesi, þar til niðurstaða liggur
fyrir.
Auglýst var eftir athugasemd-
um við skipulagstillöguna í nóv-
ember sl. Við lok auglýsinga-
tímabils hinn 23. desember sl.
höfðu 705 einstaklingar skrifað
undir athugasemdir, ýmist á und-
irskriftarlista eða með sérstöku
erindi. Kjósendur á Álftanesi eru í
dag um 1.430, þannig að tvær
fylkingar eru á öndverðum meiði,
hvað skipulagstillöguna varðar.
Því þykir bæjarstjóra eðlilegt,
þar sem framvinda þessa máls er
unnin samkvæmt samþykkt bæj-
arstjórnar og lögum um fram-
vindu slíkra mála, að ferlið sé
klárað og komi síðan í dóm kjós-
enda í almennum kosningum
hvort unnið verði áfram.
Nokkuð hefur verið um það tal-
að og er meðal annars krafa íbúa
á Álftanesi á undirskriftarlist-
unum að hér verði höfð sam-
keppni um deiliskipulagið. Einnig
að ein leið gæti verið að kjósa um
mismunandi tillögur.
Hvorug þessara leiða er fýsileg
að mati bæjarstjóra, þar sem
mjög langan tíma tekur að und-
irbúa og vinna til enda slík mál,
allt að tvö til þrjú ár. Og ekki ein-
hlítt hvernig og þá hver ætti að
velja um hvað verði kosið, til að fá
niðurstöðu. Engin leið er að sjá
það fyrir að sátt geti orðið um
forsögn og forsendur slíkrar sam-
keppni, miðað við það sem á und-
an er gengið.
Sigurður Einarsson arkitekt hjá
Batteríinu hefur unnið þetta
skipulag með skipulagsnefndinni.
Sigurður er virtur og margverð-
launaður arkitekt, tók meðal ann-
arra þátt í viðamikilli samkeppni
arkitekta um skipulag Álftaness á
árinu 1991 og var annar vinnings-
hafa í þeirri samkeppni.
Þrátt fyrir að skipulagsnefnd
og bæjarstjórn hafi að minni
hyggju kynnt vinnulag deiliskipu-
lagsins mjög vel nú og betur en
venja er til um slík mál, í þeim
tilgangi að fá íbúa til
að koma að málinu,
hefur komið upp
veruleg andstaða.
Ég tel það vera
vegna þess að hluti
íbúa hafi ekki séð
sér fært að kynna
sér málið á eigin for-
sendum. Í þess stað
hefur hluti íbúa kos-
ið að fara þá leið að
mótmæla vinnulagi,
án þess að leita eftir
eðlilegum upplýs-
ingum til að byggja
sína skoðun á.
Undir þessum
kringumstæðum,
sem skapast hafa
undanfarnar vikur
er algerlega óvið-
unandi, að mati bæj-
arstjóra, að ala
mögulega enn á
óánægju meðal hluta
íbúa með óvissu um
málið. Nauðsynlegt
var að höggva á
hnútinn og fara nú
yfir feril þessarar
vinnu, klára verk-
efnið og kynna vel.
Þá mun hver og einn
kjósandi í kosn-
ingum í maí gera
upp sinn hug til
málsins og annarra
framfaramála á
Álftanesi og ekki
síður taka afstöðu til
þeirra einstaklinga, sem gefa kost
á sér í framboði til bæjarstjórnar.
Álftnesingar fá nú næði til vors
til að kynna sér réttar forsendur
og taka síðan sjálfstæða afstöðu í
kjörklefanum hinn 27. maí nk.
Höggvið á hnút á
Álftanesi, vegna
deilna um skipu-
lag miðsvæðis
Guðmundur G. Gunnarsson
fjallar um skipulagsmál
á Álftanesi
Guðmundur G.
Gunnarsson
’Undir þessumkringumstæð-
um, sem skap-
ast hafa und-
anfarnar vikur,
er algerlega
óviðunandi að
mati bæjar-
stjóra, að ala
mögulega enn á
óánægju meðal
hluta íbúa með
óvissu um mál-
ið.‘
Höfundur er bæjarstjóri á Álftanesi.
Fréttir í tölvupóstiflísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergiðÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Dalvegi 28 – Kópavogi
Sími 515 8700
BLIKKÁS –
GLEÐILEGT NÝTT ÁR!
Þökkum áhorfendum liðins árs fyrir frábærar viðtökur!
Landsbankinn er stoltur
bakhjarl sýningarinnar
SÝNT Í IÐNÓ. MIÐASALA Í IÐNÓ S. 562 9700 OG WWW.MIDI.IS
skámáni PERSÓNA
Sýningar: Fim. 5. jan. kl. 20 • Fös. 13. jan. kl. 20 • Lau. 14. jan. kl. 20 • Fös. 20. jan. kl. 20
Lau. 21. jan. kl. 20 • Sun. 22. jan. kl. 20 • Fös. 27. jan. kl. 20 • Lau. 28. jan. kl. 20 • Sun. 29. jan. kl. 20
HILMIR SNÆR GUÐNASON
ÚR UMSÖGNUM FJÖLMIÐLA
LEIKSTJÓRI: STEFÁN BALDURSSON
„Hvílíkur leikari! ... Þetta er stórkostleg flugeldasýning, þar sem hæfileikaríkasti leikari þjóðarinnar
sýnir algera virtúósatakta.” (Þorgeir Tryggvason, Mbl.)
„Stórkostlegur leiksigur” (Blaðið)
„Fyrir þá sem njóta þess að upplifa list leikarans, þar sem hún er hvað sýnilegust er Ég er mín eigin
kona einhver stærsti og safaríkasti konfektmoli sem boðið hefur verið upp á hér um árabil.”
(Þ.T. Mbl.)
„Það var nánast óraunverulegt að verða vitni að þeirri tæru kúnst sem Hilmir Snær býr yfir.”
(Súsanna Svavars, Blaðið)
„Stóri galdurinn er... sköpun Charlotte von Mahlsdorf...hér nær list Hilmis mögnuðum hæðum.
Líkamstjáning, innlifun og tímasetningar óaðfinnanlegar.” (Þ.T. Mbl.)
„Það er fáum listamönnum gefið að fá mann til að hlæja og gráta á sama tíma. Charlie Chaplin var
snillingur í þessu og Hilmir Snær og Stefán Baldursson ná að galdra þetta fram einnig”
(Heimir Már Pétursson, Blaðið)
„Svona gera bara snillingar.” (S. Sv. Blaðið)
„Stórbrotin í einfaldleika sínum” (Valgeir Skagfjörð, Fréttablaðið)
„Hilmir Snær vinnur algeran leiksigur í þessari sýningu.” (H.M.P. Blaðið)
„Ég hef ekki orðið fyrir viðlíka áhrifum í leikhúsi áður” (Karl Th.Birgisson, Blaðið)
„Ég er mín eigin kona er veisla fyrir leikhúsunnendur af svipuðum toga og Harlem Globetrotters
fyrir körfuboltafólk.” (Þ.T. Mbl.)
„Ekki hægt að hugsa sér betra kvöld í leikhúsi” (H.M.P. Blaðið)