Morgunblaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 30
Í JÓLAUNDIRBÚNINGNUM
eru sjálfsagt fæstir sem leiða
hugann að því hvað verður um
allt ruslið sem myndast í kringum
hátíðahöldin. Við er-
um flest í kappi við
tímann og höfum um
nóg annað að hugsa.
Við viljum gleðja þá
sem standa okkur
næstir með fallegum
gjöfum og veita birtu
og yl inn í líf þeirra
og okkar sjálfra með
fallegum skreyt-
ingum, kertaljósi og
ljúffengum veitingum.
Þetta er árstími kær-
leika og friðar. Það er
svo gott að geta glatt
aðra, sérstaklega þá sem okkur
þykir vænt um. En getum við lát-
ið gott af okkur leiða á fleiri
vegu? Getum við jafnvel látið
ruslið sem verður til í kringum
okkur færa öðrum gleði?
Föt og klæði fara
í hjálparstarf
Flest lumum við á einhverjum
fatnaði eða öðrum klæðum sem
við erum hætt að nota, s.s. tepp-
um, rúmfötum og handklæðum. Í
stað þess að setja þetta í rusla-
tunnuna í næstu tiltekt getum við
skilað því á endurvinnslustöðvar
SORPU. Þá nýtist það Rauða
krossinum við hjálparstarf, bæði
hér innanlands og erlendis. Fatn-
aður þarf að vera hreinn og
ákjósanlegt er að honum sé skilað
í glærum plastpokum því það flýt-
ir fyrir flokkun efnisins hjá
Rauða krossinum. Pokunum þarf
að loka vel og vandlega til þess að
koma í veg fyrir að raki eða
óhreinindi komist í fötin.
Kertaafgangar geta
aftur veitt birtu og yl
Á jólunum kveikjum við flest á
kertum til að lýsa upp skamm-
degið. Við getum látið kerta-
afgangana okkar halda áfram að
veita birtu og yl með því að skila
þeim á endurvinnslustöðvar
SORPU. Þar er þeim safnað fyrir
Kertagerð Sólheima í Grímsnesi
og þar verða þessir afgangar að
nýjum og fallegum kertum. Með
því að skila þeim leggjum við
okkar af mörkum til
þess að efla það starf
sem fer fram á Sól-
heimum um leið og
við stuðlum að end-
urnýtingu úrgangs.
Styrktu gott mál-
efni með flösk-
unum þínum
Mörgum þykir
gamla góða maltið og
appelsínið ómissandi
drykkur með jóla-
steikinni og á flestum
heimilum falla til
mun fleiri flöskur og dósir á þess-
um árstíma en gera annars. Ef
við viljum nota drykkjarumbúð-
irnar okkar til að styrkja gott
málefni má benda á sérstakan
skátagám á endurvinnslustöðvum
SORPU. Einnig standa mörg
íþróttafélög og jafnvel björg-
unarsveitir fyrir söfnun á þessum
umbúðum og nýtist þá ágóðinn í
þeirra starfi. Með hverri flösku
eða dós styrkir þú viðkomandi að-
ila um 9 krónur.
Gamalt fyrir þér,
nýtt fyrir öðrum
Ef þú þarft að losa þig við ein-
hvern búnað, s.s. gömul leikföng,
húsgögn, raftæki, bækur, plötur
eða ýmsa aðra smámuni, getur þú
skilað slíku í sérstaka nytjagáma
á endurvinnslustöðvum. Þessir
munir fara þá í áframhaldandi
notkun því ef þeir eru gefnir í
þessa gáma eru þeir seldir í Góða
hirðinum, nytjamarkaði SORPU
og líknarfélaga, Fellsmúla 28.
Þannig er þeim forðað frá urðun
og þeir fá nýtt líf hjá nýjum eig-
endum. Munirnir eru seldir á
vægu verði í Góða hirðinum sem
kemur sér vel fyrir þá sem minna
hafa á milli handanna og allur
ágóði af sölu þeirra rennur til
góðgerðarmála. Árlega veitir Góði
hirðirinn svo styrki til ýmissa
verðugra málefna. Starfsemi Góða
hirðisins hefur einnig góð áhrif að
því leyti að Fjölsmiðjan, verk-
þjálfunar- og framleiðslusetur
fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24
ára, sér um yfirferð á öllum raf-
tækjum sem berast Góða hirð-
inum. Þannig fá um 10 ungmenni
verkefni að vinna að sem nýtist
bæði þeim, Góða hirðinum og
líknarfélögum.
Þú getur því látið gott af þér
leiða með því einfaldlega að skila
flokkuðum úrgangi í tiltekna
gáma á endurvinnslustöðvum
SORPU og um leið leggur þú þitt
af mörkum í þágu umhverfisins.
Ruslið flokkað í anda jólanna
Gyða S. Björnsdóttir fjallar um
hvernig menn geta styrkt góð-
gerðarmál í gegnum Sorpu ’Þú getur því látið gottaf þér leiða með því
einfaldlega að skila
flokkuðum úrgangi í
tiltekna gáma á endur-
vinnslustöðvum
SORPU og um leið
leggur þú þitt af mörk-
um í þágu umhverf-
isins.‘
Gyða S. Björnsdóttir
Höfundur er kynningar-
og fræðslufulltrúi Sorpu.
30 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Í HÁDEGISFRÉTTUM Ríkis-
útvarps hinn 27. desember sl. var
viðtal við ráðherra heilbrigðismála,
þar sem fjallað var
um kostnað í heil-
brigðisþjónustu og
áform um byggingu
nýs spítala við Hring-
braut. Tilefni viðtals-
ins voru m.a. grein-
arskrif mín og
útvarpsviðtöl, þar sem
ég kem fram með
ábendingar um sam-
bandið á milli samein-
ingar sjúkrahúsanna í
Reykjavík á sl. áratug
og vaxandi kostnaðar
í heilbrigðisþjónustu,
svo og gagnrýni mín á
þá ákvörðun yfirvalda að byggja
einn stóran spítala við Hringbraut.
Heilbrigðiskerfi er eitt,
sjúkrahús er annað
Af tilsvörum ráðherra í um-
ræddu viðtali mátti heyra að þar
er ekki gerður greinarmunur á
heilbrigðiskerfi og sjúkrahúsi, en
það er einmitt kjarni málsins. Rétt
er að sjúkrahús eru þungamiðja
heilbrigðisþjónustunnar. Einmitt
þess vegna hafa aðgerðir sem
beinast að sjúkrahúsum áhrif langt
út fyrir veggi sjúkrahúsanna.
Sjúkrahús standa ekki í tómarúmi,
heldur eru þau hluti af mjög
„dýnamísku“ kerfi, þar sem ein-
taka þættir kerfisins tengjast.
Vandinn er hins vegar sá, að að-
gerðir sem beinast að sjúkra-
húsum taka sjaldnast mið af þess-
ari sýn eða skilningi á því með
hvaða hætti breytingar sem eru að
gerast annars staðar í
heilbrigðiskerfinu
tengjast starfsemi
sjúkrahúsa.
Í rannsókn minni á
aðdragandanum að
sameiningu sjúkrahús-
anna í Reykjavík má
finna glöggt dæmi um
slíka yfirsjón. Þar er
fyrst og fremst leitast
við að varpa ljósi á
það hvernig stjórnvöld
móta heilbrigðiskerfið
með ákvörðunum sín-
um í einstaka greinum
þjónustunnar. Ekki er
lagt mat á áhrif þeirrar ákvörð-
unar á rekstur sjúkrahússins sem
einstakrar stofnunar í kerfinu,
heldur áhrif þessara aðgerða á
heilbrigðiskerfið í heild sinni. Með
öðrum orðum, í rannsókninni er
gerður skýr greinarmunur á heil-
brigðiskerfi og sjúkrahúsi, þar sem
sjúkrahús er ekki heilbrigðiskerfi,
heldur hluti af heilbrigðiskerfi. Í
viðvörunum mínum til íslenskra
stjórnvalda vek ég athygli á þeim
hættum sem því fylgir að leggja
nú í framhaldi af aðgerðunum á
síðasta áratug megináherslu á sér-
greina- og sjúkrahúsmiðaða heil-
brigðisþjónustu í stað þess að
halda sig við heilsugæslumiðaða
heilbrigðisstefnu eins og upp-
runaleg lög um heilbrigðisþjónustu
frá 1973 gerðu ráð fyrir.
Það er staðreynd, að heild-
arkostnaður íslenska heilbrigð-
iskerfisins hækkaði úr 8,1% í
10,5% á árunum 1997 til 2005, og
að Ísland hefur í þessu tilliti farið
fram úr hinum Norðurlöndunum
(Mynd 1). Það er einnig staðreynd
að kostnaður íslenska heilbrigð-
iskerfisins er nú sá fjórði hæsti
meðal OECD ríkja. Þessu vakti ég
athygli á í viðtali Ríkisútvarpsins
hinn 13. nóvember sl. og benti
jafnframt á að við nánari athugun
má sjá að sú innri gerð íslenska
heilbrigðiskerfisins, sem hefur
áhrif á kostnað á það sameiginlegt
með dýrustu kerfum heims, að þar
hafa notendur óheftan aðgang að
sjálfstætt starfandi sérfræði-
læknum, sem vinna samkvæmt af-
kastahvetjandi kerfi. Í viðtalinu lét
ég jafnframt koma fram að ég
teldi að ákvörðunin um sameiningu
sjúkrahúsanna sé dæmi um það
þegar stjórnvöld hyggjast spara og
hagræða á einum stað í kerfinu, í
þessu tilviki í rekstri sjúkrahús-
anna, en að við það hafi kostnaður-
inn komið út annars staðar.
Rétt er sem fram kemur í viðtali
við ráðherra að þáttur sjálfstætt
starfandi sérfræðilækna er orðinn
býsna mikill í kerfinu (Mynd 2). Í
rannsókn minni kem ég fram með
skýringu á sambandinu á milli
frestunar á gildistöku tilvís-
unarreglugerðarinnar árið 1995,
nýrra samninga við sjálfstætt
Ráðherra verður að gera greinarmun
á heilbrigðiskerfi og sjúkrahúsi
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir
fjallar um heilbrigðisþjónustu
og byggingu nýs spítala við
Hringbraut
’Mér er vel ljóst að rík-isstjórnin hefur ráð-
stafað hluta af því fé sem
fékkst við sölu Símans til
byggingar nýs spítala.
Að sú ráðstöfun sé bund-
in þeim skilyrðum að
byggður skuli einn spít-
ali við Hringbraut tel ég
vanhugsað.‘
Sigurbjörg
Sigurgeirsdóttir
Heildarfjöldi koma til sérfræðilækna 1990 til 2004
0
100
200
300
400
500
600
1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004
Ár
K
o
m
u
r
Heildarútgjöld til heilbrigðismála sem hlutfall af vergri landsframleiðslu
Norðurlönd frá 1990 til 2002
0
2
4
6
8
10
12
1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002
Ár
P
ró
s
e
n
t
a
f
v
e
rg
ri
la
n
d
s
fr
a
m
le
ið
s
lu
Ísland
Svíþjóð
Danmörk
Noregur
Finnland
Í MORGUNBLAÐINU á gaml-
ársdag birtist grein eftir Eygló Jóns-
dóttur þar sem hún fjallar nokkuð
um bók mína „Hin
mörgu andlit trúar-
bragðanna“ og þá sér-
staklega kaflann um
Soka Gakkai búdd-
ismann. Þakka ég henni
ljúf orð í minn garð sem
þar falla. Þau eru gagn-
kvæm. Þó verð ég að
leiðrétta örlítinn mis-
skilning sem kemur
fram í grein Eyglóar.
Lesa má úr orðum
Eyglóar að ég hafi ekki
boðið Soka Gakkai
búddistum að lesa kafl-
ann um þá yfir áður en
hann fór í prentun. Hið
rétta er að ég gerði
margar tilraunir til þess
en fékk engin viðbrögð.
Aðrir sendu mér við-
brögð frá öðrum trú-
félögum og eru þeir sem
það gerðu nefndir í bók-
inni í heimildaskrá. Eft-
ir að bókin kom út átti
ég mjög gott spjall við fulltrúa Soka
Gakkai búddista. Þar kom fram fyrst
og fremst ánægja frá þeim yfir að ég
skuli hafa bent á margt hið jákvæða
sem hreyfingunni fylgir, og þá sér-
staklega friðarverðlaun Sameinuðu
þjóðanna sem Daisaku Ikeda fékk
árið 1983 en hann stofnaði al-
þjóðahreyfingu Soka Gakkai.
Einnig þökkuðu þeir mér að ég
kæmi ekkert inn á deilur búddista við
Soka Gakkai hreyfinguna í Japan.
Ein megin heimild
bókarinnar um al-
þjóðahreyfingu Soka
Gakkai er Eileen Bar-
ker og rannsókn henn-
ar á hreyfinguni sem
birtist í bókinni „New
Religious Move-
ments“.
Barker er prófessor
í trúarlífsfélagsfræði
við London School of
Economics, en þar er
starfrækt ein virtasta
rannsóknarstofnun í
trúarbragðafræði í
Evrópu. Hvet ég
Eygló og aðra sem
áhuga hafa til að kynna
sér þessa rannsókn
nánar.
Um leið og ég tek
undir með Eygló og
Ara fróða að best sé að
hafa það sem sannara
reynist vil ég þakka
fyrir þessar og aðrar
umræður er bók mín hefur vakið og
óska öllum hins besta á komandi ári.
Að hafa það sem
sannara reynist
Þórhallur Heimisson svarar
grein Eyglóar Jónsdóttur um
bókina Hin mörgu andlit trúar-
bragðanna
Þórhallur Heimisson
’... ég tek undirmeð Eygló og
Ara fróða að
best sé að hafa
það sem sann-
ara reynist ...‘
Höfundur er prestur.
Hulda Guðmundsdóttir: „Ég tel
að það liggi ekki nægilega ljóst fyr-
ir hvernig eða hvort hinn evang-
elísk-lútherski vígsluskilningur
fari í bága við það að gefa saman
fólk af sama kyni …“
Birgir Ásgeirsson: Opið bréf til
vígslubiskups Skálholtsstiftis,
biskups Íslands, kirkjuráðs og
kirkjuþings.
Jakob Björnsson: Útmálun helvít-
is. „Álvinnsla á Íslandi dregur úr
losun koltvísýrings í heiminum
borið saman við að álið væri alls
ekki framleitt og þyngri efni notuð
í farartæki í þess stað, og enn
meira borið saman við að álið væri
ella framleitt með raforku úr elds-
neyti.“
Þorsteinn H. Gunnarsson fjallar
um rjúpnaveiðina og auglýsingu
um hana, sem hann telur ann-
marka á.
Eggert B. Ólafsson: Vegagerðin
hafnar hagstæðasta tilboði í flug-
vallarrútuna.
Örn Sigurðsson: Bornir eru sam-
an fjórir valkostir fyrir nýjan inn-
anlandsflugvöll.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar