Morgunblaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 37 MINNINGAR veðrabrigðum lífsins, gleði og sorgum og markað því stefnu í umróti tímans til blessunar og heilla. Hann lagði sig fram í verkum sínum og hugsjónabar- áttu, var traustur og samviskusamur, drenglundaður og ósérhlífinn. Og enn hefur hann viljað vanda sig við jóla- undirbúninginn á aðventunni og látið sig varða hvernig sóknarbörnunum liði og þeim gengi að halda jól. Hin helga jólahátíð færir með sér hækk- andi sól svo að daginn lengir. Jól lýsa himinbirtu í næturhúmi heims og Guðs blessun í nýfæddu barni, sem gefið er nafnið Jesús sem þýðir Drott- inn frelsar. Sá er vandi og vegsemd presta í kirkju hans að boða og segja frá því á sannfærandi hátt að lausn og líkn er fólgin í nafni hans á vegferð í tímans hverfula heimi og líka í dauða. En sá er grunntónn fagnaðarerindis Jesú Krists að Betlehemsbjarmi og kærleiks- og upprisuljós hans lýsi í gegnum allt myrkur dauðans og geri hann að hliði inn í ríki Krists þar sem innra líf, sál og andi sem byggst hefur upp af ljósi hans á vegferðinni hér í heimi íklæðist ljóssins líkama er mynd hans ber. Megi sú trúarvitund og sýn hugga og styrkja ástvini sr. Ólafs Odds og söfnuð hans, sem best fær haldið minningu hans á lofti og metið svo sem vert er fórnfús verk hans með því að sækja og sinna kirkju sinni vel og efla enn safnaðarstarf. Gunnþór Þ. Ingason. Fyrstu kynni mín af séra Ólafi Oddi Jónssyni, sóknarpresti í Reykja- nesbæ, urðu við setningu á umdæm- isþingi Kiwanisumdæmisins Ísland- Færeyjar í Keflavíkurkirkju árið 2000 en þar ræddi hann á svo eftir- minnilegan hátt um sjálfsvíg og kall- aði eftir aðstoð til þess að sporna gegn sjálfsvígum. Séra Ólafur hreyfði svo við okkur að undan orðum hans varð ekki vikist, það má segja að hann hafi kallað okkur til verka. Eftir þingið ræddum við saman frá klúbbunum í Ægissvæði (þ.e Kivanis- klúbbar á Suðunesjum. Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi) hvernig við gætum komið að svo viðkvæmu og vandmeðförnu máli sem þessu og var ákveðið að skipa fulltrúa í málið sem héldu síðan fundi með séra Ólafi og um á hvern hátt við í Kiwanis gætum unnið að málinu og niðurstaðan varð sú, að hans leiðsögn, að gefa út miða í formi bókamerkis þar sem á voru skráðar „Leiðbeiningar til að sporna gegn sjálfsvígum“. Textinn skiptist í þrennt með leið- andi leiðbeiningum til þess að átta sig á einkennum. 1. Ef einhver sem þú þekkir: 2. Þú getur hjálpað: 3. Leitaðu hjálpar, þú getur ekki gert þetta einn og fylgdu skjólstæðingi þínum. Einnig fengum við til samstarfs Salvöru Bjarnadóttur, forvarnafull- trúa Landlæknisembættisins, til þess að yfirfara texta og vera okkur til fag- legrar leiðbeiningar og segir það um sýn séra Ólafs Odds eftir að teymi hjá Landlæknisembættinu hafði yfirfarið málið að þar var engu breytt frá til- lögu hans. Miðinn fékk nafnið „Lífs-vísir“ og sá Bragi Einarsson, grafískur hönn- uður, um hönnun og er skírskotun til verndar og umhyggju. Lífs-vísirinn er gefinn út af Kiwanishreyfingunni og í samráði við Landslæknisembætt- ið. Við vildum að nafn séra Ólafs Odds Jónssonar yrði á miðanum þar sem hans þáttur var mestur en hann vildi það ekki sem segir til um hans lít- illæti. Lífs-vísirinn fór til dreifingar í tíu þúsund eintökum, í fyrstu til fram- haldsskóla, presta, stofnana og félaga sem vinna með ungu fólki í gamla Reykjaneskjördæmi. Síðar var verk- efnið samþykkt sem landsverkefni Kiwanishreyfingarinnar og miðinn gefinn út 60 þúsund eintökum. Fyrir rúmu ári sagði kona mér eft- irfarandi: „Ég átti í miklum andlegum vanda og fór til Geðverndar og er ég var að fara þaðan út þá tek ég fyrir rælni miða úr standi sem var þar. Ég sá enga leið, ég vildi deyja og er ég kom heim þá leit ég á miðann og fór að lesa þennan „Lífs-vísi“. Þá var eins og væri kveikt á mér og ég sá að það eru til leiðir. Konan vissi ekki að ég væri Kiwanismaður og ekki að ég hefði komið að málinu. Þetta sannaði SJÁ SÍÐU 38 Bróðir okkar, ÞORLEIFUR HÓLM GUNNARSSON, Sólvangsvegi 3, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 4. janúar kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Jón Gunnarsson, Guðrún Gunnarsdóttir. Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR ÞÓRARINN ÞORLEIFSSON, síðast til heimilis á Dalbæ, Dalvík, verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju í dag, þriðju- daginn 3. janúar, kl. 13.30. Þorbjörg Þórarinsdóttir, Jón Auðunn Guðjónsson, Þórarinn Sigvaldsson, Sigríður Erla Sigurðardóttir, Guðjón Auðunsson, Sandra Nielsen, Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir, Ragnar Pálmason, Ásdís Elín Auðunsdóttir, Sveinn Valgeirsson og langafabörn. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er sýndu samúð og vináttu við andlát og útför LÁRU ÓSKAR ARNÓRSDÓTTUR, Eiríksgötu 6. Við sendum ykkur öllum nýárskveðjur. Rúnar Sigurðsson, Arna Rúnarsdóttir, Helgi Leifur Sigmarsson, Gauja Rúnarsdóttir, Emilía Rafnsdóttir, Hlynur Rúnarsson, Margrét Ásdís Haraldsdóttir, Valgerður Rúnarsdóttir, Vignir Rafn Valþórsson og barnabörn. Ástkær eiginkona, móðir, amma og langamma, SÓLVEIG ÓSK SIGURÐARDÓTTIR, Veghúsum 31, lést á Landspítala Fossvogi fimmtudaginn 22. desember. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðviku- daginn 4. janúar kl. 13.00. Hreinn Ólafsson, Ásta Björgvinsdóttir, Páll Heiðar Jónsson, Jóhanna Johnston, Ed Johnston, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR SVAVA KRISTINSDÓTTIR, Espilundi 5, Garðabæ, sem andaðist á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 27. desember, verður jarðsungin frá Vídalínskirkju miðvikudaginn 4. janúar kl. 11.00. Sigfús Þormar, Fjóla Guðlaugsdóttir börn, tengdabörn og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, ÞÓRDÍSAR ÞORGRÍMSDÓTTUR frá Baldurshaga í Ólafsvík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild E 2 á Hrafnistu í Reykjavík fyrir góða umönnun. Anna Þórarinsdóttir, Sigursteinn Sævar Hermannsson, Sólveig Jóhannesdóttir, Ívar Steindórsson, Þorgrímur Benjamínsson, Kristín Björg Kjartansdóttir, Rúnar Benjamínsson, Ragnhildur Albertsdóttir, Sigrún M. Arnarsdóttir, Kristján Sturluson, Ólína B. Kristinsdóttir, Þórður Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur frændi, FRIÐFINNUR PÁLSSON, Þríhyrningi, Hörgárdal, verður jarðsunginn frá Möðruvallakirkju í Hörgár- dal fimmtudaginn 5. janúar kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Haukur Steindórsson, Guðmundur Steindórsson, Þórður Steindórsson. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengda- móður, ömmu og langömmu, BETTÝJAR MARSELLÍUSDÓTTUR. Guð blessi ykkur öll. Sérstakar þakkir fær starfsfólk gjörgæslu Land- spítala háskólasjúkrahúss. Sigurbjörn S. Magnússon, Magnús Sigurbjörnsson, Þóranna G. Óskarsdóttir, Alberta Sigurbjörnsdóttir, Jóhann Guðbrandsson, Finnur B. Sigurbjörnsson, Solveig Pétursdóttir, Guðmundur K. Sigurbjörnsson, Guðrún E. Björnsdóttir, Sigurlaug E. Sigurbjörnsdóttir, Sveinn Árnason, ömmu- og langömmubörn. Sendum innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, EINARS GUÐMUNDSSONAR flugvélstjóra, Kirkjulundi 6. Jóhanna Pétursdóttir, Elísabet Einarsdóttir, Sigurður Hansson, Róbert G. Einarsson, Steinunn Gunnarsdóttir, Erna Einarsdóttir, Edda Einarsdóttir, Jan Hansen, Pétur Einarsson, Katrín Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, SNORRA BJARNASONAR, Flúðabakka 1, Blönduósi. Erla Aðalsteinsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓHANNS JÓNASSONAR frá Öxney, Sveinskoti, Álftanesi, fer fram frá Bessastaðakirkju föstudaginn 6. janúar kl. 14.00. Margrét Sigurðardóttir, Elín Jóhannsdóttir, Jón B. Höskuldsson, Snorri Jóhannsson, Hrönn Sveinsdóttir, Sturla Jóhannsson, Sólborg Pétursdóttir, Jónas Jóhannsson, Sigrún Jóhannsdóttir, Sigríður Tryggvadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.