Morgunblaðið - 03.01.2006, Page 38

Morgunblaðið - 03.01.2006, Page 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Atvinnuauglýsingar Sjá ennfremur: www.kopavogur.is og www.job.is KÓPAVOGSBÆR Frá Kársnesskóla • Starfsmaður óskast í Dægradvöl sem fyrst. Um er að ræða 75% starf frá kl. 11:00 – 17:00. Laun skv. kjarasamningi Launanefndar sveitar- félaga og SfK. Hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið Upplýsingar veitir Guðrún Pétursdóttir skólastjóri í síma 570-4100, gudrunpe@kask.kopavogur.is Tannsmiður óskast til starfa sem fyrst. Starfssvið: Almenn tannsmíði. Upplýsingar gefur Pétur Már í síma 861 5279. Raðauglýsingar 569 1100 Kennsla Nokkur skólapláss eru laus á vormisseri 2006 • Fyrir byrjendur í söngnámi / grunnnámi • Fyrir æfinganemendur söngkennaradeildar • Fyrir unglinga 11-13 ára og 14-15 ára 9. janúar hefjast kvöldnámskeið fyrir ungt og hresst fólk á öllum aldri • Engin aldursmörk • Tómstundanám og/eða góður undirbúningur fyrir frekara tónlistarnám • Kennt utan venjulegs dagvinnutíma Upplýsingar á skrifstofu skólans sími 552 7366 songskolinn@songskolinn.is www.songskolinn.is http://rafraen.reykjavik.is/rrvk Skólastjóri Tilboð/Útboð Sandgerðisbær Útboð Framleiðsla máltíða Sandgerðisbær óskar eftir tilboðum í fram- leiðslu á mat fyrir skóla og stofnanir í bænum. Stofnanir eru: Grunnskólinn í Sandgerði Leikskólinn Sólborg Miðhús, þjónustumiðstöð eldri borgara Varðan, bæjarstarfsmenn í Sandgerðisbæ. Útboðsgögn verða seld í ráðhúsi Sandgerðis- bæjar, Tjarnargötu 4, 245 Sandgerði, og hjá VSÓ Ráðgjöf ehf., Borgartúni 20, 105 Reykjavík, frá og með mánudeginum 2. janúar 2006. Gögnin eru afhent á geisladiski eða á rafrænu formi. Gjald fyrir útboðsgögn er 3.000 kr. Tilboðum skal skila á sömu staði eigi síðar en föstudaginn 13. janúar 2006 kl. 15.00. Opnun tilboða fer fram í ráðhúsi Sandgerðisbæjar, þriðjudaginn 17. janúar kl. 11.00 að viðstödd- um þeim bjóðendum sem þess óska. Félagslíf  HLÍN 6006010319 IV/V FJÖLNIR 6006010319 I Vegna mistaka birtist þessi grein með greinum um Huldu Þorbjörns- dóttur á gamlársdag. Við biðjum alla hlutaðeigandi velvirðingar. Að heilsa og kveðja er lífsins gangur. Einhvern veginn er þó eins HULDA THORARENSEN ✝ Hulda Thor-arensen fæddist í Hróarsholti í Vill- ingaholtshreppi í Árnessýslu 11. des- ember 1922 og ólst upp hjá foreldrum sinnum í Vestri- Kirkjubæ á Rangár- völlum. Hún lést á Landakotsspítala 16. desember og var útför hennar gerð 22. desember, í kyrrþey að ósk hinnar látnu. og að þeir, sem hafa verið hluti af lífi manns alla tíð, eigi að vera eilífir. Tilhugs- unin um að eiga ekki eftir að eiga fleiri stundir með ömmu í litla eldhúsinu hennar við Öldugötuna er skrýtin og óraunveru- leg. Amma Hulda var kjarnakona, alin upp á Kirkjubæ á Rangár- völlum og vön að vinna hörðum hönd- um frá barnæsku. Hún ljómaði allt- af þegar hún sagði sögurnar úr sveitinni. Ég veit að hún hefði kosið að búa í sveit með sína fjölskyldu, en kannski má segja að Selásinn hafi komist nálægt því að kallast sveit í þá daga; örfá hús á stangli, um- hverfið ævintýri eitt fyrir okkur elstu barnabörnin og vini. Berjamór í bakgarðinum, gamall bíll á felg- unum sem flutti okkur krakkana heimshornanna á milli og hænsnabúið hennar ömmu, sem hún rak af miklum rausnarskap. Hún seldi eggin og keyrði þau út um bæ- inn á rússajeppanum sínum – hon- um „Huldubrandi“. Sennilega ekki margar ömmur sem þeystu um á svo flottum jeppa. Lífið var ömmu ekki alltaf auð- velt, en hún hafði einstaka lund og var ekki að láta erfiðleika eða mót- læti beygja sig – hvað þá brjóta. Hún mætti lífinu með góða skapinu sínu og var sátt við allt og alla. Allt- af kröfulaus á þá sem í kringum hana voru og duglegri en nokkur sem ég þekki. Síðasti kaffibollinn hefur verið drukkinn í ömmuhúsi og við eigum öll eftir að sakna hennar sárt, en megum ekki vera eigingjörn – hún var hvíldinni fegin og það er gott að vita að nú líður henni vel. Ég þakka ömmu minni samfylgd- ina og er svo miklu ríkari að hafa átt hana að. Hulda Ellertsdóttir. fyrir mér að við værum að vinna að góðu máli. Eftir að verkefnið fór að rúlla gerð- um við stöðumat og ræddum við séra Ólaf Odd. Þá sagði hann: „Þið megið vera stoltir, Kiwanis-menn, nú er mál sem var í þagnargildi komið í mikla umræðu, Landlæknisembættið er komið á fullt í útgáfu og ráðgjöf, ég segi þið ýttuð þessum bolta af stað og nú rúllar hann.“ Og ef þetta er rétt þá á séra Ólafur Oddur það mál, því það var hann sem kallaði okkur til starfa. Ég votta fjölskyldu séra Ólafs Odds innilegustu samúð. Blessuð sé minning um mætan mann. Gylfi Ingvarsson, svæðisstjóri Ægissvæðis 2001–02. Á dimmasta degi ársins barst sú harmafregn að sr. Ólafur Oddur Jónsson, sóknarprestur í Keflavík, væri látinn. Ég átti því láni að fagna að fá að kynnast Ólafi Oddi, fyrst og fremst sem kennara. Persónunni Ólafi Oddi var ekki auðvelt að kynnast, svo nærri hleypti hann ekki mörgum. Kennsla Ólafs Odds í guðfræðideild einkenndist af skipulagðri framsetn- ingu og mikilli hvatningu til lestrar og umræðna, að ógleymdri hvatningu til þess að hafa skoðun og að láta hana í ljós. Hann afhenti nemendum sínum fyrirlestrana á prenti, sem var ný- lunda á þeim tíma, og tímarnir voru notaðir til umræðna og að nema af því er virtist ótæmandi fróðleiksbrunnur hans í kristinni siðfræði og greinum henni tengdum. Ólafur Oddur kynnti mér marga helstu guðfræðinga 20. aldarinnar, kenndi mér að meta rit manna á borð við Dietrich Bonhoeffer, Victor Frankl, Reinhold Niebuhr, Elísabetu Schüssler Fiorenza og margra fleiri. Það var gæfa mín að fá að nema praktískan hluta míns guðfræðináms undir handleiðslu Ólafs Odds og sam- starfsfólks hans í Keflavíkurkirkju og fá auk þess að vera starfsmaður kirkj- unnar. Þar kynntist ég m.a. óbilandi áhuga hans og elju í að efla samræðu kirkjunnar og samfélagsins í öllum þeim málum sem varða hag einstak- lingsins, einkum þeirra sem minna mega sín og standa höllum fæti. Allar stundir voru gefandi og hvetj- andi af hans hálfu, sífellt átti hann einhverja fróðleiksmola. Mér verður oft hugsað til stunda yfir kaffibolla í gamla Kirkjulundi, eða athafna í kirkjunni. Einhverju sinni hringdi ég í sr. Ólaf Odd og tilkynnti honum erfiðleika samverkakonu okkar. ,,Þetta verðum við að taka að krossinum,“ sagði hann og við kvöddumst með bænarorðum til handa syrgjandanum. Það er trúa mín að Ólafur Oddur hafi oft leitað að krossinum, borið þangað áhyggju- og sorgarefni, bæði sín eigin og sóknarbarna sinna. Hann átti trú á hinn upprisna Krist, sem stendur handan við kross- inn í uppljómun páskadagsins. Krist- ur bíður þar með útréttar hendur sín- ar að styðja hvern þann sem leggur af stað í för um dimman dal sorgar og örvæntingar. Dag er aftur farið að lengja. Sorg yfir skyndilegu og ótímabæru andláti sr. Ólafs Odds, samúð mína með fjölskyldu hans og samverkafólki í Keflavík, ber ég að krossinum og bið þess að vaxandi birta dagsins í ljóma upprisunnar beri þau öll að grænum grundum þar sem þau mega næðis njóta. Blessuð sé minningin um sr. Ólaf Odd Jónsson. Lára G. Oddsdóttir. „Don’t worry, be happy“! Látinn er langt um aldur fram Ólafur Oddur Jónsson, sóknarprestur í Keflavíkursókn. Ég átti því láni að fagna að starfa með sr. Ólafi þar syðra og fyrir það er ég ævinlega þakklát. Kynni okkar hófust sumarið 1998 er ég var að ljúka námi frá guðfræðideild HÍ. Hann var þá prófdómari við deildina. Að hans áeggjan sótti ég um djáknastarf í Keflavíkursókn þegar það var auglýst um haustið og ég held að hann hafi átt þátt í því að ég var ráðin sem djákni að kirkjunni. Eftir djáknavíglsu í Dómkirkjunni var vígsluþegum, vígsluvottum og mökum þeirra boðið til hádegisverðar heim til biskupshjónanna. Þetta var í fyrsta sinn sem herra Karl Sigur- björnsson vígði þjóna kirkjunnar. Í þessu boði kom berlega í ljós, í ávarpi sem sr. Ólafur flutti, hvern hug hann bar til kærleiksþjónustunnar. Hann afhenti okkur öllum fjórum nývígðum djáknum skjal sem hann hafði útbúið þar sem hann segir m.a. að ,,Tákn kærleiksþjónustunnar (diakoníunn- ar) er krossinn með kórónu lífsins, sem táknar að neyð og dauði séu sigr- uð í upprisu Jesú Krists og þeirri trú sem starfar í kærleika. Hann bendir einnig á texta Páls postula í Rm.16:1-2 og segir: ,,Þetta er eini staðurinn í Nýja testamentinu þar sem orðið djákni (þjónn) er notað um konu, en margar konur báru trú sinni vitni með miskunnar- og kærleiks- verkum á tímum frumkirkjunnar og stuðluðu þannig að útbreiðslu kristn- innar.““ Ekki amalegt fyrir nývígðan djákna, þann 13. á landinu, að hefja starfið við hlið svo jákvæðs og víðsýns prests. Sr. Ólafur var ávallt að fræða og fræðast. Hann fylgdist vel með nýj- ungum jafnt á sviði guðfræði, siðfræði og á því hvernig koma mætti Orðinu til skila. Hann nýtti sér tæknina á því sviði og notaði t.d. stundum mynd- varpa meðan hann flutti predikanir í guðsþjónustum. Ég tók þátt í allsér- stakri sjónvarpsguðsþjónustu með honum sem Ríkissjónvarpið tók upp í Keflavíkurkirkju og sjónvarpað var á hvítasunnudag 1999 en þar var frétta- myndum fléttað inn í predikunina með áhrifamiklum hætti. Ólafur var heilsteyptur og traustur maður. Hann þoldi illa óréttlæti, alla sýndarmennsku og hræsni og sagði stundum að það þyrfti ekki að sjást utan á fólki að það væri trúað. Samstarf okkar í Keflavíkurkirkju stóð aðeins í eitt ár, vegna þess að ég fékk djáknastöðu í annarri kirkju sem var nær heimili mínu, en á því ári lærði ég mikið. Keflavíkursókn og kirkjan öll hefur misst góðan þjón. Guð blessi minn- ingu sr. Ólafs Odds Jónssonar og veri með fjölskyldu hans og samstarfs- mönnum á erfiðum tímum. Lilja G. Hallgrímsdóttir. Leiðir okkar Ólafs Odds hafa oft legið saman undanfarin tæp 30 ár. Hann var tiltölulega nýskipaður prestur í Keflavík þegar ég gekk til fermingarfræðslu hjá honum vorið 1977. Áherslur hans á siðfræði, kær- leik og rétta breytni hafa haft áhrif á mig allar götur síðan. Ólafur Oddur vígði hjónaband okkar hjóna á afar eftirminnilegan hátt, skírði börn mín og fermdi dóttur mína. Fyrir örfáum dögum ræddum við saman í hinsta sinn þegar hann vígði Íþróttaaka- demíuna. Hann leysti það verkefni af alkunnri virðingu og alúð, líkt og önn- ur verkefni sem flest voru þó alvar- legri og erfiðari viðfangs. Á liðnum árum leitaði ég í nokkur skipti ráða hjá honum vegna erfiðra mála. Og alltaf brást hann vel við. Í raun voru öll hans störf sem snert hafa mig á einn eða annan hátt vel framkvæmd, jákvæð og uppbyggileg. Hann kunni þá vandasömu list að leiða erfið verk- efni til lykta á farsælan hátt þannig að menn stóðu uppréttir á eftir með leið- sögn um hvernig halda ætti áfram. Allt sem ég hef heyrt hann segja í gegnum tíðina hefur einkennst af miklum kærleika og djúpum skilningi á lífinu. Ólafur Oddur var í afar mikl- um metum hjá mér og minni fjöl- skyldu, mikill mannvinur og ávallt reiðubúinn til að setja sig í spor ann- arra til að veita gagnleg ráð. Hann var trúaður mjög, en þó á þann hátt að hann talaði mannamál, hafði fæt- urna á jörðinni, ef svo má segja, þann- ig að leikmenn eins og ég áttum auð- velt með að skilja hann og meðtaka hans boðskap. Um leið og ég votta hans nánustu alla mína samúð vil ég þakka honum fyrir sterka og áhrifa- mikla leiðsögn í lífinu. Hrannar Hólm. ÓLAFUR ODDUR JÓNSSON  Fleiri minningargreinar um Ólaf Odd Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Bryndís María og fjölskylda og Guðbjörg Ólöf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.