Morgunblaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 39 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Barnavörur Útsalan er hafin. 30% afsláttur af öllum vörum. Róbert bangsi og... unglingarnir Hlíðasmára 12 Hverafold 1-3 555 6688 567 6511 Barnagæsla Aðstoð óskast Barngóð kona óskast til að sinna 1 árs gamalli stúlku fram til hausts 2006. Um ræðir 30-40 tíma á viku. Staðsetn- ing er á Seltjarnarnesi. Upplýs- ingar í síma 664 1976 / 825 6147. Bækur Góðir lesendur nær og fjær Við þökkum samfylgdina á liðnu ári. Höldum svo okkar striki á nýja árinu. Ekkert vesen eða væl! Upp með Vestfirði! Vestfirska forlagið jons@snerpa.is. Heimilistæki Eldhúsinnrétting m. gaseldav/ háfi. Úr rósaviði m. granítplötu og reyklituðu gleri í hurðum. SMEG 6 hellu gaseldavél og háf- ur. Mál 370x110 cm eyja, + U-laga eining. Sími 561 2807. Húsnæði í boði Til leigu lítið einbýlishús í Hvera- gerði frá 3. janúar. Upplýsingar í síma 553 8911 eða 896 6611. Húsnæði óskast Karlmaður á miðjum aldri óskar eftir íbúð. Skilvís og reglusamur. Sími 864 6706. Sumarhús Sumarhús — orlofshús. Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbú- in hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Námskeið Reykstopp árið 2006 Sjálfstyrking - reykstopp - frelsi frá streitu og kvíða. Notuð er m.a. EFT (Emotional Freedom Techniques) og dáleiðsla (Hypnotherapy). Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslu- fræðingur, sími 694 5494, www.EFTiceland.com . Til sölu Bílamottur - snjómottur í miklu úrvali. 20% afsl. í desember. Póstsendum samdægurs. G.S. varahlutir ehf., Bíldshöfða 14, sími 567 6744. Þjónusta Þakþéttingar, viðgerðir og ný- lagnir. Er komið að viðhaldi á þakinu hjá þér? Tökum að okkur lagfæringar á þökum. Viðurkennd efni. Vönduð vinnubrögð. Þjón- usta um land allt. Uppl. í s. 690 1770 og 661 4832. Byggingavörur www.hardvidur.is Nýkomið: Hnota (ipe-tegund). Gegnheill planki 19x195 mm, fasaður. Verð 6.990 kr. m² m. vsk. Sjá nánar á hardvidur.is. Upplýs- ingar hjá Magnúsi í s. 660 0230. Ýmislegt Fjarnám á vorönn 2006. Þriðja og fjórða árið á stúdentsbrautum. 30 rúmlesta skipstjórnarréttindi. Allir áfangar í WebCT. Námið kostar einungis 4.250 krónur á önn fyrir utan náms- gögn. Skráning á vef skólans. Umsóknarfrestur til 12. janúar. www.fas.is . Sími 470 8070. fas@fas.is . Skólameistari. 6 vikna morgunþjálfun! Vatnsleikfimi. Frábær hreyfing fyrir konur og karla. Hefst 11. janúar nk. í innilauginni í Mýrinni, Garðabæ. Þjálfunin fer fram 2x í viku frá kl. 9:30-10:10 mánud. og miðvikud. Takmarkaður fjöldi. Fyrirspurnir og skráning hjá annadia@centrum.is . Anna Día íþróttafræðingur. Bílar Toyota Avensis Wagon, 1,8 sjsk., árg. '03, ek. 49 þús. ABS hemlar, fjarstýrðar samlæsingar, hiti í sætum, litað gler o.fl. 1.800 þús. kr. stgr. S. 861 8691. Tilboð óskast. Fiat Seicento, árgerð 1999, til sölu, ekinn 58 þús. km. Sumar- og vetrardekk. Viðmiðunarverð 400 þús. Áhv. 80 þús. Einn eigandi. Upplýsingar í síma 899 0600. Nissan Almera 4 SLX.1600 Bíllinn minn er til sölu árg. 1996, lítið keyrður aðeins 130.000 km. Sjálfskiptur, rafmagn í rúðum, sumar- og vetrardekk. Skoðaður án athugasemda, mjög vel hugsað um hann að öllu leyti. Upplýsingar í síma 694 2326. Hyundai Santafe 4x4 árgerð 2003. Silf/dökkgrár, beinsk., spoil- er, litað gler. Álfelgur, hiti í sæt- um, ABS bremsur, rafmagn í rúðum og speglum, vökva- og veltistýri, cd spilari, álfelgur, sumar/vetrardekk. Fjarst. sam- læsingar, líknarbelgir, þjófavörn o.fl. Ekinn 57.000 km. Upplýsingar síma 866 0530 eða 586 1033. Jeppar Toyota Land Criuser 90 Gx new dísil árg. 6/03, ekinn 85 þús. Sjálf- skiptur, geislaspilari, litað gler o.fl. Vel um genginn bíll. Ath. skipti á ódýrari. Verð 3,8 m. Sími 898 8813. Ökukennsla Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla akstursmat. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat, '05 892 4449/557 2940. Vagn Gunnarsson Mersedes Benz, 894 5200/565 2877. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '02, 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza, 696 0042/566 6442. Gylfi K. Sigurðsson Suzuki Grand Vitara, 892 0002/568 9898. Snorri Bjarnason BMW 116i, nýr, 892 1451/557 4975. FRÉTTIR BANDARÍSK blöð hafa nýlega greint frá því að Bush forseti hafi endurreist mannorð þeirra sem ráðnir voru til þess af stjórnvöldum að hlera símtöl bandarískra borgara. Var lögð áhersla á að þeir hefðu unn- ið þjóðnýt störf. Guðmundur bróðir minn var lærður loftskeytamaður og símritari. Hermann Jónasson dóms- málaráðherra réð hann til þess að ráða dulmál landhelgisbrjóta. Tókst það og hlutu þeir dóma. Síðar réð Hermann Guðmund til þess að koma upp um brennivínssala á bifreiða- stöðvum borgarinnar. Var það við- kvæmt mál því símar margra bif- reiðastjóra voru hleraðir. Það hafði þó einnig gerst í Hvíta stríðinu svo- kallaða og voru þá íhaldsmenn að verki. Morgunblaðið fann upp mjög smellið uppnefni á Guðmund bróður. Það kallaði hann hlustarverk. Þegar ég las fregnina um Bush og hlustarverki hans hringdi ég til Styrmis ritstjóra og spurði hvort ekki væri tímabært að Morg- unblaðið lyfti Guðmundi á stall. Ekki síst þar sem sannast hefir að tveir bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins fengu að gjöf frá Jónasi Jónssyni dómsmálaráðherra áfengisútsölu í Hafnarfirði. Það voru þeir Kjartan Ólafsson, faðir Magnúsar Kjart- anssonar, og Björn Jóhannesson, faðir Guðmundar prófessors og afi og nafni Björns, þess sem ritað hef- ur sögu trachoma á Íslandi, en ekki viðurkennt lækningu Marinós bak- ara í Hafnarfirði og vantar þar vís- indaheiður. Pétur Pétursson þulur. Guðmundur Pétursson með starfsfélaga sínum Gunnari Bachmann, sem kunnur var m.a. fyrir „Rafskinnu“, auglýsingabók sína í Skemmuglugg- anum í Austurstræti. Þjóðnýt störf FJÖLTÆKNISKÓLI Íslands út- skrifaði sína fyrstu nemendur undir nýju nafni skólans og úr samein- uðum skóla 20. desember sl. en á vorönn var Vélskóla Íslands og Stýrimannaskólanum í Reykjavík formlega slitið í síðasta sinn. Nem- endur Fjöltækniskólans útskrif- uðust með skipstjórnarpróf og vél- stjórnarpróf og vélstjórar samhliða með stúdentspróf. Nemendur sem luku námi frá Fjöltækniskólanum að þessu sinni voru 14. Viðurkenningar hlutu Andri Leifsson skipstjórnarsviði fyrir hæstu einkunn siglingagreina, Atli Sigmar Hrafnsson skipstjórnarsviði fyrir íslensku, Sigurður Bergmann Gunnarsson fyrir vélstjórn- argreinar, Sigurður Bergmann Gunnarsson og Bjarni Valur Ein- arsson, báðir á vélstjórnarsviði, fyr- ir vélstjórnargreinar. Viðurkenn- ingu fyrir 100% mætingu fengu þeir Davíð Óðinn Bragason, Guð- mundur Grétar Bjarnason, Halldór Ingi Ingimarsson og Reynir Bald- ursson. Fyrsta útskriftin frá Fjöltækniskólanum RAGNAR Sær Ragnarsson hef- ur verið ráðinn framkvæmda- stjóri félags- og útbreiðslusviðs SÁÁ. Ragnar Sær hefur starf- að sem sveit- arstjóri Blá- skógabyggðar undanfarin ár en var áður sveitarstjóri Biskups- tungnahrepps. Ragnar Sær er menntaður leik- skólakennari en hefur einnig lokið námi í rekstrar- og viðskiptafræð- um og opinberri stjórnsýslu frá endurmenntun Háskóla Íslands. Hann er nú í meistaranámi í op- inberri stjórnsýslu við Háskóla Ís- lands. Ragnar Sær hefur víðtæka reynslu af stjórnun og rekstri auk rúmlega tveggja áratuga reynslu af störfum að félagsmálum. Hann hefur unnið að þróunarverkefnum stofnana á sviði félags- og skóla- mála. Ragnar Sær er kvæntur Unni Ágústu Sigurjónsdóttur hjúkr- unarfræðingi og eiga þau tvö börn. Nýr framkvæmdastjóri hjá SÁÁ STYRKTARFÉLAG vangefinna hefur síðastliðin tvö ár tekið þátt í verkefni sem nefnist „Ég er til, þess vegna elska ég“. Verkefnið er að hluta til fjármagnað af Evrópusam- bandinu undir merkjum Socrates- Grundtvig-áætlunarinnar og unnu eftirtalin 6 Evrópulönd; Ítalía, Bretland, Spánn, Frakkland, Rúm- enía og Ísland, að gerð verkefn- isins. Tilgangur verkefnisins er að efla sjálfsvitund fullorðins fólks með þroskahömlun um sjálfsmynd þess og kynferði. Kynntar verða niðurstöður úr könnununum, ásamt afurðinni sem er geisladiskur og handbók, á morgunverðarfundi á Grand hóteli föstudaginn 6. janúar kl. 8.30–10. Skráning er hafin á skrifstofu Styrktarfélagsins í síma 551 5941. Aðgangseyrir er 1.300 kr. sem greiðist við inngang og er morgun- verðarhlaðborð innifalið í verðinu. Kynna könnun á sjálfsmynd VIÐSKIPTAVINIR Og Vodafone eiga þess ekki kost þegar þeir hringja í þjónustunúmerið 1811, þar sem upplýsingar um erlend síma- númer eru veitt, að láta starfsmann Já hringja beint í erlenda símanúm- erið. Lilja Hallbjörnsdóttir, svæð- isstjóri Já í Reykjavík, segir að þetta sé vegna þess að Síminn og Og Vodafone hafi ekki gert með sér samning vegna gjaldfærslu fyrir þessa þjónustu. Því sé nauðsynlegt að fólk hafi aðgang að símanúmeri sem skráð er hjá Símanum vilji það notfæra sér hana. Lilja segir að það sé ekki stór hóp- ur viðskiptavina sem óski eftir því að starfsmaður Já hringi í erlend síma- númer sem fólk þarf að ná í, en sum- um finnist þó þægilegt að eiga kost á þessari þjónustu. Hún segir að fólk geti hins vegar hringt í 1811 og fengið upplýsingar um símanúmer erlendis, óháð því hvort það skiptir við Símann eða Og Vodafone. Geta ekki nýtt sér þjónustu 1811 að öllu leyti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.