Morgunblaðið - 03.01.2006, Síða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Jafnvel hin ýktasta beiðni virðist sjálf-
sögð í huga hrútsins, svo innvígður er
hann. En dagurinn hefur einkennst af
gríðarlegu annríki, samt sem áður.
Hættu að vinna eins og hestur og farðu
snemma heim.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sérðu pappírshrúguna á borðinu þínu?
Þig vantar ekki einkaritara, heldur
klukkutíma í einrúmi og bunka af
spaldskrám og bréfamöppum. Hvettu
ástvini til þess að styðja þig með því að
veita þér svigrúm.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn ætlast til hins besta af sjálfum
sér og sættir sig ekki við neitt minna.
Þess vegna er hann hálfyfirbugaður og
dálítið þreyttur í augnablikinu. Hann
brosir reyndar örlítið líka og gleðst yfir
því sem hann hefur áorkað.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Newton uppgötvaði að líkama á hreyf-
ingu væri eðlilegt að halda áfram að
hreyfast. Það er ástæðan fyrir því að
önnum kafnasta manneskja sem þú
þekkir er jafnframt heppilegasti við-
skiptafélagi þinn. Útdeildu verkefnum
til einhvers sem framkvæmir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Notaðu gaman til þess að rjúfa veggina
milli fólks. Ljónið er heillandi frá náttúr-
unnar hendi og kemst upp með að gera
og segja hluti sem engum öðrum myndi
líðast.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Himintunglin draga fram stórkostlega
möguleika, en orka meyjunnar ræður
úrslitum um það hvort henni tekst að
gera þá að veruleika. Viðhaltu kraftinum
með því að vera dálítið kvik, hvort sem
þú ert í stuði til þess eða ekki.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Merkúr (hugsun) gerir voginni skrá-
veifu. Forðaðu þér frá þeirri tímasóun að
leita að hlutum með því að skipuleggja
þig betur. Allt hefur sitt pláss. Ef ekkert
er plássið er hugsanlegt að þú þurfir
ekki á því að halda.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er í miðju hraðrar at-
burðarásar. Það er ekki gott að átta sig á
því að allt sem þú hefur valið til þessa,
leiddi þig að þessum tímapunkti. Ef þú
gengst við því, eykst máttur þinn og
megin að sama skapi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nýtt samband stendur og fellur með við-
horfi bogmannsins. Fylgstu með athöfn-
um þínum af sömu gaumgæfni og þú
myndir gera ef um mikilvæg viðskipti
væri að ræða. Einkalíf þitt flokkast und-
ir mjög þýðingarmikil viðskipti.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin er eilíflega á hreyfingu. Hún
leysir vandamálin, jafnvel á meðan hún
sefur. Vertu með penna og skrifblokk á
náttborðinu og punktaðu hjá þér lausn-
irnar um leið og þú vaknar í fyrramálið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Væri það ekki frábært ef ástfangið fólk
væri alltaf jafn tillitssamt? En þannig er
það bara ekki. Ekki láta brot ástvinar
gott heita, bentu á mistökin á þinn
fyndna og krúttlega máta.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er dálítið síðan fiskurinn fann til
hressleika. Nú er komið að því. Eftir há-
degi í dag gefst kjörið tækifæri til þess
að leiða hinn líflega fisk fram á sjón-
arsviðið. Ekki hika við að stíga fram með
tilþrifum – engum á eftir að leiðast.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Tungl í fiskum hjálpar
okkur við að trúa á það
sem við sjáum ekki og sjá
það sem við eigum erfitt með að trúa.
Kannski tekst þér að koma auga á aðra
vídd, eða skímu hulinna heima í draum-
um, hugleiðslu, listum og fantasíu. Það
boðar gæfu að leyfa annars heims tilfinn-
ingum og myndum að seytla inn í hvers-
dagslegustu þætti daglegrar tilveru.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 nánasarlegt, 8
spjarar, 9 tilfæra, 10
elska, 11 meðvitundin, 13
skynfærið, 15 hæðir, 18
meiða, 21 bókstafur, 22
aflagi, 23 skyldmennið,
24 farangur.
Lóðrétt | 2 yfirhöfnin, 3
sleifin, 4 ljúka, 5 tigin, 6 í
fjósi, 7 vegg, 12 keyra, 14
reyfi, 15 sorg, 16 dána,
17 illu, 18 slappt, 19 karl-
fuglsins, 20 kvenmanns-
nafn.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 lasta, 4 hregg, 7 neyða, 8 ósinn, 9 ref, 11 alin,
13 Esja, 14 illri, 15 fant, 17 rjól, 20 ara, 22 liðug, 23 not-
ar, 24 nárar, 25 aurar.
Lóðrétt: 1 linka, 2 seyði, 3 apar, 4 hróf, 5 efins, 6 gunga,
10 eflir, 12 nit, 13 eir, 15 fýlan, 16 níðir, 18 játar, 19 lúr-
ir, 20 agar, 21 ansa.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Myndlist
101 gallery | Jólasýning til 6. jan.
Aurum | Lóa Hjálmtýsdóttir sýnir fígúra-
tíva mynd sem unnin er með lakki. Til 6.
jan.
Gallerí Húnoghún | Soffía Sæmundsdóttir
til 5. jan.
GUK+ | Hartmut Stockter til 16. jan.
Hallgrímskirkja | Kristín Gunnlaugsdóttir
og Margrét Jónsdóttir til febrúarloka.
Hitt húsið | Sýningin Skúlprút í gallerí Tukt,
Hinu húsinu, Pósthússtræti 3–5. Þar sýna
nemendur af listnámsbraut í FB verk sín.
Sýningarsalurinn er opinn alla virka daga
frá 9–17 til 5. janúar 2006.
Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir
sýnir í Menningarsal til 7. febrúar.
Iða | Sölusýning á málverkum Þóru Guð-
rúnar Benediktsdóttur til loka janúar
2006.
Kaffi Sólon | Dóra Emils – Heyr himna
smiður – til 14. jan.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýn-
inguna Týnda fiðrildið til loka apríl 2006.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýning.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist II –
Um rými og frásögn. Sýning á verkum 13
ísl. samtímalistamanna. Til 12. febrúar
2006.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið, yfirlitssýning. Til 2006.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Bernd Koberling til 22. janúar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Erró
til 23. apríl
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Jóhannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá
fæðingu málarans. Til 19. mars.
Yggdrasill | Tolli til 25. jan.
Þjóðmenningarhúsið | Á veitingastofunni
Matur og menning í Þjóðmenningarhúsinu
eru sýnd málverk eftir Hjört Hjartarson –
Myndir frá liðnu sumri.
Þjóðminjasafn Íslands | Huldukonur í ís-
lenskri myndlist í Bogasal, til 28. maí. Ljós-
myndir Marco Paoluzzo í Myndasal og ljós-
myndir Péturs Thomsen í Myndasal. Til 20.
febrúar.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning
Borgarskjalasafns „Býarmenningin Tórs-
havn 1856–2005“ er í Grófarsal, Tryggva-
götu 15, en hún fjallar um þróun og upp-
byggingu byggðar í Þórshöfn í Færeyjum.
Sýningin kemur frá Landskjalasafni Fær-
eyja og Bæjarsafni Tórshavnar. Á sýning-
unni eru skjöl, ljósmyndir, skipulagskort og
tölfræði.
Hönnunarsafn Íslands | Feðginin Erla Sól-
veig Óskarsdóttir, iðnhönnuður, og Óskar L.
Ágústsson, húsgagnasmíðameistari, sýna
verk sín. Sýningin er í tilefni af 85 ára af-
mæli Óskars sem hefur hannað og smíðað
húsgögn frá því hann lauk sveinsprófi árið
1942. Safnið er opið kl. 14–18, lokað mánu-
daga. Til 20. jan.
Þjóðmenningarhúsið | Í tilefni þess að 50
ár eru liðin frá Nóbelsverðlaunaveitingunni
til Halldórs Laxness hefur Gljúfrasteinn
sett upp sýningu í bókasal Þjóðmenning-
arhússins. Sjá má sjálfan Nóbelsverð-
launapeninginn, kjólinn sem Auður Lax-
ness klæddist við afhendingarathöfnina,
borðbúnað frá Nóbelssafninu í Svíþjóð og
fleira.
Sýnishorn af árangri fornleifarannsókna
sem njóta stuðnings Kristnihátíðarsjóðs
eru til sýnis í anddyri Þjóðmenningarhúss-
ins. Rannsóknirnar fara fram á Skriðu-
klaustri, Hólum, Þingvöllum, Keldudal,
Reykholti, Gásum, Kirkjubæjarklaustri og
Skálholti. Auk þess eru kumlastæði um
land allt rannsökuð.
Þjóðminjasafn Íslands | Boðið upp á fjöl-
breytta fræðslu og þjónustu fyrir safn-
gesti. Þar eru nýstárlegar og vandaðar
sýningar auk safnbúðar og kaffihúss. Opið
alla daga nema mánudaga kl. 11–17.
Fyrirlestrar og fundir
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við
B&L Grjóthálsi, 4. janúar.
Líknarsamtökin höndin – sjálfstyrkt-
arhópur | Opinn aðalfundur kl. 20.30, í Ás-
kirkju. Edda Ýrr Einarsdóttir og Alma Geir-
dal kynna samtök sín, Forma, félag um
átröskun. Fundirnir eru ætlaðir fólki sem
hefur áhuga á að koma saman og ræða til-
finningar og líðan.
Fréttir og tilkynningar
Bláa lónið hf. | Málbjörg býður til fræðslu-
fundar um stam í Bláa lóninu kl. 19. Hjör-
leifur Ingason fjallar um kenningar Johns
Harrissons um Stam-sexhyrninginn. Þátt-
taka tilkynnist til malbjorg@stam.is eða
síma 8566440. Nánari uppl. á www.stam-
.is
Staðlaráð Íslands | Framleiðendur, hönn-
uðir, verkfræðingar, 1. desember gekk í gildi
íslensk þýðing staðalsins ÍST EN 206-1
Steinsteypa? 1. hluti: Tæknilýsing, eig-
inleikar, framleiðsla og samræmi. Staðall-
inn skilgreinir verksvið hönnuðar, framleið-
anda og notanda. Nánari upplýsingar á vef
Staðlaráðs www.stadlar.is
Morgunblaðið/GolliÞjóðminjasafn Íslands.