Morgunblaðið - 03.01.2006, Side 45

Morgunblaðið - 03.01.2006, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 45 MENNING                                          ! " #!  $   !        !   %&  '%   ( )  *   )$   +, ,  ) $  - "  !  !  !    &)  &#  ,  ) !  .   +#      / ) !$   - 0 )-  ,) 0  ) 0 )!  !-   $..1   !     2 34 (5 67 8 9:3 ; *<6 =  >5?= =@(?/A7637 A56;4 /65B? B67=76 Í umræðunni um hið alþjóðlegakvikmyndalandslag sem mót-ast einkum af starfsháttum Hollywood-iðnaðarins svífur yfir vötnum sú tilfinning að miklar breytingar fari í hönd á næstu ár- um. Ljóst er að talsverðar blikur eru á lofti um að hið fastmótaða stigskipta mettunardreifingarkerfi, sem þróaðist í Hollywood með til- komu risafjármagnsmyndarinnar í upphafi níunda áratugarins, muni fara í gegnum endurskipulagningu af ýmsum ástæðum. Er það einkum stafræna byltingin sem vegur hér þyngst, en hún mun að öllum lík- indum umbylta því hvernig kvik- myndir eru gerðar, fjármagnaðar, þeim dreift og þar af leiðandi mark- aðssettar og þeirra „neytt“.    Stafræna byltingin hefur þegarvaldið breytingum sem hrófla allverulega við þeirri dreifingar- stýringu sem Hollywood-iðnaður- inn hefur viðhaft um árabil, þar sem mismunandi markaðir fyrir sömu vöruna eru þurrausnir stig fyrir stig, t.d. með því að dreifa stórmyndum fyrst í kvikmyndahús á stórum skala, og hefja síðan sölu mynddiskaútgáfunnar að nokkrum vikum liðnum, og herja síðan á sjón- varpsmarkaðinn, o.s.frv. Með auk- inni sjóræningjastarfsemi á netinu og í ólöglegum mynddiskaútgáfum sjá stóru kvikmyndaverin sig knúin til að breyta kerfinu og hafa mörg brugðið á það ráð að gefa út mynd- diskana mun fyrr eftir frumsýningu í kvikmyndahúsum í von um að ná bita af þeim markaði sem annars fer í sjóræningjastarfsemina. Kvik- myndaverin eru jafnframt farin að horfa í auknum mæli til beinnar mynddiska- og stafrænnar dreif- ingar á framleiðslu sinni, þar sem dregið hefur úr aðsókn í kvik- myndahús samhliða aukinni þróun í fullkomnum sjónvarps- og heima- bíókerfum og stafrænum sjónvarps- veitum inn á heimili kvikmynda- áhorfendanna. Enn umfangsmeiri breytingar fara hins vegar í hönd þar sem bandaríski kvikmyndaiðn- aðurinn býr sig nú undir það að hefja dreifingu á kvikmyndum í kvikmyndahús í stafrænu formi í stað filma. Á nýliðnu ári bárust m.a. fregnir af því að stóru kvikmynda- fyrirtækin hefðu sammælst um samræmdan staðal, svonefndan DCI-staðal, fyrir slíka dreifingu og nú standa yfir samningaviðræður við kvikmyndahúsakeðjur um við- unandi viðskiptahætti sem munu tryggja það að viðamikil og sam- ræmd fjárfesting kvikmyndahúsa í því að koma sér upp stafrænum sýningarbúnaði muni borga sig.    Ekki eru allir á sama máli umhvaða áhrif stafræna bylt- ingin mun hafa á kvikmyndamenn- ingu og kvikmyndagerð. Þar er annars vegar bent á að þróunin í stafrænni vinnslu kvikmynda muni gefa framleiðslu hasar- og æv- intýramynda með tilheyrandi tæknibrellum byr undir báða vængi. Á hinn bóginn binda margir vonir við að þróun í stafrænni fram- leiðslu og dreifingu muni lækka framleiðslukostnað í kvikmynda- gerð og gera óháðri kvikmynda- gerð auðveldara fyrir. Í nýjasta hefti kvikmynda- tímaritsins Empire er fjallað um yf- irvofandi umbyltingar á kvik- myndalandslaginu sem vænta má nú strax á nýju ári. Þar er bent á að stafræn þrívíddartækni muni taka mikið stökk er Disney-fyrirtækið kynnir nýja tækni á því sviði sem hlotið hefur einkaleyfi undir heit- inu Disney Digital 3D, en raun- og þrívíddargerving tækninnar mun vera engu lík. Þetta er liður í þróun í átt til kvikmyndagerðar sem er stafræn frá upphafi til enda, en Empire spáir í því samhengi fyrir um dauða sviðsmyndarinnar í kvik- myndagerð sem víkur fyrir blá- og grænskjám stafrænnar umhverf- isgervingar. Næsta stórvirkið á því sviði á eftir myndum á borð við Sky Captain and the World of Tomorr- ow og Sin City er ævintýrið Mirr- orMask sem frumsýnd verður snemma á árinu.    Bandaríski leikstjórinn StevenSoderbergh er einn þeirra sem telur mikil tækifæri felast í þeim umbyltingum sem liggja í loftinu, tækifæri sem nýst geta óháðri og metnaðarfullri kvikmyndagerð. Að hans mati er bandaríski kvik- myndaiðnaðurinn kominn í ógöng- ur, m.a. vegna þess hvers dýrt það er orðið að gera kvikmynd á öllum stigum, jafnvel kvikmyndir sem teljast til svokallaðrar „óháðrar“ kvikmyndagerðar. „Það þarf ein- faldlega að hugsa kerfið upp á nýtt. Og það ferli er þegar farið af stað,“ sagði Soderbergh m.a. á Toronto- kvikmyndahátíðinni sl. haust en hann telur nýrra viðhorfa þörf í við- skiptaháttum. Sjálfur hyggst So- derbergh t.d. fara nýjar leiðir í dreifingu á næstu sex kvikmyndum sem hann sendir frá sér, en þar verða tímalandamærin milli bíó- dreifingar, mynddiska- og sjón- varpsdreifingar þurrkuð út. Þannig verður næsta kvikmynd Soder- berghs, Bubble, aðgengileg neyt- endum á öllum þessum þremur svið- um þegar hún verður frumsýnd. Þetta er þriðja meginþróunin sem Empire-tímaritið tiltekur í spá sinni fyrir nýja árið. Dreifingarmynstur munu breytast og kvikmyndaáhorf- endur munu þannig geta valið um að sjá kvikmyndir í sjónvarpinu heima hjá sér eða í bíói um leið og þeir koma út. Þegar eru farnar að heyrast spádómsraddir um að kvik- myndahúsin muni á endanum eyð- ast út úr þessari jöfnu, kvikmynda- dreifing muni eftir áratug eða svo felast í óhindruðu flæði kvikmynda í gegnum stafrænar veitur sem færa þær á skjáinn beint fyrir fram- an nefið á áhorfendum þar sem þeir liggja í sófanum heima hjá sér á kvöldin. Kvikmyndahúsin verða þá ef til vill eins og listasöfn fyrir kúltúrkvikmyndaáhorf fárra, með- an fjöldaframleiðslunni er veitt til neytenda með öðrum leiðum. Um þetta er erfitt að spá en ljóst er að þónokkurra umbyltinga er að vænta í kvikmyndalandslaginu á næstu árum. Kvikmyndin á stafrænum tímum ’Ekki eru allir á samamáli um hvaða áhrif staf- ræna byltingin mun hafa á kvikmyndamenningu og kvikmyndagerð.‘ AF LISTUM Eftir Heiðu Jóhannsdóttur Reuters Soderbergh segir bandaríska kvik- myndaiðnaðinn kominn í ógöngur. heida@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.