Morgunblaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„ÉG ER ánægður með að þetta
varð niðurstaðan,“ segir Reynhard
Reynisson, bæjarstjóri á Húsavík.
„Ég get ekki beinlínis sagt að hún
komi á óvart, það var margt sem
benti ákveðið í þessa átt, en engu
að síður er ánægjulegt að fagna
því nú að Alcoa-menn vilji skoða
þennan stað, Bakka, betur.“
Hann segir ánægjulegt að nú sé
komin niðurstaða í undirbúningi
málsins fyrir norðan, hvað varðar
staðarvalið „Nú geta Norðlend-
ingar sem vilja sjá þessa atvinnu-
uppbyggingu í landsfjórðungnum
þjappað sér saman um þetta verk-
efni. Ég vil raunar setja þetta í
samhengi við landið allt og at-
vinnuuppbyggingu. Ef stjórnvöld
vilja með einhverjum hætti stýra
henni, hvernig hún byggist upp, þá
gæti það gerst með þeim hætti að
þetta svæði hér, sem átt hefur
undir högg að sækja, njóti nú
ákveðins forgangs t.d. umfram það
að byggja allt að þrjú álver í kraga
kringum Reykja-
víkursvæðið.“
Reinhard segir
afar mikilvægt
að tryggja
grunnund-
irstöður sam-
félagsins nyrðra,
þær séu for-
senda þess að
margvísleg þjón-
usta þrífist á
staðnum. „Ef ekkert fólk er fyrir
verður auðvitað engin þjónusta í
boði.“
Reinhard segir að næstu skref
verði að huga að nánari undirbún-
ingi. Fá þurfi fram niðurstöðu um
hvort menn nái saman um raf-
orkuverð, hafnarmál þurfi að skoða
vel, gera fleiri athuganir á lóðinni á
Bakka og hönnun mannvirkja auk
þess að huga þurfi að þeim ferli
sem fer í gang vegna umhverf-
ismálanna. „En boltinn er farinn að
rúlla og það er ánægjulegt.“
Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á
Húsavík, fagnar niðurstöðu Alcoa
Nú geta Norðlending-
ar þjappað sér saman
Reinhard
Reynisson
„SÆTUR sigur,“ sagði Hreinn
Hjartarson, framkvæmdastjóri
Orkuveitu Húsavíkur. „Besta af-
mælisgjöf sem hægt er að hugsa
sér,“ sagði Hallveig Höskuldsdóttir,
hótelstjóri á Fosshóteli Húsavík,
sem átti afmæli í gær, 1. mars, dag-
inn sem stjórnendur Alcoa til-
kynntu þá ákvörðun sína að kanna
ítarlega hagkvæmni þess að reisa
nýtt 250 þúsund tonna álver á
Bakka við Húsavík. Bæði voru þau
stödd á Gamla Bauk, notalegum
veitingastað niðri við Húsavíkur-
höfn, síðdegis í gær. Þangað
streymdu bæjarbúar og gerðu sér
glaðan dag, fögnuðu ákvörðun Al-
coa um staðarval vegna nýs álvers á
Norðurlandi. Tveir aðrir staðir voru
einnig til athugunar, Dysnes í Eyja-
firði og Brimnes í Skagafirði. Marg-
ir klæddu sig upp á, enda að auki
öskudagur. Álhattar voru áberandi
og nokkrar ungar konur höfðu gert
sér lítið fyrir og saumað „starfs-
mannabúning“ sem þær skörtuðu í
gleðskapnum. Þá má nefna að í
versluninni Kaskó var í tilefni dags-
ins tilboð á álpappír.
Verði niðurstaðan sú að álver
verði reist á Bakka norðan Húsa-
víkur er áætlað að framkvæmdir
hefjist í kringum árið 2010 og að
framleiðsla gæti hafist tveimur ár-
um síðar. Um 1.300 störf myndu að
öllum líkindum skapast við bygg-
ingu álversins frá árinu 2010, en í
álverinu sjálfu yrðu um 300 til 350
ný störf. Samanlagt er talið að álver
muni skapa 6–800 störf á Norður-
landi.
Lengi barist fyrir því að orkan
yrði nýtt heima í héraði
Hreinn Hjartarson sagðist lengi
hafa barist fyrir því að reist yrði
stóriðja í Þingeyjarsýslu, „byrjaði
strax og ég flutti hingað norður árið
1996, sá marga spennandi kosti á
því að nýta orkuna heima í héraði“,
segir hann en áður var hann stað-
arverkfræðingur við Nesjavalla-
virkjun. „Þetta er áfangasigur,“
segir hann, endanleg ákvörðun hef-
ur ekki verið tekin. „En ætli ég hafi
ekki verið manna vissastur um að
Bakki yrði fyrir valinu, þótt bar-
áttan við nágranna okkar hafi verið
erfið, þeir standa pólitískt sterkar
en við,“ segir hann og vísar til ná-
granna sinna í Eyjafirði. Það sem
mestu skiptir segir hann varða
orkuöflun, það hefði aldrei verið
samþykkt, m.a. vegna umhverfis-
sjónarmiða, að
byggja risamöst-
ur til að flytja
orkuna úr Þing-
eyjarsýslu yfir til
Eyjafjarðar, slíkt
hefði með öllu
verið óviðunandi.
„Þetta er ein
mesta hátíðar-
stund hér frá því
Garðar kom 870,“
segir Hreinn og slær á létta
strengi.
Berglind Svavarsdóttir, lögmaður
og fasteignasali á Húsavík, segir að
nokkur uppgangur hafi verið í sveit-
arfélaginu undanfarin misseri, eitt
og hálft ár eða svo, „sem að hluta til
hefur byggst upp á væntingum
manna um að hér rísi stóriðja“. Lít-
ið sem ekkert hefur verið byggt í
bænum, fólki fækkað jafnt og þétt,
m.a. um 50 milli áranna 2004 og
2005, og þá hefur atvinnuástand
ekki verið með besta móti. „Nú er
að koma skriður á þetta hjá okkur,“
segir hún en byrjað er á ný að
byggja íbúðir á Húsavík til sölu á
frjálsum markaði og þá „var brjálað
að gera síðustu tvo daga, fólk, m.a.
fasteignasalar og fjárfestar, að
spyrjast fyrir“. Gert er ráð fyrir að
byggja þurfi 3–400 nýjar íbúðir á
Húsavík verði álverið reist og segir
Berglind nægar lóðir fyrir hendi,
nýtt aðalskipulag er komið í ferli og
væntanlega samþykkt síðar á árinu.
„Ég fagna þessu mjög og er afar
ánægð með þessa niðurstöðu, hún
er jákvæð fyrir allt Norðurland.“
Veitti ekki af innspýtingu
Hallveig Höskuldsdóttir, hótel-
stjóri á Fosshóteli, taldi fullvíst að
áhrif af byggingu og rekstri álvers
við Húsavík yrðu mikil og góð á allt
samfélagið. Ekki hefði af veitt að fá
innspýtingu í þá stöðnun sem ríkt
hefði undanfarin ár, hún nefndi að
mjólkursamlagi hefði verið lokað,
kaupfélagið lagt upp laupana, fisk-
vinnsla færst út á sjó og rækju-
vinnsla verið aflögð. „En það býr
mikið af hugsjónafólki hérna,“ segir
hún, nefnir m.a. að í bænum sé
framleitt rauðvín, kjötvinnsla með
hreindýr frá Grænlandi og þá sé
miðstöð hvalaskoðunar í Evrópu á
Húsavík. Þá nefndi hún að til staðar
væri gott og traust starfsfólk.
Svartadauðanum fórnað
„Við keyptum tvær kampavíns-
flöskur og eina af svartadauða,“
segja þeir félagar Oddur Örvar
Magnússon og Áki Hauksson, báðir
iðnaðarmenn á Húsavík. Kampavín-
ið átti að nota ef niðurstaðan yrði
Húsvíkingum hagstæð, álveri valinn
staður þar, „en ef mál myndu
þróast á versta veg ætluðum við að
drekka svartadauðann hér við Grát-
múrinn“, segja þeir, standandi við
áðurnefndan múr, steingirðingu
niðri við höfn. Þeir ákváðu að fórna
brennivínsflöskunni, brutu hana
með viðhöfn á múrnum. Á eftir
tíndu þeir samviskusamlega upp
glerbrotin.
Húsvíkingar fögnuðu staðarvalsákvörðun Alcoa að hætti hússins á Gamla Bauk
Ein mesta hátíðarstundin frá
því Garðar kom árið 870
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Oddur Örvar Magnússon og Áki Hauksson fórnuðu Svarta dauða flöskunni
við Grátmúrinn og voru fegnir að þurfa ekki að drekkja sorgum sínum.
Mikill fögnuður braust út á Gamla Bauk þegar tilkynnt var um að Alcoa
hygðist kanna frekar hvort ráðist verði í byggingu nýs álvers á Bakka.
Hallveig
Höskuldsdóttir
Berglind
Svavarsdóttir
Hreinn
Hjartarson
„AÐ MÍNU mati er mjög jákvætt
að tekin hefur verið ákvörðun um
að skoða Bakka betur,“ segir Að-
alsteinn Baldursson, formaður
Verkalýðsfélags Húsavíkur. „Ég
vara menn hins vegar við því að
ekki er enn búið að taka ákvörðun
um að reisa þar álver, bara að
skoða þennan stað frekar, kanna
kosti hans og hvort það gangi upp
að byggja þar álver. Þetta er ákveð-
ið skref í þá átt.“
Aðalsteinn segir að menn verði að
hafa í huga að álver við Húsavík
myndi hafa gífurlega jákvæð áhrif á
öllu Norðurlandi, verkefnið yrði það
stórt að það teygði anga sína um
land allt. „Það er ekki hægt að líta
framhjá því að ákveðnar grunn-
stoðir í þessu samfélagi hafa verið
að gefa eftir, fólki hefur fækkað,
þjónustan minnkað og hún er dýr-
ari, það er ákveðin skemmd í stoð-
unum, en verði þessi hugmynd að
veruleika mun allt gjörbreytast
hér,“ segir Aðalsteinn. Verði álverið
reist við Húsavík
í kjölfar þess að
nú er unnið að
byggingu stór-
iðju fyrir austan
segir hann að
skapist gott mót-
vægi, Norður-
land, Austurland
og höfuðborg-
arsvæðið. „Það
skiptir miklu
máli og því tel ég nauðsynlegt að
stjórnvöld horfi til Húsavíkur í
þessum efnum. Það eru fyrirhug-
aðar stórframkvæmdir syðra og því
eðlilegt að menn horfi hingað
núna,“ segir Aðalsteinn. Þá kvaðst
hann sem forsvarsmaður verkalýðs-
félags fagna því ef af byggingu ál-
versins yrði, laun í álverum væru há
miðað við það sem almennt gerðist
meðal verkafólks og starfsaldur í ál-
verum á Íslandi væri mjög hár.
„Þetta eru einmitt störfin sem okk-
ur vantar.“
Aðalsteinn Baldursson, formaður
Verkalýðsfélags Húsavíkur
Einmitt störfin sem
okkur vantar
Aðalsteinn
Baldursson
LÖGREGLAN í Kópavogi upp-
lýsti í fyrrakvöld vopnað rán sem
framið var í Apótekaranum við
Smiðjuveg 22. febrúar sl., þar
sem grímuklæddur maður ógnaði
starfsfólki með búrhnífi og komst
undan á hlaupum með níu pakkn-
ingar af Ritalin, eftir að hafa ver-
ið neitað um morfínlyfið Contalg-
in.
Rannsókn lögreglunnar leiddi
til þess að karlmaður á þrítugs-
aldri var færður til yfirheyrslu
vegna gruns um aðild að ráninu
og játaði hann brotið, en jafn-
framt að hafa staðið einn að
verki. Hann hefur alloft komið
við sögu lögreglunnar áður, þar á
meðal vegna brota á fíkniefnalög-
gjöfinni.
Vopnað rán í
Kópavogi upplýst
FLEIRI stjórnendur Mennta-
skólans á Ísafirði hafa sagt upp
störfum, en aðstoðarskólastjóri og
áfangastjóri skólans sögðu starfi
sínu lausu í gær. Guðbjartur Óla-
son aðstoðarskólameistari sagði í
samtali við Morgunblaðið að
ástæðan að baki uppsögn sinni
væri sú að hann teldi skynsamleg-
ast að nýr skólameistari veldi sér
samstarfsmenn, en hann hefur
starfað sem aðstoðarskólameistari
síðastliðin þrjú ár. Hann sagði
jafnframt að skólanum væri fyrir
bestu að hann viki fyrir nýjum
stjórnendum.
Guðmundur Þór Gunnarsson,
áfangastjóri MÍ, staðfesti að hann
hefði sagt upp sem áfangastjóri
vegna þess að hann væri orðinn
þreyttur á því ástandi sem ríkt
hefði í skólanum að undanförnu.
Aðspurður hvort hann teldi að
fleiri starfsmenn skólans myndu
fylgja honum og segja upp störf-
um sagðist hann hafa heyrt orð-
róm þess efnis en ekki fengið neitt
staðfest. Guðmundur vildi að öðru
leyti ekki tjá sig um málið.
Tveir stjórnendur
MÍ segja upp
störfum
FUNDUR í kjaradeilu slökkviliðs-
manna hefur verið boðaður hjá
ríkissáttasemjara í dag kl. 13 þar
sem samninganefnd sveitarfélaga
og samninganefnd Landssambands
slökkviliðsmanna ræðast við. Í
gærmorgun ræddi ríkissáttasemj-
ari við deiluaðila hvorn í sínu lagi
en ekki var um formlegan samn-
ingafund að ræða. Staðan í kjara-
deilunni er óbreytt.
Auk þess fundaði launanefndin
ein sér og sagðist Bragi Mikaels-
son, formaður samninganefndar
sveitarfélaganna í þessari kjara-
deilu, búast við lausn á málum
fljótlega. „Ég mun gera mitt besta
til að þetta taki ekki langan tíma
úr þessu,“ sagði hann í gær en
kaus að tjá sig ekki frekar um mál-
ið að svo stöddu.
Slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamenn voru með mótmælastöðu
fyrir framan Borgartún 30 þar sem
launanefndin fundaði í gær. Þar
var mótmælt seinagangi og skiln-
ingsleysi LN í viðræðum við Lands-
samband slökkviliðsmanna. Í beinu
framhaldi var haldinn félagsfund-
ur í Breiðfirðingabúð þar sem far-
ið var yfir stöðu mála. Þá voru fé-
lagar í LSS með mótmælastöðu á
Akureyri í gær.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Staðan óbreytt