Morgunblaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 21
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
Sandgerði | Sparisjóðurinn í
Keflavík mun loka hringnum í
afgreiðsluneti sínu á Suð-
urnesjum næstkomandi mánu-
dag. Tekur hann þá við af-
greiðslu Landsbankans í
Sandgerði ásamt póstafgreiðslu
sem Landsbankinn hefur annast
samkvæmt samningi við Íslands-
póst.
Á næsta ári heldur Sparisjóð-
urinn upp á 100 ára afmæli sitt
en fyrsta afgreiðslan var opnuð í
Keflavík á árinu 1907. Næsta af-
greiðsla var opnuð í Njarðvík
1977, fimm árum síðar í Garði og
í Grindavík 1987. Afgreiðslan í
Vogum var opnuð 2002 og nú er
hringnum lokað með opnun af-
greiðslu í Sandgerði.
Afgreiðslan verður á sama
stað fyrst um sinn en ekki er
útilokað að hún verði flutt í nýtt
húsnæði seinna á árinu. Fram
kemur í fréttatilkynningu að
stærsta breytingin sem nýir og
núverandi viðskiptavinir Spari-
sjóðsins í Sandgerði munu finna
fyrir sé að afgreiðslutíminn verði
færður í sama horf og í öðrum
afgreiðslum. Opnað verður kl.
9.15 og opið til 16 alla virka
daga.
Til hægðarauka fyrir við-
skiptavini afgreiðslunnar munu
einungis bankanúmer þeirra
breytast en öll reikningsnúmer
haldast óbreytt. Afgreiðslan
verður mönnuð blöndu af starfs-
mönnum Sparisjóðsins og núver-
andi starfsmönnum Landsbank-
ans.
Fram kemur í tilkynningunni
að margir Sandgerðingar, bæði
viðskiptavinir Sparisjóðsins og
aðrir, hafi á undanförnum árum
lagt að sjóðnum að opna af-
greiðslu í Sandgerði. Haft er eft-
ir Geirmundi Kristinssyni spari-
sjóðsstjóra að það hafi orðið úr
að ganga til samninga við
Landsbankann um kaup á af-
greiðslu þeirra og lýsir hann
ánægju sinni með að Sparisjóð-
urinn sé loksins búinn að koma
sér upp afgreiðslu á staðnum.
Í tilefni af opnuninni mun
Sparisjóðurinn veita fé til sam-
félagsins í formi peningagjafa til
íþróttafélagsins Reynis, Björg-
unarsveitarinnar Sigurvonar og
Fræðasetursins.
Á sama tíma mun afgreiðsla
Sparisjóðsins í Garði verða flutt
um set yfir á Heiðartún 2. Þar
verður afgreiðslan til húsa þar
til ný ráðhúsbygging hefur risið
á lóð gamla Sparisjóðsins.
Sparisjóðurinn í
öllum bæjunum
Reykjanesbær | Yfir 1.000 for-
eldrar og starfsfólk grunn- og
leikskóla á Suðurnesjum hafa sótt
SOS-námskeið um barnauppeldi á
síðustu fimm árum. Aðstandendur
námskeiðsins sem eru Reykjanes-
bær og Félagsvísindastofnun og
fulltrúar Sparisjóðsins í Keflavík
færðu 1.000. nemandanum, Jófríði
Leifsdóttur, tveggja barna móður í
Reykjanesbæ, gjafir af þessu til-
efni.
Námskeiðin hófust í Reykja-
nesbæ á árinu 2000. „Við vorum að
leita að námskeiði fyrir foreldra
barna með hegðunarvandamál og
ofvirkni og stefnan var að halda
tvö slík námskeið á ári. Það kom
síðan í ljós að þessi námskeið
henta foreldrum allra barna,“ seg-
ir Gylfi Jón Gylfason, yfirsálfræð-
ingur á Fræðsluskrifstofu Reykja-
nesbæjar. Hann segir að þegar
farið var að bæta við námskeiðum
fyrir starfsfólk leikskóla og grunn-
skóla hafi árangur námskeiðanna
farið að koma í ljós enda mik-
ilvægt að notuð séu sömu uppeld-
ismarkmið á heimili og í skóla. Þá
hafi verið ákveðið að bjóða öllum
foreldrum upp á þessi námskeið,
þeim nánast að kostnaðarlausu, og
er það í fyrsta skipti sem þannig
er unnið í heilum landshluta. Nú er
unnið þannig að þessu og hefur
verið gert í þrjú ár að öllum for-
eldrum tveggja ára barna er boðið
á námskeið, það er að segja á þeim
aldri sem börnin byrja í leikskóla.
Jafnframt eru haldin reglulega
námskeið fyrir starfsfólk leik- og
grunnskóla. Leiðir þetta til þess að
haldin eru tíu foreldranámskeið á
ári og tvö starfsmannanámskeið.
Fleiri sveitarfélög
undirbúa sig
Gylfi Jón segir að forsvarsmenn
Reykjanesbæjar hafi stutt vel við
bakið á þessu starfi enda sé ekki
unnt að vinna að slíku átaki nema í
sveitarfélagi sem hafi metnað til
góðra verka. Fleiri sveitarfélög
hafa hug á að taka upp það kerfi
sem unnið er eftir í Reykjanesbæ,
meðal annars Garðabær og Grund-
arfjörður.
Jafnhliða námskeiðshaldinu hef-
ur verið unnið að rannsóknum á
virkni þeirra. Gylfi Jón segir að
niðurstöður bendi til þess að góð
hegðun barna foreldra sem sótt
hafi SOS-námskeið hafi aukist en
slæm hegðun minnkað. Þá bendi
niðurstöður til þess að árangurinn
virðist haldast. „Það er ekki nóg
með að lífsgæði fólks aukast held-
ur geta miklir fjármunir sparast
við meðferð barna með hegð-
unarvandamál,“ segir Gylfi Jón.
Ljósmynd/Víkurfréttir
Gjöf Árni Sigfússon bæjarstjóri færir Jófríði Leifsdóttur, þúsundasta SOS-nemandanum, gjafakörfu af því tilefni.
Þúsund íbúar hafa
sótt SOS-námskeið
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
TEPPABÚÐIN - LITAVER
Grensásvegi 18 • símar 568 1950 og 581 2444.
Rýmum fyrir nýjum vörum í nokkra daga
15-50% afsláttur
• Gólfdúkar
• Stök teppi
• Keramikflísar
• Dreglar
• Plastparket
• Málning
• Veggfóður
• Skrautlistar
Rýmingarsala
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn
Blaðbera vantar á Akureyri
í eftirtalin hverfi:
Akurgerði
og Innbæ.
Upplýsingar í
síma 461 1600
Blaðburður verður að
hefjast um leið og blaðið
kemur í bæinn.
Göngutúr sem borgar
sig.
Nú bjóðum við síðustu sætin til Kanarí 7. mars í 2 vikur eða 14.
mars í viku á frábærum kjörum. Bókaðu strax og tryggðu þér sæti
og fjórum dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Kanarí
7. eða 14. mars
frá kr. 29.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Allra síðustu sætin
kr. 29.990 14. mars í viku
kr. 39.990 7. mars í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. hjón með tvö börn,
2-11 ára, í íbúð. Stökktu tilboð í 2 vikur
7. mars eða í viku 14. mars. Innifalið flug,
skattar, gisting og íslensk fararstjórn.
kr. 39.990 14. mars í viku
kr. 49.990 7. mars í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/íbúð/stúdíó.
Stökktu tilboð í 2 vikur 7. mars eða í viku
14. mars. Innifalið flug, skattar, gisting og
íslensk fararstjórn.