Morgunblaðið - 02.03.2006, Page 47

Morgunblaðið - 02.03.2006, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 47 HESTAR H estur er ekki bara hestur. Hestur er hundur, lækjar- spræna og réttar- dagur, hríðarhragl- andi og sumarþeyr, jórtrandi kýr og jafnvel köttur. Reyndar er alkunn- ugt að hestur er með hófa en ekki þófa – en hann stendur fyrir sveit, náttúru, og skal því haldið fram að maðurinn þrífist ekki, hvorki lík- amlega né andlega, án skilnings á henni. Eftir að hafa eytt stórum hluta síðustu aldar í að sverja af okkur torfkofann, afneita ömmu gömlu og þeirri staðreynd að við er- um hluti af móður jörð er eins og nokkurt afturhvarf hafi orðið og eiga hestamenn ekki síst þátt í því. En sumum finnst enn allt sem tengist sveit afskaplega hallærislegt og fyndið og finnst sér bera menn- ingarleg skylda til að brosa út í ann- að þegar minnst er á bændur t.a.m., enda hafa fjölmiðlar verið duglegir við að draga upp mynd af „afdala- bóndanum“, sem fyrirfinnst reyndar líka í 101 Reykjavík. En það er ekki bara afneitunarferlið og álglýjan sem eiga hlut að máli heldur einnig kunnáttuleysi og hræðsla. Við hræð- umst það sem skiljum ekki og felum okkur því með brosinu, afbökum fyr- irbærið og tölum um það á barna- máli: Hestur verður hoho og gobbidígobb og köttur að eilífu kisa. Að taka feil á lóunni og gemsanum Hestamenn eru hinir nýju bænd- ur og ég bind vonir við að þeir muni halda merkjum sveitarinnar á lofti, enda ekki púkó að vera hestamaður. Hrossabændur eru í mörgum sveit- arfélögum orðnir mun fleiri en hefð- bundnir kúa- og fjárbændur og að auki er mikil ásókn hjá þétt- býlisbúum í að kaupa jörð á lands- byggðinni undir hross eða vegna annarra hugðarefna og þeir búa í raun á tveimur stöðum. Er nú svo komið að bændur eru jafnt í sveit og borg. En betur má ef duga skal og í ljósi svokallaðra uppkaupsmála í hesthúsahverfinu í Kópavogi eru margir hestamenn í þéttbýli ugg- andi yfir framtíðinni og óttast að verða með tíð og tíma hraktir upp til fjalla. Nú má ljóst vera að hér talar sveitamaður, sveitavargur ef ein- hverjum sýnist svo, núna reyndar á mölinni. Sveitamenn eru ekki lausir við firringu nútímans frekar en aðrir og á útreiðum í Heiðmörk á suðvest- urhorninu alræmda þreifa ég í fáti eftir símanum þegar aumingja lóan dirrindíar, bara fyrir mig. Hins veg- ar hætti ég að tala um kisu, nema í vissu samhengi, um það leyti sem mér fannst ég orðin of gömul til að syngja hástöfum: „Komdu, kisa mín …“ Fátæklegt orð eins og kisu- stelpa fær svo hárin til að rísa á rótgróinni læðu. Ég óttast það nefni- lega að menningin og orðaforðinn sem sveitamanninum er í blóð bor- inn hverfi og bóndi fái spurningu á borð við: Hvaða dýr ertu með? eða hann segi sjálfur: Hesturinn dó í morgun. Má ég þá frekar biðja um að skepnan hafi drepist – af ekki minni virðingu. Í fréttum fyrir nokkru var sagt frá leikskóla sem heldur gæludýr og börnin hirða og leist mér vel á – þar til talið barst að jarðarför eins dýrsins. Auðvitað er gott og gilt að kenna börnunum að líf og dauði eru systkin en varla eru orð eins og jarðarför og leiði viðeigandi og er þetta dæmi um hve allt skal beinast að hinum sjálfhverfa manni. Á net- inu er til dæmis hægt að fletta upp orðinu gæludýrakirkjugarður og hefur einhverjum sem sagt tekist að kristna gæludýrið sitt áður en það lést. Það yrðu víst allnokkrar jarð- arfarir sem meðalbóndinn færi í á starfsævinni ef hann færi að dæmi leikskólans og jörðin fylltist af krossum merktum Skrautu, Skjóna og Flekku, Snata og Bröndu. Eða er það kannski bara eðlilegt að útför kanínu sé gerð frá leikskóla þegar litið er til þess að blessuð börnin hafa varla séð mold á ævinni, hvað þá blóð? Er ekki fokið í flest skjól þegar ég smala afrétt sem nær lengst upp á Sprengisand að klárinn skuli skransa undir mér á malbiki, allt í boði virkjunarmanna? Ætli Spaugstofumenn reynist ef til vill sannspáir og eina úrræði hesta- manna í þéttbýli verði að hýsa hest- inn í íbúðinni eða á svölunum og hann éti upp úr poppskálinni eins og hvert annað gæludýr? Að minnsta kosti voru hestar skilgreindir sem gæludýr í einu blaðanna nýlega. Víða erlendis eru hestar raunar orðnir eins konar gæludýr og hafa þeir þar með tapað eðli sínu og verða loks lýsandi dæmi þess að sjaldan launi kálfur ofeldi sitt. Bóndi í sveit og borg Ef vel er haldið á spilunum mun landinn búa áfram í sveit í borg/borg í sveit, sem Ísland vissulega er, og það varðar þjóðarheill að bóndinn í Íslendingum – eða jarðarbúum yf- irhöfuð – verði ekki útlægur ger. Golfvellir fá alla vega að blómstra á höfuðborgarsvæðinu, víða á góðu byggingarlandi, og er ágætis sveit að finna í golfinu þó að mörgu leyti sé hún manngerð. Og stundum mæt- ast tveir heimar og er skemmst að minnast þess þegar hrossastóð nokkurt komst í fréttirnar þegar það brá sér einn góðan veðurdag á reyk- vískan golfvöll í Grafarvogi og gerðu þar margir holu í höggi – skiljanlega við lítinn fögnuð mannspilara. Nú er bara að vona lóan hafi ekki móðgast endanlega við sveitamann- inn mig og hún haldi uppteknum hætti í vor og kveði burt snjóinn. Lítil frænka mín gefur fyrirheit um vorkomuna er hún segir mér al- vörugefin frá því að kálfur hafi drep- ist í morgun. [Þeir sem skildu hvorki upp né niður í þessum skrifum eða þóttu þau hallærisleg með afbrigðum verða annaðhvort að bíta í það súra epli að vera ekki nógu miklir sveitamenn í sér eða gerast „landsbyggðarfrík“ við fyrsta tækifæri, skilurru?] Dáin dýr og dauðar skepnur Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur thuridur@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Hestar, sem sumir kalla gobbidígobb, eru óvelkomnir kylfingar. Ef vel er haldið á spilunum mun landinn búa áfram í sveit í borg/borg í sveit og það varðar þjóðarheill að bóndinn í Íslendingum verði ekki útlægur ger. STÓRSÝNINGIN Æskan og hesturinn verður haldin 11. og 12. mars næstkomandi í Reið- höllinni í Víðidal og fer sýningin nú fram í sex- tánda sinn. Hestamannafélögin Andvari, Fák- ur, Sörli, Hörður, Gustur, Sóti og Máni standa að sýningunni og það er unga fólkið í félögun- um sem kemur þar fram í ýmsum atriðum með hesta sína. Skipuleggjendur búast við ríf- lega 250 börnum og unglingum og auk þess munu birtast landsfrægir skemmtikraftar. „Mjög fjölbreytt atriði eru í boði en fram koma bæði yngstu knapar landsins og Íslands- meistarar síðasta árs. Skemmtilegt er að benda á að margir þeirra sem hömpuðu Ís- landsmeistaratitli á síðasta ári komu einmitt fram sem pollar á sýningu hjá Æskunni og hestinum fyrir nokkrum árum. Það má því reikna með að einhverjir af þeim glaðlegu ungu knöpum sem koma fram í Grímureiðinni í ár muni koma fram sem Íslandsmeistarar eftir nokkur ár,“ segir í fréttatilkynningu. Tvær sýningar verða haldnar hvorn daginn, fyrri sýningin hefst klukkan 13 og sú seinni kl. 16. Aðgangur er ókeypis og eins gott að mæta snemma á þennan vinsæla viðburð í hesta- mennskunni því árlega hafa mætt um 5.000 gestir. Æskan og hesturinn í sextánda sinn LÍFLEGT hefur verið undanfarna daga hjá hestamönnum sem sótt hafa mót. Hinni nýju Meistaradeild VÍS var hleypt af stokkunum fyrir helgi í Ölfushöllinni og keppt í fjórgangi þar sem Þorvaldur Árni Þorvaldsson varð hlutskarpastur á Ör frá Prestbakka. Svell- kaldar konur reyndu hesta sína á ísnum í Laugardalnum sl. laugardag og bar Birgitta Dröfn Kristinsdóttir sigur úr býtum í fyrsta flokki á Dröfn frá Höfða. Mikil stemning og góð þátttaka var á þessum mótum. Hörður í Mosfellsbæ hélt auk þess fjörugt mót um helgina, víðavangshlaup eða peningahlaup, og er um að ræða kappreiðar um Leirurnar þar sem keppendur verða að leysa ákveðna þraut til að ná settu marki. Keppt er til verðlauna og var mótið það fyrsta af fimm. Segjast mótshaldarar sumpart vera að endurvekja Leirugleðina sem var aðalskemmtun Mosfell- inga fyrir nokkru. Sigurður Straumfjörð átti besta tímann og hlaut 50 þúsund kr. í verð- laun. Ístölt Austurland fór einnig fram um liðna helgi og tókst vel til í góðu veðri. Guðmundur Björgvinsson sigraði í opnum flokki á Takti frá Tjarnarlandi eftir harða baráttu við Hans Kjerúlf og Leó Geir Árnason, sem sigraði í fyrra. Finna má úrslit móta á mbl.is undir ítarefni. Fram undan er Meistarakeppni Húnvetn- inga sem verður haldin á morgun, 3. mars, í reiðhöllinni í Arnargerði og er keppt í tölti að þessu sinni. Á laugardaginn verður síðan haldið annað vetrarmót Geysis á Gaddstaða- flötum, sem og aðrir vetrarleikar Andvara á Kjóavöllum og vetrarleikar Glaðs í Búðardal. Fyrsta vetrarmót Sleipnis og Ljúfs fer að auki fram 4. mars. Fjör á ís, leirum og í höll  Meira á mbl.is/itarefni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.