Morgunblaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 30
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfing- arinnar, gagnrýnir harð- lega framgöngu stjórn- valda í álmálum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar og Guðjón Arnar Krist- jánsson, formaður Frjáls- lynda flokksins, lýsa hins vegar stuðningi við málið, en benda á ýmsa ann- marka á því. Iðnaðarráðherra og forystumenn sveitarfélaganna ræddu 30 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Það eru engin ný sannindiað ásjóna og ímynd ereinhver dýrmætastaeign fyrirtækis, samtaka og opinberra aðila. Gott orðspor er á sama hátt verð- mætasta eign ein- staklings. Það tekur langan tíma að byggja upp sterka ásýnd en aðeins fáein augnablik að rústa henni. Hinn frægi Henry Ford, sem innleiddi fjöldafram- leiðslu bíla, sagði eitt sinn: „Þú getur ekki byggt upp ásjónu á því sem þú ætlar að gera.“ Í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins sl. sunnudag er rætt um það hversu illa stjórnvöld og fjármálastofnanir standa sig í að miðla jákvæðum fréttum og upplýsingum erlendis. Blaðið seg- ir: „Menn hljóta að spyrja hvort ríkisstjórnin þurfi ekki að veita meiri upplýsingar og leggja ríkari áherslu á tengsl við erlenda grein- ingaraðila, fjárfesta og fjölmiðla, en nú er.“ Blaðið bætir við á öðr- um stað í greininni: „Stjórnvöldum hér hefur aldrei tekist sérlega vel upp í almannatengslum á erlend- um vettvangi.“ Ég hef lengst af unnið við fjöl- miðlun, almannatengsl og sam- skiptaráðgjöf og hefi lengi velt fyr- ir mér af hverju bankarnir, ríkið og aðilar fjármálamark- aðarins hafa ekki staðið sig betur en raun ber vitni á þessu sviði. Það er eins og upplýsinga- og almannatengsla- málin séu afgangs- stærð öfugt við það sem gerist erlendis. Við látum nánast allt yfir okkur ganga. Það er dapurt að sjá t.d. hvernig danskir, sænskir og breskir miðlar geta sagt nánast hvað sem er um at- hafnalífið og fjárfestingarmál Ís- lendinga. Nánast ekkert heyrist um að reynt sé að snúa vörn í sókn til að koma réttum fréttum á fram- færi og eyða gróusögum. Það er dapurt að sjá hvernig erlendir fjöl- miðlamenn velta sér upp úr alls kyns endaleysum um íslenska fjár- málalífið. Í grein sem Martin Van der Weyer ritar í breska blað The Spectator hinn 21. jan. s ir hann m.a. að hin neikvæða un sé að fjármagnið sem ísle fjárfestarnir hafi á milli hand sé komið frá „vafasömum aði Rússlandi“. Weyer segir sam enn hafi „engar sannanir kom fram“ um að þetta sé rétt. Þessi kjaftasaga hefur leik land illa í viðskiptamiðlum E ópu. Ég hef ekki, þrátt fyrir irspurnir hér og erlendis, ge komið höndum yfir upplýsing um hvort unnið hafi verið ski lega að leiðréttingu þessa ra hermis sem og aðrar endaley sem birst hafa um íslensku ú ina og fjárfestingar bankann Af hverju látum við öllu ósv Eftir Jón Hákon Magnússon ’Íslensk fyrirtæki ohið opinbera eru lan eftir grannríkjum ok í almannatengslum, samskiptatækni nú- tímans og skipulagð upplýsingastarf- semi …‘ Jón Hákon Magnússon ÁLVER Á HÚSAVÍK? Ákvörðun álfyrirtækisins Alcoaum að láta kanna nánar hag-kvæmni þess að reisa álver á Bakka við Húsavík gerir út af fyrir sig líklegra að álver verði reist á Norðurlandi. Í fyrsta lagi liggur fyr- ir að áhugi heimamanna í Þingeyj- arsýslum á álveri er mun meiri en í Eyjafirði og Skagafirði. Í öðru lagi er væntanlega auðveldara að afla orku til álvers í Þingeyjarsýslu í hér- aðinu sjálfu og þá fyrst og fremst jarðvarmaorku. Í þriðja lagi virðist sem meiri pólitísk sátt sé að verða um jarðvarmavirkjanir en um vatns- aflsvirkjanir vegna minni áhrifa þeirra á landslag og náttúrufar og að því leyti geti virkjanaframkvæmdir vegna álvers á Húsavík orðið minna umdeildar en t.d. Kárahnjúkavirkj- un. Bæði Þingeyingar og Eyfirðingar hafa fagnað ákvörðun Alcoa um stað- arvalið og það liggur auðvitað fyrir að við byggingu og rekstur álvers við Húsavík verði margvísleg þjónusta sótt til Eyjafjarðarsvæðisins. Hér er því um mál að ræða, sem snertir stóran hluta Norðurlands. Hins vegar þýðir þessi ákvörðun Alcoa alls ekki að álver verði byggt á Húsavík. Bernt Reitan, aðstoðarfor- stjóri Alcoa, sagði í gær að enn þyrfti að gaumgæfa marga þætti, sérstak- lega sem sneru að afhendingu og verðlagningu orkunnar. Það er ekki sjálfgefið að samningar náist um orkuverðið. Það þarf að sjálfsögðu að gæta að arðsemi þeirra virkjana, sem yrðu reistar vegna álvers á Húsavík. Jafnframt eiga áfram við ýmis þau sjónarmið, sem komið hafa fram á undanförnum misserum hvað varðar áframhaldandi uppbyggingu áliðnað- arins hér á landi. Áður en ráðizt verður í að reisa fleiri álver og stór- virkjanir þarf að liggja fyrir hver áhrifin verða á efnahagslíf landsins og stöðu annarra atvinnugreina. Uppbygging áliðnaðar má ekki verða á kostnað fjölbreytni í atvinnulífi og uppbyggingar annarra nýrra at- vinnugreina. Það þarf að meta áhrif- in á náttúru landsins gaumgæfilega. Það þarf að gæta að því að Ísland uppfylli skuldbindingar sínar um út- blástur gróðurhúsalofttegunda. Síðast en ekki sízt er rangt að nálgast álver sem stóru lausnina og einu lausnina á byggðavanda. Norð- lendingar ættu ekki að einblína á ál- ver eingöngu næstu árin. Í fyrsta lagi er ekki víst að það komi, í öðru lagi er margt annað hægt að gera til að skapa arðbær störf í byggðum landsins. NÝFÆTT BARN, BILAÐUR ÍSSKÁPUR Sú staða, sem komin er upp í deiluljósmæðra og Tryggingastofnun- ar ríkisins vegna greiðslna fyrir heimaþjónustu við sængurkonur, er auðvitað alveg afleit. Frá og með gærdeginum fá nýbakaðir foreldrar ekki heimaþjónustu ljósmæðra, enda samningur þeirra við TR runninn út. Ætla má að fyrir vikið verði margar sængurkonur að dvelja lengur á fæð- ingardeild en ella. Þetta er vont, bæði fyrir þá sem njóta þjónustunnar og fyrir skatt- greiðendurna, sem standa straum af kostnaðinum við hana. Allir, sem notið hafa heimaþjón- ustu ljósmæðra, vita hversu frábær sú þjónusta er. Hún gefur foreldrum færi á að njóta samvista við nýja barnið sitt í næði og þægindum eigin heimilis og losar fyrstu dagana í lífi nýs Íslendings við óþarfan stofnana- brag. Aukinheldur sjá ljósmæður miklu betur en ella hvernig aðbún- aður nýfæddra barna er heima fyrir og geta gefið ráð og ábendingar hvað hann varðar. Þegar bæði móður og barni heilsast vel eftir fæðingu velja foreldrar undantekningarlítið þenn- an kost, enda njóta nú um 65% nýbak- aðra mæðra heimaþjónustu. Um leið og heimaþjónustan eykur lífsgæði barna og foreldra, sparar hún skattgreiðendum háar fjárhæðir. Það er miklu ódýrara að þjónusta sængurkonur og börn þeirra heima en að þau taki upp pláss á hátækni- sjúkrahúsi dögum saman. Í máli Guð- laugar Einarsdóttur, formanns Ljós- mæðrafélags Íslands, í Morgunblaðinu í gær kemur fram að heimaþjónusta í heila viku kosti minna en sólarhringur á sjúkrahúsi. Þannig hafa ljósmæður boðizt til að vinna þessa vinnu fyrir rúmlega 38.000 krónur, sem þó er lægra en kostnaðargreining, sem byggist á meðallaunataxta ljósmæðra, gerir ráð fyrir. Sólarhringur á sængur- kvennadeild kostar hins vegar 47–50 þúsund krónur. Það er því ljóst að með aukinni heimaþjónustu á undan- förnum árum hefur verulegur kostn- aður sparazt inni á sjúkrahúsum. Á þeirri greiðslu, sem ljósmæður voru reiðubúnar að sætta sig við fyrir átta heimaþjónustuvitjanir – sem var um 18% lægri en sú upphæð, sem kostnaðargreiningin gaf til kynna – og því, sem Tryggingastofnun var reiðubúin að greiða, munaði um ellefu hundruð krónum. Það samsvarar rúmlega tveimur milljónum króna á ársgrundvelli, sem er skiptimynt í rekstri TR. Engu að síður var TR ekki reiðubúin að hækka sig. Deilan hljóp þá í enn verri hnút, þar sem ljósmæðrum þótti lítið gert úr störf- um sínum og neita nú að sætta sig við lægri greiðslu en sem nemur þeirri upphæð, sem kom út úr kostnaðar- greiningunni. Sú upphæð er 5.903 krónur á vitj- un. Er það hátt gjald, miðað við það sem aðrar stéttir fá fyrir vinnu sína? Rafvirki, sem kemur til að líta á bil- aðan ísskáp í heimahúsi, fær 7.700 krónur fyrir viðvikið – áður en hann byrjar að gera við eða rukka fyrir varahluti. Eru 5.900 krónur miklir peningar fyrir að líta á nýfætt barn í heimahúsi og fylgjast með að því og móður þess heilsist vel? Hér virðist á ferðinni enn eitt dæmið um að í íslenzka heilbrigðis- kerfinu hefur málum verið svo kjána- lega fyrir komið, að menn spara eyr- inn en kasta krónunni. MÉR finnst þetta táknrænt fyrir þá und- irlægju- og út- söluniðurlæg- ingarhugsun sem einkennir það að erlend stórfyrirtæki eigi að ráða ör- lögum byggða og leiða svona stór mál til lykta,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG. „Ég tel einboðið að að því marki sem og ef við Íslendingar viljum taka ákvarðanir um uppbyggingu af þessu tagi, þá gerum við það sjálf á okkar forsendum og veljum þá stað, stund og stærð og slíkt. Það er alger misskilingur að skýla sér á bak við það að erlendum fyr- irtækjum verði ekki sagt fyrir verkum í þessum efnum. Að sjálf- sögðu verða þau ekki neydd til að byggja álver gegn vilja sínum. En við erum heldur ekki neydd til neins, eða hvað? Það sem við get- um sagt ef svo ber undir er að frá og með tilteknu ári kemur til greina að reisa verksmiðju af þessari stærð á þessum stað, hverjir hafa áhuga og hvaða skil- mála bjóða þeir? Ég held að sú aðferðafræði sem nú er notuð sé hörmuleg arfleifð frá árdögum þeirrar stefnu sem byggðist á því að við yrðum með einhverjum ráðum að fá einhverja til að koma hingað og nýta auð- lindirnar, þótt það yrði að gerast alfarið á þeirra forsendum og við yrðum jafnvel að borga með raf- magninu.“ Steingrímur varar stórlega við því að stóriðjustefnan muni valda gríðarlegum erfiðleikum í öðrum útflutnings- og samkeppn- isgreinum með tilheyrandi kjara- skerðingu sjómannastéttarinnar og fleiri stétta. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG „Táknrænt fyrir undir- lægjuhugsun“ GUÐJÓN A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagðist fagna því að menn skyldu vera tilbúnir að fjárfesta í at- vinnulífinu „Út af fyrir sig get- ur maður alveg glaðst yfir því ef menn eru tilbúnir til þess að fjárfesta í atvinnufyrirtækjum eins og álveri.“ Hann taldi hins vegar mik- ilvægt að huga að því að fram- kvæmd sem þessi blandaðist ekki erfiðleikum vegna geng- ismála og annarra mála. „En ef menn setja þetta í þá röð að það verði ekki byrjað á fram- kvæmdum fyrr en 2010 sýnist mér nú að þetta ætti að mörgu leyti að geta gengið upp og því ber að fagna.“ Guðjón sagði að sér fyndist ekki nauðsynlegt að byggja ál- ver af þessari stærðargráðu í byrjun. „Mér finnst ekki na synlegt að stefna alltaf á álv sem eru með framleiðsluget hátt í 300 þúsund tonn. Ég að það hefði verið betra ef r isstjórnin hefði tekið stefnu stærð álversframkvæmda, h sem það væru einhverjir stæ unarmöguleikar þegar fram sækti eða ekki. Álverið á Grundartanga var til dæmis með bullandi hagnað hjá sér þegar það var með 90 þúsun tonna framleiðslu.“ Guðjón taldi það ekki skil að byggja upp hvert álverið 250–300 þúsund tonna fram leiðslugetu á fætur öðru. „Þ má byrja á að byggja 150 þ und tonna álver með stækk- unarmöguleikum. Ég tel að eigum að fara þessi skref va lega og þá getum við nýtt þ tækifæri víðar á landinu. Ei hvers staðar lendum við í va ræðum með hvað við getum leyft okkur í þessa veru, bæ orkulega séð og mengunarle Að öðru leyti ber að fagna þ ef þetta getur orðið til þess efla atvinnustig í landinu.“ Guðjón A. Kristjánsson, for- maður Frjálslynda flokksins Vill minna álver til að byrja með Í MORGUNBLAÐINU kirkjumálaráðherra þar sem leit, að ráðherra leysi bisku Tilefni tilmælanna eru orð h sonar biskups um hjónaban annars að því í nýárspredik síðan á öðrum vettvangi. Þar sem bréfritari er ósa að biskup sé sviptur embæt Björn Bjarnas Opnu br
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.