Morgunblaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
3
16
14
0
3/
20
06
www.urvalutsyn.is
Fararstjórar: Þóra Valsteinsdóttir
og Sigmundur Andrésson
99.440 kr.
í tvíbýli á hótel le Meridien.
*Innifalið: Beint leiguflug, flugvallarskattar,
gisting með morgunverði í 10 nætur, akstur til
og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
Skelltu þér í10 daga ævintýraferðá frábæru verði!
Fáðu ferðatilh
ögun og nána
ri upplýsingar
hjá Úrval-Úts
ýn, Lágmúla 4
, sími 585 40
00
Verð:
*
Ferð til Egyptalands er ógleymanlegt ævintýri þar sem
þú upplifir stórkostlegar fornminjar í töfrandi umhverfi
og nýtur alls þess besta í gistingu og veitingum.
Það hefði einhvern tímann þótt saga til næsta bæjar að íslenska krónan ætti eftir að hrella
heimsbyggðina.
Komum á slysa- ogbráðamóttökuLandspítalans
fjölgaði um 4,7% milli ára
ef miðað er við jan-
úarmánuð í ár og sama
mánuð í fyrra, en þetta
kemur fram í
í stjórnunarupplýsing-
um sjúkrahússins fyrir
janúar 2006. Heimsóknir á
slysa- og bráðasvið námu
um 100.000 manns í fyrra,
að sögn Brynjólfs Mogen-
sens, sviðsstjóra á slysa-
og bráðasviði Landspítal-
ans, en þetta samsvarar
því að um þriðjungur þjóðarinnar
hafi leitað á slysa- og bráðamót-
tökuna á því ári. Sú staðreynd að á
hverju ári leita sífellt fleiri á slysa-
og bráðamóttöku sjúkrahússins
vekur spurningar um af hverju
fjölgunin stafi, hvort hún hafi
áhrif á þá þjónustu sem sjúklingar
fá og hvort það fjármagn sem
deildirnar fá dugi til rekstursins.
Þjónustan í samræmi
við kröfur nútímans
Brynjólfur Mogensen segir
margar ástæður fyrir því að kom-
um á slysa- og bráðadeild hafi
fjölgað. Ein sé sú að þar fái fólk al-
mennt góða þjónustu og að hægt
sé að nálgast hana alla á einum
stað, sem sé í samræmi við kröfur
nútímans. Á bráðamóttöku sé
hægt að taka allar blóðprufur og
gera allar þær rannsóknir sem
kunna að reynast nauðsynlegar.
Ef á þurfi að halda sé aðgengi að
allri sérfræðiþekkingu sem til er á
bráðamóttökunni. Spurður um
fleiri hugsanlegar skýringar nefn-
ir Brynjólfur sem dæmi að þol-
mörk fólks gagnvart slysum og
meiðslum hafi heldur minnkað.
Fyrr á árum hafi fólk gjarnan
beðið og séð til þótt það slasaðist
eða meiddist lítils háttar. „Svona
er þetta ekki lengur. Fólk leitar á
bráðamóttöku með hluti sem það
hefði áður látið bíða,“ segir Brynj-
ólfur.
100 milljónir króna skortir
Brynjólfur segir að furðu vel
hafi gengið að anna þeirri auknu
eftirspurn sem er eftir þjónustu
slysa- og bráðasviðs. Því sé þó
ekki að neita að mönnunin á svið-
inu þurfi að vera betri. Sá fjöldi
starfsfólks sem þar starfi nú sé í
raun umfram heimildir þótt fleiri
vanti til starfa.
Spurður um hversu mikið fé
skorti svo endar nái saman í
rekstri slysa- og bráðasviðs, segir
Brynjólfur að miðað við rekstrar-
áætlun ársins 2006 vanti um 100
milljónir króna. Þetta séu háar
fjárhæðir en líta beri til þess að
starfsemin hafi aukist ár frá ári og
eigi sviðið áfram að geta veitt þá
góðu þjónustu sem það hafi hing-
að til gert þurfi meira fé í rekst-
urinn.
Verið að endurskipuleggja
móttökuþjónustu
Brynjólfur bendir á að skipu-
lagsbreytingar standi nú yfir hjá
sviðinu og standi vonir til þess að
þær leiði til hagræðingar. Ljóst sé
þó að sviðið fari fram úr fjárhags-
áætlun því slíkar breytingar taki
ávallt tíma að skila sér. „[Á slysa-
og bráðamóttökunni] í Fossvogi
er nú verið að reyna að endur-
skipuleggja móttökuþjónustu til
þess að gera hana hraðvirkari því
oft og tíðum er biðin orðin of
löng,“ segir Brynjólfur. Markmið-
ið sé að stytta biðina, gera fyrstu
móttöku sjúklinga markvissari en
nú er og bæta forgangsröðun.
Svipaðar breytingar sem gerðar
hafi verið erlendis hafi reynst vel
og því eigi að kanna hverju þetta
skilar hér, en til standi að hið nýja
kerfi verið tekið í notkun á þessu
ári. Eins og staðan er í dag geti
biðtími á álagstímum verið lang-
ur, en forgangsraðað sé eftir al-
varleika tilfella.
Æskilegt að fá fleiri
til starfa á sviðinu
Jóhannes Gunnarsson, lækn-
ingaforstjóri Landspítala-há-
skólasjúkrahúss, segir sjúkrahús-
ið ekki hafa möguleika á að fjölga
starfsfólki slysa- og bráðasviðs.
„Við höfum ekki beinlínis mögu-
leika á að fjölga starfsfólki, en við
höfum ákveðið rekstrarfé sem við
verðum að láta duga,“ segir Jó-
hannes. Æskilegt væri hins vegar
að fá fleiri til starfa á sviðinu enda
sé álag mikið á þeim sem þar
starfi.
Hins vegar standi til að innrétta
viðbótarpláss við bráðamóttökuna
í Fossvogi og því á starfsaðstaðan
að batna á árinu. „Í tengslum við
það verður gerð endurskipulagn-
ing á vinnuferlum sem ætti að
geta komið eitthvað á móts við
þessa auknu þörf,“ bendir Jó-
hannes á. Komum á bráðamót-
tökuna hafi fjölgað ár frá ári að
undanförnu. Á milli áranna 2004–
2005 hafi fjölgunin numið um 10%.
Þýða fleiri sjúklingar ekki
lengri bið sjúklinga sem leita til
slysa- og bráðasviðs?
„Það getur gert það, en þótt
margir segi biðina langa er það
eðli svona móttaka um allan heim
að bið getur orðið býsna löng. Hér
er hún alls ekki lengri en víðast
hvar þekkist í kringum okkur,“
segir Jóhannes. Álagið sé mjög
sveiflukennt yfir sólarhringinn og
milli árstíða.
Fréttaskýring | Komum á slysa- og bráða-
svið Landspítala fjölgar stöðugt
Þyrfti að fjölga
starfsfólki
Frá slysadeild Landspítala í Fossvogi.
Á bráðamóttöku í stað
þess að fá legurými
Einn sá vandi sem Landspítali
glímir við felst í því að ef legu-
rými fyllast dregst það að sjúk-
lingar á bráðamóttöku, sem
þurfa að leggjast inn á legudeild,
komist þangað, að sögn Brynjólfs
Mogensen. Hluti af þessum
vanda sé tilkominn vegna aldr-
aðra sjúklinga. Ávallt séu sjúk-
lingar á bráðamóttöku, mis-
margir þó, sem fremur ættu að
hafa pláss í legurými eða inni á
hjúkrunarheimilum.
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elav@mbl.is
Í samræmi við kröfur nútímans að hægt
sé að nálgast alla þjónustu á einum stað
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111