Morgunblaðið - 02.03.2006, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fylgir hverri
OROBLU vöru
Kaupauki
Kynningar
á n‡ju vorvörunum
frá OROBLU
Fimmtudag, 2. mars kl. 13-17
í Gar›abæ og í Setbergi .
Föstudag, 3. mars kl. 13-17
í Spönginni og á Laugavegi.
Laugardag, 4. mars kl. 12-16
á Smáratorgi og í Smáralind.
Kynningar í Lyfju
GÍSLI Gunnarsson, forseti sveit-
arstjórnar Skagafjarðar, sagði að
Skagfirðingar hefðu alltaf vitað að
niðurstaðan yrði um einn stað af
þessum þremur fyrir val á álverinu
og í sjálfu sér kæmi þeim ekki þessi
niðurstaða Alcoa á óvart.
„Við óskum bara Húsvíkingum til
hamingju en reiknum með að nú
hljóti stjórnvöld að fara að skoða
hvað á að gera á norðvestursvæðinu.
Það hljóta í framhaldi af þessu að
fara að koma upp spurningar um
það hvort það eigi að sitja alveg eft-
ir,“ sagði Gísli.
Hann sagði að Skagfirðingar
myndu nú einbeita sér að annarri
atvinnuuppbyggingu og krefja
stjórnvöld um svör þar að lútandi.
Það væru nokkur ár síðan að Hall-
dór Ásgrímsson hefði sagt að tími
norðvestursvæðisins væri kominn.
„Við munum sennilega banka upp á
með það,“ sagði Gísli enn fremur.
Brosi gegnum tárin
Ársæll Guðmundsson, sveit-
arstjóri í Skagafirði, sem einnig er
oddviti vinstri grænna í sveitarfé-
laginu, en þeir voru andvígir því að
Skagafjörður kæmi til greina hvað
staðarvalið snertir, sagði að nið-
urstaðan kæmi sér ekki á óvart og
hefði verið honum lengi ljós.
Hann sagðist alltaf hafa gert
verulegar athugasemdir við drög að
þessari aðgerðaáætlun, meðal ann-
ars við það atriði að orkan yrði tekin
hvaðan sem væri af svæðinu til þess
staðar sem yrði fyrir valinu. Að
hans mati hefði Skagafjörður verið
þarna inni til þess að gera auðveld-
ara um vik að komast í orku Hér-
aðsvatna. „Meirihluti Skagfirðinga
vill ekki álver eða virkjun Héraðs-
vatna eins og ítrekað hefur komið
fram í skoðanakönnunum,“ sagði
Ársæll.
Hann sagði að vinstri grænir
hefðu lagt mikla áherslu á að fara
aðrar leiðir í atvinnumálum. Þar
væru þeir að horfa til hátækniiðn-
aðar sem nágrannalönd okkar á
Norðurlöndunum hefðu lagt áherslu
á. „Ég brosi í gegnum tárin bara,“
sagði Ársæll ennfremur.
Talsmenn sveitarstjórnar Skagafjarðar
Gísli
Gunnarsson
Ársæll
Guðmundsson
Niðurstaða Alcoa kemur ekki á óvart
NÆG orkar frá jarðvarmaveitum af
fjórum háhitasvæðum á Norðaust-
urlandi er fyrir hendi til þess að
reka álver af um-
rædddri stærð
við Bakka á
Húsavík, að sögn
Friðriks Sophus-
sonar, forstjóra
Landsvirkjunar,
en fyrirtækið
verður í forsvari
í væntanlegum
viðræðum við Al-
coa um orkukaup
vegna álversins.
Friðrik sagði að þeir hefðu á und-
anförnum árum og mánuðum verið
að tryggja sér aðgang að jarð-
varmalindum á þessu svæði á Norð-
austurlandi og þeir teldu sig nú
hafa aðgang að orku sem nægði til
þess að keyra álver af þessari
stærð og geta afhent orkuna í
tveimur áföngum, þ.e.a.s. árin 2012
og 2015 eins og rætt væri um. Til
þess að fá fullvissu í þeim efnum
þyrfti hins vegar að efna til dýrra
og umfangsmikilla rannsókna á
svæðunum. Talið væri að rannsókn-
irnar gætu kostað um tvo milljarða
króna, en á móti kæmi að rann-
sóknarholurnar gætu nýst líka í
orkuvinnslunni.
„Galdurinn er sá að það þarf eig-
inlega reka þessi svæði saman eins
og eina virkjun og þá erum við að
tala um Bjarnarflag, Kröflu, Gjá-
stykki og Þeistareyki,“ sagði Frið-
rik enn fremur.
Hann sagði að þeir teldu að á
þessum svæðum væri nægileg orka
til þess að þjóna álveri af þessari
stærð og þá væri miðað við að nú-
verandi virkjun í Kröflu væri þar
innifalin. Það væri að minnsta kosti
hægt að finna 400–450 megavött á
þessu svæði, en það yrði að við-
urkennast að ekki hefðu farið fram
nægilegar rannsóknir á svæðinu og
það væri það sem yrði að gerast
næst.
„Við förum ekki í milljarða rann-
sóknir nema við finnum það á
næstu mánuðum að það sé alvara í
þessu öllu saman og það auðvitað
byggist á því að verðhugmyndir
þeirra og okkar fari saman,“ sagði
Friðrik enn fremur.
Hann sagði aðspurður að hann
teldi svipaðan kostnað samfara
jarðvarmavirkjunum og vatnsafls-
virkjunum þegar upp væri staðið.
Það væri hins vegar ólíku saman að
jafna þar sem gera mætti ráð fyrir
lægri stofnkostnaði í jarðvarma-
virkjunum en rekstrarkostnaðurinn
væri hærri. Það stafaði af því að
það þyrfti alltaf öðru hvoru að bora
nýjar holur. „Þegar á allt er litið þá
hygg ég að jarðvarmavirkjanir
komi álíka vel út og þær vatnsafls-
virkjanir sem nú er kostur á,“ sagði
Friðrik.
Þrjár holur
í sumar
Friðrik sagði að þegar væri búið
að ákveða að bora þrjár holur í
sumar á svæðunum, eina á Þeista-
reykjum og tvær á svæðum Lands-
virkjunar. Það væru fyrstu rann-
sóknirnar, en næðist samkomulag
um að halda þessari samvinnu
áfram við Alcoa þá þyrfti að fara í
miklu víðtækari boranir á næstu ár-
um.
„Við höfum ekkert nema gott af
samstarfinu við Alcoa að segja frá
byrjun. Það er ljóst að þeir sem
hafa verið semja við okkur hafa
verið tengdir æðstu mönnum fyr-
irtækisins. Allar ákvarðanir hafa
gengið hratt og vel fyrir sig og þeir
hafa sýnt að þeir kunna mjög vel til
verka þegar kemur að samstarfi og
samvinnu við heimamenn. Við
þekkjum því mjög vel þeirra vinnu-
brögð sem ég held að séu til fyr-
irmyndar,“ sagði Friðrik enn frem-
ur.
Næg orka fyrir álver á
fjórum háhitasvæðum
Rannsóknir á háhitasvæðunum norðaustanlands kosta um tvo milljarða króna
Friðrik
Sophusson
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
Morgunblaðið/Hafþór HreiðarssonSéð yfir lóðina á Bakka, norðan Húsavíkur. Kinnarfjöllin handan Skjálfandaflóa í baksýn.
!"
#
$ !
Gert er ráð fyrir að orka til nýs álvers Alcoa á Bakka við Húsavík fáist frá
háhitavirkjunum á Norðausturlandi. Þar er einkum horft til Kröflu og
Bjarnarflags, Gjástykkis og Þeistareykja. Á þessum svæðum á að vera
hægt að afla nægilegrar orku til rekstrar álvers sem framleiðir um 250
þúsund tonn af áli á ársgrundvelli og er þá núverandi virkjun í Kröflu þar
innifalin, en þar er nú rekin 60 megawatta virkjun. Skammt er á milli
Kröflu og Bjarnarflags eða um 10 kílómetrar, en Þeistareykir eru um 30–
40 kílómetrum fyrir norðan Kröflu og Gjástykki þar mitt á milli eins og
sést á meðfylgjandi korti. 250 þúsund tonna álver þarf 400–450 megavatta
orku á ári.
Orkan frá háhitavirkjunum
FRÉTTIR