Morgunblaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 19
ERLENT
París. AFP. | Uppnámið og ofbeldið
vegna birtingar á skopmyndum af
Múhameð spámanni endurspegla
þá hættu, sem nú stafar af hinni
íslömsku „alræðishyggju“. Kemur
þetta fram í yfirlýsingu frá breska
rithöfundinum Salman Rushdie
og nokkrum hópi annarra rithöf-
unda og fræðimanna.
Rushdie, franski heim-
spekingurinn Bernard
Henri-Levy og rithöfund-
urinn Taslima Nasreen,
sem gerð var útlæg í
Bangladesh, eru meðal
þeirra, sem skrifa undir
yfirlýsinguna, en hún birt-
ist í gær í franska vikurit-
inu Charlie Hebdo.
„Sigur var unninn á fas-
ismanum, nasismanum og stalín-
ismanum en nú horfist allur heim-
ur í augu við nýja ógn: Öfgafulla
íslamstrú,“ segir í yfirlýsingunni.
„Við, rithöfundar, blaðamenn og
fræðimenn, hvetjum til harðrar
baráttu gegn trúarlegri alræðis-
hyggju en styðjum baráttuna fyrir
frelsi, jafnrétti og veraldlegum
gildum öllum til handa.“
Hópurinn segir, að uppnámið
vegna skopmyndanna sé ekki til
marks um átök milli menningar-
heima og ekki um gagnkvæma
óvild milli austurs og vesturs. Um
sé að ræða alþjóðlega baráttu milli
lýðræðissinna og klerkavalds.
Rushdie var á sínum tíma sak-
aður um að hafa óvirt spámanninn
í bók sinni „Söngvum Satans“ og
var þá gefin út trúarleg tilskipun í
Íran um að hann skyldi myrtur.
Aðrir, sem standa að yfirlýsing-
unni, eru hollensk-sómalska kon-
an Ayaan Hirsi Ali; íranski rithöf-
undurinn Chahla Chafiq, sem er í
útlegð í Frakklandi; franski rit-
höfundurinn Caroline Fourest;
Irshad Manji, útlægur Úganda-
maður og rithöfundur, sem nú býr
í Kanada; Mehdi Mozaff-
ari, íranskur útlagi og
fræðimaður, sem býr í
Danmörk; Maryam
Namazie, íranskur rithöf-
undur í Bretlandi; An-
toine Sfeir, franskur sér-
fræðingur í málefnum
Mið-Austurlanda; Phil-
ippe Val, framkvæmda-
stjóri Charlie Hebdo, og
Ibn Warraq, bandarískur
fræðimaður af indverskum og
pakistönskum uppruna, sem skrif-
aði bókina „Hvers vegna ég er
ekki múslími“.
Segja íslam nærast
á ótta og óánægju
Í yfirlýsingunni segir, að eins
og önnur alræðishyggja nærist
íslam á ótta og óánægju. „Íslam er
afturhaldssöm hugmyndafræði,
sem er andsnúin jafnrétti, frelsi
og veraldarhyggju hvar sem er,“
segir í yfirlýsingunni, sem krefst
réttar til að losa hina kúguðu und-
an „yfirráðum öfgafullrar ísl-
amstrúar“.
„Við neitum að afsala okkur
réttinum til gagnrýninnar hugs-
unar af ótta við að vera sökuð um
„íslamshatur“,“ segir meðal ann-
ars í yfirlýsingunni.
Rushdie varar
við „íslamskri
alræðishyggju“
Salman Rushdie
Bangkok. AFP. | Yfirvöld í Taílandi
hafa tilkynnt að kosningum sem
fyrirhugaðar voru 2. apríl verði
ekki frestað. Thaksin Shinawatra,
forsætisráðherra landsins, gaf í
skyn á þriðjudag að hann myndi
íhuga að fresta kosningunum en
eftir tilkynningu kosninganefndar
í gær er ljóst að þeim verður ekki
frestað.
Þá hefur á síðustu dögum verið
uppi orðrómur um að herinn muni
ræna völdunum. „Ég get fullvissað
almenning um að það verður ekki
valdarán,“ sagði Ruengroj Mahas-
aranond hershöfðingi.
Hafa helstu stjórnarand-
stöðuflokkar landsins tilkynnt að
þeir muni sniðganga kosningarnar
ef Thaksin undirritar ekki vilja-
yfirlýsingu um að ganga til breyt-
inga á stjórnarskránni.
Thaksin hefur sagt að andstæð-
ingar sínir séu minnihluti þjóð-
arinnar og hvatt landsmenn sína
til að senda sér póst, þar sem þeir
geta lýst yfir ást sinni á lýðræði
og friði. „Ég mun stafla bréfunum
upp fyrir framan þinghúsið til að
sýna að þetta er það sem meiri-
hluti fólksins vill,“ sagði Thaksin.
Ákvörðunin um að efna til kosn-
inga kemur eftir háværar kröfur
um að Thaksin segi af sér emb-
ætti vegna ásakana um fjár-
málamisferli.
Reuters
Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra Taílands, hvetur kjósendur til að senda sér póst.
Fyrirhuguðum kosningum
í Taílandi ekki frestað
RANGÁRÞING YTRA
Nýtt hesthúsahverfi á Hellu
Laugardaginn 4. mars nk. milli kl. 11.00 og 13.00 verður
opið hús um skipulagsmál í Kringlunni í Grunnskólanum á
Hellu við Útskála.
Nýtt hesthúsahverfi – Kynnt verður deiliskipulag af nýju
hesthúsahverfi á Hellu sem rísa á sunnan þjóðvegar, gengt
Gaddstaðaflötum, landsmótssvæði hestamanna.
Um er að ræða hesthúsahverfi fyrir um 1.500 hross með
stækkunarmöguleikum fyrir um 1.000 hross til viðbótar.
Hesthúsahverfð verður tilbúið til úthlutunar eigi síðar en 1.
júní 2006.
Deiliskipulagsuppdrátttur af hesthúsahverfinu verður til sýnis
ásamt greinargerð og sýndar verða fyrirhugaðar húsagerðir ásamt bygg-
ingarlýsingum.
Skólareiturinn á Hellu – Kynntar verða hugmyndir af skipulagi lóðar
Grunnskólans á Hellu þar sem tekið er tillit til staðsetningar nýs 4ra
deilda leikskóla sem og frekari uppbyggingar grunnskólans með tenginu
við íþróttahúsið. Með þessu fyrirkomulagi yrði megin aðkoma grunn-
skólans frá suðri.
Hellubúar, Sunnlendingar og aðrir áhugasamir hestamenn, það er okkur
sönn ánægja að taka á móti ykkur sem flestum og fara yfir þessi mál
sem og önnur skipulagsmál nk. laugardag milli kl. 11.00 og 13.00.
Heitt kaffi á könnunni og bakkelsi.
Sigurbjartur Pálsson, formaður
skipulags- og byggingarnefndar
Ólafur Elvar Júlíusson
skipulags- og byggingarfulltrúi.