Morgunblaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Akureyri | Börn á Akureyri voru
óvenjusnemma á ferðinni í gær-
morgun, á hátíðisdegi þeirra, ösku-
deginum. Hefð er fyrir því að klæða
sig upp á, fara á milli staða og
syngja hástöfum fyrir starfsfólk
fyrirtækja og verslana. Að launum
fá þau yfirleitt sælgæti í poka og af-
rakstur morgunsins er oft býsna
drjúgur. Furðuverur af öllu tagi
voru á ferðinni, en áberandi var
hversu margar ungar stúlkur
brugðu sér í gervi Silvíu Nætur. Og
lagið Til hamingju Ísland var á efn-
isskrá margra öskudagsliða.
Silvía Nótt
úti um allt
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Silvía Nótt Þær voru margar stúlkurnar á Akureyri sem brugðu sér í gervi Silvíu Nætur og víða um bæinn hljóm-
aði lagið Til hamingju Ísland. Þessar ungu dömur báru sig fagmannlega að við flutninginn og höfðu sér til full-
tingis tvo herramenn, þá Homma og Namma.
Flúðir | Börnin í leikskólanum
Undralandi á Flúðum klæddu sig
upp í tilefni dagsins. Búningarnir
voru fjölskrúðugir og margir
skemmtilegir. Haldin var ösku-
dagshátíð leikskólabarnanna í golf-
skálanum í Efra Seli og var mikill at-
gangur þegar börnin slógu köttinn
úr tunnunni.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Klæddu
sig upp í til-
efni dagsins
Bolungarvík | Nemendur og kenn-
arar Grunnskóla Bolungarvíkur
héldu upp á öskudaginn með því að
búa sig upp með viðeigandi hætti og
síðan var safnast saman í íþróttahús-
inu þar sem farið var í ýmsa leiki.
Gleðinni lauk svo með því að gengið
var til þess verks að slá köttinn úr
tunnunni. Óhætt er að segja að sum-
ir hafi lagt sig fram með tilþrifum.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Tilþrif
í tunnu-
slættinum
Neskaupstaður | Katrín
Lilja Sigurjónsdóttir valdi
sér hlutverk nornarinnar,
eins og fleiri börn í Nes-
kaupstað. Sungu nornirnar
fyrir fólk ásamt sjóræn-
ingjum sem einnig voru
áberandi.
Nornir
í Nes-
kaupstað
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
LANDIÐ
ÞAÐ var mikil öskudags-
stemning meðal barna og full-
orðinna í Kringlunni í gær og
víða sungið fyrir versl-
unarfólk í þeirri von að fá að
launum sælgæti eða annað
gott. Hvert sem litið var voru
kúrekar, indíánar, nornir,
blóðsugur með svakalegar
tennur, prinsessur, púkar og
pelabörn með snuð. Flestir
báru poka með gjöfum og
með nokkra góða söngslagara
tilbúna fyrir næstu búð. Ekki
má gleyma krökkum sem fóru
um syngjandi í gervi Silvíu
Nætur, með silfraðan hár-
toppinn greiddan aftur á
hvirfil.
Þegar söngatriðum var lok-
ið að mestu tók við að njóta
afrakstursins, kíkja í pokana
og gæða sér á því sem þar var
að finna. Um götur og torg
fóru líka krakkar í búningum.
Vegfaranda nokkrum á
Skólavörðustíg snarbrá að
sögn þegar lítill kónguló-
armaður skaust úr leyni en
var horfinn eins og elding fyr-
ir næsta horn, líklega í leit að
næsta verslunarmanni sem
tilbúinn væri að hlusta á óm-
þýðan söng, kannski um Litlu
fluguna.
Myndirnar tala sínu máli
og ljóst er að sjón er sögu rík-
ari á sjálfan öskudag.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ótrúlegt stuð hér á ferð og gervið ekki af verri endanum.
Söngur og sæl-
gæti á öskudag
Látið ykkur ekki bregða. Þessar nornir breyta engum í frosk.
Lögreglustjóra í smábæ nokkrum í Villta vestrinu þótti rétt
að athuga hvort ekki færi allt vel fram. Svo var slappað af
með sleikjó og mál bæjarins rædd fram og aftur.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Vampíra og Silvía Nótt taka lagið ásamt meðsöngvurum.
Spurning hvort þau hafi sungið Til hamingju Ísland.
Morgunblaðið/ÞÖK
Prinsessa og púki með horn. Vissara að afhenda þeim eitt-
hvað gott í gogginn til að gæða sér á í tilefni öskudagsins.