Morgunblaðið - 02.03.2006, Page 51
bjóða upp á Food & fun-matseðilinn fram á
sunnudagskvöldið 5. mars.
Grand Hótel Reykjavík | TEKO, stærsta
menntastofnun á sviði hönnunar og við-
skipta í Skandinavíu, býður til kynningar á
sviði tísku og lífsstíls í Gallerí sal Grand
Hótels í Reykjavík (kjallara). Kynning á
skólanum ásamt störfum og möguleikum
innan tísku- og lífsstílsiðnaðarins á Íslandi.
Nánar um skólann á www.teko.dk
Mannfagnaður
Félag kennara á eftirlaunum | Árshátíð Fé-
lags kennara á eftirlaunum verður 3. mars,
í Kiwanishúsinu, Engjateigi 11, og hefst hún
kl. 19. Verð kr. 3.500. Þátttaka tilkynnist í
síma KÍ: 595 1111.
Fyrirlestrar og fundir
Litli ljóti andarunginn | Hugmyndafyrir-
lestur með Andra Snæ Magnasyni er efni
næsta spjalls fyrir ungt fólk í SFR. Andri
Snær ætlar að fjalla um hugmyndir og
ranghugmyndir, ímynd og möguleika, áróð-
ur, heilaþvott og óttann við framtíðina,
tækifærin og stórfyrirtækin sem búa í
hverjum og einum.
Frístundir og námskeið
Hótel KEA | Tveggja daga námskeið með
Guðjóni Bergmann á Akureyri fyrir þá sem
vilja hætta að reykja. Námskeiðið kostar
13.300 kr. www.vertureyklaus.is
Staðlaráð Íslands | Námskeið verður 9.
mars fyrir þá sem vilja læra á ISO 9000-
gæðastjórnunarstaðlana. Markmið nám-
skeiðsins er að þátttakendur geti gert
grein fyrir megináherslum og uppbyggingu
kjarnastaðlanna í ISO 9000:2000-röðinni
og þekki hvernig þeim er beitt við að koma
á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi.
www.ljosmyndari.is | 3ja daga ljósmynda-
námskeið fyrir stafrænar myndavélar. 6.,
8. og 9. mars. kl. 18–22. Farið í allar helstu
stillingar á myndavélinni og útskýrðar
ýmsar myndatökur. Tölvuvinnslan útskýrð
ásamt Photoshop og ljósmyndastúdíói.
Leiðbeinandi Pálmi Guðmundsson. Skrán-
ing á www.ljosmyndari.is eða í s. 898 3911.
Fréttir og tilkynningar
Ferðaklúbbur eldri borgara | Þriðjudaginn
7. mars verður haldinn kynningarfundur á
ferðum sumarsins 2006 kl. 13.30 í Þróttar-
heimilinu í Laugardal.
Blóðbankinn | verður með blóðsöfnun við
Fjarðarkaup frá 13–17.
Börn
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgar-
svæðinu | Skák í kvöld kl. 19, í Félagsheimil-
inu, Hátún 12. Allir velkomnir.
Útivist og íþróttir
Ferðafélagið Útivist | Útivist fer í skíða- og
jeppaferð í Landmannalaugar 3.–5. mars,
brottför kl. 19. Jeppamenn ferja farangur-
inn. Fararstjórar: Marteinn Heiðarsson og
Sylvía Hrönn Kristjánsdóttir. Verð 5.800/
7.100 kr.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 51
DAGBÓK
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16, handav. kl.
9–16.30, smíði/útskurður kl. 9–16.30,
Boccia kl. 9.30, helgistund kl. 10.30,
leikfimi kl. 11, myndlist kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, leikfimi,
myndlist, bókband, fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Fastir liðir eins og
venjulega. Handverksstofa Dal-
brautar 21–27 opin alla daga frá 8–16.
Sími 588 9533. asdis.skuladott-
ir@reykjavik.is
FEBÁ, Álftanesi | Útskurðar-
námskeið í smíðastofu grunnskólans,
fimmtudaga kl. 15.30–18.30. Leið-
beinandi Friðgeir H. Guðmundsson.
Upplýsingar gefur Guðrún í síma
565 1831.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13, Snúður og Snælda sýna
leikritið Glæpir og góðverk í Iðnó 5.
mars kl. 14. Miðapantanir í Iðnó s.
562 9700, einnig seldir við inngang-
inn. Aðstoð við gerð skattskýrslu, að-
ilar frá Skattstofu verða til viðtals á
skrifstofu FEB 14. mars, panta þarf
tíma í s. 588 2111.
Félag kennara á eftirlaunum | Kór-
æfing í KHÍ kl. 17–19. Briddsæfing í KÍ–
húsi kl. 14–16.
Félagsheimilið Gjábakki | Góugleði
verður í Gjábakka 2. mars kl. 14. Birg-
ir Hartmannsson leikur á harm-
onikku, Sigurlaug Guðmundsd. les
frumsamin ljóð, Kór Snælandsskóla
syngur undir stjórn Heiðrúnar Há-
konard., Sigurður Bragason syngur
nokkur lög, dansatriði og fjölda-
söngur. Kökuhlaðborð. Leikfimi kl.
9.05 og 9.50, rammavefnaður kl.
9.15, málm- og silfurnámskeið kl.
9.30, rólegar æfingar kl. 10.50, bók-
band kl. 13, góugleði kl. 14, harm-
onikkuleikur, ljóðalestur, Kór Snæ-
landsskóla, einsöngur Sigurður
Bragason, danssýning, kökuhlaðborð.
Gömlu dansarnir kl. 20 og línudans kl.
21.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Bingó í Kirkjuhvoli kl. 19.30 á vegum
Lions og FAG. Glerbræðsla kl. 9 í
Kirkjuhvoli, vatnsleikfimi kl. 9.45 og
karlaleikfimi kl. 13.15 í Mýri. Í Garða-
bergi er opið 12.30–16.30 og þar er
handavinnuhorn.
Félagsstarf Gerðubergs | Helgi-
stund, umsjón sr. Svavar Stefánsson,
kl. 10.30, vinnustofur opnar kl. 12.30.
Veitingar í hádegi og kaffitíma í Kaffi
Bergi. Framtalsaðstoð frá Skattstof-
unni er veitt mánud. 13. mars, skrán-
ing hafin á staðnum og í síma
575 7720.
Félagstarfið Lönguhlíð 3 | Góugleði,
söngdísirnar frá Hæðargarði og Hjör-
dís Geirs taka lagið kl. 14.30.
Hraunbær 105 | Kl. 9 perlusaumur,
postulínsmálun, hjúkrunarfræðingur
á staðnum, kaffi, spjall, dagblöðin,
hárgreiðsla, kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 12 hádegismatur, kl. 14 fé-
lagsvist og kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Opið hús í boði Lions kl.
20. Kvöldvaka, skemmtun, kaffi og
dans.
Hvassaleiti 56–58 | Hannyrðir hjá
Halldóru kl. 9–16. Boccia kl.10–11. Fé-
lagsvist kl. 13.30, aukaverðlaun í byrj-
un mánaðar, kaffi og nýbakað. Böðun
fyrir hádegi. Fótaaðgerðir 588 2320.
Hársnyrting 517 3005.
Hæðargarður 31 | Blöðin liggja
frammi, myndlistarsýningar Í Betri
stofu og Salnum. Kaffiveitingar. Hægt
er að fá dagskrána senda heim. Sími
568 3132. Netfang: asdis.skuladott-
ir@reykjavik. Spjalldagur föstudag kl.
14.30, séra Hans Markús Haf-
steinsson spjallar um trúartákn krist-
innar kirkju.
Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi í
Grafarvogssundlaug á morgun kl.
9.30.
Norðurbrún 1, | Smíði kl. 9, bæna-
stund kl. 10.30, opin vinnustofa kl. 9–
16, leik kl.13–16.30.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9–10 boccia. Kl.
9.15–14 aðstoð v/böðun. Kl. 9.15–
15.30 handavinna. Kl. 10.15–11.45
spænska. Kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður. Kl. 13–14 leikfimi. Kl. 13–16
kóræfing. Kl. 13–16 glerbræðsla. Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar. Helgi-
stund í umsjón Jakobs Ágústs Hjálm-
arssonar dómkirkjuprests kl. 10.30.
Kór félagsstarfs aldraðra syngur
undir stjórn Árna Ísleifs.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9, bókband og pennasaumur kl. 9,
morgunstund kl. 9.30, boccia kl. 10,
handmennt alm. kl. 13, glerskurður kl.
13, frjáls spil. kl. 13.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyr-
irbænastund kl. 12. Hádegisverður á
eftir.
Áskirkja | Foreldrar velkomnir með
börn sín í safnaðarheimili kirkjunnar
kl. 10–12. Lagið tekið undir stjórn org-
anistans Kára Þormars. Kaffiveit-
ingar. Undirbúningur fyrir æskulýðs-
daginn í samverunni.
Bústaðakirkja | Ný dögun – samtök
um sorg og sorgarviðbrögð halda
fræðslufund í Bústaðakirkju, safn-
aðarsal neðri hæð, gengið inn bóka-
safnsmegin. Fundarefni: Opið hús –
óformlegar umræður í hópum.
Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl.
10, leikfimi I AK kl. 11, bænastund kl.
12, barnastarf 6–9 ára kl. 17–18, á
neðri hæð. Unglingastarf kl. 19.30–
21.30, á neðri hæð. (www. digra-
neskirkja.is)
Dómkirkjan | Alla fimmtudaga frá kl.
14–16 er opið hús í safnaðarheimilinu
Lækjargötu 14a. Allir velkomnir.
Fríkirkjan í Reykjavík | Kyrrðar- og
bænastund kl. 12.15.
Garðasókn | Kyrrða– og fyrirbæna-
stund kl. 22. Tekið er við bæn-
arefnum af prestum og djákna. Boðið
upp á kaffi í lok stundarinnar.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar
kl. 10–12, ýmis konar fyrirlestrar. Allt-
af heitt á könnunni, djús og brauð fyr-
ir börnin. Kirkjukrakkar í Húsaskóla
kl. 17.30–18.30, fyrir 7–9 ára. Kirkju-
krakkar í Grafarvogskirkju kl. 17.30–
18.30 fyrir 7–9 ára.
Grensáskirkja | Hversdagsmessa kl.
19–19.45, Þorvaldur Halldórsson leið-
ir söng. Altarisganga. Létt og
skemmtileg samvera. Allir velkomnir.
Háteigskirkja | Foreldramorgunn kl.
10. Fræðsla að þessu sinni verður um
"Tvítyngi og málþroska barna".
Hjallakirkja | Kirkjuprakkarar, 7–9
ára starf, er kl. 16.30–17.30. Opið hús
kl. 12–14. Hádegisverður og sam-
verustund. Allir velkomnir.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUM
Holtavegi 28, kl. 20. "Sérkenni og
áherslur Mattheusarguðspjalls".
Gunnar J. Gunnarsson lektor sér um
efni og hugleiðingu. Kaffi. Allir karl-
menn eru velkomnir.
Laugarneskirkja | Kl. 12 Kyrrð-
arstund í hádegi. Orgelleikur í kirkj-
unni frá kl. 12–12.10. Að bænastund
lokinni, kl. 12.30, er léttur málsverður
í boði í safnaðarheimilinu. Kl. 15
Helgistund í umsjá sóknarprests í fé-
lagsmiðstöðinni að Dalbraut 18–20.
Kl. 17 Adrenalín gegn rasisma.
Neskirkja | Samtal um sorg kl. 12,
það er opinn vettvangur þeirra sem
glíma við sorg og missi og vilja vinna
úr áföllum sínum. Prestar Neskirkju
leiða fundina.
Samkomusalur Sjálfsbjargar | Lars
Kraggerud og Asbjörn Heggvik frá
Noregi verða gestir á samkomu hjá
Reykjavíkurkirkjunni, í Hátúni 12,
gengið inn að vestanverðu. Fjallað
verður um náðina og kærleika Guðs.
Boðið verður upp á fyrirbæn.
Selfosskirkja | Fundur í Æskulýðs-
félagi Selfosskirkju kl. 19.30.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
SVÍINN Lars Karlson og
Norðmaðurinn Øivind Farmen
eru þekktir og margverðlaun-
aðir harmonikkuleikarar sem
eru komnir hingað til lands í
tilefni af 20 ára afmæli Harm-
onikkufélags Reykjavíkur.
Þeir munu spila í Salnum í
Kópavogi í kvöld, fimmtudags-
kvöld, kl. 20. Á dagskránni
verða verk hvaðanæva. Einnig
munu þeir félagar leika fyrir
dansi í Húnabúð föstudags-
kvöldið 3. mars kl. 22.
Harmonikkuleikararnir eru
báðir rúmlega þrítugir og eru
vel þekktir hvor í sínu heima-
landi fyrir tónlistarflutning
sinn. Þeir hafa komið fram í
sjónvarpsþáttum og með ýms-
um öðrum tónlistarmönnum.
Þá kenna þeir báðir harm-
onikkuleik. Þeir hafa ferðast
vítt og breitt með tónlist sína
og komið fram á hátíðum um
allan heim, t.a.m. í Bandaríkj-
unum. Tónleikarnir eru liður í
framsókn Harmonikkufélags
Reykjavíkur sem hefur haft
það að markmiði allt frá stofn-
un þann 14. júní árið 1986 að
auka veg og virðingu harm-
onikkutónlistar hér á landi
með kennslu, tónleikahaldi og
útgáfu.
Tónlist | Harm-
onikkan í hávegum
höfð í Salnum
Morgunblaðið/ÞÖK
Norræn
harmon-
ikkusveifla
ÞETTA er önnur ljóðabók höf-
undar, áður kom út Endurfundir
árið 1992. Þessi bók er mikil að
vöxtum og efninu er skipað niður í
sex undirkafla. Helstu kostir ljóða
Þorgeirs er hversu hrein og bein
þau eru. Hann slær ekki um sig
með orðum en treystir á hina ein-
lægu og íhugulu rödd ljóðsins.
Ljóðin einkennast af lífsreynslu
skáldsins sem lítur yfir farinn veg
og varpar ljósi á liðin atvik, en
einnig má greina heilmikla við-
leitni til sjálfskoðunar í bókinni.
Hún geymir vangaveltur þess um
ýmsar áleitnar spurningar sem
leita á hugann þegar árunum
fjölgar á borð við: hver er ég,
hvaðan kem ég og hvert stefni ég?
Fyrsti hluti Dagsformsins
fjallar um liðna tíð, skáldið snýr
aftur á æskuslóðirnar og minning-
arnar vakna til lífsins, uppvöxtur,
skólaganga, fjölskyldan er hér á
meðal yrkisefna.
Gamli bærinn undir heiðinni er
heimsóttur eins og frá greinir í
ljóðinu Heimsókn. Þar er lýst öku-
ferð eftir vegarslóða „í flasið á
minningunum/lífsgleðinni, sorg-
inni/sem laust niður,/horfist í augu
við örlögin, sjálfan þig/undan því
verður ekki vikist“. Víða kemst
Þorgeir hnyttilega að orði þegar
hann rifjar upp sögu ættarinnar,
dregur upp hlýlega mynd af ömm-
unni sem trúði á álfa og vissi sínu
viti en þurfti að bregða búi og
flytja niður í sveit þegar hún
missti manninn sinn á miðjum
aldri og naut sín aldrei til fulls
eftir það. En þarna er líka að
finna sárari atvik
t.a.m. þegar bróðir hans „óvit-
inn“ fór sér að voða.
Næm náttúrskynjun einkennir
mörg ljóð bókarinnar. Oft verða
fuglar yrkisefni og tengist það
vitaskuld íslenskri náttúru, hver
kannast ekki við álftir og óðins-
hana á heiðavötnum, stelkinn og
spóann í mýrum og móum. En
einnig er ort um jurtir, læki og
fossa. Skáldið finnur til samsöm-
unar með náttúrunni um leið og
það nýtur gjafa hennar. Af þess-
um toga eru ljóðin Þrjú tré, Far-
fugl og Steinninn. Samlíkingarnar
liggja reyndar ekki alltaf í augum
uppi eins og við steininn en það er
auðskilið þegar mönnum er líkt
við tré eða farfugl. Síðastnefnda
líkingin liggur reyndar í augum
uppi varðandi höfundinn sem hef-
ur starfað lengi sem læknir í út-
löndum, hann á engra kosta völ
samanber eftirfarandi línur úr
ljóðinu Farfugl: „en farfuglinn í
mér/á ekkert val,/að fara eða/
farast.“ En bestu ljóðin eru þau
sem eru ekki öll sem þau eru séð
og hafa víðari skírskotun en svo
að merking þeirra verði úrskýrð í
fljótu bragði. Það gildir um ljóð-
perlurnar Undir ásnum þar sem
lýst er helgistund er vatnaliljan
kemur upp til að anda, Ég hlusta
þar sem lýst er fjallalæk sem
steypist fram af klettabrún og
rennur út í sandinn og síðast en
ekki síst um örstutt ljóð sem nefn-
ist Í kvöldsvalanum og hljóðar
svo:
Ég hef gengið um lundinn
hring eftir hring
og ekki náð áttum,
en halla mér síðla dags
upp að skilningstrénu,
er sem mér heyrist
fótatak í kvöldsvalanum.
Dagsformið er efnismikil ljóða-
bók og ekki hægt að gera henni
viðhlítandi skil í stuttum blaða-
dómi. En nefna má að þrátt fyrir
nokkurn alvöruþunga að öllu jöfnu
þá bregður höfundur stundum
skemmtilega á leik, til dæmis í
ljóðinu Dáðadrengur sem er eins-
konar tilbrigði við „Það mælti mín
móðir“ eftir sjálfan Egil Skalla-
grímsson, fyrsta nútímaskáld Ís-
lendinga. Hér er ekki ort um fley
og fagrar árar heldur útrás og
fjárfesta sem baða sig í kastljósi
og finna gráa fiðringinn.
Dagsformið er vel heppnuð bók
og ræður þar mestu um að ljóðin
eru ort af þörf og einlægni, skáld-
ið kemur til dyranna eins og það
er klætt. Þorgeir setur sig ekki í
neinar stellingar og eltir enga
tískustrauma, stundum finnst
reyndar ritdómara að meiri tilþrif
mætti sýna og e.t.v. er bókin í
lengra lagi. Það hefði mátt fella
einhver ljóð brott án þess að verk-
ið sakaði. En á heildina litið er hér
áhugaverð ljóðabók á ferð. Í bestu
ljóðum sínum sýnir skáldið að það
er vel fært um að koma hugsun
sinni til skila í meitluðu ljóði.
Að koma til dyranna eins
og maður er klæddur
BÆKUR
Ljóð
eftir Þorgeir Þorgeirsson. 172 bls. Kjölur
2005
Dagsformið
Guðbjörn Sigurmundsson