Morgunblaðið - 02.03.2006, Síða 54

Morgunblaðið - 02.03.2006, Síða 54
54 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ Óþekkustu börn í heimi hafa fengið nýja barnfóstru sem er ekki öll þar sem hún er séð. VELJIÐ HÉR AÐ NEÐAN KVIKMYNDAHÚS OG SÝNINGARTÍMA SEM  DÖJ – kvikmyndir.com  VJV Topp5.is 6 Margverðlaunuð gæðamynd frá leikstjóranum George Clooney sem hlotið hefur einróma lof gagnrýnenda um allan heim. FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! SEXÍ, STÓRHÆTTULEG OG ÓSTÖÐVANDI Sími - 564 0000Sími - 462 3500 Nýt t í b íó Óþekkustu börn í heimi hafa fengið nýja barnfóstru sem er ekki öll þar sem hún er séð. CONSTANT GARDENER kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 16 ÁRA NANNY MCPHEE kl. 3.40 og 5.50 UNDERWORLD kl. 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA ZATHURA M / ÍSL TALI kl. 3.40 og 5.50 B.I. 10 ÁRA ZATHURA M /ENSKU TALI kl. 5.50 B.I. 10 ÁRA WALK THE LINE kl. 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA WALK THE LINE LÚXUS kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA FUN WITH DICK AND JANE kl. 3.40 og 10.10 10 BAFTA tilnefningar 4 Óskarstilnenfingar 3 Golden Globe Tilnefningar  V.J.V. / TOPP5.is YFIRVOFANDI HÆTTA OG SAMSÆRI LÍF OKKAR ER Í HÖNDUM TVEGGJA EINSTAKLINGA RALPH FIENNES RACHEL WEISZ „…listaverk, sannkölluð perla“ DÖJ – kvikmyndir.com THE CONSTANT GARDENER kl. 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA NANNY McPHEE kl. 6 UNDERWORLD 2 SÍÐASTA SÝNING kl. 8 B.I. 16 ÁRA FINAL DESTINATION 3 SÍÐASTA SÝNING kl. 10 B.I. 16 ÁRA ZATHURA M / ÍSL TALI kl. 6 B.I. 10 ÁRA     „..ótrúlega áhrifarík, minnisstæð og örgrandi kvikmyndagerð.“ L.I.B. - topp5.is HJ MBL Stórkostleg verðlaunamynd BESTI LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI SVAKALEGUR SPENNUTRYLLIR 400 KR. Í BÍÓ * VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI TÖFRANDI ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI TÖFRANDI ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Byggð á sönnum atburðum „Stjörnuleikur Hoffman er burðarás magnaðs byrjendaverks um sannsögulega siðferðislega togstreitu rithöfundar“ G.E. NFS Blaðið ”Tregafull ástarsaga tvinnuð hálfgegnsærri spennusögu í stórbrotnu umhverfi andstæðna í Kenya”. G.E. NFS Ein besta mynd ársins. Frá leikstjóra City of God eftir metsölubók John Le Carré „... ástarsaga eins og þær gerast bestar - hreinskilin, margbrotin og tilfinningarík...“  L.I.B. - Topp5.is Stafrænar ljósmyndir hafabreytt því hvernig fólk tekurmyndir. Aukinn aðgangur að ódýrum og meðfærilegum myndavélum, sem nú eru líka inn- byggðar í farsíma, hefur gert það að verkum að fólk sem áður hefur varla snert myndavélar safnar hundruðum ef ekki þúsundum mynda á sífellt stækkandi harða diska. Þeir sem yngri eru hafa hvað mest notfært sér þetta og eru heimasíður fullar af myndum af vinum við ýmis merkileg og ómerkileg tækifæri.    Ein tegund mynda hefur öðlasthvað mestar vinsældir en það er sjálfsmyndin. Með sjálfsmynd er hægt að horfast í augu við sjálfan sig og velta fyrir sér ýmsum ímyndum. Sumir eru viðkvæmir fyrir myndum af sjálfum sér og er því góð lausn að taka myndina sjálfur, stjórna því hvernig maður lítur út og henda myndunum sem standast ekki kröfunar. Þetta sést á síðum á vinsæla vef- setrinu MySpace en margir taka myndirnar af sér sjálfir. Vinsælt er að taka myndina að ofan með því sem má kalla þyrluskot. Flestum finnst þetta skot vera myndvænt, augun stækka og kjálkalínan verð- ur skýrari.    Á vefsíðunni www.c71123.com/daily_photo má finna myndir sem maður að nafni Jonathan Kell- er hefur tekið daglega frá 1998 með einu stuttu hléi. Þetta eru ekki spennandi myndir hver fyrir sig, hann reynir ekki að fegra sig á nokkurn hátt, brosir ekki, klæðist iðulega sömu fötunum, eða jafnvel engum, og tekur myndina beint á andlitið. Það sem er heillandi er að sjá hvernig hann breytist á löngum tíma, að skoða myndirnar allar saman. Verkefnið byrjaði á því að hann keypti stafræna myndavél sem var nokkuð dýr. Kærastan efaðist um fjárfestinguna og spurði hvað hann ætlaði að gera við hana, hvort hann myndi í alvöru nota hana á hverjum degi. Hann gerði það ald- eilis en það sem gerir honum og svo mörgum öðrum kleift að taka sjálfsmyndir er snúanlegur LCD- skjár sem sýnir vel hvaða mynd er verið að ramma inn. Breytingarnar eru að sjálfsögðu ekki miklar á Jonathan frá degi til dags en efst er hægt að skoða í sjö myndum hvernig hann hefur greinilega breyst þessi síðustu ár. Hann ætlaði upphaflega að nota Polaroid-myndir en hætti við. Mun dýrara er að nota þær en að taka stafrænar myndir. Aðalsöguhetjan í Clueless hefði áreiðanlega tekið fleiri myndir ef hún hefði haft staf- ræna myndavel til taks. Eins og vonandi einhverjir muna tók hún myndir af sér í vel völdum al- klæðnaði en hún treysti mynd- unum umfram speglinum.    Listfræðingar segja að vinsældirsjálfsmyndarinnar séu nýtil- komnar í aldalangri sögu tækifær- ismyndarinnar. Guy Stricherz, höf- undur bókarinnar Americans in Kodachrome 1945–65, ræddi þetta fyrirbæri í nýlegri grein New York Times. Í bókinni eru myndir úr al- búmum 500 fjölskyldna og kemst Stricherz að því að sjálfs- myndataka sé ný tegund ljósmynd- unar. Hann skoðaði meira en 100.000 myndir á yfir 17 árum þegar hann leitaði efnis í bókina en fann færri en 100 sjálfsmyndir. Hann kemur líka fram með mik- ilvægan punkt um að tækniþróunin ein og sér geti ekki útskýrt vin- sældir sjálfsmyndanna. Þrátt fyrir tiltölulega ódýrar myndavélar á sjöunda áratugnum voru myndir frekar teknar við sérstök tækifæri. Að taka mynd af sjálfum sér var of mikil upphafning sjálfsins. Núna þykir ekkert rangt við það að upp- hefja sjálfan sig. Fólk er vissulega orðið ófeimn- ara við að láta taka mynd af sjálfu sér. Til marks um það er að á nýaf- staðinni Vetrarhátíð voru tveir dagskrárliðir tengdir myndatöku. Allir þeir sem mættu á heimsdag barna í Laugalækjarskóla gátu fengið myndatöku í stúdíói sem sett var upp í tilefni dagsins. Líka tóku ljósmyndanemar í samvinnu við ljósmyndarann Friðrik Örn tækifærismyndir af gestum í Ljós- myndasafni Reykjavíkur. Afrakst- urinn verður svo til sýnis á vef safnins þar sem hægt er að skoða margt fleira tengt ljósmyndun. Mynd af mér ’Með sjálfsmynd erhægt að horfast í auguvið sjálfan sig og velta fyrir sér ýmsum ímyndum.‘ Reuters Bobby og Sally Kimball eru á meðal þeirra sem ófeimnir eru að taka mynd- ir af sjálfum sér en hér eru þær á tónleikum Rolling Stones í Anaheim. ingarun@mbl.is AF LISTUM Inga Rún Sigurðardóttir Á DÖGUNUM kom út ný plata frá tónlistarmanninum Marlon Pollock en fyrir þá sem kannast við eft- irnafnið er Marlon einmitt sonur Michaels Pollock tónlistarmanns sem hefur verið viðloðandi íslenskt tónlistar- og menningarlíf um ára- bil, ásamt bróður sínum Danny. Platan sem kallast Apocalyptic Lullabys er að sögn Marlons eins konar elektró-hip hop-plata. „Þarna er að finna fjögur hip hop lög en restin, þrettán lög, eru elektró-skotin. Marlon sem kallar sig HuXun þegar tónlistin er annars vegar, segir að hann hafi fengið fjöl- marga til liðs við sig þegar hann vann að plötunni. Þar má meðal annars nefna Lúlla úr Rottweiler sem á heiðurinn af taktinum í laginu „Is this the beginning“, nokkur lög á plötunni gerði Marlon með mömmu sinni, Jóhönnu Hjálmtýs- dóttur, systur Diddúar og þá léði Tanya, frænka hans, rödd sína í tveimur lögum og Julia kærasta hans er þarna líka að finna í tveimur lögum. „Þetta er mjög fjöl- skylduvænn diskur,“ segir Marlon og kímir. Marlon segir að hann hafi byrjað snemma að grúska í tónlist en það var eftir að hann fékk fyrsta „se- quencer“-inn sinn, fimmtán ára gamall, sem hann færði sig út á elektróbrautina. „Ég var byrjaður að spila á hljómborð og píanó þegar ég var fimm ára og ég notaði meira að segja melódíu sem ég samdi þá á „ambíent“-diski sem kom út fyrir ári í takmörkuðu upplagi.“ En Marlon er ekki við eina fjölina felldur því að undanfarin ár hefur myndlistin orðið æ stærri hlutur í hans sköpun, þá aðallega teikningar og hann hefur meðal annars verið að vinna að þeim í London þar sem hann er nú búsettur. „Ég er að reyna að finna einhvern góðan skóla þarna úti en ég á mjög erfitt með að vera á sama stað lengi þannig að ég veit ekki hvernig það fer. Síðan við Tanya tókum þátt í Músíktilraunum fyrir fimm árum þá fóru hinir og þessir að bjóða okkur að spila. Okkur var boðið að koma til London að spila og þaðan fórum við til Bandaríkjanna. Ég kann mjög vel við það að vera á faralds- fæti og því skipulegg ég mig sjaldn- ast langt fram í tímann.“ Marlon segist ekki hyggja á frek- ara tónleikahald hér á landi til að fylgja eftir útgáfunni. „Ég er á förum aftur til London á næstu dögum þannig að ég ætla bara að skilja þennan disk eftir hérna heima fyrir þá sem hafa áhuga. Svo ætla ég að byrja að vinna hörðum höndum að elektró- smáskífu annars vegar og hip hop smáskífu hins vegar þegar ég kem út og þá ætla ég líka að reyna að finna einhverja sem eru til í að gefa tónlistina mína út.“ Hvenær er þá von á þér aftur heim? „Ég veit það ekki. Mig langar að koma heim í sumar því að ég held að það verði bæði gott og heitt – bæði veðurfarslega og tónlistarlega séð. Þá ætla ég líka að halda myndlist- arsýningu.“ Fyrir áhugasama er hægt að kaupa teikningar eftir Mar- lon í Nakta apanum og 12 Tónum en þar og í Þrumunni er líka hægt að fá plötuna. Einnig má geta þess að á síðu Marlons á Myspace er hægt að fá smjörþefinn af tónlistinni sem hann er að vinna að. Tónlist | Marlon Pollock gefur út plötuna Apocalyptic Lullabys Rótlaus HuXun Morgunblaðið/Brynjar Gauti Marlon Pollock. Að baki honum má sjá eina af teikningum listamannsins. Eftir Höskuld Ólafsson hoskuldur@mbl.is www.myspace.com/crispwhiskers

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.