Morgunblaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 190 . TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 21Km 42Km Km10 Km3 MARAÞON REYKJAVÍKUR GL 19. Aðþrengdir Austurríkismenn Listhópurinn Gelitin með sýn- inguna Hugris í Kling og Bang | 26 Lesbók | Umhverfið og áróðurstækin  Orkuveituauglýsingin Börn | Verðlaunaleikur vikunnar  Sveitasagan Íþróttir | Lið 10. umferðar  Landsliðið ætlar í milliriðla Lesbók, Börn og Íþróttir Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is UMSKIPTI hafa orðið í rekstri fiskvinnslunnar að undanförnu og afkoman batnað umtalsvert með veikingu krónunnar, auk þess sem verð á fiskafurðum í erlendri mynt hefur haldist hátt. „Það sem hefur gerst á þessu ári, eftir að krónan gaf eftir, er að það hefur orðið veruleg afkomu- breyting í útflutningsgreinunum, þar með talið í sjávarútvegi,“ seg- ir Arnar Sigurmundsson, formað- ur Samtaka fiskvinnslustöðva. Arnar bendir á að margir kostnaðarliðir hafi hækkað sam- hliða þessari þróun en tekjur fyr- irtækjanna hafi aukist í takt við veikingu krónunnar. „Gengis- lækkunin hefur skilað sér í aukn- um tekjum og það hefur bætt af- komu greinarinnar umtalsvert, enda var svo komið áður en til þessa kom, að nokkur fyrirtæki höfðu einfaldlega gefist upp eða dregið saman í rekstri,“ segir Arnar. Bar mest á því í rækju- vinnslunni sem á eftir sem áður í erfiðleikum en fyrirtæki í öðrum vinnslugreinum bera sig mikið betur. Forsenda þess að hægt var að hækka kauptaxta „Það er líka alveg ljóst að sam- komulagið sem gert var um breytingar á kauptölum kjara- samninga hefði aldrei verið mögulegt nema vegna þessara breytinga, sem orðið hafa á gengi krónunnar,“ segir hann og bendir á að launakostnaður í fiskvinnslu hækki að meðaltali um 10% vegna þeirra breytinga sem kveðið er á um í nýgerðu samkomulagi um hækkun á kauptöxtum kjara- samninga frá 1. júlí. „Auðvitað fylgja verðbólgu- áhrif lækkun á gengi krónunnar en þau áhrif voru komin fram að nokkru leyti áður. Staða krón- unnar núna er eins og við vorum að gera okkur vonir um að myndi eiga sér stað síðar á árinu. Þetta kom skyndilega fram og þar var það markaðurinn sjálfur sem felldi krónuna en ekki var um neinar stjórnvaldsaðgerðir að ræða, sem stafar af þeim breyt- ingum sem orðið hafa í hagkerf- inu á undanförnum árum. Við þetta bætist svo að verðþróun í erlendri mynt hefur verið mjög hagstæð í langan tíma,“ segir Arnar. Hann segir útlitið þokkalegt í fiskvinnslunni. Að vísu hafi sá afli sem komið hafi á land það sem af er árinu minnkað. Verðið sé til- tölulega mjög gott í erlendri mynt og skilaverðið í íslenskum krón- um hátt sem einnig bæti tekjur sjómanna sem hafi orðið fyrir verulegri tekjuskerðingu líkt og fyrirtækin. „Það hefur því orðið mikil og tímabær breyting.“ Gengislækkun skilar fiskvinnslunni auknum tekjum Afkoman hefur batnað umtalsvert HASSAN Nasrallah, leiðtogi Hizbol- lah-samtakanna, lýsti í gær yfir stríði við Ísrael í sjónvarpsávarpi sem var sjónvarpað stuttu eftir að Ísraelsmenn höfðu gert árásir á skrifstofur samtakanna í Beirút. „Þið vilduð opið stríð og við erum tilbúin í opið stríð,“ sagði Nasrallah m.a. í ávarpi sínu. Hann hét því að farið yrði í stríðið á öllum stigum og að m.a. yrði ráðist á ísraelsku strandborgina Haifa. Átökin milli Ísraela og Hizbollah- hreyfingarinnar héldu áfram í gær en þau spruttu upp í kjölfar þess að Hizbollah tók til fanga tvo ísraelska hermenn og myrti átta í N-Ísrael á miðvikudag. Ísraelsku hermennirnir eru enn í haldi. Ísraelar hafa brugð- ist við með hernaðaraðgerðum sem hafa kostað 66 Líbana lífið á und- anförnum dögum. Hizbollah-hreyf- ingin hefur svarað með eldflauga- árásum á Norður-Ísrael og skaut yfir 70 eldflaugum í gær. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, lýsti því yfir að Ísraelar væru tilbúnir að láta af hernaðarað- gerðum sínum gegn Líbanon að þremur skilyrðum uppfylltum; að föngunum tveimur verði sleppt, sam- tökin hætti árásum sínum á Ísrael og að líbanska stjórnin fari að ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að afvopna skuli Hizbollah-sam- tökin. Olíuverð hefur hækkað í kjölfar átakanna og verð á olíutunnu fór um tíma yfir 78 dollara í New York og London í gær en algengasta verð var rúmlega 77 dollarar. Spennan vegna kjarnorkuáætlun- ar Írana hefur einnig áhrif á olíuverð og hefur AFP-fréttastofan eftir sér- fræðingum að olíuverð muni fara yfir 80 dollara og að einhverjir spái því jafnvel að verðið fari yfir 100 dollara. Utanríkisráðuneytið veit af tíu Ís- lendingum sem staddir eru í Líb- anon og hefur verið samið við Norð- menn að flytja þá úr landinu komi til þess að norsk yfirvöld ákveði að flytja norska ríkisborgara þaðan. Ehud Olmert setur skilyrði fyrir því að Ísrael láti af hernaðaraðgerðum í Líbanon Leiðtogi Hizbollah segir Ísraelum stríð á hendur Reuters Ísraelsmenn héldu áfram árásum á Líbanon í gær. Hér er flugskeyti skotið að Zahrani-brúnni í Suður-Líbanon í gær. Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is  Ísraelar hóta | 16 ANDINN á vinnustað verður mun betri ef stjórnandinn hefur gott skop- skyn, en allt of fáir stjórnendur leggja áherslu á húmor, að því er fram kemur í danska blaðinu Børsen. Húmor og glaðlyndi á vinnustað þýðir ánægðara starfsfólk, ánægðari viðskiptavini, færri veikindadaga og starfsfólk skiptir síður um vinnu. Vitnað er í samskiptaráðgjaf- ann Karen-Marie Lillelund, sem hefur nýlega skrifað bók um mik- ilvægi þess að stjórnendur séu glaðlyndir. Segir hún að gott skopskyn og léttlyndi hjá stjórn- endum skili sér niður til hinna lægra settu á vinnustaðnum og líka til viðskiptavina. Hún sé ekki að tala um að menn þurfi að reyta af sér fjölda brandara sem framkalli ofsahlátur heldur sé nóg að fá fólk til að brosa dálítið annað slagið, rétt til að brjóta upp hversdaginn. Lillelund segir allt of litla áherslu lagða á húmor í menntun stjórnenda. „Stjórnendum er sagt að þeir eigi að vera alvarlegir og hafa ákveðinn myndugleika til að bera, eiginleikinn skopskyn er allt of lágt metinn,“ segir hún. Skopskyn mikilvægt hjá stjórnendum JUVENTUS, Lazio og Fiorentina voru í gær dæmd niður í 2. deild eft- ir að rannsóknarnefnd hafði fundið félögin sek um að hafa með ólögleg- um hætti haft áhrif á úr- slit leikja í ítölsku deild- arkeppninni í knatt- spyrnu. Fjórða liðið sem sætti ákæru, AC Milan, slapp við að verða dæmt niður um deild. Hins vegar hefur öllum liðunum verið meinað að taka þátt í Evrópukeppni á næsta tímabili. For- ráðamenn liðanna ætla að áfrýja málinu til dóm- stóla. Auk þess að vera dæmt niður um deild hefur Juventus verið svipt ítalska meistaratitlinum sem liðið hafði unnið sér inn síðustu tvö ár. Lið- inu er einnig gert að hefja næsta leiktímabil í 2. deild með 30 stig í mínus en 12 stig voru dregin af Fiorentina og sjö af Lazio. AC Milan mun hefja leik í 1. deildinni með mínus 15 stig. Áfall fyrir ítalska knattspyrnu Þetta er mikill áfellisdómur yfir ítalskri knatt- spyrnu en aðeins sex dagar eru liðnir frá því að Ítalir urðu heimsmeistarar í knattspyrnu. Má segja að sigurvíman hafi runnið fljótt af mörg- um Ítölum eftir tíðindi gærdagsins. | Íþróttir Ítölsku meist- ararnir dæmdir niður um deild

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.