Morgunblaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Við lifum á Rembrandtsári ogþess víða minnst, ekki sístHollandi, að í dag munu ná-
kvæmlega 400 ár liðin frá fæðingu
hins mikla málara.
Rembrandt Harmenz van Rijn,
fæddist í Leidenen, starfaði allt sitt
líf í Amsterdam, lést þar í hárri elli á
þeirra tíma mælikvarða þótt ekki
yrði hann nema 63 ára. Þessi stór-
meistari ljóss og skugga í málverki
var einnig einstakur og afkastamik-
ill teiknari og málmætingar hans
með því frábærasta sem gert hefur
verið í þeirri grein. Lengi var álitið
að Rembrandt hafi látið eftir sig
meira en 2000 myndverk, þar af um
500 málverk, 300 málmætingar og
1500 teikningar, en seinni tíma
rannsóknir hafa lækkað tölu mál-
verkanna umtalsvert og eignað
nemendum hans nokkurn hluta
þeirra. Á þessum tímum verkstæð-
anna var algengt að meistararnir
árituðu málverk lærlinganna til að
betur gengi að koma þeim í verð og
nemendur Rembrandts voru hver
öðrum snjallari málarar þótt ekki
næðu þeir hæðum hans.
Fram á næsta ár eru í gangi sýn-ingar á hinum ýmsu tímabilum
og hliðum listamannsins aðallega
Evrópu, að sjálfsögðu veglegastar í
heimalandinu. Heilar sex í Amst-
erdam, þar af fimm í Ríkislistasafn-
Rembrandt van
Rijn (1606–1669)
Hlutföll ljóss og skugga í sjálfs-
myndinni eru 1/8 á móti 7/8.
AF LISTUM
Bragi Ásgeirsson
HÁTÍÐIN Listasumar á Akureyri
stendur nú yfir í 14. sinn, en hún
fór af stað eftir síðustu Jónsmessu.
Um er að ræða árlega 10 vikna
langa dagskrá með ýmsum list-
viðburðum sem endar á Akureyr-
arvöku 26. ágúst. Um þessar mund-
ir standa yfir Norræna
menningarhátíðin og Alþjóðlega
Döff-leiklistarhátíðin
Viðburðir á döfinni
Í næstu viku verður djassinum
gert hátt undir höfði en þá fer fram
Django Jazz hátíð á Akureyri dag-
ana 19.–22. júlí. Fyrstu tónleikarnir
eru á miðvikudegi kl. 21.30 en þá
leikur sígaunagítarsnillingurinn
Paulus Schäffer frá Hollandi ásamt
Kevin Nolan og Simon Planting úr
Robin Nolan Trio og ungum djass-
fiðlara, Aaron Weinstein. Auk þess
munu á hátíðinni spila Robin Nolan
Trio, Tríó Björns Thoroddsens,
Hrafnaspark og Andreas Öberg.
Lokahátíðin fer fram í Sjallanum
laugardaginn 22. júlí kl. 21.30.
Auk Django Jazz hátíðarinnar
verður heilmargt í boði dagana
helgina 21. til 23. júlí í nágrenni
Akureyrar. Skemmtunin Fullveld-
ishátíð í Hrísey verður umrædda
þrjá daga en hún hefur verið að
ryðja sér til rúms undanfarin ár. Þá
segja Hríseyingar sig úr lögum við
lýðveldið Ísland og bjóða alla vel-
komna í annað land. Hátíðin er fjöl-
skylduskemmtun, en undanfarin ár
hafa um 2000 manns heimsótt eyna,
sem kölluð er perla Eyjafjarðar.
Einnig verða miðaldadagar á
Gásum í Hörgárbyggð frá 10–16
laugardaginn 22. og sunnudaginn
23. júlí. Þar geta gestir skroppið
aftur í tímann og kynnst starfs-
háttum og menningu síðmiðalda. Á
svæðinu verða miðaldafræðingar
frá Danmörku ásamt íslenskum
áhugamönnum. Boðið er upp á leiki
auk þess sem teymt er undir hesta
fyrir unga fólkið. Einnig verður
markaður og bardagamenn ásamt
fræðslu. Aðgangur er ókeypis.
Myndlistarsýningar og
annars konar sýningar
Bæjarlistamaður Akureyrar, Jor-
is Rademaker, sýnir verk sín í
DaLí galleríinu sem opnað var fyrir
skemmstu. Sýningin stendur til 26.
ágúst. Hann er einnig með sýn-
inguna „Smooth Lines“ á Café Kar-
ólínu til 6. október og Guðrún Pál-
ína sýnir á sama stað til 4. ágúst.
Einnig stendur yfir sýning um
ævi og störf sr. Jónasar Jónassonar
frá Hrafnagili í Amtsbókasafninu til
31. ágúst og yfirlitssýning með
verkum Louisu Matthíasdóttur í
Listasafninu á Akureyri til 20.
ágúst. Í Minjasafninu er sýning til
15. september sem ber titilinn „Ef
þú giftist“. Stefán Jónsson sýnir
skúlptúra í hvelfingunni í Lax-
árstöð í sumar en sýningin er opin
alla eftirmiðdaga. Í galleríi BOX er
samsýning Finns Arnars, Þórarins
Blöndal og Jóns Garðars uppi til
28. júlí, en eftir það mun gestalista-
maður Akureyrarbæjar Anne
Törmä sýna verk sín.
Gamli bærinn í Laufási verður
með ýmiss konar starfsemi í allt
sumar. Þar verða kvöldvökur flest
öll fimmtudagskvöld um ýmis þjóð-
leg efni s.s. skúfhólka, útskurð,
hreinlæti, ljós og myrkur áður fyrr.
Einnig er boðað til heyanna sunnu-
daginn 16. júlí kl. 13.30 og boðið
upp á síðdegiskaffi frá 14–17
sunnudagana 30. júlí og 20. ágúst.
Sérstakur markaðsdagur verður
mánudaginn 7. ágúst kl. 13.30–16.
Fastir liðir eins og venjulega
Á dagskrá listasumars eru fastir
liðir að vanda, líkt og „Heitir
Fjölbreytt Lista-
sumar á Akureyri
Á Gásum verða sérstakir miðaldadagar 22. - 23. júlí.
Alþjóðlegt
orgelsumar í
Hallgrímskirkju
15. júlí kl. 12.00:
Ji-Youn Han, orgel.
16. júlí kl. 20.00:
Ji-Youn Han frá Kóreu
leikur verk eftir
Bach, Mozart, Duruflé og Reubke.
SJÁLFSTÆÐU
LEIKHÚSIN
Tjarnarbíó
Sími 561 0250
Sun. 16/7 Kl. 20:30
This Side Up
– Singapore
Miðaverð 2.000
www.leikhopar.is
Sixties
í kvöld
Stór og fjölbreyttur sérréttaseðill öll kvöld vikunnar.
www.kringlukrain.is Sími 568 0878
Mr. Skallagrímsson
- leiksýning í Borgarnesi
MIÐAPANTANIR
Í SÍMA 437 1600
Höfundur/leikari: Benedikt Erlingsson
Leikstjóri: Peter Engkvist
Leikhústilboð. frá kr. 4000 - 4800
Matur, leiksýning og frítt í Hvalfjarðargöngin
til baka. í boði Landnámsseturs
Lau. 15. júlí kl. 20 uppselt
Sun. 16. júlí kl. 15 aukasýning
Sun. 16. júlí kl. 20 örfá sæti
Fös. 21. júlí kl. 20 örfá sæti
Lau. 22. júlí kl. 20 örfá sæti
Sun. 23. júlí kl. 20 örfá sæti
Fös. 28. júlí kl. 20
Lau. 29. júlí kl. 20
Sun. 30. júlí kl.20
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
Laugarnestanga 70, 105 Rvík.
www.lso.is - lso@lso.is
Aukatónleikar
Sunnudaginn 16. júlí. kl. 20.30
Kammerverk eftir Bohuslav
Martinu í flutningi Freys
Sigurjónssonar (flauta),
Hlífar Sigurjónsdóttur (fiðla),
Iwona og Jersey Andrzejczak
(lágfiðla og selló) og
Önnu Áslaugar Ragnarsdóttur
(píanó).
Á þriðjudagstónleikum 18. júlí
syngur Þorbjörn Björnsson við
meðleik Jan Czajkowski
píanóleikara.